Morgunblaðið - 17.01.2007, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 17.01.2007, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ THE PRESTIGE kl. 6 - 9 - 10:20 B.i. 12 ára KÖLD SLÓÐ kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára CHILDREN OF MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16 ára THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 B.i. 7 ára DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is EKKI MIS SA AF ÞESSA RI! HUGHJACKMAN CHRISTIANBALE SCARLETTJOHANSSON MICHAELCAINE FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA FRÁ LEIKSTJÓRA BATMAN BEGINS OG MEMENTO MÖGNUÐ OG TÖFRANDI SPENNA SEM HELDUR ÞÉR Í HELJARGREIPUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓIeeeeeBAGGALÚTUR.IS SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI / KEFLAVÍK THE PRESTIGE kl. 8 - 10:30 B.I. 16 EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 8 LEYFÐ STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 B.i. 7 / AKUREYRI THE PRESTIGE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 THE CHILDREN OF MEN kl. 8 - 10:20 B.i. 16 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is Góða skemmtun! Þeir sem greiða með VISA kreditkorti fá tvo miða á verði eins í SAMbíóin og Háskólabíó á miðvikudögum í janúar Munið VISA tilboðið á miðvikudögum í janúar Kynnið ykkur myndir, sýningar- tíma og fleira á * GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRU TILBOÐUM, EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG EKKI Í VIP * SAMbio.is SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI MARTIN SCORSESE BESTI LEIKSTJÓRINN Missið ekki af KK og Einari Kárasyni UM þessar mundir flytja Einar Kárason og KK myndir úr við- burðaríkri ævi þess síðarnefnda í tali og tónum í Landnámssetrinu í Borg- arnesi. Þar er brugðið ljósi á æv- intýranlegt líf fjölskyldu KK í Kali- forníu og á feril hans sjálfs á einkar skemmtilegan hátt. Einar hefur sér- stakt lag á að fá sýningargesti til að lifa sig inn í frásögnina og Kristján bætir sínum gípandi ballöðum inn í þar sem við á. Loft Landnámssetursins er eins og skapað fyrir þessa sýningu, og reyndar kemur öll aðstaða og þjón- usta þægilega á óvart. Miðað við að allur þorri landsmanna hafi gaman af frásagnalist og tónlist þeirra fé- laganna hvet ég fólk til að grípa gæsina meðan hún gefst. Eftir því sem næst verður komist verður hún flogin í febrúar. Jón Baldur Þorbjörnsson. Hverja eigum við að kjósa? ÉG er orðin öldruð og mér er spurn: hverja við eigum að kjósa. Ég hef orðið vör við það að síðustu 4 mánuði fyrir kosningar erum við til. Þá vilja allir koma sér vel við okkur. Mér dettur til hugar grein eftir Ólaf fyrrv. landlækni „Ráð skal fá hjá reyndum vin“ en sú grein birtist í Morgunblaðinu 13. jan sl. á bls. 28. Þar segir hann: „Fyrir jól greiddu 29 af 61 viðstöddum þingmönnum já- yrði við verulegum úrbótum á hag aldraðra“. En þetta voru aðeins 29 af 61. Þess vegna spyr ég: Hverja eig- um við aldraðir að kjósa? Eldri borgari. Góðverk gerast enn ÉG var að keyra Brúnaveg sem ligg- ur upp hjá DAS og þar er gangbraut yfir á móts við Austurbrún og DAS. Þar var frakkaklæddur maður að moka snjóruðningana í burtu til þess að gamla fólkið kæmist þarna yfir. Þetta var ekki borgarstarfsmaður heldur einhver sem var að greiða götu aldraðra. Jón. Tökum upp dollar Ég vil hvetja Íslendinga til að taka upp dollar eins og Kanadamenn og Panamamenn og fleiri munu hafa gert í staðinn fyrir að fórna sjálf- stæðinu fyrir evruna. Svo finnst mér ferlegt að sjá hvað hestamenn hirða hrossin sín illa, því þau sjá ekki út úr augunum fyrir faxi. Gömul sveitakona. Gleraugu í óskilum GLERAUGU fundust á Hagamel sl. sunnudag. Upplýsingar í síma 561 2942. iPod í óskilum iPod fannst í hverfi 104 fimmtudags- kvöldið 11. janúar sl. Uppl. í síma 868 9495 Lopapeysa GARÐAPRJÓNUÐ lopapeysa fannst nálægt Aflagranda 20. des- ember sl. Uppl. í síma 552 5041. Kettlingur óskast Óska eftir litlum sætum högna, ca. 8 vikna á gott heimili. Upplýsingar hjá Betu í síma 551 0785 eftir kl. 18. Púnsi er týndur PÚNSI á heima á Mánabraut 19 í Kópavogi. Hann hefur ekki komið heim síðan laugard. 13. janúar sl. Púnsi er hvítur með svört eyru og svarta rófu og nokkra svarta bletti. Hann er að verða 2ja ára, er langur, og grannur og háfættur. Hann er með svarta hálsól með tveimur bjöll- um, lítilli gylltri og stærri blá- grænni, en ekki merkispjald. Hann er eyrnamerktur 05-F-46. Púnsi er nokkuð hræddur við ókunnuga. Þeir sem hafa orðið hans varir og geta gefið upplýsingar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Guðrúnu eða Dagvin í síma 554 2431 eða 846 4242. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þegar snjóar breyt-ist umferðin á götunum og eðlilega hægir á henni. Einu gleyma bílstjórar hins vegar iðulega og það er að gæta þess að hæfi- lega langt sé í næsta bíl. Hvað eftir annað aka bílstjórar nánast upp við stuðarann á næsta bíl og láta einu gilda þótt útilokað sé að þeir geti brugðist við þurfi bíllinn á und- an að snögghemla. Auk þess er fátt óþægilegra en að sjá í baksýnis- speglinum bíl, sem er kominn upp að afturstuðaranum. Þegar Víkverji tók bílpróf átti að læra lítið kver sem var uppfullt af upplýsingum, sem þóttu blasa við. Sat eftir orðalagið að ökumanni bæri að gæta þess að hann gæti numið staðar „á þriðjungi þeirrar vega- lengdar, sem auð er og hindr- unarlaus framundan“. x x x Lítil áhersla er lögð á að fara eftirþessu í umferðinni á Íslandi og sennilega myndi sá sem það gerði uppskera reiðileg tillit, háðsglósur og flaut. Víða annars staðar þykir þetta hins vegar alvörumál og lögð er áhersla á að minna ökumenn á að aka ekki of nálægt næstu bif- reið. Á hraðbrautum í Frakklandi eru til dæmis reglulega merk- ingar á veginum, sem sýna hvað langt eigi að vera í næsta ökutæki. Ástæðan er augljós. Eftir því sem lengra er í næsta bíl er auðveld- ara að bregðast við ef bílstjóra hans hlekkist á. x x x Það sama á við ísnjónum á Íslandi. Vilji ökumenn hafa svigrúm til að bregðast við þurfa þeir að gæta þess að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá næsta bíl. Ef það er ekki gert er hætt við aftanákeyrslu, ekki síst þegar hálka er á vegum. x x x Sömu sögu má reyndar segja umframúrakstur. Margir kannast við það að bíl, sem ekið er fram úr, sé svínað inn á akreinina beint fyrir framan þá þótt nóg pláss sé á veg- inum. Einföld regla er að beygja ekki fyrir þann, sem ekið er fram úr, fyrr en hann sést í baksýnisspegl- inum. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is  dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur 17. janúar, 17. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.) Samkvæmt ítalska tískukónginumGiorgio Armani var það glæsi- líferni Hollywood en ekki fótbolti sem varð til þess að Beckhamhjónin ákváðu að flytja til Los Angeles. „Ég held hann vilji verða leikari, ekki fótboltaleikmaður,“ sagði Arm- ani við blaðamenn á tískusýningunni í Mílanó sem stendur yfir þessa dag- ana. „Hann er mjög myndarlegur maður og það styttist í að fótbolta- ferli hans ljúki,“ hélt Armani áfram. „Lítið líka á eiginkonu hans. Ég sá hana í brúðkaupi Toms Cruise. Hún er mjög hugguleg kona.“ Þess má geta að Armani hefur hannað klæðnað enska knattspyrnu- landsliðsins undanfarin ár.    Og meira um Beckhamhjónin þvíútgefandi Playboy, Hugh Hefner, er ákaflega ánægður með að þau hjónakornin skuli vera að flytja til Holly- wood og ætlar að bjóða Viktoríu að sitja fyrir á myndum í tíma- ritið - hvort held- ur er nakinni eða í fötum. Hefner, sem kominn er á níræðisaldur, hefur þegar gert ráðstafanir til að bjóða David í veislu í Playboy-setrinu. „Stelpurnar á setrinu hafa verið að tala um að hann væri að flytja og vilja vera vissar um að hann verði settur á gestalistann,“ sagði Hefner. Honum er þó ekki síður umhugað um Viktoríu. „Hún ætti að sitja fyrir á myndum hjá okkur. Við ætlum henni stórt hlutverk. Ég held að hún muni falla vel í kramið – þau eru bæði stórglæsileg.“ Veislur Hefners á Playboy- setrinu eru alræmdar. Meðal þeirra sem hefur verið boðið þangað má nefna Justin Timberlake, Leonardo DiCaprio, Pamelu Anderson og Ja- mie Foxx.    Leikarinn og kvikmyndagerð-armaðurinn Mel Gibson var viðstaddur forsýningu myndar sinn- ar Apocalypto í Mexíkó á mánudag- inn. Leikarinn notaði tækifærið til að svara þeim sem hafa sakað hann um að falla í gryfju fordóma í mynd- inni. „Þeir sem gagnrýna myndina ættu að vinna heimavinnuna sína. Það gerði ég,“ sagði Gibson en að- gerðarsinnar í Gvatemala hafa sagt að Apocalypto byggist á skaðlegum staðalmyndum af menningu þeirra. Enn á eftir að frumsýna myndina í Mexíkó og Gvatemala en sjóræn- ingjaútgáfur eru í umferð auk þess Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.