Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 10
10 B SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Böðun
Starfsmaður óskast í 50% stöðu til að sjá um
böðun vistmanna í Dagdvöl Sunnuhlíðar.
Nánari upplýsingar veitir Alda Sveinsdóttir,
deildarstjóri Dagdvalar, í síma 560 4176.
Bygginga-
verkfræðingur
tæknifræðingur
Klettur verkfræðistofa ehf., Bíldshöfða 12,
óskar eftir að ráða byggingaverkfræðing eða
tæknifræðing til starfa.
Kunnátta í autocad er nauðsynleg og æskilegt
að viðkomandi hafi reynslu.
Nánari upplýsingar gefa Þorgrímur í síma
861 3808 og Smári í síma 891 9964.
Umsóknir sendist með tölvupósti á:
klettur@vortex.is
Starfsmenntaráð auglýsir eft-
ir umsóknum um styrki vegna
starfsmenntunar í atvinnulíf-
inu, sbr. lög nr. 19/1992 um
starfsmenntun í at-
vinnulífinu. Til út-
hlutunar eru 55
milljónir. Ein-
göngu er tekið við
umsóknum á raf-
rænu formi.
Vissar áherslur
í ár
Starfsmenntar-
áð hvetur umsækj-
endur til að sækja
um verkefni sem
falla undir þrenns
konar áherslur en
auk þess er opinn
flokkur.
„Þetta var ekki
svona í fyrra en við
höfum þreifað svolítið fyrir
okkur hjá ASÍ og SA og
þeirra fólk mælti með að
áherslur yrðu lagðar sérstak-
lega á tvennt í ár, nefnilega ís-
lenskukennslu fyrir útlend-
inga og kennslu í verslunar-
og ferðamannageiranum,“
segir Margrét Kr. Gunnars-
dóttir, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, sem með-
al annars hefur styrkveitingu
starfsmenntaráðs á sinni
könnu.
Áherslurnar eru reyndar
fjórar en til viðbótar íslensku-
kennslu og kennslu í ferða-
manna- og verslunargeiran-
um koma starfsþróun á
vinnustað og nýliðaþjálfun og
svokallaður opinn flokkur.
Opin fyrir öll góðum til-
lögum
Margrét segir að Vinnu-
málastofnun sé opin fyrir öll-
um góðum tillögum hvaðan
sem þær komi.
„Við vitum að það brennur
svolítið á atvinnurekendum
og verkalýðsfélögum þegar
um íslenskukennsluna og
vandamál verslunar og ferða-
mála er að ræða, vegna mik-
illar þenslu og mikils innflutn-
ings vinnuafls. En við tökum
við öðrum tillögum, hvort sem
þær koma frá fyrirtækjum
eða stofnunum. Jafnvel hið
formlega skólakerfi getur
fengið styrki úr starfsmennt-
aráði en verkefnin verða að
vera atvinnu-
tengd. Raun-
ar höfum við
oft fengið
mjög góðar
tillögur úr
þeirri átt,“
segir Mar-
grét.
Í lýsingu á
styrkjunum
segir meðal
annars að
störf breytist
í samræmi við
nýjar hug-
myndir um
verklag. Lögð
verði áhersla
á starfsþjálf-
un á vinnustöðum sem auð-
veldi fólki að tileinka sér nýj-
ungar. Sérstaklega sé litið til
nýrra leiða fyrir starfsmenn
sem hafi litla skólagöngu.
Íslenska fyrir útlendinga
Í lýsingu á styrkjunum seg-
ir ennfremur að lögð sé
áhersla á kennslu í íslensku
fyrir útlendinga í vinnustaða-
tengdu námi.
Fólk af erlendum uppruna
sem vilji læra íslensku eigi oft
erfitt með að finna tíma til að
sinna námi utan vinnudags.
Lögð er áhersla á verkefni
sem auka tækifæri og hvetja
til vinnustaðatengds íslensku-
náms í þeim tilgangi að auka
færni einstaklinga á vinnu-
markaði.
Þá er lögð áhersla á
kennslu í ferðaþjónustu- og
verslunargeiranum og það
rökstutt með því að ferða-
þjónusta hafi vaxið hratt og
útlit sé fyrir að svo verði
áfram. Mikil starfsmanna-
velta hafi einkennt verslun
síðastliðin ár og því sé lögð
áhersla á verkefni sem feli í
sér gæði þjónustu, fag-
mennsku og öryggi.
Umsóknarfrestur er til 15.
mars 2007 og nánari upplýs-
ingar er að finna á vefsíðu
Vinnumálastofnunar.
Styrkir frá starfs-
menntaráði
Margrét Kr.
Gunnarsdóttir
Heildarafli íslenskra skipa í
nýliðnum janúarmánuði, met-
inn á föstu verði, var 10%
meiri en í janúar 2006.
Aflinn nam alls 80.657 tonn-
um í janúar 2007 samanborið
við 41.538 tonn í janúar 2006.
Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá Hagstofu Ís-
lands.
Botnfiskafli jókst um tæp
2.600 tonn frá janúarmánuði
2006 og nam 33.200 tonnum.
Þorskafli dróst saman um tæp
150 tonn, ýsuaflinn jókst um
rúm 670 tonn og ufsaaflinn
jókst um rúmlega 520 tonn.
Flatfiskaflinn dróst saman
og var tæplega 800 tonn. Afli
uppsjávartegunda nam rúm-
um 37.300 tonnum og var að
stórum hluta loðnuafli. Aukn-
ing uppsjávarafla nemur rúm-
um 28.200 tonnum. Skel- og
krabbadýraafli var 151 tonn
samanborið við 51 tonns afla í
janúar 2005.
Munur á afla á föstu
verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reikn-
aður út til þess að finna breyt-
ingu á verðmæti heildaraflans
að gefinni þeirri forsendu að
verðhlutföll milli einstakra
fisktegunda séu þau sömu og
á ákveðnu viðmiðunarári sem
hér er árið 2004. Hér er því
um að ræða hliðstæðu við um-
reikning á afla yfir í þorsk-
ígildi. Aflinn í tonnum sýnir
hins vegar magn aflans án til-
lits til þess að fisktegundir
eru misjafnlega verðmætar.
Fiskafli í janúar 2007
Samningaviðræður á Evr-
ópuvísu um aðgerðir gegn
einelti og ofbeldi við vinnu
hófust í febrúar 2006. Við-
ræðunum lauk 15. desember
sl. með því að handsalaður
var samningur á milli Evr-
ópusamtaka launafólks
(ETUC) og Evrópusamtaka
atvinnurekenda (UNICE/
UEAPME/CEEP) um að-
gerðir gegn einelti og of-
beldi á vinnustað.
Þetta kemur fram á vef-
síðu ASÍ.
Þar segir að þessi niður-
staða hafi komið nokkuð á
óvart þar sem allt eins var
reiknað með því að það
mundi slitna upp úr viðræð-
unum vegna ágreinings milli
samningsaðila.
Evrópskar aðgerðir
gegn einelti