Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 16
Veiðar Landað úr Víði EA á Akureyri. Verðmæti afla Víðis
EA og Venusar HF mun vera ríflega 300 milljónir króna.
Kennarar mótmæltu
Um fjögur hundruð reyk-
vískir grunnskólakennarar
tóku þátt í þögulli mótmæla-
stöðu á Lækjartorgi á þriðju-
dag til þess að leggja áherslu
á kröfu um að launakjör
þeirra yrðu leiðrétt í sam-
ræmi við verðbólgu og launa-
breytingar hjá öðrum starfs-
stéttum. Það voru kennarar
við Fellaskóla sem stóðu fyr-
ir mótmælunum.
Ólafur Loftsson, formaður
Félags grunnskólakennara,
sagði í viðtali við Morg-
unblaðið í vikunni að hljóðið
væri afar þungt í grunn-
skólakennurum um þessar
mundir og kvaðst þeirrar
skoðunar að sveitarstjórna
virtust ekki átta sig á alvöru
málsins.
Sagði hann mikið í húfi fyrir
alla aðila, enda hefði enginn
áhuga á því að atburðarásin
frá árinu 2003, þegar grunn-
skólakennarar efndu til
verkfalls, endurtæki sig.
300 milljónir úr
Barentshafi
Tveir frystitogarar, Víðir
EA og Venus HF, lönduðu
um 600 tonnum af frystum
fiskafurðum á Akureyri í
vikunni. Verðmæti þeirra er
ríflega 300 milljónir króna
og afli upp úr sjó nálægt
1.200 tonnum.
Aflinn var að mestu þorskur
en einnig ýsa, karfi og ufsi,
samtals tæplega 320 tonn af
frystum fiski eða um 700
tonn upp úr sjó.
Vantar gott fólk
Sveitarstjóri Skagafjarðar,
Guðmundur Guðlaugsson,
segir að sveitarfélagið vanti
fleira gott fólk, en um síð-
ustu helgi var auglýst eftir
fólki í ýmis laus störf í sveit-
arfélaginu í atvinnublaði
Morgunblaðsins.
„Það er mikill hugur í okkur
hér og verið að reyna að
byggja upp og bæta í at-
vinnuþróunina,“ er haft eftir
Guðmundi sem segir að
mörg tækifæri séu í Skaga-
firði, sem vert sé að huga að.
Guðmundur segir að í sveit-
arfélaginu séu margvísleg
störf sem krefjist menntunar
og að þeim muni fjölga í
framtíðinni, þar sem verið sé
að byggja upp háskóla-
umhverfi í byggðarlaginu,
sérstaklega í tengslum við
háskólauppbyggingu á Hól-
um og á Sauðárkróki.
Krefjast ógoldinna launa
Verkalýðsfélagið Hlíf í
Hafnarfirði hefur fengið til
meðferðar mál 13 pólskra
verkamanna, sem störfuðu á
Kárahnjúkum hjá starfs-
mannaleigunni 2b, en starfa
nú fyrir Arnarfell við virkj-
unina.
2b segist ekki skulda þeim
laun þar sem þeir hafi rift
ráðningarsamningum sínum
með því að fara yfir til Arn-
arfells og hafi mennirnir
undirritað skjöl þar sem þeir
afsali sér rétti til launa frá
starfsmannaleigunni. Yf-
irtrúnaðarmaður við Kára-
hnjúka segir hins vegar að
2b skuldi hverjum mannanna
á annað hundrað þúsund
krónur í laun.
Mikil loðna í Eyjum
Mikil uppgrip hafa verið í
loðnu við Vestmannaeyjar og
stanslaus löndun, enda unnið
á vöktum við frystingu. Í
byrjun vikunnar voru tíu
skip annaðhvort að veiða eða
frysta og um tíma biðu fjög-
ur skip löndunar.
Haft er eftir Eyþóri Harð-
arsyni, útgerðarstjóra Ís-
félagsins, að allt sé í fullum
gangi og að loðnan hafi til að
byrja með fengist í Bugtinni
en seinna við Eyjar.
Morgunblaðið/Júlíus
Mótmæli Fjölmargir reykvískir grunnskólakennarar tóku
þátt í þögulli mótmælastöðu á Lækjartorgi á þriðjudaginn.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
ATVINNA
ÞETTA HELST ...
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hólar Vonir bundnar við há-
skólaumhverfið í Skagafirði.
16 B SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Starfsfólk óskast
Við leitum að góðu fólki til starfa við húsvörslu
í félagsheimili og íþróttahúsi Knattspyrnu-
félagsins Víkings. Um fullt starf er að að ræða
og einnig hlutastörf um helgar.
Við leitum einnig að laghentum manni til starfa
sem vallarstjóri á sumrin, þ.e. umsjón og um-
hirða með útisvæðum félagsins og undirbún-
ingur kappleikja.
Yfir vetrartímann er unnið við húsvörslu,
viðhald og viðgerðir sem til falla.
Upplýsingar hjá Erni Ingólfssyni, framkvæmda-
stjóra félagsins, í símum 581 3245 og 898 4532,
netfang er: orn@vikingur.is .
Knattspyrnufélagið Víkingur
Traðarlandi 1, 108 Reykjavík.
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Launafulltrúi me› reynslu
Húsasmi›jan leitar a› launafulltrúa til a› ganga til li›s vi› gó›an
hóp starfsmanna.
Vi› leitum a› talnaglöggum, nákvæmum og skipulög›um einstaklingi sem getur starfa›
sjálfstætt og s‡nt frumkvæ›i í starfi sem flessu. Mikil áhersla er lög› á röggsemi, sveigjanleika
og samskipta- og samstarfshæfni.
Í bo›i er fjölbreytt og krefjandi starf. Nái› samstarf er vi› a›ra starfsmenn.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 26. febrúar nk. Númer starfs er 6320.
Nánari uppl‡singar um störfin veita Gu›n‡ Sævinsdóttir og Ari Eyberg.
Netföng: gudny@hagvangur.is og ari@hagvangur.is
Húsasmi›jan hf. er stærsti sölua›ili
byggingarvara á Íslandi og eitt af 25
stærstu fyrirtækjum landsins.
Húsasmi›juverslanir eru tuttugu og
ein á landsvísu. Í verslunum okkar
höfum vi› á bo›stólnum yfir 80
flúsund vörutegundir.
Hjá Húsasmi›junni starfa a› jafna›i
um 750 manns á öllum aldri.
Vi› leggjum mikla áherslu á a›
starfsmenn eigi fless kost a› eflast
og flróast í starfi.
www.husa.is
Starfssvi›
Ábyrg› á launaútreikningum
Grei›sla á launum og launatengdum
gjöldum
Afstemmingar vegna launali›a
Uppl‡singagjöf til starfsfólks
Önnur verkefni sem tilheyra launavinnslu
Hæfniskröfur
Gó› reynsla af launaútreikningum skilyr›i
fiekking á kjarasamningum
Mikill kostur ef vi›komandi hefur unni›
me› launakerfi SAP
Kostur ef vi›komandi hefur unni› me›
Bakvör›
BIRGÐAHALD
Ístak hf. óskar eftir starfsmanni í birgðahald.
Starfssvið
• Innkaup
• Samskipti við birgja
• Ábyrgð á afgreiðslu pantana
• Umsjón með birgðahaldi
• Tölvuskráning birgða
Hæfniskröfur
• Tölvukunnátta
• Þekking og reynsla úr byggingariðnaði á birgjum og vörum
• Æskilegt að viðkomandi sé rekstrarfræðingur eða hafi sambærilega
menntun og reynslu
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 650 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Blaðbera
vantar í
Hveragerði
Upplýsingar í síma
893 4694
eftir kl. 14.00