Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 6

Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Líkt og með vatnið faraflestir Íslendingar ekkisparlega með rafmagnið,það er á hagstæðara verði en víðast annars staðar, framleitt á umhverfisvænan hátt og hvatinn til að minnka raforkunotkunina því ef til vill ekki augljós. Þegar betur er að gáð kemur þó í ljós að Íslendingar hafa fulla ástæðu til að gefa gaum að raforkunotkun heimilanna, þeir geta nefnilega að samanlögðu sparað milljarða króna á ári með einfaldri hugarfarsbreytingu. Þetta er mat Sigurðar Inga Frið- leifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, sem hefur kynnt sér raforkunotkun heimilanna. „Almenn notkun á Íslandi, þ.e. öll raforkunotkun að stóriðjunni undan- skilinni, nemur 2.681 gígavatt- stund,“ segir Sigurður. „Ég tel alveg raunhæft að spara megi 15% af orkunni án þess að það komi nokkuð niður á lífsgæðum eða framleiðslu. Meðalraforkunotkun heimila er um 4,5 megavattstundir á ári. Því gæti 15% sparn- aður numið um 6.000 krónum á heimili sem er kannski ekki há fjárhæð en á móti kemur að það ástæðulaust með öllu að eyða í óþarfa sóun. Þetta sést best þegar heild- arnotkunin er skoðuð en þá kemur í ljós að slíkur sparnaður næmi sem svarar 402 gígavattstundum, sem í peningum talið er um það bil 3,2 milljarðar króna.“ Evrópusambandið, ESB, þrýsti á sínum tíma á um framfarir í bættri nýtni raftækja með sérstökum merkingum, sem aðstoða neytendur að bera saman orkunotkun tækja af sömu gerð. Þessar merkingar setja raftæki í flokk A-G þar sem A hefur bestu nýtni en G þá slökustu og eru ísskápar með A+ merkingum t.a.m. sérstaklega auðkenndir af sölu- aðilum í íslenskum verslunum. Spurður um hvernig megi draga úr orkunotkuninni bendir Sigurður á að neytendum standi nú til boða raf- tæki sem séu almennt miklu nýtnari en áður. Hins vegar noti svokölluð plasma-sjónvörp meiri orku en göm- ul sjónvörp, ólíkt sjónvörpum með LCD-skjá sem noti minnstu orkuna. Þá sé hægt að lækka orkureikn- inginn með notkun sparneytnari ljósapera, með því að hafa ljósin slökkt í ónotuðum herbergjum og með því að hafa raftæki ekki í sam- bandi þegar þau liggja ónotuð. Stóriðjan miklu stærri þáttur Ef hlutfallið 15 prósent er lagt til grundvallar má segja að Íslendingar geti á fjórum árum sparað sér ígildi tónlistarhússins sem nú er í bygg- ingu við Reykjavíkurhöfn sé miðað við um 3,2 milljarða króna orku- sparnað á ári og um 12,5 milljarða króna byggingarkostnað á verðlagi ársins 2005, að ráðstefnumiðstöð og bílakjallara meðtöldum, að sögn Stefáns Hermannssonar, fram- kvæmdastjóra Austurhafnar-TR. Spurður um vægi mögulegs sparnaðar í raforkunotkuninni segir Sigurður að 402 gígavattstundir séu „samt minna en sem nemur um 10 prósentum af orkuframleiðslu Kára- hnjúkavirkjunar“. Hann tekur annað dæmi. „Samanlögð framleiðsla hinna umdeildu Þjórsárvirkjana gæti orðið 1.950 gígavattstundir sem skagar hátt í almennu notkunina. Þegar virkjanaframkvæmdum lýkur nú á árinu verður árleg framleiðslugeta í landinu um 16.000 gígavattstundir. Það er yfir 50.000 kílóvattstundir á hvern íbúa sem er auðvitað heims- met og langt í annað sætið. Í Þýska- landi og Bretlandi er notkunin um 6.000 kílóvattstundir á ári, svo dæmi sé tekið.“ Inntur eftir því að lokum hvort orkuverðið yrði ekki einfaldlega hækkað ef dregið yrði úr notkuninni bendir Sigurður á að endurnýjanleg orka sé í dag afar eftirsótt á heims- vísu, auk þess sem íslenskum neyt- endum fjölgi ár frá ári. Framúrstefnulegt Áratugi tók að koma byggingu tónlistarhúss á framkvæmdastig. Íslendingar gætu á fjórum ár- um sparað sér ígildi þess miðað við um 3,2 milljarða kr. orkusparnað á ári og um 12,5 millj. kr. byggingarkostnað. Hægt að spara ígildi tónlistarhúss á fjórum árum Íslendingar gætu lækkað raforkureikning lands- ins verulega með einföldum aðgerðum. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, fræddi Baldur Arnarson um þessa hlið orkumála. Í HNOTSKURN » Orkustofnun stofnaðiOrkusetur í samstarfi við iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið og styrkir ESB það. » Umræða um loftslagsmálhefur aukið áhuga manna á að draga úr orkunotkuninni. » Víða er orka framleidd úrkolum og því jafngildir minni notkun heimila minni losun koltvísýrings, CO2, í and- rúmsloftið. » Á Íslandi er þetta fyrst ogfremst spurning um auk- inn sparnað sem jafnframt er leið til að auka orkuframboðið á markaðnum. Sigurður Ingi Friðleifsson baldura@mbl.is VON er á um 60 þúsund farþegum af að minnsta kosti 75 skemmti- ferðaskipum sem munu eiga við- komu í Reykjavíkurhöfn nk. sum- ar. Undanfarin ár hefur komum slíkra skipa fjölgað stöðugt. Í fyrra komu 74 skip en þegar hafa 75 skip bókað komu sína og má búast við að einhver bætist í hópinn næstu vikur og mánuði. Það stefnir því í enn eitt metið í þessum efnum. Fyrsta skipið kemur 26. maí nk. og það síðasta í lok september. Fyrsta skipið, sem kemur hér við í jómfrúarferð sinni á leið til Græn- lands, heitir MS Fram. Skipið er sérstyrkt til íssiglinga. Það er í eigu norsks skipafélags, er 113 metra langt og 20 metra breitt og getur borið 500 farþega. Markmiðið er að lengja viðveru ferðamannanna af skipunum, segir Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna. Yfirleitt stoppa þeir stutt, aðeins í nokkra klukku- tíma, en þó stoppa sífellt fleiri skip yfir nótt og munu 10-12 skip gera það nk. sumar. Nær öll skipin sem koma upp að Íslandsströndum koma að landi í Reykjavík þó að mörg hver hafi viðkomu víðar, m.a. á Akureyri, í Keflavík og á Ísafirði. Mörg skemmtiferðaskipanna sem hingað koma eru á leið til Spitzbergen, eyjar í Norður- Atlantshafi en þaðan er förinni heitið niður með norsku strönd- inni. Önnur koma frá heimahöfn- unum hingað, sum hver á leið til Grænlands, og fara til baka að því loknu. Í þriðja lagi koma hingað skip, yfirleitt á haustin, sem verið er að flytja frá Evrópu til Ameríku, full af farþegum. Morgunblaðið/ÞÖK Risar Skemmtiferðaskip sem hér eiga viðkomu á sumrin taka stundum vistir og bjóða farþegum upp á stuttar skoðunarferðir í landi. Aldrei fleiri skemmtiferðaskip VEGURINN um Hvalfjarðargöng er sópaður á um 6–8 vikna fresti og eftir því sem ástæða þykir til eru göngin smúluð en það er þó gert mun sjaldnar. Marinó Tryggvason af- greiðslustjóri segir að ekki standi til að auka þrifin umfram það sem nú er en starfsmenn Spalar séu ávallt vak- andi fyrir því hvort eitthvað sé hægt að gera betur. Sú mengun sem sést í göngunum er fyrst og fremst svifryk en útblást- ursmengun sést mun síður, að sögn Marinós. Svifrykið safnast saman í Hvalfjarðargöngum enda er þar hvorki vindur né úrkoma sem ber það á brott og þótt allir blásarar í göngunum séu keyrðir á fullu afli dugar það ekki til. Þetta sé víðar vandamál og benti hann á að svif- ryksmengunin í Reykjavík sæist til Akraness. Marinó segir að á hverju ári sé göngunum lokað og þau öll hreinsuð með vatni, jafnt vegurinn sem vegg- irnir. Í janúar hafi vegaxlir í göng- unum síðan verið ryksugaðar í fyrsta skipti frá því göngin voru opnuð. Þetta hafi verið tilraun sem hafi lukkast vel og verði eflaust gert aft- ur. Ryksugað var að næturlagi og tók aðgerðin um tvær vikur en starfs- menn verktakans, Holræsahreins- unar, gengu göngin fram og til baka og stýrðu ryksugunni. Að sögn Marinós sést mikill mun- ur í göngunum á vetri og sumri, nagladekkin hafi augljóslega mikið að segja en einnig bráðni snjór af bíl- unum þegar þeir aka niður í göngin og eftir verði ryk. Sópa göng- in á 6–8 vikna fresti Ryksuguðu nokkur tonn af ryki í janúar HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands tel- ur að stjórnendur Borgarbyggðar og Sparisjóðs Mýrasýslu hafi ekki staðið rétt að sölu jarðarinnar Álft- áróss í Borgarbyggð og ekki virt for- kaupsrétt ábúenda. Afsal sem gefið var út á grundvelli sölusamnings var ógilt og Borgarbyggð gert að selja ábúendum jörðina á 45 milljónir. Með lífstíðarábúð Álftárós var í eigu Borgarbyggðar sem eignaðist jörðina við samein- ingu sveitarfélaga. Ábúendur höfðu búið á jörðinni frá 1993 og ágrein- ingslaust var í málinu að þau hefðu lífstíðarábúðarrétt. Borgarbyggð bauð ábúendum jörðina til sölu fyrir fimm árum fyrir 30 milljónir en af kaupum varð ekki. Árið 2004 gerðu Borgarbyggð og Sparisjóðurinn makaskiptasamning á eignum og hluti samningsins fól í sér að Spari- sjóðurinn eignaðist jörðina Álftárós fyrir 45 milljónir. Sparisjóðurinn bauð ábúendum nokkrum vikum síðar að kaupa jörð- ina á 45 milljónir. Þeim var gefinn 25 daga frestur til að svara bréfinu. Þau gerðu athugasemdir við bréfi og vöktu m.a. athygli á því að svo skammur frestur væri ekki í sam- ræmi við ákvæði jarðalaga. Spari- sjóðurinn svaraði ekki bréfinu. Ábú- endur fóru fram á að dómkvaddir matsmenn yrðu fengnir til að meta jörðina. Niðurstöður matsmanna voru í meginatriðum í samræmi við það verð sem ákveðið hafði verið í makaskiptasamningnum. Taka yrði þó tillit til ábúðarréttarins sem skert gæti verðmætið um 30%. Gert að borga 45 milljónir fyrir jörðina Niðurstaða héraðsdóms er að ábú- endur hafi haft forkaupsrétt og sveitarfélagið hafi ekki virt hann þegar jörðin var seld Sparisjóði Mýrasýslu. Það hafi verið sveitarfé- lagsins en ekki Sparisjóðsins að bjóða ábúendum að ganga inn í samninginn. Það verði með engu móti fallist á að Borgarbyggð hafi með réttu haft tilefni til að ætla að ábúendur vildu ekki nýta forkaups- rétt. Dómarinn gerir einnig athuga- semdir við bréf Sparisjóðsins til ábúenda. Dómarinn tekur ekki undir með ábúendum að sú skylda hafi hvílt á sveitarfélaginu að láta verðmeta jörðina þótt það hefði í sjálfu sér verið eðlilegt miðað við þau verð- mæti sem um ræðir. Hann kemst síðan að þeirri niðurstöðu að and- virði jarðarinnar hafi ekki verið ákveðið of hátt og dæmir Borgar- byggð til að selja ábúendum jörðina á 45 milljónir. Stefndu var gert að greiða ríkissjóði eina milljón í máls- kostnað. Málið flutti Eiríkur Elís Þorláks- son hdl. fyrir hönd ábúenda á Álft- árósi, en Ingi Tryggvason hdl. varði málið fyrir hönd Borgarbyggðar og Sparisjóðs Mýrasýslu. Málið dæmdi Benedikt Bogason héraðsdómari. Virti ekki for- kaupsréttinn Borgarbyggð og Sparisjóður Mýra- sýslu stóðu ekki rétt að jarðarsölu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.