Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 9

Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 9 FRÉTTIR Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Str. 46-60 Flottir sundbolir Póstsendum Stórar stærðir Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Fallegar peysur Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16 Verð frá kr. 3.900 Eftir Dag Gunnarsson í Færeyjum dagur@mbl.is FÆREYSKA landstjórnin hefur um árabil undirbúið jarðveginn fyrir mikla einkavæðingu og sölu á fjórum máttarstólpum færeyska efna- hagslífsins sem eru í eigu færeyska ríkisins; Føroya banki, Liv pensionsselskab, Atlantic Airways og Føroya tele, þ.e. banka, lífeyrissjóð, flugfélag og símafyrirtæki. Føroya banki í kauphöllina á Íslandi Í gær kynnti Føroya banki á kynningu á árs- uppgjöri sínu í Þórshöfn að bankinn yrði skráð- ur bæði í Kauphöll Íslands og í Danmörku og verður hann að öllum líkindum fyrsta færeyska ríkisfyrirtækið sem verður einkavætt en einnig er verið er að undirbúa söluna á hinum þremur og er undirbúningur á sölunni á færeyska flug- félaginu Atlantic Airways langt kominn. Helm- ingshluti af Liv pensions selskab verður trúlega settur á opinn markað með vorinu. Liv er eins- konar tryggingasameignarfélag og eftirlauna- sjóður sem var í eigu tryggingakaupendanna en eignin færðist að mestu yfir til Landstjórn- arinnar þegar því var breytt í hlutafélag 1999. Mikið hefur verið deilt um söluna á því í Lög- þinginu og launþegasamtök mótmæltu harðlega fyrir hönd sinna meðlima og hafa menn nú komist að málamiðlun þar sem helmingur verð- ur settur á almennan markað og helmingur af- hentur skráðum viðskiptavinum sjóðsins. Atlantic Airways stendur einnig til að einka- væða og skrá í Kauphöll Íslands og setja 33% af 300 hlutabréfum á opinn markað til að byrja með og í seinna útboði önnur 33% en halda eftir 34% í eigu ríkisins. Til stóð að einkavæða flugfélagið í nóvember á síðasta ári en ein flugvél flugfélagsins lenti í alvarlegu óhappi í Noregi og því frestaðist út- boðið um hálft ár. Salan á Føroya Tele stöðvuð Að sögn Bjarne Djurholm, atvinnumála- og iðnaðarráðherra landstjórnarinnar, hefur Før- oya Tele gríðarlega mikla þýðingu fyrir Fær- eyjar og undanfarin fjögur ár hefur undirbún- ingur að sölu þess staðið yfir. „Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að það beri að selja strax 100% í Føroya Tele sem eina einingu, líka grunnnetið en sjá til þess að fyrirtækið verði leiðandi í þróun á markaðn- um,“ sagði Djurholm við Morgunblaðið. Salan á Føroya Tele hefur reyndar verið stöðvuð vegna þess að innan landstjórnarinnar er kominn upp deila þar sem sumir telja að ekki eigi að selja grunnnetið með fyrirtækinu. „Mín afstaða í málinu er að við eigum að selja allt Føroya Tele og stýra iðnaðinum með til- skipunum frá Fjarskiptaeftirlitinu og með sam- keppnislöggjöf. Við stöndum á krossgötum hvað Føroya Tele varðar, það er búið að vinna alla undirbúningsvinnuna, spurningin er bara hvenær verður ýtt á hnappinn og í hvaða mynd salan verður,“ sagði Djurholm sem ætlar að leggja frumvarp fyrir Lögþingið nú í vikunni og ef það verður samþykkt þá verður hægt að ganga frá sölunni í fyrsta lagi í ágúst á þessu ári. Janus Petersen, forstjóri Føroya banka, er bjartsýnn á framtíðina og segir að það sé auð- veldara að selja banka en margt annað, til dæmis flugfélag. „Fólk ber ekki alveg jafn sterkar taugar til banka,“ sagði Petersen. „Við erum með 44% af lánamarkaðnum hér í Fær- eyjum, en hér eru bæði aðrir innlendir bankar og íslenskir sem og danskir og norskir að keppa á sama markaði sem er ekki ýkja stór. Íslendingar láta til sín taka hvar sem þeir bera niður og hér í Færeyjum eru fjölmörg tækifæri, hér eru mörg vel rekin fyrirtæki, sérstaklega í sjávarútvegi og mörg þeirra hyggja á útrás. Til dæmis í þjónustu við olíuiðnaðinn, útgerðin hef- ur áhuga á að kynna sér þjónustu við hann. Aðrar greinar fara einnig vaxandi og stefna á markaði erlendis það er mikil uppsveifla þó að við séum ekki nærri því eins athafnasamir og Íslendingar, en við stefnum þangað,“ sagði Pet- ersen ennfremur. Ísland áhugaverður markaður „Það sjá allir að færeyski markaðurinn er of lítill og það setur fyrirtækjum ákveðnar hömlur og því munu mörg færeysk fyrirtæki leita út á stærri markaði og það mun bankinn einnig gera. Við höfum ákveðið að fara á erlenda markaði en fyrst þurfum við að koma einka- væðingunni á koppinn,“ sagði Petersen. – Hvaða markaðir eru það sem þið sækist eftir að komast inn á? ,,Það eru Norðurlönd fyrst og fremst. Við höfum góð tengsl inn á danskan bankamarkað og erum í góðum tengslum við allar fjármála- stofnanir þar. Bæði Noregur og Ísland eru áhugaverðir markaðir fyrir okkur því þeir líkj- ast okkar heimamarkaði með áherslu á sjávar- útveg. Bankinn hefur ekki haft mikil umsvið á Íslandi en við höfum fjármagnað nokkur fær- eysk fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við Ísland, eins og til dæmis Vónin (netagerð) sem keypti nýlega 22% hlut í Hampiðjunni,“ sagði Pet- ersen að lokum. Fjórir máttarstólpar Færeyinga einkavæddir Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Færeyjar Janus Petersen, forstjóri Føroya banka, er bjartsýnn á framtíðina og segir íslenska mark- aðinn áhugaverðan fjárfestingarkost sem og fleiri í nágrenninu, m.a. þann norska. BARÐUR Nielsen, fjármála- ráðherra Færeyja, var spurð- ur að því af blaðamanni Morg- unblaðsins hvort Færeyjar væru til sölu. „Nei, það máttu ekki segja, sérstaklega ekki á Íslandi,“ sagði hann. „Þá lendi ég í vanda, því það er mikið rætt um það að Íslendingar séu að kaupa allt upp, ekki bara hér í Færeyjum en líka í Danmörku og menn eru örlítið smeykir um að Íslendingar kaupi allt heila „klabbið“ og því eru settir fyr- irvarar í lögum um einkavæðinguna,“ sagði Nielsen sem hefur ákveðið að setja þak á kosn- ingarétt í stjórn Föroya bankans með þeim hætti að sama hversu stóran hlut menn eigi þá fái þeir einungis að fara með 10% atkvæða við kosningu til stjórnar bankans. Færeyjar ekki til sölu Fréttir í tölvupósti GRÓFASTA umferðarlagabrotið sem lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu stöðvaði á Hringbraut var vafa- laust þegar mótorhjólamaður mældist á 133 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km á klst. Alls voru 69 ökumenn teknir fyr- ir hraðakstur víðsvegar um höfuð- borgarsvæðið, aðallega karlmenn og voru ungir piltar fjölmennir í hópnum. Nýkominn með ökuréttindi og ók á 121 km hraða Einn þessara pilta var stöðvaður á Reykjanesbraut á móts við Bú- staðaveg á 121 km hraða en leyfður hámarkshraði er 70. Pilturinn sá fékk ökuréttindi í janúar og má hann búast við 75 þúsund króna sekt og sviptingu ökuleyfis í einn mánuð. Jafnaldri hans sem var mældur á Kringlumýrarbraut á 133 km hraða, má reikna með sömu refsingu. Fjölmörg önnur dæmi voru um pilta á svipuðu reki og á svipuðum hraða sem voru handsam- aðir um helgina. Vitið eykst þó ekki endilega eftir því sem árin færast yfir, líkt og sannaðist á karlmanni á fimmtugs- aldri sem var stöðvaður í útjaðri Hafnarfjarðar á 135 km hraða. 69 ökumenn teknir fyrir hraðakstur Í VIKUNNI sem leið hafði lögreglan á Hvolsvelli afskipti af tveimur öku- mönnum dráttarvéla á Suðurlands- vegi sem drógu stóra tengivagna. Í báðum tilfellum voru vagnarnir lest- aðir tæplega 20 heyrúllum en hvor- ugur uppfyllti reglur. Í öðru tilfellinu virkuðu ekki afturljós, hvorugur eft- irvagninn var skráður, rúllufarmur- inn var ekki bundinn niður á eftir- vagninn, engin skjólborð voru á eftirvögnunum og engin undirakst- ursvörn á vögnunum tveimur. Þótt flestar reglur um eftirvagna hafi verið brotnar var dráttarvélunum ekki ekið hraðar en lög mæla fyrir um. Það átti hins vegar við um 32 ökumenn sem lögreglan stöðvaði í síðustu viku. Sá sem ók hraðast var á 142 km hraða. Varasamir eftirvagnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.