Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR                                                                                                                           ! " #" $%  &             '( )  *+' '( )  *+'  '( )  *+'  ,   ,        -%  '% "" ."/  0 .    " 1 2 ) - -    .    .%   . - -  34                    ! -%  '% ."  0 .    " 1 2 $ "-% '% "  .    ' %  '% " .    '  !  !   !   " ! MÓTUN ehf. hefur afhent Stakka- vík í Grindavík nýjan bát, Gáska 1280. Báturinn hefur fengið nafnið Hópsnes GK og er yfirbyggður línu- beitningarbátur. Er þetta ellefta ný- smíðin frá Mótun ehf. til Stakkavík- ur og þriðji beitningarvélabáturinn sem þeir fá afhentan. Vinnuganghraði bátsins með um það bil fjögurra lítra olíueyðslu er um 20 mílur en hámarkshraði er 23 mílur. Báturinn er með tvö gang- hraðastig á skrúfu, annar ganghrað- inn er notaður á leið í róður með létt- an bát og hinn er þegar báturinn er kominn með afla um borð. Gefur þetta möguleika að sigla hraðar án þess að afgashiti vélarinnar verði of hár. Þannig er vélinni hlíft, ending vélarinnar aukin og eldsneyti spar- að. Á myndinni gæti Hópsnesið verið á leið í róður með 17.000 króka og 14.000 lítra af olíu. Bátar Vinnuganghraði bátsins með um það bil fjögurra lítra olíueyðslu er um 20 mílur en hámarkshraði er 23 mílur. Ellefti báturinn frá Mótun til Stakkavíkur ÚR VERINU Fiskvinnslufyr- irtækið Birds Eye virðist nú ætla að hætta að vinna og selja þorsk. Það hefur fengið þekktan sjónvarpsmann, Giles Coren, til að auglýsa fisk- afurðir sína en Coren hefur hvatt fólk til að hætta að borða þorsk þar sem hann sé í útrýmingarhættu. Fréttavefurinn intrafish.com segir frá því að Coren hafi hvað eft- ir annað hafnað því að auglýsa fisk- afurðir Birds Eye vegna þorsksins en nú hafi þeir lofað því að hætta að vinna og selja þorsk árið 2010. Því sé hann tilbúinn að auglýsa fiskinn. Coren segist ekki bera á ábyrgð á ákvörðun Birds Eye. Auglýsingaherferðin byggist á því að bakteríum fjölgi í kældum matvælum, þegar síðasti ráðlagði sölu- eða neyzludagur nálgast. Það greini á milli þess sem virðist vera fersk matvæli og frystra matvæla sem eru fryst nokkrum klukku- stundum eftir að fiskurinn er veidd- ur. Frysti fiskurinn sé því ferskari. Hættir Birds Eye að selja þorskinn? ● UMRÆÐUR í upphafi þing- fundar í gær voru kallaðar „bland í poka“ enda fóru þær út um víðan völl. Ásta Ragn- heiður Jóhann- esdóttir byrjaði að vekja athygli á aðstæðum Alz- heimer-sjúklinga en þingmenn höfðu fengið tölvu- póst um að Ásta hygðist taka þetta mál upp undir liðnum störf þings- ins. Ástu þótti hún hins vegar fá lítil svör frá ráðherra og ekki ná að klára málið þar sem Kristinn H. Gunnarsson tók einnig til máls en talaði um atvinnumál á Ísafirði í kjölfar þess að Marel ákvað að færa starfsemi sína þaðan. Lýstu margir þingmenn yfir áhyggjum af ástandinu á Ísafirði sem og að- stæðum Alzheimer-sjúklinga. Bland í poka Kristinn H. Gunnarsson ● UMRÆÐUR um störf þingsins eru hins vegar aðeins leyfilegar í 20 mín- útur og þótti mörgum óheppilegt að þingmenn væru að tala um tvö mál sitt á hvað. Arnbjörg Sveinsdóttir sagði þetta lýsa samkomulaginu hjá kaffibandalaginu. Þá var kallað utan úr sal að Kristinn væri líklega bara of nýr í bandalaginu og hefði því ekki áttað sig á að stjórnarandstöðuþing- menn hefðu oft samráð um hvaða mál væru tekin upp. Kristinn sagðist aftur á móti hafa hugsað sér að taka málið upp í utandagskrárumræðu en þótt það of aðkallandi til að bíða eftir henni, enda alls óvíst hvort og hve- nær orðið yrði við bóninni. Of nýr í bandalaginu ● TÓKU margir undir þessar vanga- veltur Kristins og í framhaldinu spunn- ust miklar umræður um fundarstjórn forseta. Össur Skarphéðinsson sagð- ist m.a. vera þeirrar skoðunar að í upphafi hvers þingfundar ætti að vera gefinn tími til umræðna um störf þingsins þar sem hægt væri að ræða málefni líðandi stundar. Sá tími mætti jafnvel vera tvískiptur. Líðandi stund Sæunn Stefánsdóttir 25. febrúar Leynimakk á þingi Samfés fékk okkur þing- menn til að taka þátt í leynivinavikunni. Hver þingmaður fékk úthlutað einum leynivin og í mínu tilviki var það Stein- grímur J. Sigfússon. Ég er svo ekki enn búin að komast að því hvaða leynivinur sendi mér kveðju, gaf mér súkkulaði og síld en ég kemst örugg- lega að því á morgun. [..] Ég hafði nú bara gaman af því að taka þátt í þess- um leynavinaleik. Alþingi er nú ekki venjulegur vinnustaður en það er nú samt þannig að þegar úr ræðupúltinu og þingsalnum er komið lyndir manni við langflesta. Meira: www.saeunn.is Ásta R. Jóhannesdóttir 24. febrúar Bullandi samviskubit Nú blossar upp bullandi samviskubit hjá fram- sóknarmönnum vegna vanrækslu í málefnum eldri borgara. Það má sjá á heimasíðu Framsókn- arflokksins og í skrifum heilbrigð- isráðherra undanfarið. Framsókn hefur haft málaflokkinn á sinni hendi í 12 ár og aldraðir finna á eigin skinni hvernig flokknum hefur farist stjórn hans úr hendi. Það er svolítið seint að koma með loforð og áætlanir um úr- bætur, – á næstu árum og áratugum, það trúir þeim ekki nokkur maður eftir það sem á undan er gengið. Meira: www.althingi.is/arj Ögmundur Jónasson 22. febrúar Ofbeldishótanir Nokkrar kraftmiklar konur tóku frumkvæðið strax og fréttir bárust af fyrirhuguðu ráð- stefnuhaldi og létu þá þegar frá sér heyra. Nú hefur komið í ljós að þessar konur hafa orðið fyrir ofsóknum og níð- skrifum vegna framgöngu sinnar í þessu máli, einkum á netinu. Þessi skrif hafa tekið á sig mjög ljótar myndir. Þannig mun hafa verið haft í hótunum um að þær kynnu að verða beittar ofbeldi ef þær létu ekki af andófi sínu. Það er grafalvarlegt mál. Það er ekki aðeins meiðandi fyrir við- komandi einstaklinga heldur er þetta beinlínis tilræði við tjáningarfrelsið í landinu. Meira: ogmundur.is Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is HLERANIR og kalda stríðið voru í aðalhlutverki á Alþingi síðdegis í gær þegar Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, menntamálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi þess efnis að innan Þjóðskjalasafns Íslands yrði sérstakt safn, öryggismálasafn, þar sem gögn er varða öryggismál lands- ins á tímum kalda stríðsins yrðu varðveitt. Frumvarpið var kynnt ný- verið en það er afrakstur vinnu svo- nefndrar kaldastríðsnefndar sem lagði til að fræðimenn fengju frjálsan aðgang að umræddum gögnum, með því skilyrði að þeir greindu ekki frá upplýsingum um einstaklinga. Össur Skarphéðinsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagðist í um- ræðum telja einu leiðina til að hreinsa þetta mál alfarið upp vera að Alþingi samþykki lög sem sviptu burt trúnaðarskyldu og refsingum gagnvart þeim sem hafa hugsanlega starfað að einhvers konar ólöglegum hlerunum eða eftirliti á þessum tíma, líkt og gert hefði verið í Noregi. „Ég skal að vísu fúslega gangast við því að umfang þessarar starfsemi hafi verið mun minna hér á landi,“ sagði Össur en bætti við að margt benti til þess að ýmislegt væri ekki komið fram í dagsljósið er tengdist „þessu pólitíska ólöglega eftirliti“. Þeir einu sem fylgst var með hefðu verið rót- tækir vinstri menn sem voru með aðrar skoðanir en sjálfstæðismenn. „Þær skýringar sem hafa verið gefn- ar hafa einkum og sér í lagi lotið að því að þessir menn hafi verið hættu- legir lýðræðinu,“ sagði Össur en tók sem dæmi að varla hefði Hannibal Valdimarsson viljað kollvarpa lýð- ræðisskipulaginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir lagði áherslu á að allar hleranir hefðu farið fram lögum samkvæmt og hvergi væri hægt að benda beint á að einhver stjórnmálamaður hefði kom- ið að ákvörðun um það hvern ætti að hlera. „Því það var lögreglan sem framkvæmdi það og það var dómari sem ákvað það,“ sagði Þorgerður og bætti við að starfsmenn Pósts og síma hefðu komið að framkvæmdinni. Ekkert leynimakk Þorgerður sagði að svo virtist sem stjórnarandstöðuþingmenn hefðu orðið fyrir vonbrigðum með að ekk- ert leynimakk hefði verið upplýst og þess vegna vildu þeir halda áfram með málið. „En það er engin launung á því að það var annað andrúmsloft á þessum árum,“ sagði Þorgerður og bætti við að Sjálfstæðisflokkurinn hefði alltaf tekið afstöðu með hinum vestrænu ríkjum. Aðrir flokkar hefðu hins vegar haldið á loft öðrum sjón- armiðum sem hefðu sem betur fer riðað til falls. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði ekki rétt að stjórnvöld hefðu ekkert komið að hlerunum, þær hefðu einnig verið stundaðar án dómsúrskurðar. Ekki sagnfræðileg úttekt Ögmundur gerði jafnframt at- hugasemd við orðalag í frumvarpinu þar sem sagt er að fræðimönnum sé óheimilt að skýra frá „persónugrein- anlegum upplýsingum um lifandi ein- staklinga sem taldir voru geta ógnað öryggi ríkisins.“ Sagði Ögmundur orðalagið vera hlutdrægt enda hefði hvergi komið fram að allt það fólk sem var hlerað hefði ógnað öryggi ríkisins. Heldur ætti að tala um ein- staklinga sem voru hleraðir þar sem enn væru áhöld um í hvaða tilgangi það var gert. „Síðan er það mats- kennt hver er talinn ógna öryggi rík- isins,“ sagði Ögmundur og áréttaði að störf kaldastríðsnefndarinnar hefðu ekki verið sagnfræðileg úttekt heldur tillaga um aðgang sagnfræðinga að gögnum. Hleranir og kalda stríð- ið til umræðu á þingi Ráðherra segir allar hleranir hafa verið löglegar Morgunblaðið/Ásdís Hleranir Þingmenn hafa í nógu að snúast þessa dagana og ætla má að þeir hleri stundum hver annan um hvaða mál séu mikilvægust. ÞETTA HELST … ÞINGMENN BLOGGA ● ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag með utandagskrárumræðum um málefni byggðarlaga utan lands- hlutakjarna. Dagskrá þingsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.