Morgunblaðið - 27.02.2007, Síða 13

Morgunblaðið - 27.02.2007, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 13 FRÉTTIR ÍSLENSKI MARKAÐSDAGURINN 2. mars 2007 Dagskrá Ráðstefna Kl. 9.00 - 16.00 Fyrirtækjakynning og sýning í anddyri Nordica hótel Kl. 9.00 - 09.15 Ráðstefnan sett. Kl. 9.15 - 10.00 Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík. Kl. 10.00 - 10.30 Einar Einarsson framkvæmdastjóri Capacent rannsóknir Könnun fyrir ÍMARK og SÍA Kl. 10.30 - 10.45 Kaffihlé Kl. 10.45 - 12.00 Niku Banaie, Managing Partner, Naked Communication Kl. 12.00 - 13.00 Hádegisverður Kl. 13.00 - 13.45 Fjalar Sigurðarson, Ráðgjafi í almannatengslum Reyka Vodka Kl. 13.45 - 14.15 Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs Icelandair Kl. 14.15 - 14.30 Kaffihlé Kl. 14.30 - 15.30 Jan Godsk, Branded Content Manager, MindShare Copenhagen Kl. 15.30 - 16.00 Kristján Már Hauksson, sviðsstjóri Internet markaðssetningar, Nordic eMarketing Ráðstefnustjóri: Finnur Oddsson, lektor og forstöðumaður MBA-náms við Háskólann í Reykjavík. Lúðurinn Kl. 18.30 Fordrykkur, íslensku auglýsingaverðlaunin 2007. Lúðrahátíð, matur og skemmtun. Ný þurrkublöð á framrúðuna ÍMARK stendur fyrir ráðstefnu í tilefni af Íslenska markaðsdeginum. Alveg eins og ný þurrkublöð bæta útsýnið er ráðstefnunni ætlað að skerpa sýn og kynna fyrir gestum nýjar leiðir og ný tækifæri við markaðssetningu. ÍMARK hvetur markaðsfólk til að taka þátt í áhugaverðri og fræðandi ráðstefnu 2. mars 2007! ÍMARK ráðstefna á Nordica 25.900 kr. fyrir ÍMARK félaga 34.800 kr. fyrir aðra Afhending verðlauna og Lúðrahátíð á Nordica. 7.900 kr. þriggja rétta máltíð ásamt fordrykk. Skráning á ráðstefnu er á www.imark.is eða sendið tölvupóst á imark@imark.is. Forsala miða á Lúðrahátíð er á skrifstofu IMARK. Nánari upplýsingar í síma 511 4888. GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir bæjarfélagið hafa beðið talsvert tjón af þeirri töf sem orðið hefur á framkvæmdum Kópa- vogsbæjar við vatnslögn í Heiðmörk og aðeins tímaspursmál hvenær tré sem eru í vörslu bæjarins og tekin voru upp vegna framkvæmdanna fari að drepast. Gunnar er afar óánægður með umfjöllun fjölmiðla um framkvæmdirnar í Heiðmörk og boðaði bæjarstjórn Kópavogs til blaðamannafundar í því augnamiði að koma sjónarmiðum bæjarins á framfæri. Gunnar segir þátt Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur að málinu með ólíkindum. Að hans sögn er upp- haf málsins að rekja til þess að haft hafi verið samband við þáverandi framkvæmdastjóra Skógræktar- félags Reykjavíkur, Vigni Sigurðs- son, árið 2003 og hann fenginn í vett- vangsferð þar sem heppilegasta leið fyrirhugaðrar vatnslagnar hafi verið valin í samráði við hann. Í millitíðinni hafi hins vegar nýr framkvæmda- stjóri Skógræktarfélagsins verið ráðinn og hann hafi farið með málið í fjölmiðla og haldið því fram að glæp- ur hafi verið framinn í Heiðmörk, án þess að þekkja forsögu málsins og án þess að hafa talað við starfsmenn Kópavogsbæjar. „Í kjölfarið erum við vændir um að vera þjófar sem steli trjám og selji sem svo fundust eftir mikla leit lögreglu,“ segir Gunnar. Hann segist óhræddur við að Skógræktarfélagið leggi fram kæru á hendur Kópavogsbæ, enda fái hann ekki séð á hverju málatil- búnaður félagsins yrði reistur. „Það eru kannski við sem ættum að kæra Skógræktarfélagið og það fyrir meiðyrði, þar sem þeir hafa sagt meira en þeir hafa getað staðið við,“ segir Gunnar. Spurður um næstu skref í málinu segir Gunnar að hann hafi skrifað borgarstjóra Reykjavíkur bréf á föstudaginn og farið þess á leit við hann að framkvæmdaleyfi yrði gefið út tafarlaust þar sem tjón af völdum tafanna væri yfirvofandi. „Nú þarf framkvæmdaleyfið að koma einn, tveir og þrír, svo hægt sé að ljúka við lögnina,“ segir Gunnar. Verði áfram- haldandi tafir á framkvæmdum ítrekar Gunnar þá afstöðu sína að Kópavogsbær muni höfða skaða- bótamál á hendur Reykjavíkurborg þar sem borgin verði látin standa frammi fyrir því sem skrifað var undir í samkomulagi sveitarfélag- anna frá 15. september 2006, en þar komi fram skýrum orðum að Reykja- víkurborg skuli veita framkvæmda- leyfi innan mánaðar frá því að beiðni þar að lútandi var lögð fram. Morgunblaðið/ÞÖK Óánægður með fjölmiðla Gunnar I. Birgisson reifar sjónarmið Kópavogsbæjar á blaðamannafundi í gær. Gunnar kallar eftir framkvæmdaleyfi Segir tjón vegna tafar á framkvæmdum yfirvofandi Í HNOTSKURN »Bæjaryfirvöld í Kópavogitelja sig hafa borið skarð- an hlut frá borði í fjölmiðla- umfjöllun um framkvæmdir bæjarins í Heiðmörk og efndu af því tilefni til blaðamanna- fundar í gær. »Bíði Kópavogsbær frekaratjón vegna tafa við útgáfu framkvæmdaleyfis hyggjast bæjaryfirvöld höfða skaða- bótamál á hendur Reykjavík- urborg vegna vanefnda á sam- komulagi milli sveitar- félaganna. ÁKVÖRÐUN stjórnenda LSH, að segja Stefáni E. Matthíassyni, yfirlækni æðaskurðlækningadeildar Land- spítalans, upp störfum stendur óhögguð enda hefur ekki reynt á hana með stjórnsýslukæru fyrir ráðuneytinu né hefur yfirlæknirinn krafist ógildingar hennar fyrir dóm- stólum. Ákvörðun um að afturkalla ákvörðunina eða breyta henni með einhverjum hætti er alfarið í höndum stjórnenda spítalans og ekki um það að ræða að ráðherra hlutist til um það. Þetta kemur fram í skriflegu svari Sivjar Friðleifs- dóttur, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur og Margrétar Frímannsdóttur, um hvort ráð- herrann ætli að bregðast við þeirri niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur að sú ákvörðun stjórnenda spítalans að áminna yfirlækninn væri ólögmæt. Vísaði Siv í svar þetta er Morgunblaðið kallaði eftir viðbrögðum hennar við ný- legri ályktun Læknafélags Reykjavíkur þar sem krafist er þess að hún hlutist til um viðunandi lausn vegna málsins. Í svari ráðherrans kemur fram að ólögmæti stjórn- valdsákvörðunar leiði ekki sjálfkrafa til ógildingar hennar heldur sé það sjálfstætt úrlausnarefni hverju sinni. Segir að ef litið sé til dómaframkvæmdar Hæstaréttar í sam- bærilegum málum sé ljóst að dómstólar hafi ekki talið að ólögmæti ákvörðunar um uppsögn leiði til ógildingar hennar með þeim hætti að viðkomandi eigi rétt á því að ganga inn í starf sitt aftur. „Verður að ætla að sú yrði jafn- framt niðurstaða Hæstaréttar ef á það reyndi í þessu máli. Hins vegar kann hin ólögmæta ákvörðun að leiða til bóta- skyldu ríkisins séu önnur skilyrði bótaréttar uppfyllt,“ segir í svarinu. Ákvörðun stjórnenda LSH um veitingu áminningar er ekki kæranleg til ráðherra en hins vegar er ákvörðunin sem stjórnendur tóku, í kjölfar áminningar, um uppsögn kæranleg. „Berist ráðherra slík kæra er ljóst að ráðherra hlýtur samkvæmt almennum reglum stjórnsýsluréttar að taka málið til skoðunar og úrlausnar í samræmi við þær efnisreglur og dómafordæmi sem gilda á þessu sviði. Ekki verður hins vegar talið að ráðherra hafi sjálfstæðar heim- ildir til að fyrirskipa stjórnendum LSH að breyta ákvörð- un sinni án þess að slíkt sé gert í úrskurði á grundvelli kæru,“ segir í svarinu. Forstöðumenn stofnana ríkisins bera ábyrgð á því að stofnanir sem þeir stýra starfi í samræmi við lög, stjórn- valdsfyrirmæli og erindisbréf. Verði misbrestur á þessu er ráðherra heimilt að veita forstöðumanni áminningu eða lausn frá störfum. „Rétt er að taka fram að ráðherra hefur tekið til skoðunar hvort mál það sem hér er til umræðu gefi ástæðu til að grípa til þeirra úrræða sem hér greinir. Niðurstaða ráðherra er að svo sé ekki,“ segir í svari heil- brigðisráðherra. Ekki ástæða til að áminna stjórnendur Landspítalans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.