Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● FLUGFÉLAGIÐ Iceland Express
fagnar í dag, 27. febrúar, fjögurra ára
afmæli, en þann dag árið 2003 var
fyrsta flug félagsins til Kaup-
mannahafnar og London. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að um
300.000 manns fljúgi nú árlega með
flugfélaginu, en Íslendingum á ferða-
lagi til annarra landa hafi fjölgað um
35% frá því að félagið kom inn á
markaðinn. Á sama tíma hafi ferða-
mönnum til Íslands fjölgað um 17%
Iceland Express er hlutafélag í
eigu Northern Travel Holding, en fyrri
eigandi Iceland Express, eignar-
haldsfélagið Fons, er meðal stærstu
eigenda NTH.
Iceland Express 4 ára
● ALAN Greenspan, fyrrverandi for-
maður bankaráðs bandaríska seðla-
bankans, varaði við því í gær að það
mundi væntanlega hægja á í banda-
rísku efnahagslífi fyrir árslok. Mikill
uppgangur hefði einkennt Bandarík-
in undanfarin ár en nú væru teikn á
lofti um að stutt væri í næsta sam-
dráttarskeið.
Hagvöxtur í Bandaríkjunum var
3,5% á fjórða ársfjórðungi 2006,
sem er veruleg aukning frá þriðja árs-
fjórðungi er hann var 2%. Í ár er útlit
fyrir að hagvöxtur verði 2,7%, sem er
minnsti hagvöxtur í Bandaríkjunum
frá árinu 2002 er hann var 1,6%.
Greenspan varar við
samdráttarskeiði
FRÁ ÞVÍ að matsfyrirtækið
Moody’s hækkaði lánshæfiseinkunn-
ir bankanna fyrir helgi hefur skulda-
tryggingarálagið á skuldabréfum
þeirra (e. CDS-spread) fallið hratt
og er nú komið í um 19,5 punkta hjá
Landsbankanum og Glitni og í um
25,5 punkta hjá Kaupþingi. Er sagt
frá þessu í Vegvísi Landsbankans.
Skuldatryggingarálag íslensku
bankanna hefur ekki verið svona lágt
síðan í október 2005. Kaupþing hefur
undanfarnar vikur verið með tals-
vert hærra skuldatryggingarálag en
Landsbankinn og Glitnir. Kaupþing
er enn aðeins yfir hinum bönkunum
en þó er lækkun á álagi á skulda-
tryggingum Kaupþings áberandi
mest og er það nú aðeins fimm
punktum hærra en hjá Glitni og
Landsbankanum.
Ekki tekið mark á Moody’s?
Þá hækkaði gengi hlutabréfa
bankanna þriggja í Kauphöll Íslands
í gær, hlutabréf Kaupþings um 2,8%,
hlutabréf Landsbankans um 3,1% og
bréf Glitnis um 3,7%. Í Vegvísinum
er einnig fjallað um viðbrögð er-
lendra sérfræðinga við aðgerðum
Moody’s, sem eru sögð æði misjöfn.
Þannig er það haft eftir greinanda
hjá Royal Bank of Scotland að ekki
verði tekið mark á Moody’s eftir að-
gerðir föstudagsins. Greiningardeild
Landsbankans telur hins vegar lík-
legt að fjölgun banka með hæstu ein-
kunn leiði til þess að fjárfestar muni í
auknum mæli líta til einkunnar fyrir
fjárhagslegan styrkleika, en hún
endurspeglar styrk banka án utan-
aðkomandi stuðnings, þ.e. án stuðn-
ings eigenda og ríkis.
Hækkun Moody’s á langtímaláns-
hæfiseinkunn Kaupþings, Lands-
banka og Glitnis í Aaa var tekin í
kjölfar breyttrar aðferðafræði.
Séu líkur á utanaðkomandi stuðn-
ingi metnar meiri en 98% hlýtur við-
komandi banki sömu einkunn og
stuðningsaðili hefur. Í tilviki ís-
lensku bankanna er stuðningsaðilinn
íslenska ríkið og hljóta þeir því sömu
einkunn og það, Aaa.
Fleiri bankar á Norðurlöndum fá
nú hærri einkunn en áður. Einkunn
Nordea AB, stærsta fjármálafyrir-
tækis á Norðurlöndunum, hækkaði
um þrjú þrep úr Aa3 í Aaa. Fleiri
norrænir bankar sem fengu hækk-
aða lánshæfiseinkunn eru til dæmis
Danske Bank, annar stærsti banki
Norðurlanda, og Swedbank.
Breytt mat Moody’s
hefur jákvæð áhrif
Gengi bréfa viðskiptabankanna þriggja hækkar á markaði
Í HNOTSKURN
» Íslensku bankarnir þrír,Kaupþing, Landsbanki og
Glitnir, hækkuðu um fjóra til
fimm flokka í einkunnaskala
Moody’s á föstudag, úr A2 og
A1 í Aaa þegar horft er til
langtímaskuldbindinga.
» Fá þeir þar með sömu ein-kunn og íslenska ríkið,
enda endurspeglar hin nýja
einkunn trú Moody’s á að ís-
lenska ríkið hlaupi undir
bagga með bönkunum reynist
þess þörf.
SJÓVÁ hagnaðist um 11,9 milljarða
króna á síðasta ári, en hagnaður árið
2005 nam um 3,8 milljörðum. Eigið
fé nam rúmum 9,3 milljörðum í árs-
lok 2006. Í fréttatilkynningu segir að
fjárfestingarstarfsemi félagsins hafi
gengið vel á árinu.
Félagið hóf umtalsverða útrás
með kaupum á fasteignum erlendis
undir forystu móðurfélagsins Mile-
stone sem mun hafa tekist vel.
Þungamiðja fjárfestinga Sjóvár er
þó þátttaka félagsins í öflugum ís-
lenskum alþjóðafyrirtækjum.
Meiri tjón á árinu
Umskipti í tryggingastarfsemi fé-
lagsins halda áfram. Þar munar
mestu umtalsverð lækkun rekstrar-
kostnaðar félagsins en rekstrar-
kostnaður nam 2,53 milljörðum árið
2006 samanborið við 3,22 milljarða
árið á undan. Samsett hlutfall félags-
ins, sem er rekstrarkostnaður og
tjón í hlutfalli við iðgjöld, nam
114,8% en var 121,5% árið áður.
Áætlanir fyrir árið 2006 um lækkun
rekstrarkostnaðar náðust og er
kostnaðarhlutfall félagsins að nálg-
ast erlenda keppinauta eða um 20%.
Tjón urðu hins vegar meiri en ráð
var fyrir gert, ekki síst á seinni hluta
ársins. Karl Wernersson stjórnar-
formaður segir bættan rekstur
tryggingastarfseminnar leggja
grunn að traustri framtíð félagsins.
Sjóvá hagnast
um 12 milljarða
Morgunblaðið/ÞÖK
Aukning Hagnaður Sjóvár jókst um
rúma 8 milljarða árið 2006.
STJÓRNENDUR FL Group eru af-
ar ósáttir við að fá ekki mann í
stjórn finnska flugfélagsins Finnair
þrátt fyrir að eiga 22,4% hlut í fé-
laginu sem undir öllum venjulegum
kringumstæðum myndi tryggja fé-
laginu að minnsta kosti einn stjórn-
armann.
Finnska ríkið, sem fer með ríf-
lega meirihluta bréfa í Finnair,
virðist lítinn áhuga hafa á því að
nýta sér kunnáttu og reynslu Hann-
esar Smárasonar, forstjóra FL
Group, innan Finnair. Frá þessu er
greint í norrænum fjölmiðlum.
„Þessi viðbrögð koma stjórnendum
FL Group á óvart og þeim þykja
þau röng og alveg á skjön við góðar
stjórnunarvenjur í nútíma-
viðskiptaumhverfi,“ segir í tilkynn-
ingu FL Group.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Forstjóri félagsins Hannes Smára-
son, forstjóri FL Group.
Hannes ekki
í stjórn
56
78 #$
#$
9
9
:;
<=
%$
%$
9
9
>> ?)='%3
%$
%$
9
9
?)=!3/"
5
#$
%$
9
9
@>;= <%AB%
%$
#$
9
9
!
"#$
#%%&
"# $ %&! !%$ 3"
C'-D %E3"
" C3"
' 'C8 ' % 8
'% D %E3"
F-/ D %E3"
*D %E3"
D' 1 3"
G"
;E"4
!E0 1 3"
* 1 3"
) 3"
)%C3% 3"
' ,F .. "
1
3"
H 3"
'#()*
;I'3"
D %E3"
@C D %EG% 3"
@C CD %E3"
5J3 3"
?)=F
: K3"
: K '/ 3"
L '/ 3"
+ ** .' "4 -"
", (-
GFD 3"
GE 3"
.*
!
$
$ $
$
$
$
G ,
- E'
:1% +% M
!E
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
L E'+ (
:G
N'3 ' /
- E'
,
,
,
,
,
+ '
-
-