Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
PÓLITÍSK ódæðisverk sem framin
hafa verið á Filippseyjum á und-
anliðnum sex árum tengjast herafla
stjórnvalda. Þessi er niðurstaða
tveggja skýrslna sem birtar voru í
liðinni viku. Skýrslur þessar eru að
sönnu „svartar“ og ekki fallnar til
að styrkja Gloríu Macapagal Arr-
oyo, forseta Filippseyja, í sessi.
Pólitískt framhaldslíf hennar er
undir stuðningi hersins komið.
Skýrslurnar unnu annars vegar
sérlegur sendimaður Sameinuðu
þjóðanna og hins vegar óháð rann-
sóknarnefnd sem forsetinn skipaði.
Niðurstöður þeirra eru um sumt
óljósar og erfitt er að fullyrða um
fjölda og umfang þeirra illvirkja
sem framin hafa verið. Mannrétt-
indahópar fullyrða að um 830
manns hafi verið drepnir á síðustu
sex árum vegna skoðana sinna og/
eða þátttöku í pólitísku starfi. Hér
ræðir yfirleitt um vinstrisinnaða
andstæðinga stjórnvalda.
Skýrslu Jose Melo, fyrrum
hæstaréttardómara sem Arroyo fól
að fara fyrir óháðri rannsóknar-
nefnd, hafði verið beðið með mikilli
eftirvæntingu á Filippseyjum. Hún
var gerð á opinber á fimmtudag en
daginn áður hafði sendimaður Sam-
einuðu þjóðanna, Philip Alston,
lagaprófessor við New York-há-
skóla, skilað niðurstöðum sínum.
Alston telur yfir allan vafa hafið
að starfræktar séu „dauðasveitir“ á
Filippseyjum. Hann segir á hinn
bóginn engan veginn unnt að sanna
að vígaflokkar þessir lúti beinlínis
stjórn yfirvalda. Prófessorinn er
þeirrar hyggju að morðingjarnir
séu tengdir stjórnarhernum. Hann
sakar yfirmenn hersins um að vera
á stigi „afneitunar“ í þessu efni.
Herforingjar á Filippseyjum hafa
þegar brugðist við skýrslu Philips
Alston og segja hana „ósanngjarn-
an“ og órökstuddan samsetning.
„Mér sýnist að herra Alston eigi
sjálfur við alvarlega afneitun að
stríða,“ sagði herforinginn Hermog-
enes Esperon á fundi með frétta-
fólki á miðvikudag.
Helsta niðurstaða skýrslu Jose
Melo er sú að „aðilar“ innan stjórn-
arhersins hafi gerst sekir um lög-
brot. Hvatt er til þess að komið
verði á fót sérstakri stjórnardeild til
að rannsaka framgöngu öryggis-
sveita.
Kommúnískar hreinsanir?
Hátt settir embættismenn sem
starfa á vettvangi öryggismála hafa
löngum vísað á bug ásökunum þess
efnis að stjórnherinn starfræki
„dauðasveitir“. Fullyrða viðkom-
andi að hér ræði um áróður hópa
vinstri sinna sem eigi rætur að
rekja til Kommúnistaflokks Filipps-
eyja og hernaðararms hans er nefn-
ist Nýi alþýðuherinn. Samtök þessi
hafa hvor tveggju verið lýst ólögleg
á Filippseyjum. Fyrir liggur að ör-
yggisráðgjafar Arroyo forseta telja
almennt og yfirleitt að ríkinu stafi
meiri ógn af flokkum kommúnískra
uppreisnarmanna en íslömskum
öfgamönnum.
Að auki er deilt um umfang voða-
verkanna. Mannréttindahópar á
borð við Karapatan kveðast búa yfir
upplýsingum um meira en 800 póli-
tísk morð á undanliðnum sex árum.
Hlutleysi hóps þessa draga sumir í
efa og halda því fram að talan fái
ekki staðist þar eð tugi morða sé að
finna í skýrslum hans sem ekki
verði sannað að framin hafi verið af
pólitískum ástæðum. Prófessor
Alston tiltekur ekki fjölda pólitískra
morða í skýrslu sinni en segir jafn-
framt að fjöldi þeirra sé slíkur að
framhjá þeim hryllingi verði ekki
horft. Talsmenn lögreglu fullyrða
að félagar í Kommúnistaflokki Fil-
ippseyja séu sjálfir ábyrgir fyrir
fjölda morða á síðustu árum. Þar
ræði um „hreinsanir“ sem komm-
únistar hafi ákveðið að fram færu á
sama tíma og stjórnarherinn hefur
hert baráttu sína gegn skæruliðum.
Tímasetningin sé með öðrum orðum
engin tilviljun.
Þessu heldur m.a. fram Avelino
Razon herforingi sem fer fyrir hópi
lögreglumanna er í fyrra var falið
að rannsaka ofbeldið. Vinstrimenn á
Filippseyjum segja þessa skýringu
tilbúning einan og tilraun yfirvalda
til að varpa sökinni á aðra. Arroyo
forseti lýsti í fyrra yfir stríði gegn
herflokkum kommúnista og fullyrða
margir talsmenn stjórnarandstöð-
unnar að sú mikla harka sem stjórn-
völd sýni skapi forsendur fyrir
mannréttindabrotum og stjórn-
lausri framgöngu hermanna og for-
ingja þeirra.
Líklegt er að Gloría Arroyo for-
seti sæti vaxandi þrýstingi um að
bregðast við stöðu mála nú þegar
skýrslurnar liggja fyrir. Morðin og
meint stjórnleysi hersins móta vit-
anlega stjórnmálaástandið á Fil-
ippseyjum nú um stundir.
Lýðræði í skjóli hervalds
En staða forsetans er afar erfið.
Gloría Arroyo stendur höllum fæti í
embætti. Hún hefur verið vænd um
svik í forsetakosningunum 2004 og
komst naumlega hjá kæru sem leitt
hefði getað til embættissviptingar.
Lífseigar eru og ásakanir þess efnis
að eiginmaður hennar og sonur hafi
þegið mútur og gangi vasklega fram
á spillingarsviðinu. Eiginmaður
hennar, Jose Miguel, jafnan nefnd-
ur „Mike“ þar eystra, flutti úr landi
árið 2005 til að létta konu sinni lífið.
Mestu skiptir þó að forseti Fil-
ippseyja á allt sitt undir stuðningi
hersins. Einræðisherranum Ferdin-
and Marcos var steypt af stóli í upp-
reisn árið 1986. Herinn hafði þá
snúist gegn honum. Corazon
Aquino varð forseti og á þeim sex
árum sem hún ríkti gerði herinn sig
líklegan til að taka völdin sex sinn-
um, hið minnsta. Fidel Ramos, sem
tók við af henni, var sjálfur herfor-
ingi og raunar helsti leiðtogi yfir-
manna þeirra sem baki sneru við
Ferdinand Marcos. Grundvöllur
valda hans var af þeim sökum
traustur en hann neyddist engu að
síður iðulega til að kaupa sér stuðn-
ing heraflans.
Næstur gegndi embættinu Jos-
eph Ejercito Estrada, makalaus
stjórnmálamaður sem var einn vin-
sælasti kvikmyndaleikari Filipps-
eyja áður en hann komst að þeirri
niðurstöðu að þjóðin þarfnaðist
hans. Estrada, betur þekktur sem
„Erap“, þótti slá öll met á sviði
hömluleysis og spillingar sem ekki
var létt verk og kostaði einbeittan
vilja. Eftir að hann hafði verið við
völd í tvö og hálft ár (í janúar 2001)
fékk herinn nóg og „Erap“ flutti úr
forsetahöllinni. Við tók varaforset-
inn, Gloría Macapagal Arroyo.
Hvað getur forsetinn gert?
Sennilega ekki neitt. Sú speki að
hefðum og „pólitískri menningu“
verði trauðla breytt telst vart til
kjarnorkuvísinda. Arroyo hefur
vissulega reynt að bregðast við
stöðu mála og bæta ímynd ríkis-
stjórnar sinar á heimavelli sem á al-
þjóða vettvangi. Og næsta auðvelt
er að gera lítið úr viðleitni hennar
og heilindum. Viljinn til valda er án
nokkurs vafa rúmfrekur í sálarlífi
forseta Filippseyja enda hefur hún
sýnt mikla seiglu. Arroyo hefur hins
vegar líkt og fyrirrennarar hennar
neyðst til að kaupa stuðning hersins
dýru verði. Í fyrra benti flest til
þess að stjórnarherinn hefði uppi
áform um að steypa forsetanum af
stóli en foringjar henni hliðhollir
gripu í taumana. Reikningurinn
hljóðaði upp á nokkur ráðherra-
embætti fyrrum herforingjum til
handa. Herinn er beinn þátttakandi
í hinu pólitíska ferli. Að þessu leyti
minnir staða mála á þá sem ríkti á
Filippseyjum þegar einræðisherr-
ann alræmdi, Ferdinand Marcos,
var þar við völd. Við slíkar aðstæður
tekur verulega að reyna á viðtekin
skilgreiningaratriði um lýðræðið.
Í maímánuði fara fram þingkosn-
ingar á Filippseyjum. Skýrslur um
morð og myrkraverk munu augljós-
lega hafa áhrif á kjósendur og líkur
eru því á að forsetinn missi meiri-
hluta sinn á þingi. Gloría Arroyo
mun þurfa á öllu sínu að halda á
næstu mánuðum – og, vitanlega,
stuðningi hersins.
Máttur hers og hefða
Stjórnarherinn á Filippseyjum er bendlaður við pólitísk myrkraverk í tveimur
nýjum skýrslum Gloría Macapagal Arroyo forseti stígur erfiðan línudans
Í HNOTSKURN
» Gloria Macapagal Arroyofæddist 5. apríl 1947. Hún er
14. forseti Filippseyja og önnur
konan sem hefur það embætti
með höndum. Faðir hennar,
Diosdado Macapagal, var forseti
frá 1961 til 1965.
» Gloria Arroyo er hagfræð-ingur að mennt. Hún var
kjörin til setu í öldungadeild
þingsins árið 1992.
» Árið 1998 tók hún við emb-ætti varaforseta í stjórn stór-
leikarans Joseph Estrada. Hann
hraktist frá völdum í janúar-
mánuði árið 2001 og tók Arroyo
þá við forsetaembættinu.
Reuters
Bylting Gloria Arroyo kannar heiðursvörð á sunnudag þegar 21 ár var liðið frá því stjórn Marcos var steypt.
Reuters
Ákall Drengur ber spjald þar sem beðist er liðveislu fulltrúa SÞ.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BRESKA móðirin Nicola McKeown
mun komast að því í dag hvort yf-
irvöld grípa til þess örþrifaráðs að
flytja son hennar á meðferðar-
stofnun vegna ofþyngdar hans.
Málið hefur vakið töluverða athygli
í Bretlandi og vakið deilur um
hversu langt stjórnvöld eigi að
ganga á réttindi fólks til að binda
enda á óæskilega hegðun.
McKeown hefur staðfastlega
neitað að hætta að gefa átta ára
gömlum syni sínum, Connor
McCreaddie, svokallað ruslfæði,
næringarsnauðan mat sem jafnan
er ríkur af kolvetnum.
McCreaddie vegur um 90 kíló og
á af þeim sökum erfitt með gang.
Hann á einnig erfitt með að klæða
sig og þvo sér og er oft fjarverandi
úr skóla. Læknar telja þyngdina
ógn við heilsufar hans en móðirin,
sem glímt hefur við þunglyndi, seg-
ir yfirvöld í Wallsend ekki hafa
neinn rétt til að grípa til svo harka-
legra aðgerða, þau hafi ekki boðið
henni næga aðstoð.
Megrunin dugði skammt
Hún segir yfirvöld hafa látið sig
hafa lista yfir næringarríkt fæði
þegar drengurinn var fimm ára
gamall og hafi hún fylgt listanum
samviskusamlega í ár. McCreaddie
hafi aðeins lést um 6,35 kíló og síð-
an hafi engin framhaldsmeðferð
tekið við.
Fjölskylda McCreaddie kemur á
fund barnaverndaryfirvalda í dag,
þar sem tvær hjúkrunarkonar með
sérþekkingu á offitu munu, ásamt
fleiri sérfræðingum, segja álit sitt á
heilsufari drengsins og gæti sá úr-
skurður fallið að hann yrði tíma-
bundið fluttur á stofnun meðan á
megrunarátaki stendur.
Of þungt
barn tekið
frá móður?
Neitar að hætta að
gefa því ruslfæði
STEPHEN Harper, forsætisráð-
herra Kanada, tilkynnti í gær að
Kanada myndi veita Afganistan 200
milljóna kanadískra dollara styrk,
um 11,3 milljarða króna, til uppbygg-
ingarstarfs í landinu á næstu 10 ár-
um. Þetta er til viðbótar við stuðning
upp á milljarð dollara, tæplega 57
milljarða króna, sem Kanada hefur
skuldbundið sig til að greiða til 2011.
Stuðningur Kanada á meðal ann-
ars að gera heimamönnum kleift að
greiða kennurum, lögreglumönnum
og fólki í heilbrigðisþjónustu laun.
Hann á einnig að fjármagna vega-
framkvæmdir í landinu, efla við-
skiptalífið og nýtast í baráttunni við
heróínframleiðslu í Afganistan.
Þegar Harper greindi frá stuðn-
ingnum sagði hann að Afganistan
ætti langt í land og málefnin, sem
Kanada styddi, snertu allar þjóðir
heims. Árangur stuðningsins væri
því mikilvægur fyrir alla.
Aukinn
stuðningur
Kanada
Reuters
Styrkur Stephen Harper greinir
frá stuðningnum við Afganistan.
♦♦♦