Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 19 AKUREYRI  Upplýsingar í síma 461 6011/ 840 6011 í Naustahverfi, Akurgerði og neðri hlutan í Brekkunni. Einnig víðs vegar um bæinn vegna aukinna verkefna. Á AKUREYRI Djúpivogur | Þeir heita Nero Island- us og Blanco Islandus og eins og nöfnin gefa í skyn þá eru þeir alveg eins og svart og hvítt. Nero Islandus er af hinu virta varðhundakyni rott- weiler, 8 mánaða gamall og afkvæmi Aragons og Athenu Mána Hrafns- sonar á Kjalarnesi. Nero hefur sýnt góða takta við leitaræfingar björg- unarsveita og lofar góðu sem snjó- flóðaleitarhundur. Blanco Islandus er af hinu frá- bæra sleðahundakyni siberian husky, er 5 mánaða og foreldrar hans hið glæsilega par Eldur og Róma í eigu Hjördísar Hilm- arsdóttur og Steindórs Sigurjóns- sonar hjá Múlaræktun á Fljótsdals- héraði. Blanco er líkt og aðrir husky-hvolpar með ódrepandi hlaupadellu og verður án efa góður sleðahundur þegar hann stækkar. Það eru þau Sigurður M. Davíðsson og Kolbrún Sigurðardóttir á Djúpa- vogi sem eiga þessa fallegu hunda. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Félagar Kolbrún Sigurðardóttir með Blanco og Nero Islandus. Svarthvítir félagar Egilsstaðir | Markaðsstofa Austur- lands og markaðsskrifstofa ferða- mála á Norðurlandi kynntu sameig- inlega ferðamöguleika á Austurlandi og Norðurlandi í Kaupmannahöfn í síðustu viku, í samstarfi við Ferða- málastofu Íslands og Iceland Ex- press. Boðið var um 70 ferðaskrif- stofum og fjölmiðlum, einkum frá Kaupmannahöfn og einnig Malmö í Svíþjóð. Um 20 aðilar úr ferðaþjón- ustu á Austur- og Norðurlandi kynntu nýja valkosti fyrir ferða- menn tengda beinu flugi Iceland Ex- press til Akureyrar og Egilsstaða, en flogið verður fjórum sinnum í viku til þessara staða næsta sumar. Mun þetta aðeins byrjunin á frekari sam- vinnu ferðaþjónustuaðila á Austur- landi og Norðurlandi. Austurland og Norðurland kynna sig Neskaupstaður | „Karl Marx var metró, það er Smári Geirs líka!“ kölluðu nemendur á félagsfræði- braut við Verkmenntaskóla Austur- lands. Í liðinni viku fóru nemendur og kennarar skólans í sína árlegu karnivalgöngu um Fjarðabyggð þar sem þeir vekja athygli á skól- anum. Nemendur eru gjarnan skrautlegir til fara og berjast ólík- ar brautir innbyrðis með skemmti- legum slagorðum á skiltum. Heldur var veðrið hryssingslegt, en nem- endur og kennarar létu það lítt á sig fá, en ferðast var með rútu á milli byggðakjarnanna innan Fjarðabyggðar. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Marx og Smári Geirs báðir svo „metró“ Reyðarfjörður | Intrum á Austur- landi opnaði sl. föstudag nýja starfs- stöð á Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur einnig flutt sig um set á Egilsstöðum í nýjar skrifstofur við Kaupvang. Skrifstofan á Reyðarfirði er á Búðareyri 1 og þar munu til að byrja með starfa tveir starfsmenn, þau Björgvin Víðir Guðmundsson og Re- bekka Þórhallsdóttir. Intrum á Austurlandi er einnig með þjónustu fyrir Rentus leigumiðlun, lögfræði- ráðgjöf Pacta, Lögheimtuna og fast- eignasöluna Domus. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Starfsstöð Intrum vígir nýtt skrif- stofuhúsnæði á Egilsstöðum. Intrum á Reyðarfirði AUSTURLAND KRISTJÁN Ingimarsson leikari frumsýnir í byrjun mars nýtt frum- samið verk, ásamt Dönunum Cam- illu Marienhoff og Bo Medvig. Leikritið heitir Frelsarinn og hafa þremenningarnir æft af krafti á Akureyri síðustu vikur. Verkið verður hins vegar frumsýnt í Kaupmannahöfn. Kristján, sem fæddur er og upp- alinn á Akureyri en bjó lengi í Dan- mörku, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir verkið Mike Attack sem hann hefur sýnt í vetur í höf- uðstað Norðurlands. „Sýningin fékk mjög góðar undirtektir og hefur verið vel sótt. Hún er búin að ganga í átta ár í Danmörku og ég hef farið með hana um alla Evrópu; ég er eiginlega að reyna að leggja henni, því hún er orðin gömul (!) en hún er reyndar bókuð í eitt og hálft ár til viðbótar í Danmörku. Svo hef ég verið með aðra sýningu, Listin að deyja, ásamt vini mínum Paulo Nani í fjögur ár í Danmörku,“ sagði Kristján í samtali við Morg- unblaðið á dögunum. Orðalaust Kristjáni finnst best að leika orðalaust og í þessum þremur sýn- ingum er talmál ekki notað. „Þetta er ekki látbragðsleikur heldur leik- rit án orða. Leikhús eins og mér finnst leikhús eiga að vera. Maður notar öll skilningarvitin ef með þarf og allan líkamann; ef ég vil nota röddina geri ég það, en þess þarf ekki núna,“ sagði Kristján þegar Morgunblaðið kíkti á æfingu verksins nýlega. „Þetta er stundum kallað lát- bragð, en ég myndi ekki segja að t.d. Charlie Chaplin hefði verið lát- bragðsleikari. Myndirnar hans voru þöglar en það skildu allir hvað hann var að gera.“ Þögnin ríkir reyndar ekki í sýn- ingunni því í henni er nóg af hljóð- um. Tónlistina semur Rúnar Magnússon, en þeir Kristján hafa lengi unnið saman í Danmörku. Frelsarinn verður frumsýndur í Kaupmannahöfn 7. mars og Krist- ján og félagar fara síðan í sýning- arferð um Danmörku og líklega víðar. Og hann reiknar með að sýna verkið á Íslandi næsta vetur, bæði á Akureyri og í Reykjavík. „Þetta er örugglega öðruvísi sýning en fólk á að venjast hérna heima. Hér hefur mikið verið reynt að blanda saman venjulegri leiklist og dansi en ég held ég fari svolítið aðra leið, af því ég reyni að hnýta saman marga mismunandi hluti; ég hef alltaf reynt að þróa eitthvað nýtt því að allt er leyfilegt.“ Kristján hefur fengist við leiklist af þessu tagi í níu ár en kveðst einnig hafa leikið í hefðbundnum stykkjum. „Ég er stundum beðinn að vera með í textastykkjum ef ég þyki passa inn í þau en ég geri ekki svoleiðis sýningar sjálfur.“ Jesús endurfæddur? Spurður segir Kristján að Frels- arinn fjalli um mann sem finnst hann hafa eitthvað ákveðið að bjóða; hann vill finna hvaða tilgang hann hefur og heldur að hann sé Jesús endurfæddur, „sem reynist að sumu leyti stór misskilningur og hefur alls konar hættur í för með sér. Leikritið er kannski dálítið pólitískt, ég vona að minnsta kosti að það hreyfi við fólki nú þegar fólk vitnar í beint samband við Guð og Jesú og stríð eru jafnvel háð í þeirra nafni!“ Kristján segir að heimsendir sé í nánd þegar frelsarinn birtist, það komi skýrt fram í Opinberunarbók Jóhannesar. „Margir eiga von á því að sjá Jesú Krist á hvítum hesti en ég er ekki viss um að það gerist þannig. Þetta verk fjallar svolítið um hvernig almúginn, í gegnum lýðræðið, velur í raun sinn Frels- ara; við erum að byggja upp eitt- hvað sem við höldum að sé ynd- islegt og við trúum á. Í stað þess að bíða eftir honum erum við í raun- inni að búa hann til en þykjumst vera að bíða eftir honum.“ Leikstjóri sýningarinnar er Jón Páll Eyjólfsson. Hann hefur unnið mikið með bæði atvinnu- og áhuga- fólki og leikstýrði t.d. Maríubjöll- unni hjá Leikfélagi Akureyrar og nú síðast Herra Kolbert þar á bæ. Frumsýna brátt orðalaust leikrit sem höfundurinn vonar að hreyfi við fólki Kristján og Frelsarinn hans Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frelsarinn Kristján Ingimarsson, lengst t.h., ásamt Camillu Marienhoff og Bo Medvig. Sviðið er breytilegt, hallar stundum eins og þarna sést. Í HNOTSKURN »Kristján Ingimarsson hefursamið leikritið Frelsarann og sýnir ásamt Dönunum Camillu Marienhoff og Bo Med- vig. Frumsýnt verður í Kaup- mannahöfn 7. mars. »Kristján hefur sýnt MikeAttack! í átta ár og sýn- ingin er bókuð í eitt og hálft ár til viðbótar í Danmörku. »Höfundurinn segir nýjaverkið dálítið pólitískt og vonar að það hreyfi við fólki, nú þegar menn vitni í beint samband við Guð og Jesú og stríð jafnvel háð í þeirra nafni. MENOR, Menningarsamtök Norðlend- inga, og Tímarit Máls og menningar efna til smásagnasamkeppni og er öllum heimil þátttaka. Skilafrestur er til 1. maí nk. og verða þrjár sögur verðlaunaðar. Sögurnar á að senda undir dulnefni til MENOR, pósthólf 384, 602 Akureyri merktar Smá- sagnakeppni MENOR og TMM 2007. Í lok- uðu umslagi skal fylgja nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer. Umslagið skal merkt dulnefni og aðeins umslög verð- launahöfunda verða opnuð. Blásið til keppni í smásagnaskrifum DEMIAN Asa Schane ræðir í dag á Lög- fræðitorgi HA um réttarstöðu Guant- anamofanganna. Fyrirlesturinn hefst kl. 12 í stofu L201 á Sólborg. Schane er bandarískur lögmaður, sem vann um fimm ára skeið á lögmannsstofu sem sérhæfði sig í umhverfis- og mannréttindamálum en undanfarin ár hefur hann unnið fyrir samtökin Earthjustice. Hann er Fullbrightstyrkþegi og hefur stundað rannsóknir við Háskólann á Akureyri frá því í ágúst. Í erindinu ræðir hann um þrjá nýlega úrskurði hæstaréttar Bandaríkjanna sem fjalla um rétt fanganna til að fá skorið úr um lögmæti frelsisviptingar. Réttarstaða fang- anna í Guantanamo ANNA Þóra Baldursdóttir lektor og Val- gerður Magnúsdóttir sálfræðingur flytja í dag erindi sem þær nefna Líðan kennara í vinnunni – vinnugleði, faglegt sjálfstraust og starfsumhverfi. Þetta er fræðslufundur skólaþróunarsviðs kennaradeildar Há- skólans á Akureyri og fyrirlesturinn hefst kl. 16.30 í stofu 16 í Þingvallastræti 23. Í fyrirlestrinum verður greint frá niður- stöðum rannsóknar sem fyrirlesarar gerðu meðal grunnskólakennara. Hvernig líður kenn- aranum í vinnunni?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.