Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 21
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Ég er í handbolta, fótboltaog golfi og stefni á at-vinnumennsku í hand-bolta og golfi,“ segir hin níu ára gamla Ragnhildur Krist- insdóttir, sem er í fjórða bekk Álfta- mýrarskóla. Það er venjulega engin lognmolla í kringum hana enda í nógu að snúast. Hún æfir handbolta þrisv- ar í viku, fótbolta þrisvar í viku og golf þrisvar í viku. „Í handboltanum og fótboltanum er ég náttúrlega Frammari í húð og hár, en í golfinu er ég í Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég æfi ýmist við Korpu eða í Básum, er kom- in með 35,2 í forgjöf og tók þátt í al- vöru mótaröðinni í fyrrasumar. Mér skilst að ég standi mig mjög vel miðað við aldur.“ Svakalega skemmtilegt Ragnhildur segir að mamma sín hafi leyft sér að fara á fyrsta fótbolta- námskeiðið fjögurra ára að aldri og síðan hafi hún varla stoppað. „Þetta er svo skemmtilegt. Núna er ég farin að spila upp fyrir mig bæði í hand- boltanum og í fótboltanum og ég er auk þess komin í framtíðarhóp í golf- inu. Svo situr fjölskyldan saman yfir ensku knattspyrnunni á laugar- dögum. Við systkinin og mamma höldum með Manchester United á meðan pabbi er einn úti í horni og heldur með West Ham. Hann er held ég alveg að gefast upp á því enda í miklum minnihluta á heimilinu,“ seg- ir þessi knáa íþróttakona. Spilar upp fyrir sig Ragnhildur spilar mark í fótbolt- anum og spilar vinstra horn og miðju í handboltanum. „Ég á að vera í 7. flokki, en er að æfa með 6. flokki og er líka að byrja að spila upp fyrir mig í fótboltanum því það vantar mark- mann enda er ekki vinsælt hjá mínum jafnöldrum að æfa fótbolta. Stelp- urnar vilja miklu frekar vera í ballett eða fimleikum. Ég er hins vegar ekk- ert fyrir slíka leikfimi og hef engan hug á að prófa það sport einu sinni.“ Ragnhildur á tvo eldri bræður. Þorkell er 14 ára og er að æfa hand- bolta og golf og Ögmundur er 17 ára og er kominn á samning sem mark- maður hjá Fram. „Besti íslenski fót- boltamaðurinn er auðvitað bróðir minn hann Ögmundur, en uppáhalds- leikmennirnir mínir í ensku deildinni eru Wayne Rooney, Christiano Ron- aldo, Ryan Giggs og hollenski mark- maðurinn Edwin van der Sar. Ég á alveg eftir að fá að upplifa það að fara á alvöru leik í Englandi, en bræður mínir hafa fengið að upplifa það. Ég fór hins vegar til Liverpool og Man- chester fyrir tveimur árum og skoð- aði báða vellina sem var skemmtilegt. Fjölskyldan fór svo um páskana í fyrra til Bandaríkjanna og vorum á hóteli rétt fyrir utan Baltimore sem státaði af golfvelli, sundlaug, körfu- boltavelli og tennisvelli. Það var sko nóg við að vera.“ Lærir á sunnudögum Þegar Ragnhildur er spurð að því hvort hún þurfi ekki að passa vel upp á að borða heilsusamlega svarar hún því til að mamma sín sjái um það og svo þurfi hún bara að drekka mikið fyrir æfingar, helst bara vatn. En í ljósi atgangsins á íþróttasvið- inu, er þá nokkur tími fyrir lærdóm- inn? „Jú jú, það er alveg tími fyrir skólann. Sunnudagarnir eru mínir lærdómsdagar. Stærðfræði og frí- mínútur eru skemmtilegust og svo á ég fullt af góðum vinkonum, sem mér finnst voðalega gaman að leika við.“ Morgunblaðið/Ómar Golfarinn Ragnhildur hefur æft golfið af kappi og er nú komin í framtíðarhóp GR. Stefnir á atvinnumennsku í golfi og handbolta Handboltastelpan Ragnhildur spilar vinstra horn og miðju. Áhorfandinn Ragnhildur og liðsfélagar fylgjast áhugasamar með leik. Fótboltastelpan Ragnhildur passar upp á að boltinn rúlli ekki í markið hjá stelpunum í Fram. |þriðjudagur|27. 2. 2007| mbl.is GÓÐ HEILSA GULLI BETRI STERK STEINEFNABLANDA FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR H á g æ ð a fr a m le ið sl a A ll ta f ó d ýr ir NNFA QUALITY FULL SPECTRUM MINERALS daglegtlíf Þeir voru skrautlegir margir kjólarnir sem sáust á rauða dreglinum við afhendingu ósk- arsverðlaunanna. » 24 tíska matur Núðluréttirnir á Café Oliver eru vinsælir hjá gestum staðarins og í stíl við líkamsræktarátakið í janúar og febrúar. » 23 Svala Sóleyg Jónsdóttir byrjaði fyrir hálfgerða tilviljun að mála olíumálverk af gæludýrum fólks. » 22 myndlist

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.