Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 22
Olíumálverk „Aðalatriðið er að myndin líkist tiltekinni skepnu, þetta sé ekki bara hundur heldur akkúrat réttur karakter,“ segir Svala Sóleyg. Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Það ætti ekki að fara framhjáneinum sem sækir SvöluSóleyg Jónsdóttur mynd-listarmann heim að dýr, englar og blóm eru henni hugstæð. Myndir af þessum viðfangsefnum prýða heimili hennar en hún tekur að sér að mála olíumálverk af dýrum. „Ég hef ekki málað mörg slík verk en það eru um 3–4 ár síðan ég byrjaði að mála verk til að selja en hef málað ýmislegt í gegnum tíðina og haldið þrjár einkasýningar. Þetta byrjaði þannig að ég málaði fyrir vin okkar hjóna og svo spurðist þetta út. Ég hef aðallega málað hunda en líka ketti. Ég málaði t.d. uppáhaldsköttinn hennar Sigríðar Heiðberg í Kattholti, Emil í Katt- holti. Mest hef ég málað fyrir þá sem þekki, t.d. fyrir fólk sem hefur misst hundinn sinn og vill eiga mynd til minningar um hann en eins af lifandi dýrum. Ég mála eftir góðri ljósmynd en það er svolítið erfitt að eiga við þetta því ég þarf yfirleitt að stækka mynd- irnar upp og passa upp á að hafa hlutföllin rétt, aðalatriðið er að myndin líkist tiltekinni skepnu, þetta sé ekki bara hundur heldur akkúrat réttur karakter. Ég hef í sumum til- fellum séð þessi dýr og þekki þau en myndirnar tala náttúrlega sínu máli.“ Hingað til hefur hún ekki málað annað en hunda og ketti en segist þó hafa málað fugla eftir myndum fyrir sjálfa sig. Myndir Svölu Sóleygar eru áhuga- verðar og má segja í takt við áhug- ann sem kviknar við óvenjulegt milli- nafn hennar sem fyrirfinnst í Færeyjum en engin önnur kona ber nafnið hér á landi. „Halldór Laxness skrifaði um það að blómið sóley hefði áður verið sóleyg, auga sólarinnar.“ Grettir og Högni hrekkvísi voru uppáhaldið Svala Sóleyg vann í 27 ár við að þýða myndasögur Morgunblaðsins, til ársins 2000, og skrifaði sjálf inn á belgina með svörtum tússpenna. Það kemur varla á óvart að einar af uppá- haldsteiknimyndapersónum hennar voru Grettir og Högni hrekkvísi. Hún segir myndlistina hafa verið áhugamál sitt í gegnum tíðina. „Ég hef málað og teiknað frá því ég man eftir mér og haft gaman af því, svo komu dýramyndirnar eigin- lega óvart til. Mér finnst mjög gam- an að mála dýr. Ég hef alltaf haft gaman af að teikna fólk en þó ekki gert portrett. Það getur vel verið að ég fari út í það seinna.“ Eins og til að kvitta undir frásögn eiganda síns birtist þrílita læðan Dá- fríð inni í eldhúsi og ber nafn með rentu. „Já, hún er dáfríð – og jafngömul öldinni. Ég hef átt ketti alla tíð, við áttum Doppu á undan Dáfríð og hún varð tæplega tvítug. Ég er alin upp á Fellsströnd í Dölum og var þar til ell- efu ára aldurs svoleiðis að ég er mik- ill dýravinur. Mér þótti mjög gaman að kindunum, þær eru sko ekki allar eins! Ég vildi ekki hafa misst af því að alast upp í sveit, það er alveg ynd- islegt. En ég hef aldrei verið með hund hérna. Mér fannst einhvern veginn að hundar ættu bara heima í sveitinni, það er kannski vitleysa. Ef börn alast upp með dýrum eins og hjá okkur held ég að þau vilji alltaf eiga dýr. Þau sem ekki kynnast þeim verða hálfhrædd við þau. Mér þykir dýr og blóm alveg nauðsynleg.“ Horfnir góðhestar hafa oftsinnis öðlast framhaldslíf í myndlist en Svala Sóleyg segist þó aldrei hafa fengið slíkt verkefni en líst vel á við- fangsefnið: „Já, þá myndi mér þykja gaman, sérstaklega ef ég málaði hesta á hreyfingu því þeir eru ein- hverjar fallegustu skepnur sem mað- ur sér. Ég myndi gjarna vilja eiga hesta en það er mikið fyrirtæki. Ég byrjaði á því að teikna hestana og hélt mig lengi að mestu við þá.“ Listin er henni í blóð borin, móðir hennar, Guðbjörg Guðmundsdóttir, var handavinnukennari og lærði list- vefnað í Kaupmannahöfn hjá Júlíönu Sveinsdóttur listakonu og af um- ræddu heimili að dæma erfist lista- genið vel. Morgunblaðið/G. Rúnar Dýravinur Svala Sóleyg Jónsdóttir með Dáfríð sína í fanginu – og á veggnum – en sú fyrrnefnda málar dýr eftir pöntun. Málar portrett af gæludýrum „Ég hef málað og teiknað frá því ég man eftir mér og haft gaman af því, svo komu dýra- myndirnar eiginlega óvart til.“ Svala Sóleyg Portrett af gæludýrum auk barna-, engla- og blómamynda sími: 557 4074, 892 8474 netfang: svalasoleyg@emax.is Reuters Tröll og vorblómin TRÖLL og ýmsar kynjaverur tóku þátt í árlegum hátíðahöldum í Búkarest um síðustu helgi. Hátíðin, sem ber nafnið Dragobete, er nokkurskonar Valent- ínusargleði Rúmeníubúa. Hún gengur út á að ástfangnir karlar og konur fagni ástinni með því að tína fyrstu vor- blómin. daglegt líf 22 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Myntute gegn hárvexti Morgunblaðið/Arnaldur Þær konur sem hafa óvenju-lega mikið af líkamshárigætu dregið úr hárvextinum með því að drekka myntute, segir í nýlegri rannsókn sem greint var frá í breska dagblaðinu Daily Tele- graph í vikunni. Sumar konur hafa óvenjuhátt hlutfall karlhormóna sem veldur því að þær hafa meira af líkamshári en gengur og gerist hjá konum. Meðal þeirra aðferða sem hingað til hafa verið notaðar eru lyfjameðferðir eða p-pillan sem þá dregur úr fram- leiðslu hormónsins. „Rannsóknir sýna hins vegar að plantan hrokkinmenta getur reynst ekki síður vel,“ sagði prófessor Meh- met Numan Tamer við Demirel-háskólann í Isparta í Tyrklandi, þar sem rannsóknin var unnin, í viðtali við Daily Telegraph. Rannsóknin var gerð á 21 hárugri konu vegna fregna af því að hrokkinmentan drægi úr kynhvöt karla. Ein skýring þess var að hún lækkaði hlutfall karlhorm- óna. Og með því að drekka aðeins tvo bolla af myntuteinu á dag dró verulega úr aðalkarlhormóninu hjá konunum. „Við þurfum að gera frekari rannsóknir til að kanna upp að hvaða marki hrokkinmentan dreg- ur úr hárvexti kvenna,“ hefur blaðið eftir prófessor Tamer. Tedrykkja Tveir bollar af myntutei á dag lækka hlutfall karlhormóna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.