Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 23
matur
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 23
S
ögur af sérstaklega góðum
kjúklinganúðlurétti bár-
ust upp í móa kennda við
hádegi, höfuðstöðvar
Morgunblaðsins, og
mátti rekja þennan ljúfa ilm niður í
miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið
veitingastaðinn Café Oliver á
Laugavegi 20a, og enn nánar til yf-
irmatreiðslumannsins Atla Ottesen.
Hann var fenginn til að gefa upp
uppskriftina að réttinum sem hann
segir ferskan og fljótlegan. Hann
telur reyndar að það eigi ekki að
taka uppskriftir of bókstaflega. „Þar
sem grænmetisframboð á Íslandi
getur verið hverfult ætti fólk að láta
kylfu ráða kasti og láta hjartað ráða
þegar keypt er inn,“ segir hann.
Núðluréttir eru að sögn Atla sér-
staklega vinsælir í janúar og febr-
úar, í stíl við líkamsræktarkortin.
„Samviskubitið fær fólk til að halla
sér frekar að núðlunum en rjómalög-
uðu pasta.“
Heilir og hálfir skammtar
Það kennir margra grasa á veit-
ingastaðnum en á kvöldin er skipt
um gír, yfir í vinsælan skemmtistað.
„Nú í mars verða gerðar breytingar
hjá okkur. Við bjóðum upp á léttan
mat til kl. 18 en eftir það er allt svo-
lítið fínna, samlokur og hamborg-
arar detta út og í staðinn bjóðum við
viðskiptavinum 45 rétta seðil og þeir
geta valið um að fá alla réttina í heil-
um eða hálfum skammti. Þú getur
t.d. fengið hálfa nautalund í forrétt
eða þrjá hálfa rétti. Eftir því sem ég
best veit hefur þetta ekki verið gert
fyrr hér á landi en hugsunin er sú að
fólk geti smakkað sem mest,“ segir
Atli.
Spurður um hvernig farið sé að
því að breyta staðnum í skemmtistað
að kvöldi segir hann skilin þarna á
milli ekki skörp, breytingin taki um
tvo tíma. „Eftir kl. tíu á kvöldin er
einungis hleypt inn matargestum og
þeim sem ætla að fá sér kokteil í ró-
legheitum. Um leið og gestirnir eru
komnir í kaffi og koníak er tónlistin
hækkuð örlítið og fleirum hleypt
smám saman inn í húsið. Í raun tek-
ur matargesturinn ekkert eftir
breytingunni fyrr en hann er allt í
einu staddur á skemmtistað og kom-
inn í rosa stuð!“ Skyldu þá bara
„djammararnir alræmdu“ sækja
veitingastaðinn? „Alls ekki, ég
myndi segja að 60% gestanna færu
eftir mat og restin væri í heildar-
pakkanum.“
Soba-núðlur með hoi-sin-
sósu, grilluðum kjúklingi,
chili og vorlauk
(fyrir 2)
200 g soba-núðlur (fást í Fylgi-
fiskum)
2 kjúklingabringur
20 sveppir, sneiddir
50 g spínat
1 rautt chili, fræhreinsað
2 vorlaukar, þunnt sneiddir
5 greinar kóríander
4 msk. hoi-sin-sósa
Núðlurnar eru soðnar í vatni í 3–4
mín. með matskeið af salti.
Þegar núðlurnar eru tilbúnar er
þeim hellt í pastasigti og settar til
hliðar. Sveppirnir eru steiktir á
pönnu ásamt chili, vorlauk og spín-
ati. Á meðan eru kjúklingabring-
urnar grillaðar (eða steiktar) á ann-
arri pönnu. Næst er núðlunum og
hoi-sin-sósunni bætt við ásamt grill-
uðum kjúklingnum. Smakkað til með
salti, pipar, ást og umhyggju. Að
lokum er kóríanderlaufunum stráð
yfir diskinn.
Hafa ber í huga að soba-núðlur
eru viðkvæmar og þola illa að
standa, því er best að matreiða rétt-
inn skömmu áður en hann er borinn
fram. Þegar chili er fræhreinsað er
mikilvægt að hreinsa hvíta fræhald-
ið einnig þar sem það er eins sterkt
og fræin sjálf.
Núðluréttur í stíl við líkamsræktarkortin
Morgunblaðið/G. Rúnar
Kokkurinn Atli Ottesen á Café Oliver segir núðlurétti sérstaklega vinsæla í byrjun árs, samviskan
fái fólk til að halla sér frekar að núðlum en rjómalöguðu pasta.
Ljúfmeti Mikilvæg undirstaða í kjúklinganúðlu-
réttinum er salt og pipar, ást og umhyggja.
thuridur@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
EXISTA hf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 www.exista.com
AÐALFUNDUR EXISTA HF.
14. MARS 2007
Aðalfundur Exista hf. verður haldinn miðvikudaginn 14. mars 2007
á Nordica Hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík og hefst fundurinn kl.17:00
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar síðastliðins rekstrarárs.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðunarfélags.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil.
7. Tillögur til breytinga á samþykktum:
a. Breyting á 4. gr. um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um allt að 3.600.000.000 kr.
að nafnverði með útgáfu nýrra hluta.
b. Breyting á 12. gr. vegna rafrænnar þátttöku í hluthafafundum og rafrænna hluthafafunda.
c. Breyting á 13. gr. um að á dagskrá aðalfundar verði tillögur um starfskjarastefnu.
d. Breyting á 15. gr. um upplýsingar í framboðstilkynningu þeirra sem gefa kost á sér til stjórnarsetu.
8. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu.
9. Tillögur félagsstjórnar um heimild til útgáfu hlutafjár í evrum.
10. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á eigin hlutum.
11. Önnur mál.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til
stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem
þannig hafa gefið kost á sér.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö
dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hlut-
höfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast þær á vefsíðu félagsins
www.exista.com frá sama tíma.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 16:00 á fundarstað
að Nordica Hótel.
Reykjavík 27. febrúar 2007
Stjórn EXISTA