Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 24
Hefðbundinn Spánska leikkonan Penelope Cruz var heillandi í frem- ur hefðbundnum, fölbleikum kvöld- kjól hönnuðum af Versace. Jú, alveg rétt. Það er búið aðveita óskarsverðlaunin í 79.sinn en nú keppast tísku-spekúlantar allra landa um að verðlauna bestu og verstu kjóla kvennanna sem sóttu þessa glitrandi stjörnuhátíð hátíðanna í Hollywood. Jafnvel þótt engu minni meistarar hafi komið að hönnun þeirra, eins og Armani, Lacroix og Oscar de la Renta þá eru tískuspekúlantar ekki á eitt sáttir um hvort drottningarnar og dívurnar í leiklistarheiminum hafi valið kjól sem klæddi þær. Já, það geta víst ekki allir verið sigurvegarar á rauða dreglinum. Þær leikkonur sem þóttu tvístíg- andi, í óeiginlegri merkingu og er óvíst hvort tilnefndar verði til ósk- arsverðlauna fyrir klæðaburð voru m.a. Jodie Foster og Beyonice Know- les. Einkennilega blár kjóll Foster hefur þótt minna fremur á hafmeyjarbúning en hátíðarkjól og sumir hafa velt fyrir sér hvort næsta hlutverk Beyonice verði Aþena Pall- as. Já, það getur verið erfitt að fóta sig á rauða dreglinum en sigurveg- arar þykja ótvírætt Helen Mirren, sem vinnur þá tvöfalt í ár, og allar eiginkonur og kærustur Tom Cruise sem voru á hátíðinni. Það þykir erfitt að gera upp á milli þeirra Kate Holm- es og Penelope Cruz en báðar klædd- ust pastelslituðum, blúnduskrýddum kjólum sem drógu fram hina við- kvæmu blómarós en fjaðrafokið var meira í kringum þá síðarnefndu. Hin hávaxna Nicole Kidman leit óneit- anlega út fyrir að vera mun hættu- legri, í rauðum, aðsniðnum síðkjól frá tískuhúsi Balenciaga. uhj@mbl.is AP Drottning Helen Mirren kom, sá og sigraði. „Þessi kjóll valdi mig,“ sagði leikkonan um þennan kjól frá Christian Lacroix. Klassískur Katie Holmes hafði ástæðu til þess að vera kampakát og kannski pínulítið feimin í kampavínslita kjólnum frá Armani. Kvenleg Gwyneth Paltrow klikkar sjaldnast á kjólunum. Hún skartaði sínu fegursta í kór- allitum sjiffonkjól í anda þriðja áratugarins. Nýr litur Jodie Foster kann best við sig í svörtu, en klæddist nú þessum bláa kjól sem mæld- ist misvel fyrir hjá tískuspekúlöntum. Riddaralegur Sumum þótti Cate Blanchett eins og járnfrú í þessum kjól sem minnti um margt á riddarabúninga miðalda. Eldheitur Nicole Kid- man hefur alltaf verið hrifin af rauðu og þær eru fáar sem fara í fötin hennar. Balen- ciaga-kjóllinn fer henni vel. Sigurvegarar rauða dregilsins Hverjar misstu af óskarstilnefningum í klæðaburði á ósk- arverðlaunahátíð- inni og hverjar þóttu bera af? Demanta- skreyttur Beyonce Knowles mætti í hvítum kjól frá Armani sem virtist sækja innblástur í grísk-rómverskar sagnir. Litríkur Hin ástr- alska Naomi Watts var í sumarskapi í fallega gulum kjól frá Escada með saf- írbláum linda og fjórum slóðum. tíska 24 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.