Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 25

Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 25
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 25 Bæjargarðurinn eða „skrúðgarð- urinn“ á Akranesi var á árum áður gott leiksvæði fyrir börn enda var þar gott aðgengi að vatni þar sem hægt var dýfa stóru tánni ofan í. Gosbrunnur, þar sem listaverk eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal var í aðalhlutverki, var helsta leik- tækið í bæjargarðinum sem á þeim tíma var í bakgarði lögreglustöðvar bæjarins og bæjarskrifstofu. „Skrúðgarðurinn “ hefur nú fengið uppreisn æru þar sem María Guð- rún Nolan og Þorsteinn Böðvarsson hafa opna glæsilegt kaffihús í „gömlu“ löggustöðinni og geta gestir staðarins stungið sér út í bakgarðinn með veitingar þegar vel viðrar en „skrúðgarðurinn“ er ekki lengur til staðar og listaverk Guðmundar er á bak og burt. Kaffihúsið er reyklaus staður – sem telst til helstu kosta þess. Þar er að finna upplýsinga- miðstöð fyrir ferðamenn og guli strætóinn frá Strætisvögnum Reykjavíkur er með endastöð við kaffihúsið.    Það eru margir sem nýta sér Strætó á leið sinni til Reykjavíkur og í fyrstu ferð frá Akranesi á morgnana eru farþegar það margir að vagninn rúmar þá ekki alla í sæti. Svo gæti farið að aukavagni yrði bætt við í fyrstu ferðina til þess að allir farþeg- ar gætu gengið að því vísu að fá sæti í vagninum.    Blog.is er líflegt bloggsamfélag á fréttavefnum mbl.is. Allt á milli him- ins og jarðar er þar til umfjöllunar. Bloggvinur er tiltölulega nýtt hug- tak og margir eiga bloggvini sem þeir hitta aldrei og tala aldrei við. Sumir hafa sagt að bloggvinir séu ekki sannir vinir. Skagakonan Guð- ríður Haraldsdóttir, sem skrifar reglulega á gurrihar.blog.is, boðaði sína „bloggvini“ á fund á nýja kaffi- húsinu á Akranesi um liðna helgi og á hún alvöru bloggvini. „Já, þetta var mikið fjör og við sátum þarna í rúma fjóra tíma. Allir voru miklu sætari en þeir virðast á vélsagarmorðingjamyndunum af þeim á blogginu og enn skemmti- legri en það sem þeir skrifa um, eða svona næstum því,“ segir Guðríður í einni af fjölmörgum færslum sínum. Blog.is er sannarlega lifandi sam- félag.    Á heimasíðu Íþróttabandalags Akraness er að finna skemmtilega frétt af stuðningsmanni knatt- spyrnuliðs ÍA sem er búsettur á Englandi. Mike Morgan er 33 ára rafvirki frá Birkenhead í Liverpool og er hann einlægur stuðnings- maður ÍA og Tranmere Rovers. Morgan segir í viðtali á heimasíðu ÍA að árið 1997 hafi áhugi hans vaknað á félaginu. „Áhugi minn fyrir liði ÍA vaknaði þegar ég sá þátt á Sky Sports- sjónvarpstöðinni árið 1997, sem hét Football Mundial og þar var fjallað um Skagamenn, ég hreifst af sögu þessa liðs frá litlum bæ á Íslandi, sem hafði alið af sér frábæra knatt- spyrnumenn og staðið sig frábær- lega gegn mörgum stórliðum í Evr- ópu, eins og Barcelona, Köln, Beveren og Aberdeen, sem þáver- andi Evrópumeistarar bikarhafa máttu þakka fyrir að slá lið ÍA úr keppni. Ég heimsæki heimsíðu ÍA, KSÍ og fótbolti.net á hverjum degi. Einnig hef ég undanfarin ár keypt bókina Íslensk knattspyrna. Þó að ég skilji aðeins fáein orð í íslensku er oft hægt að rýna í hlutina.“ Mike hefur skráð öll úrslit Skagamanna í Íslandsmóti og bikarkeppnum frá upphafi en hann heldur úti heimasíð- unni www.freewebs.com/iauk. AKRANES Sigurður Elvar Þórólfsson blaðamaður Ljósmynd/ Sigurður Elvar Guðmundur Ingi Kristjánssonskáld, bóndi og kennari á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundar- firði, átti aldarafmæli 15. janúar sl. Frændi hans Kristján Bersi Ólafsson rifjar upp að Guðmundur Ingi var nemandi í Laugaskóla í Reykjadal veturinn 1929 til 1930. „Þar var starfandi skáldafélag sem kallaðist hendingafélagið. Í bréfi sem er dagsett 2. jan. 1930 skrifar Ingi Ólafi Þ. bróður sínum bréf um Hendingafélagið. Þar segir: „Mikið er ort. Er það með ýmsum blæ og ýmsir sem yrkja, en þátt á ég í því flestu. Eitt kvæði er Rivalaríma og þó ekki nema brot. Hún er um þá stúlku, sem hér er fegurst og flestir skotnir í. Þessi vísa er best: Hjalti leikur hálfbiðil, Hjalti er smeykur varla, labbar keikur létt með spil lokkableikrar meyjar til. Heillavísur yrkjum við á öllum afmælum og hef ég alltaf á hendi upplestur þeirra. Sýnishorn er vísan um Hjalta: Nú er Hjalti átján ára enda er hann með brosi léttu. Heillaskeyti hugsa og pára hópar meyja norður á Sléttu. En stúlkur þær, sem lesa á Laugum, lifa þar með bros og fléttu, senda betri ósk úr augum en allar meyjar norður á Sléttu. Þá er Aldasöngur hinn nýi. Segir hendingafélagið þar fyrst frá laugarkvöldum; Skeggöld, – þá er skafið hár af vanga, Skálmöld, – þegar flokkar ofan ganga, Skeiðöld, – þegar skónum dansinn eyðir, Skotöld, – sú er hugi saman leiðir. Síðan segir Konráð Erlendsson frá mánudagsmorgnum: Vindöld, – þegar við úr rekkju stöndum, Vargöld, – þegar slátri og hræru gröndum, Málöld, – þegar stúlkur styrinn byrja. Steinöld, – þegar kennararnir spyrja. Arnór Sigurjónsson var skólastjóri á Laugum og var hann gerður heiðursfélagi í hendingafélaginu og fylgdi útnefningunni vísa: Meistarann okkar mikla munum við þig nefna. Stuðla lætur þú stikla og stöku marga gefna. Vertu í hendingahópnum heiðursselurinn fimi. Kenndu sérhverjum kópnum að kafa í ljóðabrimi.“ VÍSNAHORNIÐ Á aldarafmæli skálds pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.