Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 26

Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 26
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Ó skarsverðlaunanna í ár verður trúlega lengi minnst sem hátíð- arinnar sem leikstjórinn Martin Scorsese fékk, að mörgum talda mjög verðskuldaða, uppreisn æru. Scorsese hefur fimm sinum áður verið tilnefndur í flokki leikstjóra ársins en alltaf farið tómhentur heim þar til nú en auk leik- stjóraverðlaunanna var mynd hans, The Departed, valin besta myndin, þótti best klippt og skartaði besta handriti byggðu á áð ur útgefnu efni. Það kom trúlega fáum á óvart að Helen Mirren var valin besta leikkonan í aðal- hlutverki fyrir túlkun sína á Elísabetu Eng- landsdrottningu í The Queen en auk þess að flestir kvikmyndaspekúlantar hafi spáð henn sigri hefur hún einnig rakað til sín flestum þeirra verðlauna sem í boði hafa verið á und- angenginni verðlaunavertíð. Þá þótti Forrest Whitaker einnig mjög sig urstranglegur í flokki leikara í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í Last King of Scot- land þar sem hann leikur Idi Amin. Það varð úr, Whitaker fékk Óskar, þó svo að meðal til- nefndra væri Peter O’Toole, tilnefndur í átt- unda sinn fyrir leik en hefur aldrei fengið. Alan Arkin vann sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á afanum í Little Miss Sun- shine og í aukahlutverki kvenna bar Jennifer Husdson sigur úr býtum fyrir hlutverk sitt í Dreamgirls. Hudson hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn en henni bauðst þetta fyrsta kvikmyndahlutverk sitt í kjölfar þátttöku í American Idol. Fyrir frumraun sína á hvíta tjaldinu á hún nú Óskarsverðlaun og Golden Globe-verðlaun, sem verður að teljast fram- Sáttur Forrest Whitaker þakkaði innilega f hlutverki fyrir frammistöðu sína í kvikmynd Óska(r Scorse Best Leikarar ársins, Forrest Whitaker, Jennifer Hudson, Helen Mirren og Alan Arkin. Frumraunin Michael Arndt var verðlaunaður fyrir handrit sitt að Little Miss Sunshine en þetta er fyrsta handritið sem hann skrifar. Skalli Jack Nicholson mætti snoðaður til leiks en hann er þessa dagana að leika í myndinni The Bucket List þar sem þeir Morgan Freeman fara með hlutverk krabbameinssjúklinga sem flýja af sjúkrahúsi til að uppfylla allar sínar óskir áður en þeir deyja. Drottningin Helen Mirren stillir sér upp með Óskari sínum en hún var valin besta leikkonan í aðalhlutverki. Sannleikurin vinient Truth, Gore, Davis G 26 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VEGAFRAMKVÆMDIR VIÐ VATNAJÖKUL? Frumvarp til laga um Vatnajök-ulsþjóðgarð verður væntan-lega samþykkt á Alþingi því, sem nú situr að störfum. Í nóvember sl. sendi ráðgjafanefnd umhverfis- ráðuneytis frá sér skýrslu um stofn- un Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er gert ráð fyrir viðamiklum vegafram- kvæmdum í hinum nýja þjóðgarði. Í Morgunblaðinu í gær birtist kort sem sýnir þessar hugmyndir ráðgjafa- nefndarinnar, sem annars vegar snú- ast um uppbyggða vegi og hins vegar endurbætur og lagfæringar á núver- andi vegum. Ráðgjafanefndin leggur til að upp- byggður vegur verði frá Kárahnjúka- vegi um Snæfellsleið að Brúarjökli og hins vegar frá Hrauneyjum í Jökul- heima. Magnús Jóhannesson, ráðuneytis- stjóri í umhverfisráðuneyti og for- maður ráðgjafanefndarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið í gær um þessi áform um uppbyggða vegi: „Þetta eru staðir, sem menn vilja að séu færir allan ársins hring.“ Hvaða „menn“ skyldu það vera? Ráðuneytisstjórinn telur hins veg- ar líklegt að vegurinn inn í Jökul- heima yrði að fara í umhverfismat. Í skýrslu ráðgjafanefndarinnar um samgöngubætur innan Vatnajökuls- þjóðgarðs er rætt um samgöngubæt- ur inn í Öskju úr Mývatnssveit, inn í Lakagíga, í Kverkfjöll, í Nýjadal/ Jökuldal og Öskju og að Öskju frá Kárahnjúkavegi.. Hvað veldur þessari miklu fram- kvæmdaþörf í hinum nýja þjóðgarði? Hvers vegna þarf að leggja vegi út um allt? Hvers vegna má hálendi Ís- lands ekki vera í friði fyrir frekari framkvæmdum, þegar hér er komið sögu? Er ekki nóg komið? Kjarni málsins er sá, að fólk, bæði Íslendingar og útlendingar, vill ferðast um óbyggðir Íslands eins og þær eru. Það er auðvelt að komast um sum þessara svæða en erfiðara að komast um önnur. Í því er ævintýrið að ferðast um þessi svæði fólgið. Að- dráttarafl óbyggðanna felst í erfiðu aðgengi á köflum. Nánast öll náttúru- verndarsamtök og samtök fólks, sem starfar að ferðaþjónustu hafa tekið undir það, að hugmyndir um upp- byggðan malbikaðan veg um Kjöl eru fráleitar. Öll sömu rökin og eiga við um Kjal- veg eiga við um þær vegafram- kvæmdir, sem fyrirhugaðar eru í Vatnajökulsþjóðgarði. Alþingi á eftir að samþykkja frum- varpið um Vatnajökulsþjóðgarð. Er ekki rétt að þingmenn úr öllum flokk- um, sem vilja friða náttúru landsins taki höndum saman og breyti þessu frumvarpi á þann veg, að stjórn hins verðandi þjóðgarðs geti ekki leyft vegagerð í þjóðgarðinum en sam- kvæmt skýrslu ráðgjafanefndarinnar á sú vegagerð að stuðla að „atvinnu- sköpun“ innan þjóðgarðsins og á jað- arsvæðum. Atvinnusköpunin verður mest með algerri friðun þjóðgarðs- ins. VITLAUST VERÐLAGT Grímur Atlason, bæjarstjóri í Bol-ungarvík, vill að ríkið niður- greiði strandsiglingar til Vestfjarða. Í frétt í Morgunblaðinu í gær og í að- sendri grein í blaðinu í dag segir bæj- arstjórinn að því sé ranglega haldið fram að EES-samningurinn banni ríkisstyrki til strandsiglinga, þvert á móti sé Evrópusambandið með áætl- un um að koma vöruflutningum sem mest á járnbrautarlestir, pramma og strandferðaskip á næstu árum. Þá séu strandsiglingar í Noregi niður- greiddar af hinu opinbera. Grímur Atlason hefur rétt fyrir sér í því, að það hefur skapað nýjar hætt- ur í umferðinni að strandsiglingar af- lögðust að mestu fyrir fáeinum árum. Vegakerfið er ekki hannað fyrir hina miklu umferð flutningabíla, sem nú fer um það. Það er sömuleiðis rétt hjá honum að Vestfirðir eru að mörgu leyti í erfiðri stöðu vegna þess hvað vegasamgöngur við landshlut- ann eru slæmar og strandsiglingar geta verið betri kostur fyrir Vestfirð- inga. En það er ekki skynsamlegt að hvetja til þess að ríkið fari á nýjan leik að niðurgreiða strandsiglingar. Þegar Halldór Blöndal, þáverandi samgönguráðherra, lagði niður Skipaútgerð ríkisins í kringum 1990 töpuðu skattgreiðendur milljón krónum á dag á þeim rekstri – á þeirra tíma verðlagi. Vestfirðingar hafa nú hugmyndir um að ríkið styrki strandsiglingar um 100 milljónir króna á ári í þrjú ár, en svo verði ekki um frekari styrki að ræða. Er ein- hver trygging fyrir því, að ef byrjað væri að verja peningum skattgreið- enda í slíkt yrði ekki framhald á því? Færa má rök fyrir því að ástæða þess, að strandsiglingar aflögðust, sé sú að ríkisvaldið hafi verðlagt aðgang stórra flutningabíla að vegakerfinu vitlaust. Stór flutningabíll með tengi- vagni slítur vegunum á við þúsundir venjulegra fólksbíla. Og við það að umferð flutningabíla á vegunum eykst slitna þeir ekki aðeins meira, heldur verður nauðsynlegt að breikka þá, undirbyggja þá betur og gera ýmsar ráðstafanir til að tryggja öryggi í umferðinni. Gjaldtaka af stóru flutningabílunum endurspeglar engan veginn þann kostnað, sem mun falla til í vegakerfinu vegna þunga- flutninga á landi. Þannig má í raun- inni halda því fram að landflutningar með stórum flutningabílum hafi verið niðurgreiddir. Það er nær að hætta þeirri niðurgreiðslu og taka gjald af flutningabílunum í samræmi við þann kostnað, sem þeir búa til, en að taka upp nýjar niðurgreiðslur í skipaútgerð. Niðurstaðan ætti engu að síður að verða sú sama; að gera strandflutninga fýsilegri kost. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.