Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 27
Bestur Tónskáldið Gustavo Santaolalla samdi tónlist- ina við Babel og fékk að launum Óskar. n a ð- ni - g- ð - n r á a úrskarandi árangur. Ellen DeGeneres var kynnir kvöldsins í fyrsta sinn og stóð sig með stakri prýði. Hún sagði meðal annars við Hudson: „Bandaríkjamenn kusu þig ekki en sjáðu hvar þú ert nú,“ og vísaði þar til síma- atkvæðagreiðslu í American Idol. Í kjölfarið beindi hún svo orðum sínum til Al Gore og sagði „Bandaríkjamenn kusu þig reyndar en hér ertu nú.“ Allir leikararnir fjórir voru að vinna sína fyrstu Óskara, en þau Mirren og Arkin hafa verið tilnefnd áður. Dauf ræðuhöld einkennandi Næstflesta Óskara hlaut mexíkóska myndin Pan’s Labyrinth, þrjá talsins. Það kom því mörgum á óvart að myndin var ekki valin besta erlenda myndin. Þau verðlaun fóru í þetta sinn til Þýskalands fyrir myndina Das Leben der Anderen (Líf annarra). Besta teiknimyndin var valin Happy Feet sem fjallar um fótfráar mörgæsir á Suð- urskautslandinu. Með hjálp nútímatækni mátti sjá bústna mörgæs fagna ákaft úti í sal þegar niðurstöðurnar voru kunngjörðar. Heiðursóskarinn hlaut að þessu sinni ítalska tónskáldið Ennio Morricone en hann hefur samið tónlist fyrir um 400 myndir á löngum ferli, meðal annars Cinema Paradiso og The Good, the Bad and the Ugly. Heimildamynd ársins var valin An Incon- vinient Truth þar sem Al Gore fjallar um áhrif hlýnandi loftslags á jörðina. Annars einkenndu fremur dauf ræðuhöld kvöldið. Flestar þakkarræðurnar voru lesnar upp af blöðum sem hinir undrandi verðlauna- hafar höfðu þó haft með sér. Kvöldið var þó í það heila vel heppnað og var góðu starfi kynnisins og skemmtilegum skemmtiatriðum að þakka frekar en sigurveg- urunum sjálfum. Stutt Stystu kynnar kvöldsins tilkynntu um bestu stuttmyndina. Þetta eru þau Abigail Breslin úr Little Miss Sunshine og Jaden Christopher Syre Smith, sonur Will Smith. Takk, Gore Melissa Etheridge hampar Óskarsstyttunni sinni en hana hlaut hún fyrir besta lag ársins, „I Need To Wake Up“, úr An Inconvinient Truth. Hún þakkaði Al Gore fyrir að opna augu sín fyrir þeim áhrif- um sem allir gætu haft á um- hverfi sitt. Reuters Besti aukaleikarinn Alan Arkin lagði frá sér styttuna góðu á meðan hann þakkaði fyrir sig. Lukkunnar pamfíll George Mill- er kom með lukkugripi að heim- an sem virðast hafa gert sitt gagn því hann átti bestu teikni- mynd síðasta árs að mati aka- demíunnar, Happy Feet. Tvítyngdur Heiðursverðlaunahafinn Ennio Morricone þakkaði fyrir sig á ítölsku en Clint Eastwood munaði ekki um að snara ræðunni yfir á ensku fyrir viðstadda. Klipparinn Kate Winslet afhenti Thelma Schoonmaker verð- laun fyrir framúrskarandi klippingu á The Departed. Draumastúlkan Jennifer Hudson var að vonum ánægð með Óskars- verðlaunin fyrir frumraun sína á hvíta tjaldinu. fyrir sig en hann hlaut hnossið í flokki leikara í aðal- dinni Last King of Scotland. rs)stund ese Félagar Martin Scorsese grandskoðar Óskarinn sinn í félagsskap kollega sinna og vina, Francis Ford Coppola, George Lucas og Steven Spielberg. nn Aðstandendur bestu heimildarmyndar ársins, An Incon- , Scott Z. Burns, Laurie David, fyrrverandi varaforsetinn Al Guggenheim og Lawrence Bender. Kynnirinn Ellen DeGeneres stóð sig vel í hlut- verki kynnisins. Hún sýnir hér handhægan burð- arpoka fyrir verðlaunagripina góðu. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.