Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR 25 árum sigldi Heklan hringinn í kringum landið og færði landsmönnum vörur. Verslun dafn- aði á landsbyggðinni og fyrirtæki áttu þess kost að setja upp starfs- stöðvar annar staðar en á höfuðborg- arsvæðinu. Með bættum vegum og markaðsvæddara þjóðfélagi færðust þessir flutningar á vegi landsins. Sjó- flutningar lögðust af. Nú er svo komið að um vegi landsins þeysa trukkar með hundruð tonna af varningi dag hvern. Vegirnir láta á sjá og hættur fylgja þessum flutningum. Það sér það hver maður að þröngir malarvegir á veturna á Vest- fjörðum eru ekki bein- línis kjörsvæði 18 hjóla vöruflutn- ingabíls með tengi- vagn. Marel og byggða- þróunin Þetta er ein hlið málsins. Hin hliðin eru áhrifin á byggðaþróun í landinu. Flutnings- kostnaður er meiri á ákveðnum svæðum landsins en öðrum. Þannig búa Vestfirð- ingar við 30–40% hærri flutnings- kostnað en t.d. Akureyringar. Auk þess er öxulþungi oft takmarkaður sem rýrir flutningsgetuna umtals- vert. Möguleikar fyrirtækja, sem framleiða vörur, eru takmarkaðir við slíkar aðstæður. Þetta leiðir af sér einhæfni í atvinnulífinu sem aftur þýðir brothætt umhverfi. Þetta sést best á nýlegum fréttum þess efnis að Marel muni loka starfsstöð sinni á Ísafirði í haust. Tekin var ákvörðun um að draga saman í rekstri og stækka einingar. Einingin á Ísafirði átti aldrei möguleika í því kapp- hlaupi. Það svarar ekki kostnaði að keyra afurðirnar á vöruhótelin í Sundahöfn. Rangt að ESB banni styrki til strandflutninga Stjórnvöld hafa keppst við að aug- lýsa eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og tilskipanirnar frá Brussel þegar kemur að strandsiglingum. Með því að telja okkur trú um að þessar stofnanir banni stjórnvöldum hér á Íslandi að koma að slíkum flutn- ingum hefur þeim tekist að koma í veg fyrir löngu tímabærar aðgerðir í þessum efnum. En við skulum í eitt skipti fyrir öll eyða goðsögninni um að Evrópusambandið og EES- samningurinn komi í veg fyrir og banni íslenskum stjórnvöldum að niðurgreiða strandsiglingar. Það eru beinlínis til kaflar í bókmenntum Evrópusambandsins og viðaukum með EES-samningnum sem snúast um styrkingu strjálbýlla svæða. Ís- land og Norður-Noregur eru þar tekin út fyrir sviga sem sérstakt við- fangsefni. Norðmenn hafa um árabil styrkt Hurtigrutan sem keppir við járnbrautir, vegi og flug um vöru- flutninga frá Bergen til nyrstu bæja Noregs. Evrópusambandið er með sérstaka áætlun í gangi sem miðar að því að koma flutningum af vegum yf- ir á járnbrautir og fljót. Óforsvaranlegt ástand á vegum Hvernig má það vera að Vestfirðir og önnur svæði þar sem stjórnvöld hafa verið jafn lengi að ljúka við vegabætur og raun ber vitni þurfa að búa við þetta ástand? Það getur ekki verið í hag þjóðarinnar að íbúar á þessum svæðum þurfi að greiða meira fyrir vörur en aðrir lands- menn. Það er líka ófor- svaranlegt að bjóða þessum vegslóðum upp á flutningabíla af slíkri stærðargráðu – það býð- ur hættunni heim. Hvað veldur því að ekki er hlustað á almenning í þessu landi þegar kemur að strandsiglingum? Það er alveg ljóst að meiri- hluti þjóðarinnar, hvort sem hann býr á höf- uðborgarsvæðinu eða utan þess, er hlynntur því að taka upp flutninga á sjó. Fólkið vill breytingar – stjórnvöld ekki Fyrirtæki í sjávar- útvegi á Vestfjörðum hafa lagt fram metn- aðarfulla áætlum um það hvernig mætti koma slíkum siglingum á með stuðningi stjórnvalda fyrstu 3 árin. En eftir þann tíma yrði komið jafnvægi á flutningana og ríkisstyrkur aflagður. Áhugavert er að heyra í fram- kvæmdastjóra Atlantsskipa, Gunn- ari Bachmann, þegar hann er spurð- ur um ástæður þess að ekki skuli vera komnar á strandsiglingar í við- tali í Bæjarins besta 22. febrúar sl.: „„Það vantar enn viljann til að breyta,“ segir Gunnar Bachmann, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, að- spurður um strandsiglingar fyr- irtækisins til Vestfjarða. Hann segist hafa merkt áhuga hjá fyrirtækjum, en það sé eins og tryggð við flutn- ingafyrirtækin sem fyrir eru á mark- aðinum séu honum yfirsterkari. Mestan áhuga segist Gunnar skynja hjá hinum almenna borgara sem gjarnan vilji losna við öra umferð flutningabíla af vegum landsins en áhuginn hjá stjórnvöldum sé hins vegar ekki fyrir hendi.“ Það hallar á Vestfirði Byggðastefna snýst fyrst og fremst um pólitískar ákvarðanir er lúta að þjónustustigi. Réttlát byggðastefna miðar að jafnri aðstöðu fólks, óháð búsetu. Það er alveg ljóst að Vestfjarðasvæðið skilar gríð- arlegum virðisauka til samfélagsins. Útflutningsverðmæti og skatttekjur af svæðinu eru margir milljarðar ár- lega og þessum fjármunum ber að veita aftur í svæðið. Það er búið að koma því þannig fyrir að allar vörur fara til Reykjavíkur en slíkt er ekk- ert lögmál. Hagur landsmanna er ekki aðeins að þenja út Faxaflóa- hafnir heldur að styrkja byggð í þessu landi. Það liggja fyrir málefna- legar og raunhæfar tillögur sveitar- félaga, fyrirtækja og einstaklinga sem stjórnvöld eiga að sjá sóma sinn í að koma til leiðar. Að niðurgreiða strandsiglingar um 100 milljónir ár- lega næstu 3 árin er ekki ölmusa heldur þjóðþrifamál. Á tungu kaup- hallarinnar heitir það að vera þjóð- hagslega hagkvæmt! Strandsiglingar ölmusa eða þjóðþrifamál? Grímur Atlason fjallar um samgöngumál Grímur Atlason »… eyðum íeitt skipti fyrir öll goð- sögninni um að Evrópusam- bandið komi í veg fyrir og banni íslenskum stjórnvöldum að niðurgreiða strandsigl- ingar. Höfundur er bæjarstjóri Bolungarvíkur. ER TIL eitthvað sem kallast staðlað kvennaefni og ef svo er hvað er að því? Hver er þessi staðlaða kona? Þú – eða nágrannakonan í vel straujuðu skyrtunni? Hvað er betra en að sitja yfir rómantískri gamanmynd með súkku- laði í annarri og fjarstýr- inguna í hinni? Búin að biðja kærastann/ makann um að taka þessa ákveðnu mynd (því Ben Afflect er „gor- geous“ í henni!) milljón sinnum en einhvern veg- inn endarðu alltaf með að glápa með þykj- ustubros á Goddfellas og Scarface til skiptis. Nú er þinn tími kom- inn og Ben brosir út í eitt og blikkar þig um leið og þú kemur þér vel fyrir í sófanum. „Oh, svona kellingamynd“ segir maðurinn þinn og gefur þér góða grettu með. Staðlað kvennaefni. Er það til? Og ef það er til þá hlýtur það að vera til fyrir okk- ur til að horfa á það. Er það ekki bara allt í lagi! Er þá allt sem er rómantískt stimplað sem staðlað kvennaefni (kurteisi fyrir kell- ingabull)! Svo er það nú bara annað: Hver er þessi staðlaði kvenmaður og hvar býr hún? Langar mikið til að sjá hana. Ætli hún sé óaðfinnanlega klædd, sé fremst á sínu sviði í vinnunni? Auðvitað bara fram að há- degi, þá sækir hún Dóru og Dóra í skólann og gefur þeim heimatilbúinn hádegismat (notar ekki frosið græn- meti eða pakkasósur!) og keyrir þau í íþróttir. U nei, þetta gengur ekki alveg, hin staðlaða hefði ekki tíma fyrir sjónvarpsgláp. Humm, ætli þetta sé ekki systir hennar frú nýir tímar sem er barnlaus um þrítugt, borðar „take away“ eftir vinnu (af því að það er hennar val, ekki af því að hún kann ekki að elda!) og horfir á okkar heittelskaða efni. Eða hvað, er hún kannski í jakkafötum? Ef- laust þekkja allir kvenmenn laumug- lápara. Stráka sem horfa á hina svo- kölluðu kvennaþætti með miklum áhuga. Ef slíkur laumari er napp- aður reynir hann allt til að réttlæta glápið. Vinsælar afsakanir eru; ég er að reyna að læra eitt- hvað um konur, eða það var ekkert annað í sjónvarpinu. Aha, reyndu þetta bara, góði. Hvað er kvenna- efni? Þættir eins og Desperate Housewi- ves, Sex and the city, Americas next top model og Football- erswives myndu lík- lega falla undir þenn- an flokk. Einföld afþreying sem má hlæja að og auðvelt er að finna sig í. Hver kannast til dæmis ekki við að hafa sagt; ég er svo mikil Susan eða Edie eftir að hafa horft á Desperate Housewi- ves? Við finnum okk- ur í persónunum og skiljum þær. Rétt er það að þetta eru einfaldar, brenglaðar myndir af heiminum sem yfirleitt sýna staðlaðar týpur. En hvað með það? Hver á ekki skilið 40 mínútna frí frá kröfuhörðum degi? Og það er einmitt það sem þessir þættir eru, afþreying. Ekki und- irbúningur fyrir Gettu betur. Svo lengi sem við horfum fram hjá vel förðuðum andlitunum og sár- svöngum kroppunum og sleppum því að bera okkur saman við þessar konur. En þetta er aðeins ein hliðin á peningnum. Önnur er Oprah sem mætti skrifa heilu greinarnar um, og hefur reyndar verið gert og jafnvel bækur. Kona með staðlaðan konu- þátt sem gefur af sér, og ekki aðeins til kvenna heldur alls mannkynsins. Samt fellur það undir „kellingarugl’’. Svo virðist sem margt ætlað konum sé „rugl’’ annað en fótbolti sem „meikar meira sens“ en flest annað í heiminum. Eða svo segja þessar elskur og sitja með ljósaperurnar í sófanum límdir við skjáinn á meðan þú klæðir krakkana í myrkri. Verst að þeirra stund er 90 mín. á móti okkar 40 mín. Úrkynjum mynd af konunni til lít- illækkunar fyrir kvenheiminn? Femínistar eiga til að benda á það að slíkir staðlaðir kvennaþættir geri lítið úr konum. Þetta er að hluta til rétt en með því að svipta hulunni af sálu þinni (en það gera persónur þessara þátta) ertu að sýna ýmislegt sem auðvelt er að gera lítið úr. En það er hægt að gera lítið úr öllu og öllum sama af hvaða kyni þú ert. Vandinn við femínisma er að hann gerir yfirleitt ekki ráð fyrir ánægju og afþreyingu. Margir hafa í gegnum tíðina reynt að benda á að auðveld og ódýr afþreying sé slæm. Að aðeins ballett og ópera sé menning sem sé þess virði að sinna og sjónvarpið fari aðeins fram á að áhorfandinn sitji sem fastast og taki við efni án þess að hugsa. Ókei, það má vera eitthvað til í því en ég get ekki séð hvernig ballett krefst meiri innlifunar en Sex and the city. Innlifun felst í öllu sem áhorfandinn hefur unun af, ópera eða Oprah. Þú lærir kannski ekki frægar tilvitnanir af Sex and the city en það má þó læra ýmislegt. Þó ekki sé nema það að slaka á, en það getur reynst ansi erfitt á þessum tímum. Við erum ólík, því betur fer og það er í góðu lagi. Hættið að fá sam- viskubit og reynið ekki einu sinni að brjóta saman þvott yfir ykkar 40 mínútum, þær eru ykkar hvort sem þær eru ómerkilegar eða ekki. Sam- félagið er svo krefjandi að það er nauðsynlegt að hugsa stundum bara ekki neitt. Skemmtileg stund með nokkrum vel afslappandi hlátrasköll- um er aldrei ómerkileg. Flestir myndu velja hlæjandi mömmu/ eiginkonu með pakkasósu frekar en heimatilbúið í fýlu. Gerum það sem okkur langar til, hver veit hvað við höfum það tækifæri lengi! Kellingaþættir Þorbjörg Marinósdóttir fjallar um sjónvarpsáhorf og staðlað kvennaefni » Skemmtilegstund með nokkrum vel af- slappandi hlátrasköllum er aldrei ómerkileg. Þorbjörg Marinósdóttir Höfundur stundar nám við The University of Derby við fjölmiðla- fræði og er forfallinn áhorfandi án samviskubits. Ein helstu rök andstæðinga upp- töku evru hér á landi eru að ekki sé heppilegt að nota evru vegna þess að íslenska hagsveiflan sé ekki eins og hin evrópska – að hún sé ósamhverf. Þegar hagsveiflan er ósamhverf er hætt við verulegu at- vinnuleysi þegar illa gengur en aukinni verðbólgu þegar betur árar í efnahagsbúskapnum. Þá er á það bent að án sjálfstæðrar pen- ingamálastefnu taki lengri tíma að laga hagkerfið að breyttum aðstæðum. Í sögulegu samhengi er það rétt að hagsveifla okkar hefur ekki verið í takt við hina evrópsku. Sagan gefur hins veg- ar takmarkaðar upp- lýsingar um framtíð- ina og óvarlegt að álykta að taktleysið muni vara um ókomin ár. Fyrir því eru nokkur rök. Í fyrsta lagi þarf að svara því hvers vegna hagsveiflan var úr takti við hina evrópsku. Hag- sveiflur hérlendis áttu yfirleitt ræt- ur í sjávarútvegi, annaðhvort vegna breytinga í afla eða afurðaverði. Þótt sjávarútvegur sé mikilvæg at- vinnugrein fer vægi hans í heild- arbúskap þjóðarinnar minnkandi og þess vegna verður þjóðarbúið ónæmara fyrir sveiflum í sjávar- útvegi. Önnur ástæða taktleysis er að á síðustu árum hefur uppbygg- ing vegna stóriðju haft mjög já- kvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf og valdið því að hagvöxtur hérlendis er mun meiri en annars staðar í Evrópu. Eftir því sem hagkerfi okkar eflist munu umfangsmiklar framkvæmdir hafa hlutfallslega minna efnahagslegt vægi en áður. Í öðru lagi er íslenskt atvinnulíf að verða mun fjölbreyttara en áður. Áður fyrr byggðist útflutningur fyrst og fremst á sjávarútvegi en nú hvílir útflutningur einnig á stóriðju, há- tækni og ferða- og fjármálaþjónustu. Því meira sem útflutn- ingur drífur hagkerfið áfram þeim mun háð- ara verður það hag- kerfum viðskiptalanda okkar. Fyrir vikið eru líkur á verulegum hag- sveiflum miklu minni og vaxandi líkur til þess að hjarta íslenska efnahagslífsins slái í takt við hið evrópska. Í þriðja lagi má færa fyrir því góð rök að upptaka evru og inn- ganga í Evrópusambandið muni eitt og sér verða til þess að ís- lenska hagsveiflan líkist æ meir þeirri evrópsku. Sameiginlegur gjaldmiðill ætti að geta aukið flæði vöru og þjónustu og auðveldað er- lendar fjárfestingar milli svæða. Ekki má heldur gleyma jákvæðum áhrifum af frjálsu flæði vinnuafls milli svæða sem við þegar erum farin að njóta góðs af. Sameiginleg mynt mun auka enn frekar á það flæði í báðar áttir. Útrás margra íslenskra fyr- irtækja hefur verið mikil síðustu misseri. Til að mynda jukust tekjur þjóðarbúsins af erlendum fjárfest- ingum um 146% á síðasta ári. Í reynd eru mörg þessara fyrirtækja ekki lengur bara íslensk heldur einnig evrópsk. Afkoma þeirra er því háð efnahagsástandinu á meg- inlandi Evrópu. Allt þetta gerir það að verkum að vaxandi utanrík- isviðskipti og útrás íslenskra fyr- irtækja auka samhverfu hagsveifl- unnar. Að síðustu má nefna að á und- anförnum áratugum hefur fylgni milli hagvaxtar í ESB-ríkjum og á Íslandi vaxið jafnt og þétt, sér- staklega eftir að EES-samning- urinn tók gildi 1994. Þetta hefur gerst þrátt fyrir áðurnefnt takt- leysi á síðustu árum. Þetta bendir til að aðlögun okkar að evrópska hagkerfinu sé þegar vel á veg kom- in. Aðlögunin verður líkast til mun meiri ef skrefið yrði stigið til fulls og við göngum í Evrópusambandið og Myntbandalag Evrópu. Hagsveiflurökin halda ekki Bjarni Már Gylfason fjallar um hagkerfi og Evrópumál » Færa má fyrir þvígóð rök að upptaka evru og innganga í ESB muni eitt og sér verða til þess að íslenska hag- sveiflan líkist æ meir þeirri evrópsku. Bjarni Már Gylfason Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.