Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 30

Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGINN 9. janúar sl. skrifar sjávarútvegsráðherrann okk- ar, Einar K. Guðfinnsson, grein um dragnótaveiðar í Skagafirði. Að hluta til tel ég skrif þessi svar við grein sem ég skrifaði og birtist í Morgunblaðinu 29. desember sl. Að þessu sinni ætla ég ekki að fjalla sérstaklega um skaðsemi dragnótar heldur fjalla um þær ályktanir og sam- þykktir sem gerðar hafa verið heima í hér- aði. 400 manns lýstu yfir stuðningi Árið 2004 var á aðalfundi í smá- bátafélaginu Skalla samþykkt að hlutast til um að banna dragnóta- veiðar innan línu sem dregin væri úr Ketubjörgum í Almenningsnöf og náðist samstaða um þetta þótt sum- um fyndist ekki nóg að gert. Þá var safnað undirskriftum og rituðu um 400 manns nafn sitt til stuðnings málinu, sem síðan var afhent sveit- arstjóra og samþykkt í sveitarstjórn. Málið var sent sjávarútvegsráðu- neytinu og í símtali við mann í ráðu- neytinu skömmu síðar fengust þau svör að málið hefði verið afgreitt yfir kaffibolla einn morguninn í þá veru að ekkert skuli aðhafst. Bannsvæðið eins og nöglin á þumalfingri Ráðherrann státar af því að Málm- eyjarfirði (sem reyndar hefði aldrei átt að opna) hafi verið lokað með reglugerð 7. ágúst sl. En um hvað er verið að tala. Leggi maður hægri höndina ofan á sjókort í mælikvarða 1:300 000 þar sem höndin er álíka stór og Skagafjörður er hið lokaða svæði álíka stórt og nöglin á þum- alfingrinum. Aftur síðastliðið haust var gerð samþykkt í smábátafélaginu Skalla og vildu nú menn ganga enn lengra í samkomulagsátt og skyldi línan dregin úr Ásnefi í Drangey norð- anverða og þaðan í norðurenda Málmeyjar, sem sagt lokað fyrir alla dragnót fyrir innan eyjar. Málmey og Drangey loki fyrir dragnótina Það er að skilja í grein ráðherra að aðeins skuli athuga með að stugga stærri bátunum út fyrir. Það er mið- ur því fyrri samþykktir eru eindreg- ið í þá veru að hið lokaða svæði skuli alfarið friðað fyrir dragnót. Með því að heimila bátum styttri en t.d. 22 metrar að lengd eða 100 tonn að stærð dragnótaveiðar innan við eyj- ar er sama og ógert. Hafi einhverjir léð máls á öðru en algerri lokun fyrir innan eyjar, eða einhver gögn borist ráðherra um slíkt er það þvert ofan í fyrri samþykktir og ekki marktækt. Engar rannsóknir – reynsla heimamanna Sjávarútvegsráðherra segir að ákvörðun um lokun verði að byggjast á öðrum en fiskifræðilegum for- sendum; en um hvað er hann að tala. Mér vitanlega hafa engar rann- sóknir farið fram varðandi dragnóta- veiðar og áhrif þeirra á lífríki sjávar og á fundi sem nýlega var haldinn þar sem þessi mál bar á góma hafði fulltrúi frá Hafrannsóknastofnun, Þorsteinn Sigurðsson, ekki önnur gögn fram að færa en gamla minn- ispunkta frá Guðna heitnum Þor- steinssyni. Meðan svo er verður skilyrðislaust að fara að óskum heimamanna. Þeir þekkja söguna og vita hver reynslan er af veiðum með dragnót í Skaga- firði. Einnig er það nóg ástæða fyrir lokun að hér er ekki meirihluti afla dragnótabáta flatfiskur, hann nær ekki 10% af heildaraflanum og því engar forsendur til að leyfa drag- nótaveiðar í Skagafirði. Hafróaflinn skerðir hlutleysi Hafró? Í bæklingnum Stjórn fiskveiða 2006/2007 Lög og reglugerðir á bls. 38 stendur: „Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjáv- arafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fisk- veiðiárinu og er bundinn eftirfarandi skilyrðum: a. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. b. Aflinn sé seldur á uppboði á við- urkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sbr. lög nr. 37/1992, með síðari breyt- ingum.“ Hvað þýðir þetta á mannamáli? Það þýðir það að skipstjóri getur tekið allt að 5% aflans, sett á markað merkt hafróafli og andvirði hans fer inn á heftið hjá Hafrannsóknastofn- un. 55 milljónir frá dragnótabátum til Hafró Á sl. fiskveiðiári 2005/2006 var Hafróaflinn í þorski, ýsu og skarkola alls 1.604 tonn, sem gæti hafa teygt sig langleiðina í 200 milljónir í verð- mæti. Hlutur dragnótarinnar var umtalsverður eða 38%. Frá útgerð- um þeirra hafa því komið um 55 milljónir inn reikning hjá Verkefn- issjóði sjávarútvegsins, sem greitt hefur lungann af því áfram til Hafró. 20% af söluandvirði fer til útgerðar og áhafnar, sem í þessu tilfelli er um 15 milljónir. Rétt er að upplýsa að bátarnir þurfa ekki að leggja fram kvóta fyrir þessum 1.604 tonnum. Það er því fullkomlega eðlilegt að álykta að Hafrannsóknastofnun sé í erfiðri stöðu til að ákvarða um skað- semi dragnótar og loka svæðum þar sem ljóst er að stofnunin fær tugi milljóna í greiðslur frá dragnótabát- um í formi HAFRÓAFLA á ári hverju. Fer ekki fram á að ráðherrann svari þessari grein en þætti vænt um ef hann sæi sér tíma til að lesa hana tvisvar. Gerir Hafróafli Hafró vanhæfa – Dragnótina burt úr Skagafirði Steinar Skarphéðinsson fjallar um dragnótaveiðar í Skagafirði og gerir athugasemdir við grein Einars K. Guðfinnssonar » Frá útgerðum þeirrahafa því komið um 55 milljónir inn á reikn- ing hjá Verkefnissjóði sjávarútvegsins, sem greitt hefur lungann af því áfram til Hafró. Steinar Skarphéðinsson Höfundur vélstjóri, starfar nú sem öryggisvörður hjá Landspítalnum Hringbraut. MIÐVIKUDAGINN 24. janúar sl. birtist grein í Morgunblaðinu eftir Aðalstein Árna Baldursson, formann Verkalýðsfélags Húsavíkur og ná- grennis, undir fyrirsögninni: Álver – góður kostur. Þar heldur hann því fram að lífsspursmál sé fyrir Norð- lendinga að álver rísi á Húsavík. Grein sína endar Að- alsteinn með hvatning- arorðunum: Álver á Norðurland! Þótt rann- sóknum sé enn ekki lokið og umhverfismat liggi ekki fyrir setur hann fram skýrar og klárar óskir um að ál- ver verði byggt. Þetta þykir mér ekki vönduð afstaða og reyndar dá- lítið gamaldags. Þegar um risafram- kvæmdir á borð við ál- ver er að ræða, veltur á miklu að menn hlaupi ekki til og óski eftir ákveðinni niðurstöðu í málinu, áður en fyrir liggja nauðsynlegar at- huganir. Frekar vildi ég sjá verka- lýðsleiðtoga undirstrika nauðsyn ít- arlegra athugana áður en ákvarðanir eru teknar. Ég vildi einnig sjá verka- lýðsleiðtoga á landsbyggðinni skoða mál betur áður en hann fullyrðir að nóg sé komið af yfirlýsingum um „eitthvað annað“ og að slíkur mál- flutningur sé gjaldþrota. Ég held hins vegar að áðurnefndar óskir Að- alsteins um álver, á því stigi sem það mál stendur, séu ekki lausar við að vera gjaldþrota, ekki síst í samhengi við þær niðurstöður sem vís- indamenn eru að tína inn á borð til okkar varðandi ástand umhverf- ismála heimsins. Góð umhverfisímynd lykillinn að framtíð landsbyggðarinnar Í mínum huga er alveg ljóst að góð umhverfisímynd lands okkar er það verðmætasta sem íslensk þjóð á. Fáum við á okkur neikvæða um- hverfisímynd verður erfitt að losna undan henni, ekki síst ef sú ímynd er tengd auðsæjum lýtum á landinu og leið okkar í þessum málaflokki er vörðuð afgerandi afglöpum. Fram- tíðargrundvöllur matvælafram- leiðslu og ferðaþjónustu ásamt flestri annarri starfsemi í landinu mun að afar miklu leyti velta á þess- ari ímynd eins og umræðan er að þróast um allan heim í dag. Sá sem ekki áttar sig á að öll sú uppbygging stóriðju sem áformuð er teflir þess- ari ímynd í tvísýnu er blindur og hef- ur stungið höfði í sand ónýtra hug- mynda um að setja nánast öll egg íslenskrar orku í körfu mengandi stóriðju. Ef áframhaldandi uppbygging álbræðslu á ekki að stórskaða ásýnd okkar að þessu leyti þurfa rök stuðn- ingsmanna hennar um hreina orku til málm- bræðslu að vera skot- held. En eru þau það? Því fer fjarri, það sýna m.a. rannsóknir á um- hverfislegu mikilvægi framburðar ánna sem stöðvaður er í virkj- analónum við Kára- hnjúka og víðar. Þar fyrir utan hefur ómetanlegum djásnum íslenskrar náttúru verið fórnað þar um alla framtíð. Við Húsavík eru hugmyndir um að nýta jarðvarma til orkufram- leiðslu fyrir áðurnefnt álver. Gott er að fá þann möguleika upp á borðið, umhverfislega og efnahagslega kosti hans og galla. Framtíðar möguleikar landsbyggðarinnar liggja hinsvegar að mínu áliti fyrst og fremst í nýt- ingu á hreinni náttúru og óspilltu umhverfi. Þann möguleika á lands- byggðin langt umfram þéttbýlið á suðvesturhorninu með fullri virðingu fyrir margvíslegum tækifærum þar í þessu tilliti. Spurningin er einungis hvort við höfum þolinmæði og þrek til að vinna rétt úr honum. Vandaðri vinnubrögð við ákvarðanatöku Og þá erum við farin að tala um „eitthvað annað“ sem er t.d. vaxt- armöguleikar atvinnugreina sem fyrir eru, ásamt nýjum hugmyndum. Við munum þurfa að halda vel ut- anum þessar greinar, skilja eftir orku og andrúmsloft þeim til vaxtar og viðgangs. Þann þáttinn hafa menn ekki skoðað nægilega vel í ákafanum eftir álbræðslu. Mikil nauðsyn er á samræmdri stefnumótun í orku, at- vinnu og umhverfismálum, því þegar mikið er framkvæmt verður leiðin milli stórfellds ávinnings og stór- felldra mistaka svo ótrúlega stutt vegna afkastamikillar tækni. Sé Kárahnjúkadæmið stærstu af- glöp í sögu íslenskrar þjóðar, eins og ýmsir hafa fært rök að tók aðeins fjögur ár af þúsund að koma þeim í kring. Augljóst dæmi um vond vinnubrögð af þessum toga er að áð- urnefndri framkvæmd skyldi ýtt úr vör strax, í stað þess að ljúka áður við rammaáætlun um virkjanakosti. Eftir fyrsta áfanga skýrslunnar fékk þessi stærsta framkvæmd Íslands- sögunnar, þá nýfarin af stað, fall- einkunn varðandi umhverfisþáttinn. Niðurstaða sem kallar á aukna ábyrgð og vandaðri vinnubrögð en hingað til hafa tíðkast. Einmitt á þessum punkti hafa margir duglegir og ágætir talsmenn landsbyggðarinnar flaskað. Ég er ekki talsmaður þess að kostir og gall- ar stóriðju séu ekki skoðaðir en ég er þess fullviss að í þeim athugunum hefur mönnum yfirsést og gleymst nauðsynlegur samanburður á henni og „einhverju öðru“ Um valkostinn „eitthvað annað“ vita allir heilmikið. Þannig er því auðvitað einnig varið með Aðalstein Árna Baldursson. Þess vegna er ekki við hæfi að stilla okkur sífellt upp við vegg sem höfum haft efasemdir varðandi frekari stóriðju og segja að við höfum ekkert fram að færa. Slík- ar fullyrðingar minna nokkuð á um- mæli Friðriks Sophussonar í aðdrag- anda Kárahnjúkaframkvæmdanna um að menn yrðu að gera upp við sig hvort þeir vildu halda áfram upp- byggingu stóriðju eða að búa í mold- arkofum. Trúa menn slíkum mál- flutningi enn í dag? Álver á Húsavík? Stefán Gunnarsson fjallar um álver og umhverfismál og svar- ar grein Aðalsteins Árna Bald- urssonar » Í mínum huga er al-veg ljóst að góð um- hverfisímynd lands okk- ar er það verðmætasta sem íslensk þjóð á. Stefán Gunnarsson Höfundur er garðyrkjubóndi í Ak- urseli og framleiðir lífrænt grænmeti. Á DÖGUNUM birtist frétt þess efnis að menntamálaráðherra ynni að því að sameina Fjöltækniskólann og Iðnskólann í Reykjavík. Það kemur svo sem ekkert á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn vilji fjölga einkaskólum og draga úr ríkisums- vifum enda hefur menntamálaráð- herra aldrei farið leynt með aðdáun sína á einkareknum skólum. Í þessu samhengi sagðist hún vera sannfærð um að einkarekstur í skóla- kerfinu hefði leitt til farsældar fyrir allt skólasamfélagið. Þessi orð vöktu mig til um- hugsunar. Einkaskólar og einkaskólar eru ekki endilega það sama. Sumir skólar rukka himinhá skólagjöld á meðan að aðrir skólar eru fjármagnaðir að mestu af ríkinu og nemendur greiða sam- bærileg gjöld vegna náms og hjá op- inberum skóla. Þetta er nokkuð sem verður að hafa í huga þegar til stendur að einkavæða stærsta fram- haldsskóla landsins, með um 2.200 nemendum. Auk þess að vera stærsti framhaldsskóli landsins er nefnilega um að ræða stærsta iðn- skóla landsins, og nemendur hans koma alls staðar að af landinu. Við erum því ekki einungis að ræða um iðnskóla heldur í raun framtíð iðn- menntunar í landinu öllu. Á meðan staðan er sú að nemendur geta ekki stundað iðnnám að eigin vali nálægt sinni heimabyggð er hreint út sagt ekki réttlætanlegt að hið opinbera ætli að fría sig ábyrgð á iðnnámi og færa starfsemina í hendur einka- aðila. Það er því gott og blessað að menntamálaráðherra telji einka- rekstur skóla leiða til farsældar fyr- ir skólasamfélagið. Ég vil hins vegar leggja meiri áherslu á það hvort slík stefnubreyting sé góð fyrir sam- félagið í heild sinni. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um iðnnám á Ís- landi? Er með þessum gjörningi verið að veikja stoðir velferðarþjóð- félagsins og skerða jafnrétti til náms á framhaldsskólastigi? Það er spurningin sem við þurfum að svara áð- ur en haldið er áfram. Munu nemendur þurfa að greiða há skólagjöld eftir einkavæðinguna og mun áfram verða boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir, þar með taldar námsleiðir sem ekki borga sig fyrir einkaaðila? Það eru ekki góð vinnubrögð að þingmenn frétti af jafn mikilvægum áætlunum í gegn- um fjölmiðla og fái ekki að koma að umræðunni fyrr en mennta- málaráðherra er búin að ákveða nið- urstöðuna. Það hlýtur að vera krafa landsmanna að kjörnir fulltrúar okkar fái að ræða þetta mál á Al- þingi og koma að stefnumótun á sviði iðnnáms á réttum vettvangi. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð leggur áherslu á nýja stefnu í menntamálum þar sem fjölbreytni og metnaður haldast í hendur. Með- al áhersluatriða í menntamálum á næstu árum er að móta markvissa stefnu um iðnnám svo að fólk hafi aðra valkosti en hefðbundið bók- nám. Sérstaklega þarf að huga að eflingu iðnnáms utan höfuðborg- arsvæðisins þannig að fólk um land allt hafi jöfn tækifæri til framhalds- náms. Ég tek undir þessa stefna og tel að hið opinbera eigi að styrkja við iðnnám og leggja metnað sinn í að efla það í stað þess að fría sig ábyrgð á því. Skerðing iðnnáms á döfinni? Auður Lilja Erlingsdóttir fjallar um sameiningu Fjöl- tækniskólans og Iðnskólans í Reykjavík Auður Lilja Erlingsdóttir » Það eru ekki góðvinnubrögð að þing- menn frétti af jafn mik- ilvægum áætlunum í gegnum fjölmiðla og fái ekki að koma að um- ræðunni fyrr en menntamálaráðherra er búin að ákveða nið- urstöðuna. Höfundur er formaður UVG og í 3. sæti VG í Reykjavík-suður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.