Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 37

Morgunblaðið - 27.02.2007, Page 37
ert á góðum stað með afa og líður vel. Takk fyrir allt amma mín, ég elska þig. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Þinn Stebbi „litli“ Stefán Ólafur. Amma mín, Alma Björnsdóttir, lést á líknardeild Landakotsspítala aðfaranótt sunnudagsins 18. febrúar síðastliðinn eftir stutt veikindi. Við systkinin vorum svo lánsöm að njóta þess að amma bjó fyrir sunnan frá því að við vorum lítil. Hún aðstoðaði foreldra okkar við barnagæslu og eftir að við byrjuðum í skóla nutum við þess að amma heimsótti okkur minnst einu sinni í viku, gaf okkur að borða og eyddi tíma með okkur. Oft- ar en ekki hlýddi hún okkur yfir fyrir próf og hjálpaði okkur við heima- vinnu. Hún sýndi námi okkar mikinn áhuga, geymdi fyrir okkur vinnu- bækur og sá til þess að við kynnum námsefnið vel og værum alltaf vel undirbúin í skólanum. Okkur varð oft á orði að amma hefði sómt sér vel sem kennari. Ósjaldan var amma með í för þeg- ar fjölskyldan ferðaðist saman. Árið 1988 fórum við sex saman að heim- sækja yngri son ömmu sem var við nám í Danmörku. Ferðin var hin besta enda veðrið gott. Ekkert barnabarnanna gleymir því þegar virðulega amma okkar fór úr hælas- kónum og hoppaði á trampólíni í skemmtigarði á Fjóni. Margar sum- arbústaðaferðir voru einnig farnar en ef til vill fór ég eina eftirminnileg- ustu ferðina með ömmu fyrir um fimmtán árum. Þá bauð amma mér með sér í rútu norður á Sauðárkrók. Við gistum heima hjá frændfólki og eyddum nokkrum dögum við heim- sóknir til fjölmargra vina ömmu á Sauðárkróki. Ég man að það kom mér á óvart hversu marga amma þekkti fyrir norðan og eins fannst mér gaman að sjá ömmu hlæja löngum stundum í selskap vinkvenna sinna. Amma Alma var létt í lund og brýndi fyrir barnabörnunum að brosa við lífinu. Hún talaði aldrei illa um nokkurn mann og virtist alltaf takast að finna góðar hliðar við allt og alla. Hún var góð fyrirmynd og leið best þegar allt gekk vel hjá fjöl- skyldu hennar og öllum leið vel. Ég minnist ömmu með söknuði en eins bros á vör. Guð blessi minningu ömmu Ölmu. Alma Sigurðardóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 37 ✝ Kári ViðarÁrnason, bóndi á Hallbjarn- arstöðum á Tjör- nesi, fæddist á Húsavík 25. ágúst 1950. Hann varð bráðkvaddur 22. janúar síðastliðinn, þá staddur á Laxa- mýri. Hann var son- ur hjónanna Katr- ínar Friðbjarnardóttur húsmóður á Hall- bjarnarstöðum, f. 15.12. 1922, d. 24.3. 1991, og Árna Kárasonar bónda þar, f. 12.6. 1913, d. 13.10. 1991. Kári Viðar kvæntist Fanneyju Sigtryggsdóttur, f. 20.7. 1954, hinn 18.2. 1973. Börn þeirra Fanneyjar og Kára Viðars eru Árni Viðar búfræðingur, f. 10.7. 1973, búsettur á Hallbjarn- arstöðum, og Sigrún Hulda bók- ari, f. 26.9. 1978, en hún og sam- býlismaður hennar, David Cook tryggingaráðgjafi, f. 23.3. 1973, eru búsett í Southampton í Eng- landi. Eldri bróðir Kára Viðars er Sigurbjörn Eiður múrarameistari á Hallbjarnarstöðum, f. 4.10. 1946, eig- inkona hans er Nanna Fornadóttir húsmóðir, f. 11.8. 1948. Yngri bróðir Kára er Ingólfur Hilmar sjómaður á Húsavík, f. 4.9. 1956, kvæntur Freyju Eysteins- dóttur, f. 18.8. 1958. Kári og Fanney tóku við búi af foreldrum hans fyrir um 30 árum og búskapur var hans ævistarf, aðallega sauð- fjárrækt en einnig kálfaeldi. Hann stundaði sjó á trillubáti meðfram búskapnum og grá- sleppuveiðar á hverju vori frá því hann var unglingur. Hann var músíkalskur og lék á harm- oniku. Hann aflaði sér þekkingar um setlögin á Tjörnesi, safnaði skeljum og setti upp safn til sýnis fyrir ferðamenn. Útför Kára var gerð frá Húsa- víkurkirkju 30. janúar. Þótt nokkurrar mildi hafi gætt í veðri í byrjun þorra voru tíðindin vægðarlaus. Kári Viðar, náfrændi minn og nafni, hefur orðið bráð- kvaddur við störf sín, dáinn langt um aldur fram, aðeins 56 ára gam- all. Hann ólst upp á Hallbjarn- arstöðum og var í miðið af þremur bræðrum. Hinum megin við bæj- arlækinn á samnefndum bæ bjuggu þau Sæmundur Bjarki, f. 2.11. 1915, d. 8.8. 2004, föðurbróðir Kára Viðars, og eiginkona hans, Sigríður Katrín Parmesdóttir, f. 14.10. 1922, ásamt börnum sínum fjórum. Kári Viðar ólst því upp í glaðværum bræðra- og frænd- systkinahópi. Sigríður býr enn handan við lækinn, glöð og hress og man tímana tvenna. Æskuár Kára liðu fljótt við leik og störf. Hann lauk skyldunámi í farskóla. Vann ýmsa íhlaupavinnu og starfaði í eitt ár við vélavið- gerðir í Vélsmiðjunni Hamri í Reykjavík. Aftur fór hann suður og vann um skeið hjá Loftorku á meðan Fanney eiginkona hans var í húsmæðraskóla. Þegar tímar liðu fram tóku þau Fanney smám sam- an við búi Katrínar og Árna og að fullu fyrir um 30 árum. Kári var heimakær og stundaði búskapinn af alúð. Hann var löngum sjálfum sér nógur með all- ar viðgerðir, hvort sem það var við trésmíðar, vélaviðgerðir eða laut að útgerðinni, hann var réttnefnd- ur þúsundþjalasmiður. Þeir bræð- ur, Eiður og Kári, reistu sér báðir íbúðarhús skammt frá „gamla“ húsinu. Snyrtimennska þeirra bræðra er einstök. Aðalstarf Kára Viðars var sauðfjárrækt en hann jók kálfaeldi við búið og grá- sleppuveiðarnar á vorin voru annasamur tími. Kári og Fanney voru samhent með búskapinn en löngum hefur hún einnig stundað fulla vinnu í hraðfrystihúsi á Húsavík. Kári var elskusamur heimilis- faðir, gestrisinn, viðmótshlýr og músíkalskur, lék bæði á harmon- iku og hljómborð. Hann var í Harmonikufélagi Þingeyinga frá 1990 og sat þar stjórn. Hann lék fyrir dansi og á mótum harmon- ikuunnenda. Vestan og norðan á Tjörnesi eru nokkurra milljóna ára gömul set- lög þar sem skiptast á skeljalög og surtarbrandslög, um 500 m þykk. Þessar jarðmyndanir eru með þeim merkustu á Íslandi. Skelja- lögin eru einna aðgengilegust við Hallbjarnarstaðaá. Kári Sigurjóns- son, f. 2.3. 1875, d. 19.1. 1949, fyrr- um bóndi á Hallbjarnarstöðum, afi okkar Kára Viðars, safnaði skelj- um og aflaði sér víðtækrar þekk- ingar á Tjörneslögunum. Þótt af- inn væri látinn þegar Kári Viðar fæddist fetaði hann í fótspor hans. Hann safnaði skeljum og setti upp gott safn steingervinga með aðstoð fjölskyldu sinnar á Hallbjarnar- stöðum. Við greiningu skeljanna naut hann ómetanlegrar aðstoðar Jóns Eiríkssonar jarðfræðings og Leifs Símonarsonar steingervinga- fræðings. Móðir þess er hér festir línur á blað, Ásdís Káradóttir, f. 16.4. 1912, d. 31.12. 1997, fór alfarin suður á land úr heimahúsum á Hallbjarnarstöðum 17 ára gömul. Hún tók með sér mynd frá Hall- bjarnarstöðum og gaf niðjum sín- um. Í forgrunni er blágresið í lækjarhvömmunum, til suðurs séð til Héðinshöfða og Lundeyjar að- eins vestar, í vestri svipmikil Kinnarfjöllin. Á Jónsmessunni skín miðnætursólin í norðri. Þarna vildi Kári Viðar lifa og starfa. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Fanneyju, Árna, Sigrúnu og David. Blessuð sé minning Kára Viðars Árnasonar. Kári Sigurbergsson. Kári Viðar Árnason lestri bóka, ekki síst þeim sem snertu landið okkar og lífsbaráttu fólks og glímu þess við náttúruöflin. Hann var sjálfur prýðilega ritfær og hélt til haga ýmsu varðandi þjóð- legan fróðleik. Sumt af því hefur birst á prenti en ýmislegt held ég að hafi verið ófrágengið á því sviði af hans hálfu. Guðfinnur fylgdist ávallt vel með þróun mála í Strandasýslu. Hann, eins og margir dreifbýlisbú- ar, horfði uppá fólksfækkun í sveit- unum síðustu áratugi. Sú þróun var honum áhyggjuefni, ekki síst ef jörð fór í eyði. Þá var höggvið skarð í sveitina sem um leið gerði lífið fábreyttara því enn veltur búskapur í dreifbýli að nokkru á samvinnu og samstarfi meðal sveitunganna. Eitt af áhuga- málum Guðfinns var spurninga- keppni sem Strandamenn hafa haldið undanfarna vetur. Þar var hann að sjálfsögðu meðal þátttak- enda enda bæði fróður og minnug- ur. Í keppninni nýttust þessir hæfi- leikar hans vel. Var auðheyrt á honum að hann taldi þessa keppni meðal stærri menningarviðburða ár hvert. Ég vil að lokum þakka Guðfinni sérlega góð og ánægjuleg kynni á undangengnum árum. Við María biðjum guð að styrkja Arnheiði vinkonu okkar í sorginni og jafnframt vottum við fósturbörn- um Guðfinns og öllu skyldfólki hans okkar innilegustu samúð á kveðju- stundu. Örn Þórarinsson. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 – www.englasteinar.is 15% afsláttur af öllum legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru sambýliskonu, dóttur, móður, tengda- móður og ömmu, HREFNU HELGADÓTTUR, Huldugili 4, Akureyri. Þorsteinn Friðriksson, Þuríður Guðmundsdóttir, Stefán Óskarsson, Ester Jóhannsdóttir, Hugrún Óskarsdóttir, Elva Óskarsdóttir, Jón Gísli Guðlaugsson og barnabörn. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, ÁRNA INGÓLFSSONAR, dvalarheimilinu Kjarnalundi, áður Víðivöllum 4, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kjarnalundar fyrir einstaka umönnun og hlýju. Sólveig Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Ingi Árnason, Tryggvi Árnason, Björg S. Skarphéðinsdóttir, Ingibjörg Bryndís Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Sæll og blessaður Skafti minn, þetta er Smári vinur þinn sem skrifar. Ég er á Hoffellinu og ég get sagt að aldrei verður fyllt það skarð sem missir þinn er, en margir reyna. Þú varst einstakur persónuleiki og það varst þú sem hélst manni gangandi á kolmunnavertíð með húmornum þín- um þegar það var verið að blogga (hoffell.bloggar.is) og þú varst alltaf Skafti Kristján Atlason ✝ Skafti KristjánAtlason fæddist í Neskaupstað 8. nóvember 1971. Hann lést á Land- spítalanum 14. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fáskrúðs- fjarðarkirkju 19. ágúst. sá kátasti í brúnni. Það var sama hvað var; alltaf var Skafti kátur, enda var þetta minn maður um borð. Hann passaði upp á mig, fannst ég líkur sér á sínum yngri ár- um. Þín verður ávallt saknað um borð í Hof- felli SU-80 en skarð þitt verður aldei fyllt, þú varst einstakur. Það hlýtur að vera merkilegt, það sem Guð ætlaði þér, því hann tók þig frá börnunum og Þór- eyju. Þórey og börn, við, áhöfn Hoffells- ins, samhryggjumst ykkur. Andi Skafta Kristjáns Atlasonar verður alltaf um borð enda var þar glað- lyndur maður á ferð. Ég mun ávallt sakna þín. Smári Einarsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.