Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 40
|þriðjudagur|27. 2. 2007| mbl.is staðurstund Sigurbjörg Þrastardóttir skrifar um þýska bíóárið 2006 og inn- lit á Kvikmyndahátíðina í Berlín í febrúar. » 41 af listum Bar-par var frumsýnt á NASA um helgina og þykir gagnrýn- anda hafa verið kastað til hönd- unum við uppsetninguna. » 42 dómur The Number 23 með Jim Car- rey var mest sótta kvikmyndin í bíóhúsum hérlendis um helgina. » 41 kvikmyndir Lilja Ívarsdóttir fór að sjá tvö ný dansverk hjá Íslenska dans- flokknum og hreifst ekki eins af þeim báðum. » 43 gagnrýni Ransu fjallar um gjörninginn „Another þing“ eftir Andrew Burgess sem var fluttur við Al- þingishúsið. » 49 dómur „TÓNLEIKARNIR eru liður í frönsku menningarhátíðinni Pour- quoi Pas – franskt vor á Íslandi og því samstarfsverkefni Frakkanna og kammersveitarinnar,“ segir Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari sem verður m.a. með einleik á tónleikunum. „Við erum með 35 manna hljóm- sveit, franskan stjórnanda og franskan orgelleikara.“ Ásamt Rut eru einleikarar á tónleikunum Ás- hildur Haraldsdóttir á flautu, Daði Kolbeinsson á óbó og hinn franski Vincent Warnier á orgel. Warnier er talinn einn fremsti orgelleikari Frakka af yngri kynslóðinni en hann starfar sem organisti við Saint- Etienne-du-Mont í París auk þess að vera eftirsóttur víða um heim. Á efnisskrá eru eingöngu frönsk verk, það elsta samdi Maurice Ravel um 1906 og er það fyrir kamm- ersveit, annað er konsert í G-dúr fyrir orgel, strengjasveit og pákur eftir Fr. Poulenc frá miðri seinustu öld og síðan eru tvö verk á efnis- skránni eftir núlifandi franskt tón- skáld, Nicolas Bacri. Frumfluttur á Íslandi? „Bacri verður viðstaddur tón- leikana enda verða verk eftir hann frumflutt á Íslandi í kvöld, en ég held að það hafi aldrei áður verið spilað verk eftir hann hér,“ segir Rut sem er mjög hrifin af þessu nú- tímatónskáldi þeirra Frakka. „Hann semur fallega tónlist og er mjög áheyrilegur,“ segir hún. Nicolas Bacri fæddist árið 1961 og nam píanóleik, tónfræði og tón- smíðar. Tónsmíðar hans einkennast af hógværri lýrík, skýru og melódísku tónmáli. Á árunum 1980–85 samdi hann flókin verk með þykkri áferð, en upp frá því fór hann að endur- skoða stíl sinn undir áhrifum frá Li- geti og Lutoslawski. Sjálfur telur hann að sem tónskáld eigi hann margt sameiginlegt með Sjostako- vitsj og Britten. Tónlist Bacris hefur nær ávallt undirliggjandi tónmiðju og hann sækir einnig mikið í gömul form bar- okks og klassíkur: passacaglíur, ka- nónar og sónötuform eru meðal þeirra forma sem hann semur tónlist sína í. Stjórnandi á tónleikunum verður Daniel Kawka sem Rut segir mjög góðan stjórnanda, en hann kemur nú í fyrsta sinn fram á Íslandi. Kawka nam tónlistarfræði og hljómsveitarstjórn við Tónlist- arháskólann í Lyon. Hann hefur stjórnað hljóm- sveitum á borð við frönsku útvarps- hljómsveitina, þjóðarhljómsveit- irnar í Lille og Lyon, og Lundúnasinfóníettuna. Árið 1993 stofnaði hann Contemporary Orc- hestral Ensemble sem hefur flutn- ing nútímatónlistar að markmiði. Tónleikarnir hefjast í Hallgríms- kirkju kl. 20 í kvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg Franskt Kammersveit Reykjavíkur leikur fjögur verk eftir Maurice Ravel, Nicolas Bacri og Fr. Poulenc undir stjórn hins franska Daniel Kawka í kvöld á tónleikum í Hallgrímskirkju. Flytja fjögur frönsk tónverk Kammersveit Reykja- víkur heldur franska tónleika í Hallgríms- kirkju í kvöld. Þar verða flutt fjögur verk eftir frönsk tónskáld auk þess sem einn fremsti orgelleikari Frakka af yngri kyn- slóðinni flytur einleik. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is „ÞETTA er eiginlega svona leyni- sýning,“ segir leikkonan Aðalbjörg Þóra Árnadóttir um sýningu hins nýstofnaða Gleðileikhúss, Ísmerika – Take the tour with Paris and Tyra. Í sýningunni er hótelerfingj- anum og djammdrottningunni Par- is Hilton teflt saman við fyrirsæt- una og þáttastjórnandann Tyru Banks og leiða þær stöllur áhorf- endur út í óvissuna, að sögn Að- albjargar sem vandar sig sem mest hún má við að gefa ekki of mikið upp. „Það má segja að þetta sé svona óvissuferð þannig að við eigum stundum í vandræðum með að segja frá sýningunni,“ útskýrir hún. „Það sem ég get sagt er að gestir eru boðaðir í anddyri Kramhússins þar sem þær Paris og Tyra taka á móti þeim. Þær leiða svo áhorfendur í óvissuferð um landið Ísmeriku þar sem þær búa nú um mundir vegna ákveðinna aðstæðna sem upp hafa komið í lífi þeirra, og starfa sem leiðsögumenn.“ Sautján ár í burðarliðnum „Það eina sem ég get sagt er að þetta er ekki úti og áhorfendur þurfa ekki að vera hræddir við að mæta og eða við að vera settir í ein- hverjar asnalegar stellingar,“ upp- lýsir Aðalbjörg með semingi þegar gengið er frekar á hana um eðli sýningarinnar. „Það er handrit að sýningunni en það er fremur óvenjulegt. Í því eru t.d. teikningar og reglur og blaðaúrklippur frekar en fastmótaður texti. Það er samt ekki um að ræða spunasýningu frá A til Ö, þó að utanaðkomandi áhrif geti breytt gangi hennar.“ Það er Magnea Björk Valdimars- dóttir sem stendur að Gleðileikhús- inu ásamt Aðalbjörgu. Aðalbjörg segir að þær hafi ákveðið að stofna til leikfélagsins fyrir einum 17 ár- um, löngu áður en þær urðu at- vinnuleikkonur. Að því hafi hins vegar fyrst orðið núna. Og tilgang- urinn er skýr: „Við vildum fyrst og fremst búa til leikhús sem er skemmtilegt.“ Paris og Tyra út í óvissuna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gleði Aðalbjörg og Magnea stofnuðu Gleðileikhúsið og fara nú í hlutverk hinna frægu og flottu Paris Hilton og Tyru Banks í Kramhúsinu. Næstu sýningar eru nk. fimmtu- dag, föstudag og laugardag. Miða- pantanir í síma 551-0343.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.