Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR, NÚNA
FYRST ÉG OG
JÓN ERUM SAMAN
ÞÁ VONA ÉG AÐ
VIÐ TVÖ GETUM
VERIÐ VINIR
ÞAÐ VERÐUR
EKKI AUÐVELT
ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA
VINUR EINHVERS SEM HEFUR
SÉÐ ÞIG NAKINN
ÞETTA
ER ALVEG
FRÁBÆRT
ÉG ER HREINN NÚNA, EN
EF ÉG STÍG ÚT ÚR HÚSINU Í
EINA MÍNÚTU...
BÚMM! VEISTU HVAÐ ÉG ER?
SEGULSTÁL FYRIR SKÍT
VANDAMÁLIÐ VIÐ ÞAÐ AÐ
EIGA TÍGRISDÝR ER AÐ ÞAÐ
KEMUR ALLTAF STÖKKVANDI Á
MANN Á 100 KÍLÓMETRA
HRAÐA ÞEGAR MAÐUR BÝST
MINNST VIÐ ÞVÍ
HJÚKK... MÉR FANNST ÉG
HEYRA Í HONUM KOMA.
HJARTAÐ Í MÉR ER ENNÞÁ
Á FULLU... EN HVAR ÆTLI
HOBBES SÉ?
ÞARNA
ERTU!
ÞAÐ ER
EINS
GOTT
ÞÚ HEFUR LITIÐ
FREKAR ILLA ÚT
UNDANFARIÐ. ÞÚ
ÆTTIR AÐ FARA
FYRR AÐ SOFA
ÉG
VAR AÐ
SKILJA
EN ÞÚ ERT BÚINN
AÐ VERA GIFTUR SVO
LENGI HERRA RIDDARI!
HVAÐ GERÐIST?
ÉG VAR BÚINN AÐ FÁ
NÓG AÐ ÞVÍ AÐ ÞEGAR
ÉG KOM HEIM BYRJAÐI
KONAN MÍN ALLTAF Á
ÞVÍ AÐ SEGJA,
„RÓMVERSKUR
RIDDARI RÉÐST INN Í
RÓMARBORG...“
MAMMA,
SÍMINN ER AÐ
HRINGJA!
ÞÚ GETUR
SVARAÐ Í
SÍMANN KIDDA
HÆ AMMA!
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?
EKKERT NÝTT?..
ÉG HEYRÐI
MÖMMU SEGJA
AÐ ÞÚ GÆTIR
VERIÐ MEIRI
BELJAN
ELSKAN,
VILTU
RÉTTA MÉR
SÍMANN?
HVAÐ ERU ÞESSAR BÖRUR
AÐ GERA HÉRNA? ÉG ER BARA
AÐ FARA Í SKOÐUN
ÞETTA
ERU REGLUR
SPÍTALANS
Í GÆR VAR ÉG AÐ SVEIFLA MÉR
MILLI HÚSA OG NÚNA ER ÉG Á BÖRUM
Á LEIÐINNI Á SPÍTALA
Stofnun Sæmundar fróða viðHáskóla Íslands og um-hverfisráðuneytið standa ávormisseri fyrir Stefnumót-
um – opnum fræðslufundum um um-
hverfismál. Næstkomandi föstudag, 2.
mars, er boðið til stefnumóts við þrjá
sérfræðinga um loftslagsmál: Tómas
Jóhannesson, jarðeðlisfræðing á Veð-
urstofu, Huga Ólafsson, deildarstjóra
umhverfisráðuneytisins, og Sigurð
Friðleifsson hjá Orkusetri. Brynhild-
ur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis-
og auðlindafræði við HÍ, er fund-
arstjóri, en á stefnumótinu, sem ber
yfirskriftina „Er hægt að snúa við
loftslagsbreytingum?“, verður fallað
um loftslagsbreytingar og nýja
skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu
þjóðanna (IPCC).
„Þessi nýja skýrsla staðfestir yf-
irvofandi loftslagsbreytingar sem til
dæmis munu valda hækkun á með-
alhita á heimsvísu á bilinu 1,1 til 6,4
selsíusgráður næstu 100 árin,“ segir
Brynhildur. „Einnig staðfestir skýrsl-
an að mjög líklega eru þessar lofts-
lagsbreytingar af mannavöldum og þá
einkum vegna losunar gróðurhúsa-
lofttegunda þar sem mest gætir áhrifa
koltvíoxíðs sem við losum í miklu
magni dag hvern við bruna jarð-
efnaeldsneytis.“
Brynhildur segir líklegar afleið-
ingar loftslagsbreytinga meðal annars
hækkun á yfirborði sjávar með auk-
inni flóðahættu: „Við munum einnig
sjá breytingar á gróðurbeltum, breyt-
ingar á lífsskilyrðum í sjó og veðra-
breytingar þar sem líklegt er að tíðni
stórra fellibylja muni aukast,“ segir
Brynhildur. „Vegna þessara breyt-
inga og annarra er líklegt að áhrif
loftslagsbreytinganna verði umtals-
verð á hagkerfi heimsins ef ekkert er
að gert. Ljóst er að það þarf að bregð-
ast við, en spurningin er hvernig, og
hvort það sé yfirleitt hægt?“
Loftslagsbreytinga er þegar farið
að gæta og ljóst að erfitt verður að
snúa þróuninni við: „Við vitum að kolt-
víoxíð lifir í mörg ár í lofthjúpi jarðar
og því líklegt að magn koltvíoxíðs
muni halda áfram að byggjast upp
næstu áratugina jafnvel þótt dregið
verði úr losun þess.
Við þurfum að huga vandlega að því
hvernig best er að standa að því að
sporna við loftslagsbreytingum,“ seg-
ir Brynhildur. „Ljóst er að velja verð-
ur vandlega þau stjórntæki sem notuð
verða við þær aðgerðir, því orkunotk-
un sem að mestu leyti byggist á jarð-
efnaeldsneyti knýr hagkerfi heimsins
og þarf að finna þá leið sem minnsta
röskun hefur á hagsæld, en því fyrr
sem við bregðumst við því sárs-
aukaminni verða aðgerðirnar.“
Brynhildur segir ýmis stjórntæki
koma til greina sem og fræðsla: „Með
aðgerðum sem hvetja almenning og
fyrirtæki til orkusparnaðar, með auk-
inni notkun á umhverfisvænum far-
artækjum og aukinni fjárfestingu í
hreinum orkugjöfum er hægt að
draga úr vandanum, og einnig er til
dæmis hægt að binda koltvíoxíð í
gróðri.“
Stefnumót föstudagsins er haldið í
Tæknigarði, sem er bak við Há-
skólabíó. Hefst stefnumótið kl. 12.15
og er aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Umhverfi | Stefnumót við vísindamenn í
Tæknigarði á föstudag kl. 12.15
Lausn á lofts-
lagsvandanum?
Brynhildur
Davíðsdóttir
fæddist árið
1968. Hún lauk
doktorsprófi í
umhverfis- og
orkufræðum frá
Bostonháskóla
árið 2001. Bryn-
hildur starfaði
við Bostonháskóla við rannsóknir
og kennslu frá 2001–2005 og hjá
ráðgjafarfyrirtækinu Abt Associa-
tes 2004–2006. Hún er nú dósent í
umhverfis- og auðlindafræði við
Háskóla Íslands. Brynhildur er gift
Einari Erni Sigurdórssyni hönn-
unarstjóra og eiga þau tvær dætur.
TÍSKULJÓSMYNDARAR speglast í glerhurð á tískusýningu argentínska
hönnuðarins Gaspards Yurkievich í París í gær. Haust- og vetrartískan er
um þessar mundir kynnt í öllum helstu tískuborgum heims.
Reuters
Á bak við linsuna