Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BREAKING AND ENTERING kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 8 LEYFÐ
MAN OF THE YEAR kl. 10 B.i. 7 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 B.i. 12 ára
PERFUME: THE STORY OF A MURDERER kl. 10:10 B.i. 16 ára
BREAKING AND ENTERING kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 6 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
HANNIBAL RISING kl. 10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING
JUDE LAW JULIETTE BINOCHE ROBIN WRIGHT
Með “Íslandsvininum og sjarminum Jude Law” ásamt óskarsverðlauna leikkonunni Juliette Binoche
Frá leikstjóra English Patient og Cold Mountain
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
BYGGÐ Á
METSÖLU
SKÁLDSÖGU
PATRICK
SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSL
OG ENSKU TALSÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Stærsta opnun á fjölskyldumynd í Bandaríkjunum í ár
Frá þeim sömu og færðu okkur
Chronicles Of Narnia
ÓSKARSVERÐLAUN
m.a. besta leikonan í aukahlutverki2
eeee
VJV, TOPP5.IS
eeee
S.V., MBL.
eee
S.V., MBL.
Fjölbýlishús í Laugardalnum
HVAÐ er að gerast? Ég las í Frétta-
blaðinu 22. febr. s.l. að það stæði til að
taka leiksvæði barna í Laugardalnum
undir byggingu fjölbýlishúss. Mér er
það minnisstætt þegar við íbúar Smá-
íbúðarhverfis stóðum fyrir undir-
skriftasöfnun og mótmæltum fyr-
irhuguðum byggingum fjölbýlishúsa
við Hæðargarð, en þar var bæði æf-
ingarsvæði á sumrin og leiksvæði
barna allt árið. Þeir háttsettu menn í
þá daga sögðu að börnin gætu farið
niður í Fossvog til leikja, þar væru
nóg svæði. En viðurkenndu jafnframt
að við hefðum næst minnsta græna
svæðið í borginni. En samt var okkur
hafnað. Sem sagt börnin okkar norð-
an Bústaðavegar áttu að fara yfir þá
hættulegu götu sem Bústaðaveg-
urinn er. Er ekki alltaf verið að tala
um að tölvan sé að tröllríða öllu og að
börnin þurfi að finna sér aðra leiki en
tölvuleiki þar sem ofbeldi og dráp eru
í fyrirrúmi og að þau kunni ekki skil á
röngu og réttu. En hvað eruð þið að
gera góðu ráðamenn. Endilega takið
allt græna svæðið í borginni undir
byggingar og sendið börnin okkar til
leikja á götuna eða í drápsleiki í tölv-
unni og allir munuð þið segja sem
þessu ráðið „EKKI ÉG“ Nákvæm-
lega eins og margir sögðu vegna
Breiðavíkurdrengjanna. Í Guðana
bænum farið að vakna.
Jóna Þ. Vernharðsdóttir
Enn um Netið eða netið
Tölvutæknin hefur opnað nýja boð-
skiptaleið sem kennd hefur verið við
netið. Um leið hefur verið tekin upp
ritvenja sem gengur þvert á íslenska
stafsetningu og netið iðulega skrifað
með stóru N-i. Í enskri tungu er notk-
un stórs stafs mun algengari en í ís-
lensku og hugsanlega vilja einhverjir
taka upp þá hefð. Ekki er þó netið
alltaf skrifað með stórum staf á því
málsvæði. Ef notkun stóra stafsins er
álitin viðeigandi yfir netið er ekki úr
vegi að benda hinum sömu á að skrifa
jafnframt sjónvarp, útvarp, dagblöð,
tímarit með stórum staf en miðlar af
þessu tagi komu til sögunnar löngu á
undan netinu. Ef Net-liðum finnst
það ekki við hæfi ættu þeir að endur-
skoða notkun stóra stafsins yfir netið
stóra og stórkostlega.
Helgi Gunnlaugsson
Prófessor
Flagari í Framsókn
ÉG er ein af þeim sem fór á sýningu
Íslensku óperunnar á Flagara í
Framsókn. Ég er kannski ekki mesti
óperuunnandinn en ég hef gaman af
tónlist og listum. Ég hafði mjög gam-
an af þessu verki mér fannst söngv-
ararnir standa sig vel það er húmor í
verkinu sem mér finnst ótrúlega góð-
ur kostur við óperu, búningarnir voru
litríkir og skemmtilegir og sviðs-
myndin var alveg frábær í einskonar
Salvador Dali anda. Samt kom mér
það ekki á óvart hvernig dóma verkið
fékk þar sem mín skoðun er sú að fáir
gagnrýnendur eru opnir fyrir nýjum
og öðruvísi verkum. Fyrirsögnin á
gagnrýni Jónasar Sen var „Hvorki
fersk né sjarmerandi“, líklega vegna
þess að verkið var öðruvísi og ekki
eitt af þessum klassísku sem alltaf
selst upp á. Þrátt fyrir það segir hann
að allir söngvararnir hafi staðið sig
vel. Mér finnst að það eigi að gagn-
rýna verk út frá frammistöðu söngv-
aranna, hvernig búningarnir og sviðs-
myndin eru gerð o.s.frv. ekki út frá
því hvernig verkið er þótt að vissu-
lega megi segja frá því um hvað það
er o.fl. en það er ekki það sem á að
gagnrýna. Með þessum orðum fær
fólk það á tilfinninguna að þetta sé lé-
legt og illa gert sem það er alls ekki.
Með því að sýna verk eins og Flagara
í Framsókn er verið að reyna að
breyta til frá gömlu klassísku verk-
unum og jafnvel verið að reyna að fá
unga fólkið til að koma líka í Óperuna.
Það er gott mál en gagnrýnin segir
mikið þar sem að fólk hættir við að
fara í Óperuna þegar það sér fyr-
irsögninga á gagnrýninni og það end-
ar með því að Íslenska óperan hættir
að geta sýnt þessi „öðruvísi“ verk, er
það það sem við viljum?
Bergþóra G. Kvaran
Miðborg Reykjavíkur
MIKIÐ hefur verið rætt um hvernig
lífga mætti upp á miðborg Reykjavík-
ur og eftir þó nokkrar andvökunætur
hefi ég komist að niðurstöðu. Torg
eru einstaklega vel til þessa fallin.
Sem dæmi mætti nefna Austurvöll
sem á sólríkum dögum er þéttsetinn
fólki hvaðanæva að úr gervöllum
heiminum. Tilvalið væri að nýta
Lækjartorg betur. Þar mætti auka
gróður af ýmsu tagi og setja styttu af
einhverju mikilmenni, t.d. Vigdísi
Finnbogadóttur og/eða Jörundi
Hundadagakonungi.
Böðvar.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Víkverji á reglulegaleið um Vest-
urlandsveginn og furð-
ar sig oft á glæfra-
legum framúrakstri
bíla á þeim vegi. Það er
gömul saga og ný að
Íslendingum liggi lífið
á en kapp er best með
forsjá. Það er á köflum
ótrúlegt að horfa upp á
ökumenn tefla á tvær
hættur á Vesturlands-
veginum, taka jafnvel
fram úr mörgum bílum
í einu án þess að hafa
hugmynd um hvað bíð-
ur þeirra á hinni ak-
reininni.
Minnstu munaði að Víkverji fengi
ökumann af þessu sauðahúsi framan
á sig um liðna helgi. Hann var að
taka fram úr röð bíla í Kollafirð-
inum, fjórum eða fimm talsins og var
á að giska hálfnaður þegar Víkverji
sá hann kom á seinna hundraðinu á
móti sér á öfugum vegarhelmingi.
Víkverji sá strax að það væri úti-
lokað að ökumaðurinn næði fram úr
fremsta bílnum á hinni reininni áður
en hann kæmi að Víkverja. Það var
því ekki um annað að ræða en nauð-
hemla, beygja út í kant og vona það
besta. Og Víkverji slapp með
skrekkinn. Fremsti bíllinn á hinum
helmingnum áttaði sig greinilega
líka á því hvað var á seyði og vék á
elleftu stundu. Þannig
slapp glanninn naum-
lega milli bíla. Víkverji
þeytti horn og horfði í
augu hans þegar bíllinn
geystist framhjá.
Hvorki datt né draup af
glannanum. Ekki hafði
Víkverji svigrúm til að
meta andlegt ástands
farþegans í framsæt-
inu. Kannski er hann
vanur svona aksturs-
lagi?
En getur gáleysi af
þessu tagi endað nema
á einn veg?
Framúrakstur er al-
geng orsök bílslysa á
Íslandi og menn geta haldið áfram
að velta fyrir sér þörfinni á því að
tvöfalda helstu vegi landsins. Það
verður örugglega gert á endanum en
þangað til verða bílstjórar að vera
skynsamir og það hlýtur að vera
grundvallaratriði að láta ekki kylfu
ráða kasti við framúrakstur.
Vitandi það frá fyrstu hendi að
framúrakstur er tíður á kaflanum
frá Mosfellsbæ upp á Kjalarnes
furðar Víkverji sig á því að lögreglan
skuli ekki vera sýnilegri á þessum
slóðum. Það heyrir til undantekn-
inga ef Víkverji rekst á hana á ferð-
um sínum þar. Hann hvetur lögregl-
una til að bæta úr þessu. Það myndi
án efa draga úr slysahættu.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er þriðjudagur
27. febrúar, 58. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt
heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sálu-
hjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2. Tím. 3, 15.)
Stuttmynd norsku kvikmynda-gerðarkonunnar Torill Kove,
The Danish poet, sem sigraði í flokki
stuttmynda á Óskarsverðlaunahátíð-
inni í gærkvöldi er fyrsti sigur Norð-
manna á Óskarsverðlaunahátíðinni í
56 ár. Árið 1951 sigraði Thor Heyer-
dahl í flokki heimildarmynda fyrir
mynd sína Kon-Tiki.
Í mynd Kove er sögð saga dansks
ljóðskálds sem ferðast til Noregs til
þess að fá innblástur frá norsku
skáldkonunni Sigrid Undset sem
leikin er af Liv Ullmann. Hún hefur
tvisvar verið tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna, árið 1970 fyrir hlut-
verk sitt í kvikmyndinni Emigrants
og 1996 fyrir Face to Face.
Þrátt fyrir að Kove búi í Montreal
í Kanada og að mynd hennar var
styrkt af kvikmyndasjóði í Kanada
segir hún að sagan geti ekki verið
annað en norsk. „Ég er norsk og ég
hef engar efasemdir um að þessi
mynd er 100% norsk,“ segir Kove.
Hún var einnig tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna árið 1999 fyrir stutt-
myndina My Grandmother Ironed
the King’s Shirts.
Leikkonunni Helen Mirren kannað verða boðið í te í Buck-
inghamhöll í kjölfar þess að hafa
hlotið Óskarsverðlaunin fyrir túlkun
sína á Elísabetu drottningu.
Mirren hefur hlotið fjölda verð-
launa fyrir leik sinn í The Queen,
bæði Golden Globe-verðlaunin,
Screen Actors Guild Award og
BAFTA. Á Óskarsverðlaunahátíð-
inni lét leikstjóri myndarinnar,
Stephen Frears, að því liggja að
hann, Mirren og handritshöfund-
urinn, Peter Morgan, myndu halda á
fund drottningarinnar sjálfrar í
Buckinghamhöll í næsta mánuði.
Talsmaður hallarinnar sagði að
ýmsir kostir kæmu til greina, og full-
víst mætti telja að drottningin væri
afar ánægð með glæsilegan árangur
Mirren.
Talsmaðurinn vildi ekki tjá sig um
það hvort Elísabet hefði séð mynd-
ina, en benti á að drottningin færi oft
á kvikmyndafrumsýningar.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, er einnig áberandi per-
sóna í myndinni, en talsmaður hans
sagði í dag að hann hefði ekki enn
séð myndina, en væri himinlifandi
yfir glæstum árangri Mirren.
Breska blaðið The Sun var í gær
með getgátur á forsíðunni um að
Mirren myndi eiga fund með drottn-
Fólk folk@mbl.is