Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 2

Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag fimmtudagur 1. 3. 2007 viðskipti mbl.isviðskipti Gamall landsliðsmaður í sundi sest í forstjórastól Opinna kerfa í dag» 16 BANGSINN VER HÍÐI SITT BJÖRN WAHLROOS, FORSTJÓRI SAMPO, ER VALDA- MIKILL Í FINNLANDI OG SLYNGUR VEIÐIMAÐUR >> 6 Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EVRÓPSKAR og asískar hluta- bréfavísitölur héldu áfram að lækka í gær eftir að allar helstu hlutabréfa- vísitölur heims tóku dýfu í kjölfar mikillar lækkunar á kínverskri vísi- tölu, SCI (Shanghai Composite Inex) á þriðjudag. Viðsnúningur varð á kínversku vísitölunni í gær, en hún hækkaði um tæp 4% eftir að hafa lækkað um tæp 9% á þriðjudag. Aðrar asískar vísitölur héldu hins vegar áfram að lækka í gær, jap- anska Nikkei vísitalan um 2,8% og hin kínverska Hang Seng um 2,5%. Hagnaðartaka Hlutabréf í Evrópu féllu sömuleiðis í verði í gær, en þó varð lækkunin þar minni en í Asíu og minni en í gær. Breska FTSE, þýska DAX og franska CAC vísitalan lækkuðu um 1,29-1,82%. Vísitölurnar í Bandaríkjunum, Dow Jones, Nasdaq og S&P500 byrjuðu gærdaginn hins vegar á mun jákvæðari nótum og höfðu allar hækkað um tæpt 1% þegar þetta var skrifað. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 1,47% í gær. Lækkanir þriðjudagsins komu í kjölfar mikillar lækkunar á SCI vísi- tölunni, eins og áður segir. Svo virð- ist sem aðallega hafi þar verið um að ræða hagnaðartöku fjárfesta, en vísitalan hefur hækkað mikið undan- farið. Hver hlutabréfavísitalan á fætur annarri lækkaði svo líkt og sú kín- verska á þriðjudag og héldu hluta- bréf áfram að falla í verði í gær. Margir undirliggjandi þættir stuðluðu að því hvernig fór og svo virðist sem atburðirnir í Kína hafi einungis verið kveikjan en ekki meg- inorsökin. Tölur um ástand fram- leiðsluiðnaðar í Bandaríkjunum komu út á þriðjudaginn og samdrátt- ur á húsnæðismarkaði þar í landi hafa vakið upp spurningar um ástand efnahagsmála þar í landi. Fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Alan Greenspan, sagðist sama dag hafa áhyggjur af því að niðursveifla væri yfirvofandi. Fleiri slæmar fréttir bárust svo frá Bandaríkjunum í gær. Hagvöxt- ur á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var aðeins um 2,2% en búist hafði verið við 3,5% hagvexti. Þá dróst sala á nýju íbúðarhús- næði saman um 16,6% í janúar og hefur ekki minnkað jafn hratt í þrettán ár. » 8-9 Áframhald- andi lækkanir Fréttir benda til þess að um sé að hægjast í bandarísku efnahagslífi Reuters Slæmur dagur Þriðjudagurinn var ekki góður fyrir verðbréfamiðlara eins og þennan í New York sem var heldur niðurlútur eftir viðskipti dagsins. LANDSBANKINN hefur opnað útibú í Ósló í Noregi. Það tekur við af umboðsskrifstofu bankans sem stofnuð var þar í apríl í fyrra. Bankinn er nú með starfsemi í 15 löndum. Í tilkynningu frá Landsbank- anum segir að rekstur umboðs- skrifstofunnar hafi leitt í ljós þörf fyrir frekari útvíkkun á þjónustu bankans í Noregi. Útibúið muni áfram veita lánafyrirgreiðslu til viðskiptavina tengdra sjávar- útvegi, m.a. kröfu- og birgða- fjármögnun. Thor Arne Talseth hefur verið ráðinn útibússtjóri en hann stýrði umboðsskrifstofunni áður. „Þetta er enn einn áfanginn í aukinni útrás Landsbankans,“ seg- ir Sigurjón Þ. Árnason, banka- stjóri Landsbankans. Landsbankinn opnar útibú í Ósló FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef- ur hækkað lánshlutfallið hjá Íbúða- lánasjóði úr 80% í 90%. Þá hefur há- markslán sjóðsins einnig verið hækkað úr 17 milljónum króna í 18 milljónir. Þetta var tilkynnt til Kauphallarinnar í gær. Með þessari aðgerð hafa láns- hlutfall og hámarksfjárhæð af út- lánum Íbúðalánasjóðs verið færð í sama horf og þau voru áður en rík- isstjórnin ákvað í júní í fyrra að lækka hlutfallið og fjárhæðina. Þar var um að ræða lið í aðgerðum stjórnarinnar í efnahagsmálum. Lánshlutfall hjá ÍLS hækkar í 90% USD 6,1%* ISK 14,9%* EUR 4,4%* GBP 5,9%* Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslu- a›ili sjó›anna. Athygli fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir. Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn á ver›bréfa- sjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingarheimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is. hærri ávöxtun en millibanka- Enginn munur er á kaup- og sölugengi.Örugg ávöxtun í fleirri mynt sem flér hentar Peningabréf Landsbankans G O TT FÓ LK M cC A N N *Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 3. janúar – 1. febrúar 2007 fimmtudagur 1. 3. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Þjóðverjar sækja Íslendinga heim í júní>> 4 MCCARTHY HETJA S-AFRÍKUMAÐURINN SKAUT ARSENAL ÚT ÚR BIKARKEPPNINNI MEÐ GLÆSIMARKI >> 2 Ljósmynd/ Guðmundur Karl Allt sem er í boði Íslands - og bikarmeistaralið Hauka í körfuknattleik kvenna er nú handhafi allra titla sem eru í boði á Íslandi. Í gær tryggði liðið sér deildarmeistaratitilinn í úrvalsdeild, Ice- land Express-deildinni með því að leggja Hamar að velli í Hveragerði. Efri röð frá vinstri: Guðrún Ámundadóttir, Sigrún Ámundadóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Bára Hálfdánardóttir, Kristín Reynisdóttir, Unnut T. Jónsdóttir, Sara Pálmadóttir. Neðri röð frá vinstri: Svanhvít S. Skjaldardóttir, Ifeoma Okonkwo, Pálína Guðlaugsdóttir, Ragna Brynjarsdóttir og Helena Sverrisdóttir. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Íslendingarnir þrír í Gummersbach-liðinu, sem landsliðsþjálfarinn Alfreð Gíslason stýrir, voru mjög atkvæðamiklir. Guðjón Valur Sig- urðsson var markahæstur með 7 mörk og Ró- bert Gunnarsson og Frakkinn Daniel Narc- isse komu næstir með 6 mörk. Sverre Jakobsson stóð vaktina afar vel í vörninni sem og Róbert og þá átti markvörðurinn Gor- an Stojanovic ekki síst stóran þátt í sigri Gummersbach en hann varði mark liðsins af mikilli snilld. ,,Með þessum sigri erum við svo sannarlega með í baráttunni um titilinn og það stefnir í rosalega baráttu. Satt best að segja bjóst ég ekki við svona öruggum sigri. Við byrjuðum frekar illa og það fór svolítið um mann en sem betur fer náðum við að rífa okkur upp og taka leikinn algjörlega í okkar hendur,“ sagði Ró- bert Gunnarsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Flensburg byrjaði betur og komst í 8:4 en þá sögðu lærisveinar Alfreðs hingað og ekki lengra. Þeir skoruðu sex mörk í röð, breyttu stöðunni úr 8:4 í 10:8 og höfðu eftir það und- irtökin í leiknum en staðan í leikhléi var 17:14. ,,Vörnin hjá okkur hefur ekki verið nógu góð í síðustu leikjum en Alfreð lagði ríka áherslu á að hún yrði halda og það gerði hún svo sannarlega, auk þess sem markvörðurinn okkar hitti á algjöran toppleik. Við reiknuðum með að leikurinn hjá Flensburg við Barcelona sæti í leikmönnum og það kom í ljós þegar við keyrðum upp hraðann,“ sagði Róbert. Flensburg er í efsta sæti deildarinnar með 35 stig en þar á eftir koma Kiel, Hamburg og Gummersbach öll með 34 en meistarar Kiel eiga leik til góða. Gott veganesti í leikinn við Valladolid Gummersbach tekur á móti spænska liðinu Valladolid í síðari viðureign liðanna í 8-liða úr- slitum Meistaradeildarinnar í Köln Arena höllinni á sunnudaginn en liðin skildu jöfn í fyrri leiknum á Spáni, 36:36. ,,Við förum með gott veganesti í leikinn við Valladolid og vonandi verð ég jafn kátur eftir þann leik og eftir þennan leik. Það hafa þegar selst 16.000 miðar á leikinn svo við fáum mik- inn stuðning sem vonandi fleytir okkur áfram í keppninni,“ sagði Róbert. ,,Bjóst ekki við svona öruggum sigri“ ÍSLENDINGALIÐIÐ Gummersbach galopn- aði toppbaráttuna í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í gær þegar liðið vann öruggan sig- ur á toppliði Flensburg, 33:26, í Köln Arena höllinni að viðstöddum 15.000 áhorfendum. Ný þurrkublöð á framrúðuna! 02|03|07 Fjalar Sigurðarson Gunnar Már Sigurfinnsson Jan Godsk Kristján Már Hauksson Niku Banaie Svafa Grönfeldt ÍMARK Y f i r l i t                                  ! " # $ %           &         '() * +,,,                          Í dag Sigmund 8 Umræðan 28/29 Staksteinar 8 Bréf 29 Veður 8 Minningar 30/37 Úr verinu 14 Menning 41/44 Erlent 15/16 Leikhús 43 Menning 17 Myndasögur 44 Höfuðborgin 18 Dægradvöl 45 Akureyri 18 StaðurStund 46/47 Suðurnes 19 Dagbók 48/49 Landið 29 Víkverji 48 Daglegt líf 20/25 Velvakandi 48 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Virðisaukaskattur á matvælum lækkar í dag niður í 7%. Með lækkun skattsins, breytingum á vörugjöld- um og lækkun tolla á innfluttum kjötvörum vonast stjórnvöld eftir að það takist að ná sama matvælaverði og á hinum Norðurlöndunum. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra seg- ist hafa trú á að aðilar í verslun lækki verð í samræmi við lækkun skattsins. » Forsíða og miðopna  Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur kært Kópavogsbæ vegna rasks sem varð í Heiðmörk þegar verktaki hóf að leggja vatnsleiðslu í gegnum skógarlund. Félagið krefst 38 milljóna í skaðabætur. Það telur að um þúsund tré hafi skemmst. » Baksíða  Starfsmenn Íslensku friðargæsl- unnar í Líbanon björguðu líbönskum hermanni sem sat fastur í logandi bíl sl. þriðjudag. Bílinn hafði oltið út af veginum og farið margar veltur. » 2  Hlutabréf í Kauphöll Íslands lækkuðu í gær um 1,47%. Þetta er annar dagurinn í röð sem bréfin lækka. Hlutabréf um allan heim hafa verið að lækka að undanförnu, en ástandið virðist þó vera að róast. Bréf í Kína og Bandaríkjunum hækkuðu í gær. » Viðskipti Erlent  François Bayrou, frambjóðandi Franska lýðræðisbandalagsins og „þriðji maðurinn“ í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi í vor, fagnar nú auknu fylgi. » 16  Condoleezza Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hefur skýrt frá því að Bandaríkjastjórn ætli að taka þátt í ráðstefnu um írösk öryggismál með fulltrúum frá nágrannaríkjum Íraks, þar á meðal Íran og Sýrlandi. » 15 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HEIMSÓKN Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra til Afríkulanda lauk í gær. Ætlunin var að hún héldi af stað í gærkvöldi frá Suður-Afríku til Lond- on og þaðan til Kaupmannahafnar og loks heim í kvöld. Valgerður hitti í fyrradag utanríkisráðherra S-Afríku, Nkosazana Dlamini Zuma. Það kom á óvart að Thabo Mbeki forseti fór fram á að fá að ræða við ráðherrann því slík- ur fundur var ekki á dagskránni. „Það komu boð um það seint í gær- kvöldi [þriðjudag] að hann vildi hitta mig,“ sagði Valgerður. „Við komum því að sjálfsögðu fyrir að það væri rúm fyrir forsetann í dagskránni! Við áttum síðan hálftíma langar viðræður í forsetahöllinni. Þetta var sérstaklega ánægjulegur fundur, þægilegt andrúmsloft. Við fórum yfir nokkur málefni sem voru okkur báðum ofarlega í huga eins og orkumál og almenn samskipti þjóð- anna. Ég þakkaði honum fyrir að styðja ósk okkar um sæti í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna og greindi honum frá því að ég færi hér fyrir við- skiptasendinefnd. Hann sýndi mjög mikinn áhuga á að S-Afríka staðfesti sem fyrst fríverslunarsamkomulag sem nefnt er EFTA-SACU-samning- urinn. Ég hef á tilfinningunni að þess- ir fundir með forsetanum og Zuma hafi liðkað fyrir staðfestingunni. Ég nefndi einnig möguleika á samningum um önnur mál, þ.á m. um tvísköttun og fjárfestingar. Vitað er að jarðvarmi er í landinu og S-Afríku- menn hafa eins og fleiri þjóðir á svæð- inu mikinn hug á að nýta hann. Þeir vilja kanna möguleika á að fá aðgang að þeirri þekkingu sem Íslendingar hafa á þeim málum. Einnig ræddum við um tvíhliða loftferðasamning milli ríkjanna og það gerði ég einnig í samræðum við ráðamenn hér í Höfðaborg. Þeir hafa reyndar sérstakan áhuga á aukinni samvinnu á sviði sjávarútvegs og ferðamála. Mér eru efst í huga núna þær góðu móttökur sem við höfum alls staðar fengið og sá hlýhugur sem okkur mætir,“ sagði Valgerður Sverr- isdóttir utanríkisráðherra. Velkomin! Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, heilsar Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra í gær. Valgerður átti fund með Mbeki Í HNOTSKURN »Utanríkisráðherra hefur íferð sinni rætt við ráða- menn í Úganda og Suður- Afríku en Ísland er nú með sendiráð í síðarnefnda ríkinu og einnig í grannríkinu Mósambík. »Áhugi Afríkuþjóða á sam-starfi við Íslendinga stafar m.a. af því að við höfum sögu- lega séð ekki tekið neinn þátt í að kúga Afríkumenn eins og gömul nýlenduveldi á borð við Bretland og Frakkland. Suður-Afríka styður framboð Íslands til öryggisráðs SÞ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ALMENNT ríkir mikil gleði í Öskjuhlíðar- skóla í Reykjavík en ánægjan var óvenju- mikil í gær, þegar Pétur Gunnarsson afhenti skólanum formlega, fyrir hönd nokkurra fyr- irtækja, 19 tölvur af fullkomnustu gerð og tvo nýja prentara að gjöf. „Þetta er frábært framtak foreldris barns í skólanum og nú brosa allir allan hringinn í Öskjuhlíð- arskóla,“ segir Dagný Annasdóttir skóla- stjóri. Dagný segir að tölvugjöfin hafi komið á óvart. Eftir að hafa verið í foreldraviðtali í janúar hafi Pétur spurt hana um tölvubúnað skólans. „Honum fannst staðan frekar fátæk- leg í stofu dóttur sinnar og spurði hvort skól- inn vildi þiggja nokkrar tölvur að gjöf. Ég sagði svo vera og í kjölfarið settumst við nið- ur með tölvukennaranum. Í ljós kom að Pét- ur var ekki að tala um þrjár til fjórar tölvur heldur tölvu í hverja kennslustofu, líka inn í list- og verkgreinastofurnar.“ Sumar tölvurnar eru með snertiskjám og segir Dagný að það komi sér mjög vel fyrir nemendurna. Sinn prentarinn fyrir hvora, eldri og yngri nemendur skipti líka sköpum fyrir þá. „Þetta er stórkostlegt,“ segir Dagný. „Þetta auðveldar alla vinnu og auð- veldar okkar fólki að verða færara á þessum hraða upplýsingatíma. Það er gífurlega mik- ill fengur fyrir skólann að fá gjöf sem þessa.“ Öskjuhlíðarskóli var stofnaður 1975 og í honum eru 102 nemendur í 1. til 10. bekk. Pétur Gunnarsson á dóttur í 5. bekk og segir að hann hafi viljað endurgjalda skólanum það sem hann hafi gert fyrir dóttur sína. Hann áréttar að hann hafi ekki borgað gjöf- ina heldur aðeins staðið fyrir því að safna fyrir henni. „Ég hringdi í fyrirtæki og fékk þau til að styrkja þetta,“ segir hann. „Þegar ég sá hvað tölvukosturinn var orðinn skelfi- lega gamall og lúinn datt mér þetta í hug.“ Brosa hringinn í skólanum Morgunblaðið/G. Rúnar Tölvugjöf Frá vinstri: Pétur Gunnarsson, Júlíus Pálsson, Ólafur Snævar Aðalsteinsson með blómvönd sem nemendur færðu Pétri, Dagný Annasdóttir skólastjóri og Ásdís Ásgeirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.