Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 4

Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á UPPBOÐI hjá Bruun Rasmussen í Kaup- mannahöfn í fyrradag voru seld alls fimmtán pappírsverk eftir Svavar Guðnason. Er um að ræða ýmist vatnslitamyndir eða myndir unnar með pastellitum. Að sögn Tryggva Friðriks- sonar, annars eiganda Gallerís Foldar, var dýr- asta myndin slegin á 32 þúsund danskar krónur eða sem svarar til um 385 þúsund íslenskar krónur. Segir hann það ansi gott verð fyrir pappírsmynd eftir Svavar. Aðspurður sagðist Tryggvi ekki vita hvort kaupendur hefðu verið íslenskir eða erlendir. Segir hann útlendinga spennta fyrir verkum Svavars sökum þess að hann tilheyrði Cobra-hópnum fræga. Góð olíuverk gætu þrefaldast í verði Í samtali við Svein Þórhallsson, gallerista í Turpentine, eru allar líkur til þess að metverðið sem fékkst fyrir Kjarvalsmyndina á sama upp- boði muni hafa áhrif á verðlagningu á myndum Svavars. Segist hann eiga von á því að góðar ol- íumyndir eftir Svavar muni tvö- eða jafnvel þrefaldast í verði vegna þessa. Bendir hann á að Svavar sé einn af þessum stóru nöfnum og hafi tilheyrt hinum heimsfræga Cobra-hópi. „Svavar er af sama kalíberi og Kjarval og Þor- valdur Skúlason. Þetta eru tímalausar myndir sem eru algjörlega klassískar.“ Þess má að lok- um geta að næsta listmunauppboð Gallerís Foldar verður haldið á Hótel Sögu nk. sunnu- dagskvöld. Að sögn Tryggva er allt útlit fyrir að uppboðið verði „óvenju gott“, en búast megi við nokkrum fjölda eldri verka eftir meistara á borð við Kjarval, Þórarin B. Þorláksson, Jón Stefánsson, Mugg, Ásgrím Jónsson, Kristínu Jónsdóttur, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Schev- ing, Louisu Matthíasdóttur, Nínu Tryggvadótt- ur, Karl Kvaran, Jóhann Briem, Jóhannes Jó- hannesson og Einar Jónsson. Alls verða boðin upp um 130 verk. Uppboðið hefst kl. 19, en verkin verða til sýnis í Galleríi Fold þrjá daga fyrir uppboðið. Búast við hækkandi verði á listaverkum Svavars Nýmæli þegar pappírsverk Svavars Guðnasonar var slegið á 32 þús. danskar kr. SVAVAR Guðnason stundaði listnám í Frakklandi og Dan- mörku þar sem hann bjó 1935– 51. Hann var brautryðjandi í ís- lenskri abstraktlist þegar hann opnaði sína fyrstu sýningu á Ís- landi í Listamannaskálanum í ágúst 1945, nýkominn heim eftir 11 ára fjarvist og þátttöku í framvarðarsveit danskrar myndlistar. Um var að ræða tímamótasýningu í íslensku listalífi. Svavar starfaði náið með danska Haustsýning- arhópnum (Höst) 1944–49 sem síðar gerðist þátt- takandi í Cobra. Svavar er álitinn í fremstu röð íslenskra listamanna og varð einn af brautryðj- endunum í norrænni abstraktlist. Brautryðjandi í abstraktlist Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti í gær einróma að aftur- kalla deiliskipu- lag fyrir 500 metra kafla tengi- brautar á milli Vesturlandsveg- ar og Helgafells- vegar við Álafoss- kvos. Fyrir bæjarstjórnarfundinn höfðu Helga- fellsbyggingar ehf., sem stýra sölu lóða og uppbyggingu Helgafells- hverfis, skilað inn framkvæmdaleyfi fyrir umræddan kafla tengibrautar- innar. „Við erum ekki að hverfa frá neinu, svo það sé alveg ljóst. Og þetta þýðir alls ekki að Mosfellsbær sé að leggja til að tengibrautin verði ekki á þessu svæði,“ segir Ragnheið- ur Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mos- fellsbæjar. Hún segir að afturköll- unina sé að rekja til bráðabirgða- úrskurðar úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála. „Í úr- skurðinum eru settar fram ábend- ingar um ýmsa þætti sem betur mega fara og þar sem við viljum standa eins vel að þessu og hugsast getur drögum við deiliskipulagið sem við staðfestum í bæjarstjórn 13. desember til baka,“ segir hún. Vinna í sátt við hagsmunaaðila Með bráðabirgðaúrskurði nefnd- arinnar er birtur var 15. febrúar voru framkvæmdir við tengibrautina stöðvaðar. Í úrskurðinum kemur fram að taka þurfi til skoðunar hvort deiliskipulagstillagan frá því í des- ember hafi fallið undir lög um um- hverfismat áætlana og þar með hvort vinna hefði þurft umhverfis- skýrslu vegna hennar skv. ákvæðum laganna. Álitamál sé hvort ekki hefði verið þörf á að gera grein fyrir ráð- stöfunum vegna hugsanlegrar mengunar ofanvatns og til verndun- ar vistkerfis Varmár. Ragnheiður segir að næsta skref í málinu sé að senda úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála bréf þess efnis að framkvæmdarleyfinu hafi verið skilað og deiliskipulag fyr- ir umræddan kafla tengibrautarinn- ar hafi verið afturkallað í bili. Að því loknu muni bæjarstjórn leggjast yfir þau gögn og skýrslur sem til eru um málið og athuga vandlega hvað betur megi fara varðandi framkvæmdina í því augnmiði að vinna verkið í sem mestri sátt við hagsmunaaðila. Býst Ragnheiður við því að sú vinna hefj- ist á allra næstu dögum. Deiliskipu- lagið aftur- kallað Ragnheiður Ríkharðsdóttir TEKJUR Actavis Group námu 1.379 milljónum evra á síðasta ári, um 121 milljarði króna, sem er tvö- földun milli ára. Hagnaður sam- stæðunnar nam 103 milljónum evra, eða um níu milljörðum króna. Ef aðeins er tekinn fjórði árs- fjórðungur ársins 2006 jukust tekj- urnar milli ára um 80%, námu 350 milljónum evra eða um 30 milljörð- um króna. Actavis sendi frá sér af- komutilkynningu í gærkvöldi og þar segir að mestur vöxtur hjá fyrirtæk- inu hafi verið í Austur-Evrópu og Bandaríkjunum. Þannig jókst sala á lyfjum á þessum markaðssvæðum Actavis um 12–18% á árinu. Alls voru markaðssett 376 samheitalyf á síðasta ári, þar af 113 á fjórða árs- fjórðungi. Haft er eftir Róbert Wessman, forstjóra Actavis, að ár- angur ársins sé ánægjulegur. Metn- aðarfull rekstrarmarkmið um fram- legð og hagnað hafi náðst. Samkeppnisstaðan hafi að auki styrkst með kaupum á fjórum nýj- um félögum á árinu. Actavis tvöfaldaði tekjurnar Hagnaður síðasta árs nam níu milljörðum MARTIN Ingi Sigurðsson, læknanemi á fjórða ári, hlaut nýsköpunarverðlaun forseta Íslands, sem afhent voru á Bessastöðum í gær.Verkefni Martins ber heitið „Áhrif aldurs á utangenamerki mannsins“ og var það valið úr hópi þeirra fimm verkefna sem tilnefnd voru að þessu sinni. Með rannsóknum sínum sýndi Martin fram á að svokölluð utangenamerki breytast með aldr- inum og sú staðreynd getur útskýrt af hverju tíðni svo margra sjúkdóma breytist með aldrinum. Nýsköpunarverðlaunin eru veitt árlega þeim náms- mönnum er þótt hafa skara fram úr við úrlausn verk- efnis sem styrkt er af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Morgunblaðið/Sverrir Nýsköpun námsmanna verðlaunuð Stríðsárin 1914-1918 voru tími mik- illar grósku og aukinnar róttækni í listalífi Kaupmannahafnar. Danskir listamenn voru upptendraðir af ýms- um framsæknum stefnum samtíma- listarinnar, svo sem kúbisma, ex- pressjónisma og fútúrisma. Kjarval lauk námi við konunglega listaháskólann í desember 1917. Laus úr afturhaldssömum viðjum skólans lét hann hrífast af þeim framsæknu straumum sem léku um danska samtímalist. Verk hans frá þessum tíma bera með sér tilrauna- kennda leit. Hann virðist róa á sömu mið og danski listamaðurinn Jais Nielsen, eins og verkið „Íslenskir listamenn við skilningstréð“ frá 1919 ber með sér og tileinkar sér kúbísk vinnubrögð líkt og dönsku lista- mennirnir Olaf Rude og William Scharff. Úr þessum jarðvegi sprettur verkið „Pinsemorgen“ eða Hvítasunnumorgunn. Kjarval sýndi verkið á fyrstu einkasýningu sinni eftir námslok, en sýningin var opnuð þann 2. janúar 1919 í „Den Frie Ud- stillingsbygning“. Þar sýndi Kjarval alls 121 verk, en Pinsemorgen var nr. 4 í sýningarskránni og jafnframt dýrasta verk sýningarinnar, verð- lagt á kr. 3.000. Nokkur undirbún- ingur virðist hafa legið að baki verk- inu, en varðveittar eru tvær skissur sem eru aðdragandi myndarinnar. Í bréfi til Einars Jónssonar mynd- höggvara árið 1917 getur Kjarval þess að hann hafi málað þrjár myndir með gyllingu og hafi í huga að stækka eina þeirra í yfir einn metra. Síðar sendi hann Einari eina þessara mynda að gjöf. Á þessum árum fékkst Kjarval mikið við að teikna húsa- og götu- myndir frá Kaupmannahöfn, sem og hafnarmyndir, gjarnan með rauð- krít. Út frá forsendum kúbismans einfaldaði hann formgerð þessara verka og umskrifaði yfir í stórbrotið spil forma, flata og lína. Myndefni Hvítasunnumorguns er einnig borg- arlandslag og á vissan hátt skylt þessum húsamyndum. Hér gengur hann enn lengra í kúbískri umskrift formanna sem mynda margbrotna, litskrúðuga heild umlukta gullinni birtu. Hann leikur sér að formum sem ýmist virka í tvívídd eða þrí- vídd, sem flötur eða rými. Þessi leik- ur skapar margræðni og spennu í verkinu. Hringlaga gullið form í miðju verksins sem og sólargeislar í efsta hluta verksins eru berandi þættir í byggingu þess og ljá því upphafinn og hátíðlegan blæ. Þó svo að myndin sýni turni prýdda kirkjubyggingu sem stendur við torg, en að baki hennar breiðir borgin úr sér, vakir engan veginn fyrir Kjarval að gefa raunsanna mynd af borgarlandslagi. Verkið er fyrst og fremst persónuleg tjáning eða endurminning um bjarta og há- tíðlega stemningu að morgni hvíta- sunnu. Nokkrar litlar mannverur sem eru á sveimi í kring um kirkjuna leiða hugann að fjölmörgum álfa- kirkjumyndum Kjarvals og auka enn á margræðni verksins. Endurminning um bjarta og hátíðlega stemningu MYNDLIST Hvítasunnumorgunn (Pinsemorgen), 1917-19. Olíulitur og gullgrunnur á léreft. 100 x 113 cm. Jóhannes S. Kjarval Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.