Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Við verðum aldeilis að standa okkur við heyskapinn ef okkur tekst að gera alla Framtíðarlandshjörðina að jórturdýrum, Solla mín. VEÐUR Utanríkisráðherra Suður-Afríkuskýrði Valgerði Sverrisdóttur, utanríkisráðherra Íslands, frá því í heimsókn Valgerðar til Suður- Afríku, að þjóð hennar styddi ósk Ís- lands um sæti í Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna.     Það eruánægjuleg tíðindi og vonandi gengur það eftir. Enda ekki ástæða til að ætla annað en þessi yfirlýsing um stuðning sé gefin af einlægni.     Hins vegar ernauðsynlegt að við gerum okk- ur ljóst, að samskipti þjóða á al- þjóðavettvangi eru mjög hrár leikur.     Þótt eitt ríki lýsi yfir stuðningi viðannað í dag geta hagsmunir þess sama ríkis breytzt á skömmum tíma og leitt til þess að það breytir um afstöðu, þegar kemur að kosn- ingu.     Þessu höfum við Íslendingar sjálfirkynnzt. Tvisvar sinnum á nokkr- um árum höfum við leitað eftir því að fá fulltrúa okkar kjörna til þess að stjórna alþjóðastofnunum.     Í öðru tilvikinu liggja fyrir upplýs-ingar um að nánast ekkert af þeim loforðum stóðst, sem gefin voru um stuðning.     Hitt tilvikið hefur orðið tilefni tilumræðna innan stjórnkerfisins um það hvað við getum lært af mis- heppnuðum tilraunum til að ná slík- um árangri.     Þótt þar hafi verið um stuðning viðeinstaklinga að ræða en ekki heila þjóð er lexían, sem við höfum lært sú sama: í alþjóðlegum sam- skiptum fara gefin fyrirheit fyrir lít- ið. STAKSTEINAR Valgerður Sverrisdóttir Ísland og Öryggisráðið SIGMUND                   !   "# $! %!!  !  &' ( ) * ! -. -/ -/ -0 -0 1 23 23 . - '4 5 6! )*6! 5 6! 7  7  5 6! 6! )*6! 5 6! 6! 5 6!  )# + !  ,- .  ' / ! ! 0     +-  ! !   8 2' . . -8 -- 1 4 1 ( 2.  !  ! 9 *   6! 6! 6! 6! 9   *   9 *    ! "1 2  !     1  3    2- 2  4! 1! & 5# )67! 8 !!) 23 20 2/ 2/ 2- 2-- 20 2. 0 8 . 5 6!  !  ! 6! 5 6! 6! 6! 6! 6! : 6! 9! : ;                         #   : #  !* )        !  <2   < #  <2   < #  <2   !   ;<             !!  * =:2  !5      9  %    >       2           /    /2-8;= !   :       5     *     <6    (2-3;  !  5%  ) =7 % *    )6  ?: *6  *@    "3(4= =<4>"?@" A./@<4>"?@" ,4B0A*.@" 8/4 3-4 8=/ 8=/ /-0 484 1-1 ''( --34 -304 -//- (0' -431 -103 ''-' -03/ (3. (04 (38 (84 -(0/ -(0/ -('( -(-0 '308 '808 3=. -=1 -=' -=( 8=1 8=0 8=' 8=. 3=3 -=. -=- -=/ 8=4 8=3            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stefán Friðrik Stefánsson | 28. febrúar 2007 Helen Mirren glæsilegust Það er nú enginn vafi að Dame Helen Mirren var glæsilegust allra á Óskarnum aðfaranótt mánudags. Það geisl- aði af henni í kjól sem var eins og sniðinn al- gjörlega fyrir hana er hún tók við Óskarnum fyrir að túlka Elísabetu II Englandsdrottningu í kvikmynd- inni The Queen. Glæsileg sigurstund fyrir hana á löngum ferli. Meira: stebbifr.blog.is Sóley Tómasdóttir | 28. febrúar 2007 Hin bráðheilaga friðhelgi… Já, fussið heldur áfram. Að vanda er gert grín að fem- ínískum áherslum Vinstri grænna, enda bráðfyndið að einhver skuli vilja brjóta upp kynbundið misrétti í samfélaginu. Fyndnasta hugmynd gárunganna virðist vera sú að hafa sérstaka varð- sveit á Keflavíkurflugvelli til að fylgjast með því hvað ferðalangar hafa með sér til landsins. Meira: soley.blog.is Jónína Benediktsdóttir | 28. febrúar 2007 Nýtt matvöru- fyrirtæki? Það er gleðilegt til þess að vita að stjórnvöld ætla að herða eftirlit með matarverði. Það er tímabært og þó fyrr hefði verið. Við neytendur ættum einnig að vera virkari í því að hvetja stjórnvöld til þess að auka samkeppnina á mat- vörumarkaði til þess að hún virki eins og markaðslögmálin gera ráð fyrir. Meira: joninaben.blog.is Jóna Ingibjörg Jónsdóttir | 27. febrúar 2007 Hvers vegna kynfræði? Áhugi á að læra sex- ology hófst formlega þegar ég var við nám í hjúkrunarfræði. Á þeim árum var inni að tala um heildræna hjúkrun (holistic nursing). Ég tók eftir því að kynferðislega hliðin var samt útundan og uppúr því gerði ég, ásamt sjö samnemendum, rann- sókn á þekkingu á kynhegðun og við- horfum til kynlífs meðal hjúkr- unarfræðinema í Háskóla Íslands. Eftir útskrift 1985 fór ég til USA og lauk námi í „sexuality education“ í University of Pennsylvania. Bætti síðar við mig samtalsmeðferð og fór að sinna æ meira klínískum kyn- fræðistörfum. Tel kynfræði vera áhugavert, krefjandi og þarft starf en veit auðvitað að sumir reka upp stór augu. Hef fengið minn skammt af kommentum í gegnum tíðina og því verður ekki neitað að sumir hafa ýmsar ranghugmyndir um hvernig manneskja velur svona starf. Halda t.d. að ég sé kynóð eða eitthvað slíkt eða vilji stöðugt vera að tala um kyn- líf. Ó, nei, er ósköp venjuleg kona en með áhugavert starf. Myndin hér að ofan, tekin á vinnu- fundi árið 2005 í Finnlandi, sýnir for- menn kynfræðifélaga frá Norð- urlöndum og Eistlandi: Frá vinstri: Ashild Skogerbo, Noregi, Jóna Ingi- björg, Íslandi, Axel Brattberg, Sví- þjóð, Osmo Kontula, Finnlandi, Olev Poolamets, Eistlandi, og Inger Bugge, Danmörku. Meira: jonaingibjorg.blog.is BLOG.IS JÓNÍNA Bjartmarz umhverfisráð- herra átti í gær fund með Stavros Dimas, ráðherra umhverfismála í Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins. Á fundinum ræddu ráð- herrarnir um loftslagsbreytingar og þá samninga sem framundan eru milli þjóða heims um aðgerðir gegn losun gróðurhúsalofttegunda eftir 2012, þegar Kyoto-bókunin fellur úr gildi. Umhverfisráðherra kynnti ný- samþykkta stefnumörkun íslensku ríkistjórnarinnar í loftslagsmálum og markmið um 50–70% minnkun nettólosunar gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2050 og jafnframt hvaða leiðir ríkisstjórn Íslands legg- ur áherslu á að farnar verði til að ná þessu markmiði. Í fréttatilkynningu frá umhverfis- ráðuneytinu segir að Stavros Dimas hafi lýst ánægju með nýja stefnu Ís- lands í loftslagsmálum og fram- kvæmd Kyoto-bókunarinnar á Ís- landi, sem hann hafði fregnað að gengi vel. Þá undirstrikaði Dimas mikilvægi þess að tækniþekking Ís- lendinga á nýtingu jarðhita yrði að- gengileg og nýtt sem víðast í heim- inum. Það mundi gagnast vel baráttunni við loftslagsbreytingar. Umhverfisráðherra lagði áherslu á að í samningum um aðgerðir í lofts- lagsmálum eftir 2012 næðist mun víðtækari samstaða ríkja um aðgerð- ir en væri í Kyoto-bókuninni. Til að árangur næðist í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum yrðu öll iðnríki, og a.m.k. stærstu þróunarríkin, að taka á sig skuld- bindingar og takmarkanir á losun á næsta samningstímabili. Ennfremur lagði ráðherra áherslu á að mikil- vægt væri að skoða sérstaklega sam- eiginleg samningsmarkmið og skuld- bindingar fyrir atvinnugreinar óháð ríkjum, til þess að tryggja eftir megni að menn beiti bestu tækni alls staðar. Ræddu saman um loftslagsmál Fundur Jónína Bjartmarz og Stavr- os Dimas hittust í gær í Brussel. Sigmar Guðmundsson | 27. febrúar 2007 Ferðaheimspeki Það leita alltaf á mig heimspekilegar spurn- ingar þegar ég ferðast. Að koma til útlanda ögrar gjarnan þeim hugmyndum sem maður hefur um lífið og tilveruna. Oft uppgötva ég eitthvað nýtt og spennandi. Þá velti ég því gjarnan fyrir mér af hverju við Íslendingar tökum ekki upp sama sið. Svo get- ur þetta líka verið öfugt. Meira: sigmarg.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.