Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 13 FRÉTTIR STÓRI bókamarkaðurinn, hinn ár- legi bókamarkaður Félags ís- lenskra bókaútgefenda, hefst í dag í Perlunni. Aðstandendur mark- aðarins hafa jafnan stært sig af lágu verði en í ár er lækkunin meiri en sem nemur afsláttum út- gefenda því virðisaukaskattur á bækur almennt lækkar úr 14% í 7% í dag. Að sögn Kristjáns B. Jónassonar, formanns Félags íslenskra bókaút- gefenda, er það félaginu mikið gleðiefni að geta boðið upp á gott úrval afsláttarbóka með lækkuðum virðisaukaskatti. Allt frá 1993 hafi lækkun virðisaukaskatts á bókum, a.m.k. til samræmis við nágranna- löndin, verið eitt helsta baráttumál útgefenda. „Þetta eru miklir stabbar,“ full- yrðir Kristján en ríflega 10.000 bókatitlar frá yfir fimmtíu útgef- endum eru í boði á markaðnum sem stendur til sunnudagsins 11. mars nk. „Það er mjög mikil fyr- irferð á barna- og unglingabókum ásamt skáldverkum og fræðibók- um, einnig splunkunýjar bækur, eins og Konungsbók eftir Arnald Indriðason og ævisaga Matthíasar Jochumssonar.“ Hann bætir því við að þar kenni ýmissa og á stundum sjaldgæfra grasa. „Ég hef t.d. verið að rekast á handbækur sem ég hafði ekki hugmynd að væru til,“ segir hann og nefnir kennslubók í táalestri, Tærnar: spegill persónuleikans, sem dæmi. Morgunblaðið/G. Rúnar Bækur Hægt er að gera góð kaup á bókamarkaðnum í Perlunni. Ríflega 10.000 bókatitlar frá yfir fimmtíu útgefendum eru í boði á markaðnum. Fjöldi bóka á góðum kjörum VERÐ á bensíni og dísilolíu hækk- aði um 1,80 til 2,00 krónur á lítrann sl. mánudag. Skeljungur reið á vað- ið og hækkaði verðið um tvær krón- ur, bæði í sjálfsafgreiðslu og með fullri þjónustu. Hin olíufélögin fylgdu í kjölfarið. Bensínlítrinn kostar nú 111 til 113 krónur og dís- illítrinn 112 til 113,7 krónur. Hækkanirnar má rekja til mik- illar eftirspurnar eftir bæði bensíni og dísilolíu á heimsmarkaði sem framboðið virðist ekki ná að seðja. 24. janúar kostaði tonn af bensíni 497 dollara en á þriðjudaginn fór verðið yfir 600 dollara. Svo hátt innkaupsverð hefur ekki sést síðan í fyrrasumar, en þá fór tonnið í um 780 dollara og bensínlítrinn á Ís- landi kostaði 131,20 þegar hann var dýrastur. Bensínverð hefur víða hækkað meira en á Íslandi og til dæmis um það má nefna að bensínlítrinn hjá Q8 í Danmörku kostar nú um það bil 7,80 krónum meira en hann kostaði fyrir rúmum mánuði. Eftirspurn Innkaupsverð á bensíni hefur ekki verið hærra í hálft ár. Bensínverð hækkaði RÁÐSTEFNAN „Fjólublá hreindýr“ verður haldin í Herðubreið á Seyð- isfirði í dag. Ráðstefnuna halda Ferða- málasamtök Austurlands og á henni verður fyrst og fremst fjallað um stöðu og framtíð ferðaþjónustu á Austur- landi. Fyrirlesarar eru m.a. Ársæll Harð- arson, markaðstjóri Ferðamálastofu, Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðingur SAF, og Þorvarður Árnason frá Há- skólasetrinu á Höfn. Á ráðstefnunni mun Rögnvaldur Guðmundsson einnig kynna greinargerð um ferðamenn á Austurlandi og helstu niðurstöður úr ferðamannakönnum sem gerð var þar. Fjólublá hreindýr á Seyðisfirði GRÓSKA er í framkvæmdum í Borgarbyggð. Sem dæmi má nefna að talsvert á 6. tug skipulagsmála er í vinnslu, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Fram- kvæmdasvið Borgarbyggðar setur nú reglubundið yfirlit um stöðu skipulagsmála á heimasíðuna. Mikið framkvæmt GALLERÍ Fold verður með list- munauppboð nk. sunnudag. Þar verða boðin upp um 130 verk af ýmsum toga, m.a. eitt af lyk- ilverkum Þorvaldar Skúlasonar og Þingvallamynd eftir Ásgrím Jóns- son frá 1906. Uppboð hjá Fold NIÐURSTÖÐUR af rannsókn á ol- íusýnum sem tekin voru af þangi úr fjöru og af æðarfugli við strandstað Wilson Muuga benda ekki til neins annars en að olían séu úr strandaða skipinu. Olían úr skipinu Ljóst er að olían kom frá Wilson Muuga. ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta að innheimta aðgangseyri í Nátt- úrugripasafni Íslands. Áður var innheimt 300 kr. gjald af 17 ára og eldri. Nemendur fengu frítt. Safnið er opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30–16. Ókeypis í safnið „ÞETTA heitir ÍNN sem er nú bara af því að það er næst CNN,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, sjón- varpsmaður og einn af eigendum sjónvarpstöðvarinnar Íslands Nýj- asta Nýtt sem hóf útsendingar á þriðjudag. Sjónvarpsstöðin er send út á Netinu, um breiðbands- og ADSL-kerfi Símans og nú standa yfir viðræður við Digital Ísland, að sögn Ingva Hrafns. Aðspurður sagði Ingvi Hrafn að hugmyndin að ÍNN hefði kviknað upp úr því að NFS var lokað í vet- ur. Margir hefðu kvartað yfir því að Hrafnþing, þáttur Ingva Hrafns á stöðinni, væri horfinn af ljósvak- anum og hann hefði því byrjað að skoða hvernig senda mætti Hrafna- þing út á Netinu. Í kjölfarið hefði Mentis, sem væri fyrirtæki í eigu Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna og Glitnis, boðið til samstarfs en Ment- is ynni að því að koma fjármálarás í loftið. Ingvi Hrafn sagði að boðið um samstarf hefði falist í að Mentis myndi sjá um að koma ÍNN á Breiðbandið og ADSL, og þar með til um 40.000 heimila, en í staðinn myndi ÍNN leggja til Hrafnaþing fjórum sinnum í viku. Þar með hefði orðið ljóst að ÍNN yrði meira en einfalt netsjónvarp og því ekki nægjanlegt að notast við vefmyndavélar. Hefðbundin sjón- varpsframleiðsla væri hins vegar gríðardýr og því hefði ÍNN leitað ráða hjá Nýherja sem hefði selt þeim sjálfvirkt upptökukerfi með fjórum myndavélum, svokallað sýndarmyndver frá Sony. Allar vél- arnar væru með sjálfvirkum fókus og það þyrfti bara „einn og hálfan mann“ til að stjórna upptökunum. Því hefði verið hægt að koma upp myndveri fyrir minna en 10 millj- ónir. Leigja út myndverið Ingvi Hrafn sagði að megintekjur stöðvarinnar, a.m.k. fyrst í stað, myndu fást með því að leigja út upptökuverið og útsendingar á stöðinni. Þannig gætu félagasam- tök, stjórnmálaflokkar, fyrirtæki og fleiri einfaldlega komið á stöðina og tekið upp sjónvarpsþátt um sín hugðarefni. Þáttinn væri síðan hægt að gera aðgengilegan á Net- inu. Kostnaðurinn við slíkt yrði um 100.000 krónur. Aðspurður sagði Ingvi Hrafn að það væri biðröð af fólki sem hefði áhuga á að vinna með ÍNN og m.a. hefðu fulltrúar stjórnmálaflokka haft samband og lýst yfir áhuga. Þessi möguleiki hefði m.a. þá kosti að viðkomandi hefði möguleika á að kynna sín mál á eigin forsendum. Í fréttum og viðtalsþáttum væri tím- inn takmarkaður og málin rædd út frá ýmsum hliðum. „Þarna getur þú bara framleitt þína hlið á málinu og kynnt hana,“ sagði hann. Eini dagskrárliður stöðvarinnar, enn sem komið er, er Hrafnaþing sem er á dagskrá þriðjudaga til föstudags. Framkvæmdastjóri stöðvarinnar er Ingvi Örn Ingvason, sonur Ingva Hrafns, en hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Bifröst í vor. Netslóðin er www.inntv.is. Morgunblaðið/Golli Feðgar Ingvi Örn Ingvason, framkvæmdastjóri ÍNN, og Ingvi Hrafn Jónsson í stúdíóinu á Fiskislóð. Að baki þeim er grænt tjald sem mun þó ekki sjást í útsendingu heldur sá bakgrunnur sem þáttastjórnendur kjósa í hvert sinn. Valdi ÍNN af því það stendur næst CNN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.