Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 17
MENNING
BRESKI leik-
arinn Daniel
Radcliffe hlýtur
víðast hvar lofs-
verða dóma fyrir
frammistöðu sína
í verki Peters
Shaffers, Equus,
sem frumsýnt
var í Gielgud-
leikhúsinu á
West End í London síðastliðinn
þriðjudag. Radcliffe, er þekktastur
fyrir hlutverk sitt sem Harry
Potter.
Ef litið er yfir umsagnir breskra
gagnrýnenda um sýninguna má lesa
undrun margra yfir því að Radcliffe
geti yfirhöfuð leikið, og það vel.
„Frammistaða Radcliffe sannar
að hann getur vissulega leikið og
sýnir að frammistaða hans í Harry
Potter-myndunum er ekki komin til
vegna galdra,“ sagði meðal annars í
dómi Michael Billington hjá The
Guardian.
Fjöldi manns klappaði Radcliffe
lof í lófa að sýningu lokinni, meðal
annarra leikarinn Christian Slater.
„Hann var stórfenglegur! Ég
myndi gjarnan vilja vinna með hon-
um í framtíðinni,“ sagði Slater.
Mikið umtal hefur verið um téða
sýningu og þá sérstaklega vegna
þess að Radcliffe kemur þar nakinn
fram. Fjölmargir aðdáendur Harry
Potter lýstu yfir andúð sinni á
þessu uppátæki hans.
Þá sáu aðilar hjá Warner Bros,
dreifingaraðila Harry Potter-
myndanna, sig knúna til að bregð-
ast við gagnrýninni og sendu frá
sér yfirlýsingu þar sem meðal ann-
ars kom fram að þeir væru ekki
mótfallnir umræddum nektarsenum
og að fyrirtækið „styddi heilshugar
allar þær listrænu ákvarðanir sem
Radcliffe tæki á ferlinum“.
Radcliffe
mærður
Getur vissulega
leikið og það vel
Daniel Radcliffe
LAGIÐ „Push
the Button“ hef-
ur verið valið
framlag Ísraela
til Söngvakeppni
evrópskra sjón-
varpsstöðva sem
fer fram í Hels-
inki í maí. Lagið
er pólitískt í
meira lagi og
þrátt fyrir að
engin nöfn séu nefnd í texta þess
leikur enginn vafi á því að það
fjallar um Mahmoud Ahmadinejad,
forseta Írans. Forsetinn hefur með-
al annars vakið mikla athygli í Ísr-
ael fyrir ummæli sín þess efnis að
þurrka ætti Ísrael út af landakort-
inu.
„Brjálaðir leiðtogar fela sig og
reyna að blekkja okkur. Með djöf-
ullegan vilja sinn til að skaða,
munu þeir ýta á takkann“ er meðal
þess sem segir í texta lagsins.
Það er hljómsveitin TeaPacks
sem flytur lagið, en ísraelska þjóð-
in gat valið um eitt af fjórum lög-
um með sveitinni. Lagið, sem er
sungið á ensku, frönsku og hebr-
esku, sigraði með miklum yfirburð-
um í atkvæðagreiðslunni sem fór
fram á þriðjudaginn.
Ísraelar telja að kjarnorku-
áætlun Írana miði að því að búa til
kjarnorkusprengjur, sem þeir telja
að ógni öryggi ríkisins verulega. Ír-
anar hafa aftur á móti alltaf haldið
því fram að áætlun þeirra sé frið-
samleg.
Ísraelsríki er hins vegar talið
eina kjarnorkuríkið í Mið-
Austurlöndum, en stjórnvöld þar í
landi hafa hvorki játað né neitað að
kjarnavopn finnist í landinu.
Pólitík í
Evróvisjón
Mahmoud
Ahmadinejad
ÞRIÐJU tónleikar ársins í há-
degistónleikaröð Hafnar-
borgar hefjast í dag klukkan
12. Að þessu sinni er það Auð-
ur Gunnarsdóttir sópran sem
hefur upp raust sína en henni
til halds og traust er Antónía
Hevesi píanóleikari sem jafn-
framt er listrænn skipuleggj-
andi tónleikaraðarinnar. Eng-
inn aðgangseyrir er að
tónleikunum sem eru öllum
opnir á meðan húsrúm leyfir.
Auður lauk 8. stigi í söng frá Söngskólanum í
Reykjavík vorið 1991 og framhaldsnámi frá tón-
listarháskólanum í Stuttgart 1997.
Hádegistónleikar
Auður Gunnars-
dóttir í Hafnarborg
Auður
Gunnarsdóttir
MAGNÚS Þorkell Bernharðs-
son, lektor í sögu Mið-Austur-
landa við Williams College í
Massachussets í Bandaríkj-
unum, flytur fyrirlesturinn
„Hvað er Írak? Ástandið í Írak
og sagnfræðilegar rannsóknir“
í boði Sagnfræðistofnunar Há-
skóla Íslands og Sagnfræð-
ingafélags Íslands klukkan 20 í
kvöld. Mun Magnús fjalla um
helstu sagnfræðilegu rann-
sóknir um stjórnmál, trúarbrögð, og samfélag
Íraka síðustu 30 árin.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Odda og er
aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Fyrirlestur
Sagnfræði og
ástandið í Írak
Magnús Þorkell
Bernharðsson
Í KVÖLD klukkan 20.30 í
Duushúsum í Reykjanesbæ
flytja Jóhann Smári Sævarsson
óperusöngvari og Kurt
Kopecky, aðalhljómsveitar-
stjóri íslensku óperunnar, Vetr-
arferðina eftir Franz Schubert
við texta Wilhelms Müller.
Lagaflokkurinn samanstendur
af 24 ljóðum sem eru ýmist
minningar frá ljúfu sumri eða
lýsingar á vonleysi vetrarins.
Jóhann hefur á ferli sínum sungið ein 50 óperu-
hlutverk auk fjölda tónleika.
Kurt Kopecky hefur stjórnað fjölda óperuupp-
færslna og komið víða við sem meðleikari á píanó.
Tónleikar
Vetrarferð Schu-
berts í Duushúsum
Kurt
Kopecky
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
„ÉG HEF alltaf kunnað ægilega vel
við mig í Prag. Ég er óneitanlega
svolítið svona Mið-Evrópusnobb,“
segir tónskáldið
Atli Heimir
Sveinsson hlæj-
andi en hann
verður viðstaddur
heimsfrumflutn-
ing Tékknesku
fílharmóníu-
sveitarinnar á
fjórðu sinfóníu
sinni hinn 30.
mars nk. í Prag.
Flutningurinn er hluti af árlegri tón-
listarhátíð sem fram fer dagana 24.
mars til 1. apríl og kennd er við borg-
ina, Prague Premieres. Eins og aðrir
tónlistarviðburðir hátíðarinnar verð-
ur sinfónía Atla Heimis leikin í hinni
glæsilegu tónlistarhöll Rudolfinum.
„Haldið norður“ er yfirskrift há-
tíðarinnar í ár og er sjónum sér-
staklega beint að tónlist af Norð-
urlöndunum. Munu tékkneskir
hljóðfæraleikarar spreyta sig á verk-
um eftir u.þ.b. þrjátíu samtíma-
tónskáld frá Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi, Færeyjum og
Íslandi, auk verka eftir tékknesk
skáld. Öll eiga verkin það sameig-
inlegt að hafa ekki hljómað áður í
Prag og eru færri en fimm ár liðin
frá frumflutningi þeirra allra.
Anna Sigríður Þorvaldsdóttir, Atli
Ingólfsson og Jón Nordal eiga einnig
verk á hátíðinni.
Samdi sinfóníuna í Tékklandi
„Við erum á einhvers konar jafn-
vægisslá milli tveggja heima,
kannski svefns og vöku, kannski
raunveruleika og draums – og stund-
um eru mörkin harla óskýr eins og
allir þekkja,“ segir Atli Heimir þegar
hann er beðinn að lýsa andblæ sin-
fóníunnar sem hann samdi einmitt í
Tékklandi fyrir um ári. Þá dvaldi
hann á Listasetrinu Leifsbúð, sem er
í eigu hjónanna Þóris Gunnarssonar,
aðalræðismanns Íslands í Tékklandi,
og eiginkonu hans Ingibjargar Jó-
hannsdóttur.
Atli Heimir kveður dvöl sína í
Leifsbúð hafa verið ánægjulega en
segir erfitt að fullyrða hvort vera sín
í Tékklandi hafi haft áhrif á loka-
útkomuna.
„Það er ekki gott að segja. Þetta
er eitthvað sem hefur verið í huga
mér um lengri tíma. Svo þegar mað-
ur byrjar renna margir lækir saman
í eina á. Annars er alltaf einhver efn-
isskrá á bak við mínar sinfóníur – en
hún er bara leynileg.“
Svar Atla Heimis er afdráttarlaus-
ara þegar hann er inntur eftir því
hvort hin nýja sinfónía sverji sig í
ætt við hið sígilda form: „Alls ekki,“
segir hann með áherslu. „Ég hef allt-
af reynt að fara ekki alfaraleiðir og
reyni gjarnan að gera eitthvað sem
ekki hefur mikið verið gert áður.“
Fjórða sinfónía Atla Heimis heimsfrumflutt á tónlistarhátíð í Prag í Tékklandi
Á jafnvægisslá milli tveggja heima
Glæsibygging Verk fjögurra Íslendinga verða flutt í tónlistarhúsinu Rudolfinum í Prag undir lok mánaðarins, þar
á meðal ný sinfónía eftir Atla Heimi. Húsið var reist 1876–1884 og m.a. notað sem þinghús á millistríðsárunum.
Atli Heimir
Sveinsson
AÐ SÖGN Þóris Gunnarssonar, að-
alræðismanns Íslands í Tékklandi,
fer vegur Prague Premieres-
tónlistarhátíðarinnar ört vaxandi,
en hún er nú haldin í fjórða skipti.
Hann segir mikinn metnað lagðan í
hátíðina í ár og þá sé sérstök
áhersla á að sem flestum sé gert
kleift að sækja þá viðburði sem í
boði eru.
„Það er í rauninni verið að reyna
að ná til allrar þjóðarinnar. Al-
mennt miðaverð er t.d. þrjú hundr-
uð íslenskar krónur og alveg niður í
fjörutíu krónur fyrir stúdenta. Það
sýnir hvað lögð er mikil áhersla á
að fá nýtt fólk til að koma.“
Vel heppnað grín
Þórir og eiginkona hans, Ingi-
björg Jóhannsdóttir, standa að baki
Listasetrinu Leifsbúð þar sem Atli
Heimir vann fjórðu sinfóníuna sína.
Listasetrið var opnað formlega í
júní 2005 og er ætlað til dvalar fyrir
íslenska listamenn. Er það nefnt
eftir Leifi Breiðfjörð, sem fyrstur
listamanna dvaldi þar. Síðan þá
hafa nokkrir listamenn þekkst boð
um dvöl.
Húsið er á sveitasetri þeirra
hjóna 50 kílómetra suður af Prag.
„Þetta er eldgamalt hús, frá 1620,
sem við breyttum. Nú er þar að-
staða fyrir listamenn. Þetta var nú
upprunalega hálfgert grín sem
heppnaðist bara svona líka vel.“
Miðinn 40 til
300 krónur
♦♦♦
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Bílkranar
Lyftigeta 2,5 - 85 tm
GÁLGI
12° yfirhalli
JIB
20° yfirhalli
3,5 tm. PM 3522 LC
22 tm. PM 22026 SP
Getum afgreitt strax eftirtallda krana: