Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 19
AUSTURLAND
Fljót | Það telst til tíðinda þegar
bændur í snjóþungum sveitum geta
rúllað skráþurran hálm um hávet-
ur. Þannig var þetta þó í Fljótum í
síðustu viku þegar bóndinn í Lang-
húsum hreinsaði hálm sem eftir
varð á kornakrinum í haust.
Einstaklega gott veður hefur
verið nánast allan febrúar og ekki
bærst hár á höfði marga daga sam-
fleytt. Snjólaust er með öllu á lág-
lendi og hefur vélsleðafólk orðið að
fara inn á Lágheiði til að þenja vél-
fáka sína, en þar er líka fjöl-
breytilegt landslag fyrir útivist-
arfólk að njóta.
Í byrjun síðustu viku gerði svo
austan strekking sem hélst í nokkra
sólarhringa samfellt og þá þornaði
hálmurinn eins og best varð á kosið
og landið var svo frosið að þungar
vélar mörkuðu ekki í það.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Vetrarverk Unnið við að rúlla hálmi á Langhúsum í fyrstu viku góu.
Heyskapur á góu
Hvammstangi |
Emil í Kattholti er
kominn á
Hvammstanga
með öllum sínum
skammarstrikum.
Að sjálfsögðu
fylgir öll fjölskyld-
an úr Kattholti
honum og þau taka
líka á móti gestum.
Leikflokkurinn
á Hvammstanga
frumsýnir Emil í
Kattholti næst-
komandi föstudag
kl. 20 í Félags-
heimili Hvamms-
tanga. Leikstjóri
er Ingrid Jóns-
dóttir.
Þessi sýning er lifandi og í henni
er mikið sungið. Það er óhætt að
segja að þetta sé góð skemmtun fyrir
alla fjölskylduna, segir í fréttatil-
kynningu frá leikflokknum. Í sýning-
unni eru þrettán leikarar en að henni
kemur einnig fjöldi fólks sem starfar
bak við tjöldin.
Emil í Kattholti sýnd-
ur á Hvammstanga
Súpuskálin Margt skondið gerist í kringum Emil í
Kattholti í sýningunni á Hvammstanga.
sé gjaldskrá Orkubúsins aðeins um 90% af þeim
tekjum sem Orkustofnun telji nauðsynlegan til að
standa undir rekstri dreifikerfis Orkubúsins. Hann
segir að gjaldskráin hækki ekki frekar í ár en segir
að búast megi við að gjaldskrá vegna raforkudreif-
ingar hækki í áföngum á næstu árum þar til við-
miðun Orkustofnunar verði náð.
Reikningur notanda í dreifbýli sem kaupir orku
hjá OV fyrir 20 þúsund á mánuði hækkar um 1.400
kr.
Þess má geta að Rafmagnsveitur ríkisins hækk-
uðu gjaldskrá sína 1. febrúar sl. Raforkudreifing í
þéttbýli hækkaði um 3% og um 8% í dreifbýli en al-
menn þjónusta um 5,5%, að því er fram kemur á vef
fyrirtækisins.
Vestfirðir | Orkubú Vestfjarða hækkar gjaldskrá
sína í dag, 1. mars. Heitt vatn og raforka hækkar
um 6% en gjaldskrá fyrir dreifingu rafmagns
hækkar meira, eða um 8%.
Kristján Haraldsson orkubússtjóri segir að
hækkunin hafi verið ákveðin til að mæta hækkun-
um sem urðu á síðasta ári. Nefnir hann að vísitala
neysluverðs hafi hækkað um 7%, byggingarvísitala
um 12% og launavísitala um 10%. Hækkanir hafi
orðið hjá birgjum fyrirtækisins, Landsvirkjun og
Landsneti. „Þessar hækkanir koma beint fram í
rekstri okkar og við verðum að hafa tekjur til að
mæta þeim,“ segir Kristján.
Orkuveitan hækkaði síðast gjaldskrá sína í byrj-
un síðasta árs. Það var ákvörðun sem miðaðist við 1.
janúar 2006 en tók þó ekki gildi fyrr en 1. maí það
ár.
90% af tekjuramma
Gjaldskrá fyrir raforkudreifingu hækkaði meira
en orkan, eða um 8%. Kristján segir að raforku-
dreifingin sé háð einkaleyfi og Orkustofnun sem
hefur eftirlit með rekstrinum hafi sett fyrirtækj-
unum ákveðinn tekjuramma sem þau verði að miða
sig við. Tekjur Orkubúsins af raforkudreifingu hafi
verið of lágar, samkvæmt þessum viðmiðum, og
starfsemin verið rekin með tapi á árinu 2005. Hafi
Orkustofnum aðvarað fyrirtækið um að til inngrips
þeirra í gjaldskrársetningu gæti komið.
Tekur Kristján fram að þrátt fyrir hækkunina nú
Hækka til að komast hjá inngripi
Kárahnjúkavirkjun | Ítalska verktakafyrir-
tækið Impregilo er þessa dagana að bæta
við um eitt hundrað starfsmönnum til að
sinna margvíslegum verkum í aðrennslis-
göngunum og tryggja að unnt verði að
standa við þá tímaáætlun að hleypa vatni á
göngin fyrir lok maí.
Alls verða um 650 manns við frágang af
ýmsu tagi í endilöngum göngunum, frá
Hálslóni niður í Fljótsdal. Vinnubúðir við
aðgöng 2 hafa verið stækkaðar og verða
stækkaðar enn frekar til að taka við meiri
mannskap til vors.
Mikil vinna er framundan í aðrennslis-
göngunum, meðal annars við að ljúka þrem-
ur grjótgildrum. Þær eru mikil mannvirki,
hver um sig 100 metrar að lengd og fjórir
metrar að dýpt með þverveggjum. Þá er
unnið við að steypa botn ganganna og
steypufóðra þau á mörgum stöðum.
Í aðrennslisgöngunum er verið að taka í
sundur risaborinn TBM 3 til flutnings af
landi brott. TBM 1 er þegar farinn af svæð-
inu. Hins vegar er unnið að því að setja sam-
an TBM 2 á nýjan leik og gera hann kláran í
að bora í átt til Ufsarlóns. Gert er ráð fyrir
að borinn geti hafið verkið innan skamms.
Vatnsvegur Unnið af kappi í göngum.
Bæta við
mannskap
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Egilsstaðir | Alþjóðlega vik-
mynda- og myndbandsverkahá-
tíðin 700IS Hreindýraland er farin
að vinda allverulega upp á sig frá
fyrra ári. Kristín Scheving, fram-
kvæmdastjóri hennar og frum-
kvöðull, segir yfir 500 verk hafa
borist og mikil vinna fari nú í að
velja úr verkin sem sýna á hátíð-
isdagana, 24. til 31. mars nk. á
Egilsstöðum. Hún segir mikinn
metnað að baki mörgum mynd-
anna og greinilegt sé að þessi
vettvangur laði að sér áræði og
sköpunarkraft.
Opnunin verður líkt og í fyrra
hin glæsilegasta og eftir mörgu að
slægjast. „Á opnuninni verða lista-
menn frá Austurríki, þeir Matth-
ias Fuchs og Werner Möbius
ásamt DJ frá Reykjavík sem heitir
Gísli Galdur“ segir Kristín. „Síðan
verða tveir dagar tileinkaðir heim-
ildarmyndum og á öðrum degi há-
tíðarinnar verður listamannaspjall
á Eiðum með Steinu Vasulka, Rúrí
og Finnboga Péturssyni.“
Heimurinn tekur eftir 700IS
Hún segir hátíðina rekna af
hópnum 700IS í nánu samstarfi
við m.a. Menningarmiðstöð Fljóts-
dalshéraðs og Menningarráð
Austurlands. „Þetta er annað ár
hátíðarinnar og eina hátíðin á
landinu sem einblínir á þessa list-
grein. Fyrsta hátíðin fékk mjög
góðar móttökur og bárust yfir 300
verk frá 34 löndum. Við fengum að
auki mjög jákvæð bréf alls staðar
úr heiminum til að óska okkur vel-
farnaðar. 700IS 2006 var þriggja
daga hátíð á nokkrum stöðum á
Austurlandi en núna stendur hún í
viku. Á síðustu hátíð komu erlend-
ir og innlendir gestir, þannig að
við sjáum þetta líka sem tækifæri
í ferðaþjónustu á dauðum tíma
þannig lagað. Þá voru 50 verk val-
in til sýningar á hátíðinni og að
henni lokinni valin 11 verk sem
sýnd voru í framhaldinu í Reykja-
vík á Sequences-hátíðinni, í
Bandaríkjunum, Noregi, Bret-
landi, Litháen, Spáni og í Kanada.
Þetta er það sem 700IS hópnum
finnst jafnvel meira virði en sýn-
ingin sjálf, þ.e. ferlið sjálft sem er
áhugavert. Það sem gerist fyrir
sýninguna – sýningin sjálf og síð-
an það sem gerist eftir sýninguna“
segir Kristín.
Heimsathygli á 700IS
500 verk bárust á kvikmynda- og myndbandsverkahátíð
Ljósmynd/700IS Hreindýraland
Hátíð Mynd úr verkinu Honey eftir Nynke Deinema, en 500 verk
víða að úr heiminum hafa borist hátíðinni 700IS Hreindýraland.
Í HNOTSKURN
»Kvikmynda- og mynd-bandaverkahátíðin 700IS
Hreindýraland verður haldin
öðru sinni á Egilsstöðum í
lok mánaðarins.
»Fimm hundruð verk hafaborist á hátíðina og velur
dómnefnd þau verk sem sýnd
verða á hátíðinni.
»Peningaverðlaun eru íboði fyrir besta og efni-
legasta verkið og heim-
ildamyndir skipa sérstakan
sess á hátíðinni í ár.
LANDIÐ