Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 20

Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 20
|fimmtudagur|1. 3. 2007| mbl.is daglegtlíf Einni af þotum Icelandair verð- ur breytt í lúxusfarkost. Þriggja vikna hnattferð mun kosta 5 milljónir. » 24 ferðalög Svínakjöt, lambakjöt, folalda- kjöt og nautakjöt er meðal þess sem finna má í tilboðum versl- ana fyrir helgina. » 22 tilboðin Nú stendur yfir kynningarátak um erfðabreyttar lífverur sem vekur athygli á spurningum er varða matvælaöryggi. » 22 neytendur Í Charlottenlund er safn þar sem m.a. er hægt að skoða verk eftir lykilmálara franska impressjónismans. » 25 danmörk Svokallaðar umferðarljósa- merkingar á matvælum eiga upp á pallborðið hjá almenningi í Bretlandi. » 23 verslun ÓB Ráðgjöf ehf. býður skólumupp á verkefni fyrir börn í átt-unda bekk, sem er hugsað semforvörn í tengslum við þung- anir unglingsstúlkna, en helmingi fleiri unglingstúlkur verða þungaðar á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Skólaverk- efnið gengur út á það að börnin fá raun- veruleiknibarn með sér heim yfir helgi og þeim ber að hugsa um barnið og sinna öllum þörfum þess allan sólarhringinn, frá föstudegi til mánudagsmorguns. Fyrst er haldinn fundur með foreldrum barnanna og þau sett inn í málið en einn- ig eru foreldrar fræddir um unglinga- uppeldi. Unglingarnir fá barnið á föstudegi og þeim er kennt á búnaðinn, sem er tölvu- stýrður. Barnið hefur fjórar þarfir, það þarf að fá að drekka úr pela reglulega, fá hreina bleyju reglulega, það þarf að láta það ropa, hugga það og passa höfuðið, rétt eins og á ungbarni sem ekki heldur höfði. Raunveruleiknibörnin eru forrituð eftir fimmtán raunverulegum ein- staklingum. Og það er ekki hægt að svindla, því tölvubúnaðurinn sem er inni í barninu skráir alla meðhöndlun. Ung- lingarnir fá armband sem þau þurfa að láta upp við barnið á innan við tveimur mínútum frá því það fer að gráta, annars skráist að barninu hafi ekki verið sinnt. Ef þau eru góðir foreldrar eiga þau að geta lært að þekkja ólíkan grát barnsins, það grætur ekki eins þegar það er svangt eða þegar vantar stuðning við höfuðið. Krakkarnir í áttunda bekk eru í ferm- ingarfræðslu og þurfa að taka barnið með sér í messur sem þeim ber að mæta í og prestar landsins hafa tekið þessu verkefni mjög vel. Dýr gæslan fyrir barnið Eftir að unglingarnir hafa skilað af sér barninu fá þau fræðslu um hvað það kostar að kaupa bleiur og annað sem börn þurfa og þá verður þeim stundum ekki um sel. Bleiupakki kostar þúsund krónur og dugar í þrjá daga. Þetta er því jafngildi tveggja gsm-símainneigna á þriggja daga fresti. Þeim finnst líka rosa- lega dýrt að gæsla fyrir barnið kosti 20– 30 þúsund krónur á mánuði. Tveimur dögum eftir barnaskil er fræðsla um skaðsemi áfengis og fíkniefna, farið yfir útivistartíma og nauðsyn svefns og nær- ingar. Þau eru líka upplýst um að það kostar 20 milljónir að koma barni til manns á Íslandi, 10 milljónir koma í gegnum skattkerfið en 10 milljónir borga foreldrarnir sjálfir og þar inni í eru ekki einkatímar í píanói eða rándýrar galla- buxur, heldur aðeins lágmarksviðmið. Þau eru líka upplýst um nauðsyn mennt- unar og þá staðreynd að ævitekjur manns með meistarapróf úr háskóla eru um 300 milljónir, en ævitekjur þess ein- staklings sem hættir í skóla eftir tíunda bekk eru aðeins 120 milljónir, en samt er hann tíu árum lengur á vinnumark- aðinum en sá sem hefur menntað sig. Besta kaupið er því í raun á menntunar- árunum. Ég var að brjálast á þessu barni Krakkar í áttunda bekk geta prófað að vera foreldrar ungbarns eina helgi. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í tveimur krökkum úr Rimaskóla sem eru ekki sérlega áfjáð í að verða foreldrar eftir þá reynslu. Þetta gekk ágætlega en var óþægilegt á tímabili og varð tilþess að ég hef lítinn áhuga á því að verða pabbi á næst-unni,“ segir Jóhann. „Mér fannst ferlega óþægilegt hvað barnið grenjaði hátt og mesta vesenið var þegar það var alltaf að vakna upp á nóttunni. Það var svakalega þreytandi. Þessi helgi var frekar erfið og það kom mér á óvart hvað þetta reyndi á. En ég höndlaði þetta alveg ágætlega. Samt er ég ekki viss um að mig langi neitt til að verða pabbi yfirleitt, það er greinilega svakalega mikið mál að eignast barn,“ segir Jóhann Örn Helgason og tekur undir nauðsyn þess að nota smokk þegar kynlíf er annars vegar. Hann segir fræðsluna alla í kringum þetta verkefni hafa skilað sér, nú átti hann sig á ábyrgðinni sem fylgi því að búa til og eignast barn. Hann segir að sér hafi litist ágætlega á verkefnið þegar það stóð til boða. „Þetta var bara mjög góð lífsreynsla og strákarnir í bekknum tóku vel í þetta og þeim gekk alveg ágætlega. Jóhann á tvo litla bræður sem eru fimm ára, þannig að hann hefur áður kynnst ungbörnum en ekki þurft að bera svona mikla ábyrgð á þeim. „Ég var frekar þreyttur eftir þessa barnahelgi og mér fannst þetta mjög bindandi. Maður gat ekkert hlaupið frá barninu og ég þurfti að taka það með mér hvert sem ég fór. Ég fór til dæmis að versla í Bónus með barnið og það grenjaði og grenjaði næstum allan tímann. Fólk glápti á mig en ég sagði því að þetta væri dúkka og ég væri að taka þátt í skólaverkefni,“ seg- ir Jóhann sem skilur eiginlega ekkert í því hvernig foreldrar hans hafi nennt að eiga börn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekki pabbi í bráð Jóhann var ekki veikur fyrir föðurhlutverkinu. Svakalega þreytandi Þetta var ógeðslega erfitt. Ég héltað það væri ekki svona mikiðmál að hugsa um ungbarn. Ég hélt að ungbörn væru miklu rólegri og grenjuðu ekki svona mikið og oft og væru ekki alltaf að vakna á nóttunni,“ segir Dagný Magnúsdóttir sem var mamma lítils raunveruleiknistráks yfir eina helgi. „Ég var rosa spennt í byrjun og gat varla beðið eftir að hann vaknaði og mér var næstum farið að þykja vænt um hann. En svo fór hann að öskra, væla og vakna upp á nóttunni og það fannst mér mjög pirrandi. Ég var alveg að brjálast á þessu og það endaði á því að ég var alveg hætt að hugsa um mig og allur tími og orka fór í að hugsa um barnið. Þetta varð eiginlega algjör mar- tröð. Hann var alltaf að gera í bleyjuna sína og ég þurfti að skipta á honum hvar sem ég var stödd og það var stundum vesen, til dæmis þegar ég fór með hann út. Svo vildi hann líka drekka alveg rosalega oft og hann var hrika- lega lengi að drekka. Mér fannst ógeðs- lega pirrandi að þurfa að halda svona lengi á pelanum fyrir barnið á nóttunni. Svo vildi hann drekka svo fljótt aftur og mér fannst ég ekki fá neina hvíld. Ég var alveg hvít í framan af svefnleysi eft- ir þessa helgi. Mér fannst þetta mjög bindandi. Mér gekk ekki nógu vel að passa upp á höfuðið á honum. Tölvan skráði að ég hefði misst höfuðið á hon- um fjórtán sinnum og ég vissi ekki einu sinni af því, nema af því hann fór að gráta út af því. Ég fór með vinkonu minni í Kringluna sem var líka með svona barn. Það var á síðasta degi út- sölunnar og rosalega margt fólk og börnin okkar grenjuðu mikið. Fólk starði á okkur og hélt að við værum í mömmó. Ein kona hélt að þetta væru alvöru börn og spurði mig hvort ég væri tilbúin til að eiga barn og ég sagði nei.“ Dagný segist hafa verið dauðfegin að losna við barnið úr sinni umsjón og hún hafi svo sannarlega lært af þessu að það borgar sig ekki að flýta sér að eignast barn. „Ég hugsa að ég eignist ekki barn fyrr en ég verð fjörutíu ára.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Bindandi Dagnýju þótti barnið fullkröfuhart á tíma hennar. Fegin að losna við barnið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.