Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 21
Hreiðar Karlsson yrkir vegnaklámþings sem frestað var:
Bændurnir eru með ónot og hrekki
og afleiðing þess er sú,
að klámhundafélagið kemur ekki.
– Hvað gera bændur nú?
Kristján Eiríksson svarar:
Bændur rísa gegn berum gásum,
bændur vísa frá klæmnum lýð
bændur úthýsa bláum rásum,
bændur aflýsa fengitíð.
Sigmundur Benediktsson þakkar
þeim sem skilið á:
Þóttu ragir þingsins menn,
þunnir ráðabjóðar.
Bændur máttu bjarga enn
blessun lands og þjóðar.
Jón Arnljótsson sendir með
bóndakveðju beint úr sveitinni:
Út var rekið limalið,
ljóst og sýnt er þótti,
að þeir eru verri en við.
Var það kannski ótti?
Næst má vondum veðurspám,
frá voru landi bægja.
Bara það að banna klám,
bændum lítt mun nægja.
Vont er nú að veiða hval,
það veröld telur syndir.
Bændur, loðið, banna tal
og blálitaðar myndir.
Sigurður H. Snæbjörnsson yrkir:
Í siðferði er sig og hrun
senn mun harðna glíman.
Forysta bænda bráðum mun,
banna fengitímann.
Atli Harðarson skrifar á
www.atlih.blogg.is:
„Mig dreymdi í nótt að Bjarni
Thorarensen amtmaður og dómari
við landsyfirréttinn birtist mér.
Hann var glaður í bragði og kvað.“
Þótt læpuskaps ódyggðir ætli með flugi
að álpast til landsins ég skaða ei tel
því hótel á Fróni þau hýsa enga dóna
svo hórur og klámstjörnur frjósa í hel.
VÍSNAHORNIÐ
Af bændum
og
klámþingi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 21
Heilsuræktin Átak fær ekki áfeng-
isleyfi. Samfélags- og mannréttinda-
ráð Akureyrar vill ekki veita leyfið
og telur að „starfsemi líkamsrækt-
arstöðvar og áfengisveitingastaðar
fari ekki saman og beinir þeim til-
mælum til Átaks að það falli frá hug-
myndum sínum um áfengisveit-
ingastað“.
Í fundargerð samfélags- og mann-
réttindaráðs segir einnig, vegna um-
sóknar Átaks, en veitingastofa er
einnig rekin í líkamsræktarhúsinu:
„Líkamsræktarstöðvar eiga að vera
ímynd heilsueflingar í víðum skiln-
ingi og leita m.a. markaðar hjá ungu
fólki. Með áfengisveitingastað er
þeirri ímynd raskað og skapað for-
dæmi ekki síst í ljósi þess að ung-
lingar allt niður í 14 ára aldur geta
sótt staðina.“
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra var á meðal gesta á
veitingastaðnum Friðriki V í vikunni
þegar verkefnið Beint frá býli var
kynnt.
Þegar ráðherra og Friðriki V.
Karlssyni veitingamanni var gefinn
að smakka nýr blóðbergsdrykkur úr
Aðaldal kallaði Einar Már Sigurð-
arson, alþingismaður Samfylking-
arinnar: „Hvaða áhrif hefur þetta á
þig, Guðni?“
Ráðherra var fljótur til svars:
„Greindari,“ sagði hann og uppskar
hlátur viðstaddra.
Kristján L. Möller, flokksbróðir
Einars, var ekki síður fljótur að
hugsa en ráðherrann og skaut á
framsóknarmanninn: „Guðni, þarftu
ekki að fá þér meira?“
Dauðasyndin losti verður til umfjöll-
unar í fyrirlestraröð Félags áhuga-
manna um heimspeki á Amts-
bókasafninu í dag. Oddný Eir
Ævarsdóttir er ræðumaður dagsins
og hefur upp raust sína kl. 17.15.
Boðið verður upp á kaffisopa að
vanda, og umræður í lok lesturs.
Morgunblaðið/Skapti
Greindari! Guðni Ágústsson og Friðrik V bragða á Blóðbergsdrykknum
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
VÍÐSJÁ kl. 17.03 virka daga
www.ruv.is
Útvarpið -
eini munaður
íslenskrar
alþýðu