Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 23
Breskur almenningur styður hug-
myndir um meira áberandi merking-
ar, svokallaðar umferðarljósamerk-
ingar, á mat, frekar en venjulegar
merkingar sem notaðar eru í dag og
gefa til kynna næringargildi. Þetta
er niðurstaða rannsóknar sem sagt
er frá á fréttavef BBC.
Vefur sem kenndur er við net-
mæður, lét gera skoðanakönnun
meðal 17.000 foreldra og í ljós kom
að 80% aðspurðra voru hlynnt um-
ferðarljósamerkingum. Þær eru
þannig uppbyggðar að litir gefa til
kynna næringargildi; rauður, gul-
brúnn og grænn.
Margir matvælaframleiðendur
vilja halda fast við hefðbundnar
merkingar, þ.e. að gefa upp pró-
sentutölur um ráðlagðan dag-
skammt, t.d. af kaloríum, sykri og
fitu.
Núverandi merkingar
flóknar og villandi
Breska læknaráðið tilkynnti á
dögunum stuðning við hugmyndir
um nýjar merkingar, á svipuðum
tíma og niðurstöður skoðanakönn-
unar netmæðra fengust. Samtök
hjartasjúklinga segja jafnframt að
núverandi merkingar séu flóknar og
villandi.
Þeir sem styðja þær hins vegar
segja þær gefa fólki nákvæmari inni-
haldslýsingu. Jafnframt halda þeir
því fram að nýju merkingarnar
myndu verða groddalegar og of ein-
faldar. Hvorir tveggja aðilarnir
halda því fram að þeirra merkingar
myndu hvetja til heilbrigðara
neyslumynsturs.
Cathy Court, sem er í forsvari fyr-
ir netmæðurnar, segir að styrkur
umferðarljósamerkinga liggi í ein-
faldleikanum. „Nú um stundir er
mikilvægt að börn skilji hvað hollur
matur er,“ er haft eftir henni. „Fólk
gæti satt að segja notað þessar nýju
merkingar til að kenna börnum sín-
um um hollustu matar og til að finna
út í samvinnu við börnin hver besti
kosturinn er.“
Tveggja barna móðir, Claire Pe-
rera, er sannfærð um að umferð-
arljósamerkingin sé best. „For-
gangsverkefni mitt er ekki að finna
út hvort ég kaupi hollt eða óhollt
morgunkorn. Það er hins vegar að ég
geti verið viss um að týna ekki
barninu. Þess vegna er mikilvægt að
sjá strax á umbúðunum hvort merk-
ingin er græn þannig að ég geti strax
ákveðið hvort ég vilji kaupa fram-
leiðsluna eða ekki. Það er mjög hag-
kvæmt fyrir ungar mæður með börn
sem eru gjörn á að hlaupa í burtu.“
Neytendur munu ekki
óttast rauðu merkingarnar
Dr. Vivienna Nathanson, sérfræð-
ingur í vísindum og siðfræði, hefur
sagt að mikilvægast sé að merkingar
séu einfaldar. „Þannig að fólk þurfi
ekki að setjast niður og lesa á um-
búðirnar til að finna út hvað pró-
sentutölurnar þýða,“ segir hún og
bætir við að jafnvel sé hægt að lesa
úr umferðarljósamerkingunum úr
fjarlægð. „Þannig verður auðveldara
að velja úr matvörur sem eru merkt-
ar á áberandi hátt með grænu eða
rafgulu og skera niður þær matvörur
sem merktar eru með rauðu.“
Bent er á að neytendur muni ekki
óttast rauðu merkingarnar eins og
andstæðingar umferðarljósamerk-
inganna óttast, heldur muni þeir
nota þær til að koma jafnvægi á inn-
kaupin. Rauði liturinn verði ekki
túlkaður sem hvatning til að kaupa
ekki viðkomandi vöru. „Neytendur
sjá skilaboðin: mikil fita, salt eða
sykur og skilja þau þannig að rétt sé
að neyta viðkomandi matvöru í hófi,“
er haft eftir næringarfræðingi.
Tesco-verslunarkeðjan fullyrðir að
menn þar á bæ vilji halda sig við
hefðbundnar merkingar af því að lit-
ið sé svo á að til lengri tíma muni þær
einfalda neytendum að bæta matar-
æðið þó að umferðarljósamerkingar
líti í fyrstu út fyrir að vera einfaldari.
Heilbrigðara
neyslumunstur
með litum
Breskir neytendur eru hlynntir því að matvörur verði
merktar á einfaldari hátt en nú er, þannig að litir gefi
til kynna næringargildi hverrar vöru.
Reuters
Grænt eða rautt Breskir neytendur vilja einfaldari merkingar á neyslu-
vöru svo fljótt verði séð hvað á að fara í innkaupapokann.
Umferðarljós Grænn litur segir til
um að vara þannig merkt sé skyn-
samleg kaup, en sá rauði bendir til
að neyta skuli slíkrar vöru í hófi.
Passat 100% lán
VWPassat 2,0 Trendline
Beinsk. Árg. 04. ek 54.000.
Verð áður 1.550.000 kr. Verð nú 1.320.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 18.546 kr. Í 84 mán.
VW Passat 1,8 Comfortline
Sjálfsk. Árg. 99. ek 133.000.
Verð áður 790.000 kr. Verð nú 690.000 kr.
Afborgun pr. mán. 15.591 kr. Í 48 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Beinsk. Árg. 01. ek 79.000.
Verð áður 1.190.000 kr. Verð nú 1.050.000 kr.
Afborgun pr. mán. 19.870 kr. Í 60 mán.
VW Passat 4x4 2,0 Trendline
Beinsk. Árg. 03. ek 82.000.
Verð áður 1.520.000 kr. Verð nú 1.290.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 20.725 kr. Í 72 mán.
VW Passat 1,6 Basicline
Beinsk. Árg. 01. ek 67.000.
Verð áður 1.000.000 kr. Verð nú 870.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 16.447 kr. Í 60 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. Árg. 04. ek 33.000.
Verð áður 1.990.000 kr. Verð nú 1.750.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 24.568 kr. Í 84 mán.
Klettháls Klettháls Klettháls
Klettháls Klettháls Klettháls
Nokkur dæmi um glæsilega Volkswagen Passat hjá Bílaþingi HEKLU