Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 24
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Ein af Boeing 757-200-þotum Icelandair verð-ur tekin úr hefðbund-inni þjónustu nú um
mánaðamótin og henni breytt í
„lúxusfarkost“ fyrir sterkefnaða
Bandaríkjamenn með tilkomu
samstarfs Loftleiða-Icelandic og
ferðaskrifstofunnar Abercrombie
& Kent. Fyrsta ferðin verður
hnattferð í þrjár vikur, dagana 11.
mars til 2. apríl, og kostar fyrir
manninn um 70 þúsund Banda-
ríkjadali eða tæplega fimm millj-
ónir íslenskra króna.
„Svona ferðlag á sér tveggja ára
undirbúningstíma því allt þarf að
skipuleggja niður í smáatriði því
við erum að fást við mjög kröfu-
harðan kúnnahóp. Þetta er ekki sá
viðskiptamannahópur sem bíður í
biðröðum eftir afgreiðslu,“ segir
Linda Wischmeyer framkvæmda-
stjóri þeirrar deildar innan A&K
sem sér um lúxusferðir „ríka“
fólksins.
Loftleiðir-Icelandic er systur-
fyrirtæki Icelandair og eru bæði
félögin í Icelandair Group. Loft-
leiðir stunda leiguflug fyrir fjöl-
mörg fyrirtæki, flugfélög og ferða-
skifstofur, víða um heim.
Rúmt verður um 50 farþega
Hnattferðin gengur undir heit-
inu „Nine World Wonders“.
Ferðalagið hefst í Miami á Flórída
og síðan verður haldið til Guate-
mala, Páskaeyju, Ástralíu, Kambó-
díu, Myanmar, Indlands, Dubai,
Jórdaníu, Egyptalands og endað í
New York.
Aðeins er gert ráð fyrir fimmtíu
farþegum í vélinni, sem venjulega
tekur 189 til 231 farþega í sæti.
Fyrir löngu er orðið uppselt í
ferðina og er annar eins fjöldi á
biðlista, að sögn Lindu, en fimm
fararstjórar sjá um að gera ferð-
ina að þeirri draumaferð, sem að
er stefnt. Tæknideild Icelandair
sér um að útbúa vélina í þeim
anda, sem til er ætlast. Fimmtíu
farþegasæti, tvö og tvö saman
verða um borð í vélinni með 60
tomma sætabili, sem að öllu jöfnu
er 28–32 tommur í hefðbundnu
farþegarými og 38 tommur á við-
skiptamannafarrými. Í afturhluta
vélarinnar verður svo komið upp
sextán sæta setustofu með borðum
á milli til að skapa bar-stemningu.
Þrettán manna
íslensk áhöfn
Þrettán Íslendingar verða í
áhöfn vélarinnar, þar af einn flug-
stjóri, tveir flugmenn, kokkur,
flugvirki, töskumaður og sjö flug-
freyjur sem eru ívið fleiri en í
venjulegu farþegaflugi þar sem
fimm til sex flugfreyjur sjá venju-
lega um að þjónusta um og yfir
200 farþega. Mikil eftirspurn er
eftir því að komast í áhafnir slíkra
ferða, að sögn Auðar Pálmadóttur
hjá Loftleiðum, en gera má ráð
fyrir því að ný áhöfn verði í hverri
ferð.
Engir vagnar munu sjást um
borð heldur verður allur matur
handborinn í farþegana, líkt og á
veitingastöðum. Ávallt eru máls-
verðir þriggja rétta og stendur val
farþega um þrenns konar matseðil
hverju sinni. Hver farþegi fær
DVD-tæki til eigin afnota ásamt
safni af bókum, bíómyndum og
tónlist. Auk þessa fá gestir að
gæða sér á sérvalda kampavíninu
Laurent-Perrier og gestir fá auk
þess snyrtitösku með La Mer-
snyrtivörum.
Fimm til sex
lúxusferðir á ári
Samstarf Loftleiða og A & K
hófst á síðasta ári þegar farið var
í ferð með áttatíu bandaríska
ferðalanga um Suður-Ameríku í
sérútbúinni Boeing 757-200 vél. Sú
ferð þótti takast mjög vel í alla
staði og því hefur orðið framhald
á samstarfinu, en að jafnaði er
gert ráð fyrir fimm til sex lúx-
usferðum á ári á sérútbúinni vél
Lofteliða fyrir A&K.
Í september er til að mynda
áformuð lúxusferð til Indlands og
ferð til Suður-Ameríku í október.
Á næsta ári hafa verið skipulagðar
átta ferðir, sem að jafnaði standa
yfir í þrjár vikur hver. Uppselt er
nú þegar orðið í hnattferðirnar
tvær, sem eru áformaðar í janúar
og febrúar 2008.
Lúxusferðir með Loftleiðaþotu
á fimm milljónir króna
Þjónustan Mun fleiri verða í þjónustuhlutverkinu en tíðkast í hefðbundnu farþegaflugi. Matur verður þó ekki
fram borinn með hjálp vagna, heldur handborinn í farþegana, líkt og á veitingastöðum.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Skipuleggjendur Lúxusferð á borð við þá, sem hér um ræðir, krefst mikils
undirbúnings því allt þarf að smella hnökralaust saman, að sögn Lindu
Wischmeyer hjá A&K og Auðar Pálmadóttur hjá Loftleiðum.
Í HNOTSKURN
» Abercrombie & Kent varstofnað árið 1962 af Geoff-
rey Kent, núverandi forstjóra,
og foreldrum hans. Í upphafi
var áherslan á safaríferðir, en
nú býður fyrirtækið upp á 350
valmöguleika í ferðum til yfir
eitt hundrað landa.
» A&K sinnir þörfum sterk-efnaðra viðskiptavina, sem
vilja fara í sérsniðnar ferðir,
sem henta þörfum lítilla hópa
og einstaklinga.
» A&K rekur 48 útibú vítt ogbreitt um heiminn þar sem
yfir 1.800 starfsmenn tryggja
gæði þjónustunnar.
» Fyrirtækið leggur áhersluá ábyrgð í rekstri gagnvart
umhverfinu og hafa forsprakk-
arnir stofnað samtökin „Fri-
ends og Conservation“, sem
berjast fyrir verndun og efl-
ingu vistkerfis Masai Mara-
þjóðgarðsins í Kenýa og vernd-
un villtra dýra í Tanzaníu. Tré
er gróðursett fyrir hvern við-
skiptavin, sem ferðast á þess
vegum.
Farkosturinn Flugvélin verður af gerðinni Boeing 757-200 og verður merkt ferðafyrirtækinu Abercrombie & Kent
að utan á hliðum og stéli. Bandarísku ferðalangarnir eru 40-75 ára og liggur meðalaldurinn í kringum fimmtugt.
www.abercrombiekent.com
Flugstjóri í þessari fyrstu
ferð verður Þorsteinn Guð-
mundsson og aðstoðar-
flugmenn verða Gylfi Ívar
Magnússon og Óskar
Tryggvi Svavarsson.
Flugfreyjur verða: Sig-
urlaug Halldórsdóttir,
Steinunn Hjálmstýsdóttir,
Gunnhildur Úlfarsdóttir,
Símon Ormarsson, Unnur
Guðný Gunnarsdóttir,
Oddný Halldórsdóttir og
Kristjana Vigdís Magn-
úsdóttir. Flugvirki verður
Halldór M. Sigurgeirsson.
Kokkur verður Jón Vil-
hjálmsson og töskumaður
verður Loftur Vilhjálmsson.
Íslenska
áhöfnin
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com