Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 25
Í Charlottenlund, rétt við skemmti-
garðinn Dyrehavsbakken utan við
Kaupmannahöfn, leynist listasafn
sem ekki er víst að margir viti um
en er áhugavert fyrir margra hluta
sakir. Uppistaðan í safnkostinum er
einkasafn tryggingasala nokkurs,
Wilhelms Hansens að nafni, sem
hann viðaði að sér í byrjun 20. ald-
ar og setti upp á á heimili sínu
Ordrupgaard. Annars vegar er þar
um að ræða verk eftir lykilmálara
franska impressjónismans, s.s.
Edgar Degas, Camille Pissarro,
Alfred Sisley, Auguste Renoir og
Paul Gauguin. Hins vegar er dönsk
málaralist frá sama tíma í forgrunni
en m.a. er að finna þar verk eftir
menn á borð við Vilhelm Ham-
mershøi, P.C. Skovgaard og Viggo
Johansen.
Húsið byggði Wilhelm ásamt
konu sinni Henny eftir teikningum
Gotfreds Tvedes og átti það upp-
runalega að vera sumarbústaður.
Fljótlega snerist þeim hjónum þó
hugur og báðu arkitektinn að
breyta byggingunni í heilsárshús. Í
húsinu var stórt listagallerí og
haustið 1918 voru bæði íbúðarhúsið
og sýningarsalurinn vígð með pomp
og prakt. Þar er listaverkasafnið
enn til sýnis í því umhverfi sem
Wilhelm bjó því upprunalega.
Safnið er nú í eigu danska rík-
isins því Henny Hansen arfleiddi
það að eignum sínum þegar hún
lést árið 1951. Maður hennar hafði
dáið fyrir aldur fram árið 1936 eftir
bílslys sem hann lenti í. Árið 2003
var safninu lokað tímabundið með-
an unnið var að viðbyggingu við
listasafnið eftir teikningum íraska
arkitektsins Zaha Hadid en hún er
margverðlaunuð fyrir byggingar
sínar. Var það opnað á ný í lok
ágúst 2005 og vekur nýstárleg við-
byggingin jafnan mikla athygli
gesta, sem og safnkosturinn, sem
er talinn meðal þess þýðingarmesta
á Norðurlöndum.
Nýtt Í viðbyggingu eru sýningar á nútímalist sem er skemmtileg andstæða við myndir meistaranna í gamla í húsinu.
Listasafn danska tryggingasalans
www.ordrupgaard.dk
ferðalög
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 25
UNDANFARIN tíu ár hefur Ís-
lands Center í Kaupmannahöfn stað-
ið fyrir þjónustu við íslenska ferða-
menn í Danmörku. Í sumar heldur
Guðlaugur Arason rithöfundur
áfram að bjóða gönguferðir um
Íslendingaslóðir í Kaupmannahöfn.
Í fréttatilkynningu frá Íslands
Center kemur fram að hann ætli að
leiða íslenska ferðamenn um sögu-
slóðir Kaupmannahafnar tvisvar í
viku, sunnudaga og miðvikudaga
klukkan eitt. Gönguferðirnar hefjast
1. apríl og lagt er af stað frá Ráðhús-
tröppunum.
Jónasarferðir til Sorø
Í tæpt ár átti Jónas Hallgrímsson
skáld og náttúrufræðingur heima í
bænum Sorø úti á Mið-Sjálandi.
Í tilefni 200 ára ártíðar Jónasar
hefur Íslands Center ákveðið að
bjóða upp á hópferðir til Sorø þar
sem áhersla verður lögð á þetta
tímabil í ævi Jónasar. Í þá níu mán-
uði sem Jónas var í Sorø orti hann
meðal annars kvæðið Ég bið að
heilsa, sem hefst með þessum orð-
um: Nú andar suðrið sæla vindum
þýðum … Eina skilyrðið fyrir þátt-
töku í Sorøferðunum er að viðkom-
andi geti sungið kvæðið segir í
fréttatilkynningu frá Íslands Cent-
er.
Til Sorø verður ekki farið ákveðna
daga heldur ferðirnar sniðnar eftir
þörfum þeirra hópa sem kjósa að
bregða sér dagpart út í rómaða
sveitanáttúru Sjálands. Leiðsögu-
maður í ferðunum verður Guðlaugur
Arason.
Gengið um
Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kaupmannahöfn Lagt verður af stað í gönguferðirnar frá Ráðhústorginu
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni: www.islands-
center.dk
Möguleikum á ævintýra-
legum stöðum til að heim-
sækja eða dvelja á í sum-
arfríinu fer stöðugt
fjölgandi. Eitt af því allra
nýjasta sem er á döfinni á
lúxussviðinu er hótel sem
verður fljótandi pýramídi.
Frá þessu er sagt á vefmiðli
CNN en það er sænskt fyr-
irtæki, Oceanic-Creation,
sem stendur á bak við hinar
fljótandi byggingar. Ætl-
unin er að reisa fjölmargar
byggingar um víða veröld
sem verða fljótandi, sú fyrsta, Maya Hótelið, verður í Karíbahafinu, suður af
Cancun í Mexíkó. En fljótandi spilavíti, eyjar, stúdentagarðar og þorp eru
líka á listanum hjá þeim. Ástæðan er sú að mjög víða er skortur á bygging-
arlandi og einnig er mikil eftirspurn eftir hugmyndum til að gera vatnasvæði
heillandi. Áhuginn á fljótandi byggingum nær allt frá Kína til Mið-Austur-
landa svo að markaðurinn virðist vera nægur.
Frí á fljótandi pýramída
Fáðu úrslitin
send í símann þinn