Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VERÐLÆKKUN Í dag gengur í gildi verðlækkun ámatvöru og þjónustu í samræmivið ákvarðanir og aðgerðir rík- isstjórnarinnar. Frá og með deginum í dag lækkar virðisaukaskattur á matvöru niður í 7%. Hið sama á við um ýmiss konar þjónustu. Eftir þessari verðlækkun hefur verið beðið lengi. Á undanförnum ár- um hefur skapazt sívaxandi þrýsting- ur á Alþingi og ríkisstjórn að knýja fram lækkun á matvöruverði þannig að verðmunur á milli Íslands og ann- arra landa væri ekki jafn hrikalegur og hann hefur verið. Í raun má segja, að almenningur hafi litið svo á, að þessi verðmunur væri óþolandi. Smásöluverzlanir hafa verið við- kvæmar fyrir ásökunum um, að þær mundu ekki skila lækkun virðisauka- skatts til viðskiptavina sinna að fullu. Þess vegna lögðu þær mikla áherzlu á að kynna verðhækkun frá birgjum fyrir og eftir áramót. Fyrirfram er ekki ástæða til að ætla smásöluverzlunum annað en að þær standi við sitt. Enda kæmi það sér illa fyrir þær, ef þær misstu trún- að viðskiptavina sinna. Til viðbótar er ljóst að bæði ríkisstjórnin og Alþýðu- samband Íslands munu fylgjast ræki- lega með því að lækkun virðisauka- skatts komi að fullu fram í lægra verði. Þess vegna verður að ætla, a.m.k. þangað til annað kemur í ljós, að neytendur muni finna á buddu sinni, að matvælaverð lækki. Á hinn bóginn er ekki ástæða til að líta svo á, að með þeirri lækkun, sem nú kemur til framkvæmda, sé búið að ljúka málinu. Þvert á móti hljóta neytendur að líta svo á, að þetta sé byrjun og að í kjölfar þeirra lækkana, sem koma til framkvæmda í dag, komi aðrar aðgerðir til þess að ná fram enn meiri lækkun matvæla- verðs. Svo að við Íslendingar búum við svipaða stöðu í þessum málum og nágrannaþjóðir okkar. Margt hefur valdið hinu háa mat- arverði hér. Takmörkuð samkeppni kemur þar við sögu. Þó verður því ekki neitað að hörð verðsamkeppni hefur ríkt á allra síðustu árum á milli lágvöruverðsverzlana. Auðvitað kemur flutningskostnað- ur einnig inn í þessa mynd. Það kost- ar að flytja vörur hingað norður í Atlantshaf. Þá er ljóst að sú innflutningsvernd, sem landbúnaðurinn hefur notið, á umtalsverðan þátt í háu matvæla- verði. Svo og sú staðreynd, að lítil sem engin samkeppni hefur verið hér í framleiðslu, dreifingu og sölu á landbúnaðarafurðum. Allt hefur þetta átt þátt í hærra matvælaverði á Íslandi en í nálægum löndum. En þess er að vænta, að þær verð- lækkanir, sem koma til framkvæmda í dag, leiði af sér annað og meira. En kannski er hið mikilvægasta af öllu, að neytendur missi ekki trúnað til þeirra, sem selja þeim matvælin. Og að þeir hinir sömu geri sér grein fyrir mikilvægi þess, að við- skiptavinir þeirra beri til þeirra fullt traust. MÁTTARSTÓLPI Í MENNINGARHÉRAÐI Ákvörðun stjórnar SparisjóðsSvarfdæla í Dalvíkurbyggð um að gefa byggðarlaginu menningarhús að andvirði 200 milljónir króna er stórmerkileg og raunar fordæmis- laus, eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær. Slíka stórgjöf hefur varla nokkurt byggðarlag á Íslandi fengið frá fyrirtæki; það þarf þá a.m.k. að leita langt aftur til þess að finna dæmi um slíkt. Sparisjóðurinn hefur um árabil styrkt menningarlíf og íþróttir í byggðarlaginu með margvíslegum hætti og starfrækt sérstakan menn- ingarsjóð. Víða um land eru spari- sjóðirnir sambærilegir máttarstólpar í litlum samfélögum, þótt enginn hafi sýnt viðlíka stórhug og Sparisjóður Svarfdæla með þessari gjöf. Fyrir fáeinum misserum var gerð atlaga að sparisjóðakerfinu í landinu. Margir töldu þá að það væri úrelt og líklegt að stóru bankarnir myndu skipta sparisjóðunum á milli sín. Það hefur enn ekki gerzt, en ekki er ennþá hægt að útiloka að það gerist. Með fullri virðingu fyrir stóru bönk- unum og merkum stuðningi þeirra við menningu og samfélag má spyrja: Hefðu íbúar Dalvíkurbyggðar fengið menningarhús fyrir 200 milljónir ef Sparisjóðurinn hefði verið runninn saman við einn af stóru bönkunum? Þó er það dálítið skemmtilegt að óbeint er það velgengni stóru bank- anna og fjárfestingarfélaganna, sem gerir Sparisjóði Svarfdæla kleift að gefa þessa höfðinglegu gjöf. Spari- sjóðurinn hefur grætt stórfé á fjár- festingum sínum í Kaupþingi og Ex- ista og skilaði í fyrra 900 milljóna króna hagnaði. En hér er það litla fyrirtækið, sem hefur fjárfest í þeim stóru, ekki öfugt. Sparisjóðirnir eru grasrótarfyrir- tæki og hafa starfað í þágu grasrót- arinnar, hver á sínum stað. Í Morg- unblaðinu í gær segir Friðrik Friðriksson sparisjóðsstjóri á Dal- vík: „Í tillögu stjórnarinnar um bygg- ingu menningarhússins felst sú af- staða hennar að rétt sé að láta það samfélag, sem sparisjóðurinn starfar í, njóta hlutdeildar í góðri afkomu ársins með áþreifanlegum og tákn- rænum hætti. Það er í þeim anda sem sparisjóðurinn hefur starfað um langan tíma og mun vonandi gera um langa framtíð.“ Ákvörðun stjórnar Sparisjóðs Svarfdæla mun eiga sinn þátt í að hrinda þeirri atlögu, sem gerð hefur verið að sparisjóðakerfinu. Og með þessari ákvörðun hefur mikið menn- ingarhérað fengið menningarhús við hæfi. Það er full ástæða til að óska Dalvíkingum, Svarfdælingum og Ár- skógsstrendingum til hamingju með þennan merka viðburð. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ALLT sem þú borðar lækkar í verði.“ Það kann að vera ágætt fyrir neytendur að hafa þetta viðmið í huga þegar þeir fara næst út í matvöru- verslun að viða að sér nauðsynjum fyrir heimilið. Í dag taka gildi breyt- ingar á virðisaukaskatti af matvælum, en skatturinn lækkar ýmist úr 24,5% í 7% eða úr 14% í 7%. Þá verða felld niður vörugjöld af öllum matvörum nema sykri og sælgæti, en hugsan- lega mun það taka einhverja daga eða vikur að skila sér til neytenda, enda kunna birgjar að eiga á lager vörur sem þegar hafa verið greidd vöru- gjöld af. Hefur trú á að verslunin láti lækkanir koma fram „Ég hef trú á því að aðilar í versl- uninni hafi metnað til þess að láta þessar lækkanir koma fram. Ég byggi það á fyrri reynslu. Þegar við höfum gert svona hluti þá hefur það gengið eftir,“ segir Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra um lækkanirnar. Ráð- herra segir að þær séu prófsteinn á samkeppni á matvörumarkaði. „Því hefur verið haldið fram að það sé ekki nægileg samkeppni á matvörumark- aði. Ef þetta nær ekki fram að ganga þá er samkeppnin ekki nægileg. Þá er það auðvitað hlutverk stjórnvalda að gera það sem þau geta gert til þess að auka samkeppnina. En auðvitað eru það bæði kaupendur og seljendur sem eru á þessum markaði,“ segir Árni. Kaupendur þurfi að taka þátt í því að mynda aðhald á markaðnum. Mun taka nokkurn tíma Árni segir að stjórnvöld hafi ekki sett nein ákveðin tímamörk vegna lækkananna. Ljóst sé að það muni taka nokkurn tíma fyrir þær að ganga í gegn. Virðisaukaskattsbreyt- ingin taki gildi strax en niðurfelling vörugjalda skili sér þegar gangi á birgðir sem eru með eldra vörugjaldi. „Svo förum við væntanlega að sjá áhrif af lækkunum tolla á kjöti,“ segir Árni. Frumvarp um lækkun tolla á innfluttum kjötvörum var samþykkt frá Alþingi í gær, en það felur í sér 40% lækkun á þeim. Fjármálaráðherra bendir jafnframt á að lækkun virðisaukaskatts og vöru- gjalda muni skila sér í veitingahúsa- rekstri. Sama meðalverð hér og á hinum Norðurlöndunum Árni kveðst telja að það markmið náist að matvælaverð hér á landi verði sambærilegt við meðalverð mat- væla á hinum Norðurlöndunum. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði þegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru kynntar í haust að þær myndu leiða til þess að matvælaverð lækkaði um 16 af hundraði á þessu ári. Árni segir að stjórnvöld sjái fyrir sér að matvælaverðsvísitalan muni lækka um 14–16%. Þess má geta að Hag- stofa Íslands hefur áætlað að breyt- ingarnar muni skila um 9% verðlækk- un á matvælum. Árni segir að erfitt sé að meta tvo þætti sem tengjast aðgerðunum. „Annars vegar vörugjaldaþáttinn, því að inni í vörugjaldakerfinu voru ákveðnar endurgreiðslur. Það er spurning hvert hagræðið verður af því að þessi endurgreiðsla falli niður,“ segir Árni. Hinn þátturinn sé kjöt- verðið. „Það geta orðið afleidd áhrif af lækkunum á innflutta kjötinu á aðrar kjötvörur sem eru framleiddar í landinu og á aðrar vörur sem eru staðkvæmdar vörur,“ segir Árni. Ver- ið geti að þessar vörur lækki líka. Áhrifin síst verið ofmetin „Síðan var vitnað til þess í skýrslu matvælaverðsnefndar að lægra verð myndi leiða til meiri samkeppni og þar með lægra vöruverðs. Ég held að þegar á heildina er litið séum við síst að ofmeta þessi áhrif,“ segir Árni. Lækkanir fari þó eftir því hvernig kaupendur hagi sér á markaðnum. „Þó að við séum að lækka tolla, vöru- gjöld og virðisaukaskatt á þennan hátt og verið sé að reikna út hvaða áhrif það eigi að hafa á verðið erum við ekki komin með gamaldags verð- lagseftirlit. Það er eftir sem áður frjálst verðlag. Við erum ekki að búa til verðstöðvun með þessu. En við eigum að vera að búa til betra og hagfelldara umhverfi sem ætti að leiða til þess að geta notað það t samkeppni,“ segi Skattur á vöru vörur lækkar ek vörur á borð vi ispappír því væn ódýrari. Spurður hver komið til lækkan vörum segist Ár lista yfir skatt se að lækka. Við má um fjármuni til þ lækkanir. Það er munum á næstu ríkissjóði yfir h verður meiri hag ríkissjóði hefði ég fara í frekari læ ýmsu að velja,“ s Heildsalar taki Niðurfelling vö í dag, líkt og læ skatti. Birgjar með vörur á lag verið greidd vöru það tekið þessa læ að skila sér. Sem má nefna að þau Virðisaukaskattur á matvælum lækkar í 7% í dag og væ Ættum að ná sam verði og hin Nor Lækkun Virðisaukaskattur á matvæli lækkar í 7% í dag en sk Gos, mjólkurvörur og grænmeti eru meðal þess sem lækkar í verði í versl- unum í dag, en þá tekur gildi lækkun á virðisauka- skatti. Vörur á borð við sal- ernispappír og bleyjur lækka ekki.        !             ! "#$% "" & ""' " (   $'%)  *' $ +$'%  ,  -..// "0%"1 !, "1 2%) 3", ///0 4""' 1- %  ") 0 "  " "5% '                   2 '%&$%"% 0#/!%"%%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.