Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 27 neytandinn ætti að til að nýta sér meiri r Árni. um á borð við snyrti- kki í dag og munu ið sápur og salern- ntanlega ekki verða s vegna ekki hafi na á skatti á þessum rni vera með „heilan em ég hefði áhuga á átum það að við hefð- þess að setja í skatta- miðað við það að við árum skila jöfnuði á agsveifluna. Ef það gvöxtur og tekjur hjá g mikinn áhuga á að kkanir. Og þá er úr egir Árni. i á sig kostnað örugjalda tekur gildi ækkun á virðisauka- eru margir hverjir ger sem þegar hafa ugjöld af og því gæti ækkun einhvern tíma m dæmi um vörugjöld eru 35 krónur á kílói af kaffi og te og 8 krónur á lítra af gosi og ávaxtasafa og munar neyt- endur því nokkuð um þau. Sigurður Reynaldsson, innkaupastjóri matvöru hjá Hagkaupum, segir fyrirtækið hafa reynt að þrýsta á heildsala og innflutningsaðila um að taka á sig kostnað með því að fella vörugjöldin niður strax á næstu dögum, þótt þeir hafi þegar greitt þau. „Við höfum ver- ið að reyna að pressa á [þá] að flýta þessu ferli eins og hægt er svo þetta verði ekki of flókið að fá rétt verð inn í kerfin,“ segir hann. Viðbrögðin verið góð „Aðföng sem eru birgðahúsið okkar hafa ákveðið að taka á sig alla lækkun á vörugjöldum strax. Þær vörur sem við flytjum inn sjálfir munu lækka strax á næstu dögum í búðunum okk- ar. Við höfum einnig verið að pressa á okkar stærstu birgja að gera slíkt hið sama,“ segir Sigurður og bætir við að viðbrögð þeirra hafi verið nokkuð góð. „Nú þegar eru aðilar eins og Ís- lensk-Ameríska, Nathan & Olsen og Ölgerðin búnir að samþykkja að gera slíkt hið sama. Við erum svolítið að reyna að ýta á menn að taka á sig þetta tjón. Það er alveg ljóst að inn- flutningsaðilar eru að fara að taka á sig líklegast einhverja tugi milljóna í kostnað til þess að flýta þessu ferli, þannig að það taki ekki sex til átta vikur heldur nær tveimur vikum.“ ænta neytendur þess að það hafi í för með sér kjarabætur ma matar- ðurlöndin Morgunblaðið/Brynjar Gauti kattur á ýmsar aðrar nauðsynjavörur lækkar hins vegar ekki. "#         %"0  $%& '%& '%( $)$ '$" "$' "&" *&+ "') ",+ Í HNOTSKURN »Ríkisstjórnin kynnti í októberí fyrra víðtækar aðgerðir til að lækka verð á matvælum. »Virðisaukaskattur á mat-vælum lækkar ýmist úr 24,5% eða úr 14% í 7%. »Þá verða vörugjöld á matvælifelld niður. »Markmiðið var að mat-vælaverð hér á landi yrði sambærilegt við meðalverð matar á hinum Norðurlöndunum. »Reiknað er með að aðgerð-irnar muni rýra tekjur rík- issjóðs um rúma sjö milljarða króna á ári. „ÉG vona að þetta skili sér,“ sagði Íris Bjarnadóttir, sem stödd var í verslun Krónunnar á Bílds- höfða í gærdag. Hún segist ekki hafa velt því mikið fyrir sér hvaða vörur lækkuðu og hverjar ekki. „Maður kaupir það sem þarf og vonar að það verði ódýrara,“ segir hún. Íris kveðst vænta þess að verðlækkanirnar standi. Verslanir Bónuss og Krónunnar fóru á föstudag í síðustu viku að miða við virðisaukaskatt upp á 7%. „Ég kom hingað á föstudaginn þegar þeir lækk- uðu og ég fann mun. Ég var með svip- að magn af pokum og venjulega en mér fannst þetta vera aðeins ódýrara,“ segir Íris. Vonar að lækk- anirnar skili sér Íris Bjarnadóttir DANIELA Gunn- arsson var stödd í verslun Hagkaupa í Kringlunni í gær. Spurð um verðlækk- anirnar sagði hún að það færi eftir því hvar fólk keypti inn hvort það fyndi fyr- ir þeim. „Í Hag- kaupum skipta 7% ekki máli,“ segir hún. Danielu finnst matarverð á Ís- landi hátt og nefnir fisk sem dæmi. Hann sé ótrúlega dýr. Hún kveðst ekki telja að lækkunin nú verði mikil, enda hafi verð hækkað síðustu mánuði. „Matur hefur hækkað rosalega mikið í verði frá því í desem- ber og þar til núna,“ segir hún. Matur hækkað mikið í verði frá í desember Daniela Gunnarsson GUÐJÓN Smári Valgeirsson var að kaupa í matinn fyr- ir áfangaheimili í verslun Krónunnar í gær. Hann kveðst fylgjast vel með matarverði og hafa kynnt sér hvaða vörur eigi að lækka. Vörur á borð við grænmeti og ávexti hafi lækkað „og það er bara gott mál“, segir hann. Hann er bjart- sýnn á að breytingarnar eigi eftir að skila sér til neytenda, viðbrögð Bón- uss og Krónunnar bendi til þess. „En svo getur maður líka spurt hvar sam- keppnin sé þegar sami aðilinn ræður hæsta og lægsta verðinu,“ segir hann. Ávexti og grænmeti hafa lækkað Guðjón Smári Valgeirsson KRISTÍN Péturs- dóttir var að gera innkaup í Hag- kaupum í gær. Hún kveðst ánægð með lækkun matarverðs og vonast til þess að hún eigi eftir að finna mun. „Maður veit aldrei en maður vonar,“ segir Krist- ín. Hún kveðst ekki hafa haldið að sér höndum síðustu daga þótt lækkanir taki ekki gildi fyrr en í dag. Hún kaupi inn það sem vantar hverju sinni. Kristín segist hafa í hyggju að fylgj- ast með því hvort lækkanirnar á mat- arverðinu verði varanlegar. „Maður veit aldrei en maður vonar“ Kristín Pétursdóttir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is „ÉG ER eins og loftvog á ástandið í þessum mengunarmálum og finn vel þegar svif- ryksmengunin er hvað verst og fer yfir heil- brigðismörk. Það þarf ekkert að mæla það, nóg að senda mig út og sjá hvernig ég bregst við,“ segir Gylfi Baldursson heyrnarfræð- ingur sem lengi hefur lifað við skerta lungna- starfsemi. Hann býr á jarðhæð fjölbýlishúss við Sléttuveg, á horni Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar. Rykið og sótið utan á gluggunum leynir sér ekki og það leitar einn- ig inn og mengar andrúmsloftið. Gylfi þurfti að grípa til sérstakra ráðstafana svo hann gæti sofið við opinn glugga. Honum er nauð- synlegt að geta andað að sér sem ferskustu lofti svo líðanin verði bærilegri. „Ég hef fengið þrif á íbúðinni einu sinni í viku og stúlkurnar sem þrífa höfðu oft bent mér á hvað tuskan varð kolbikasvört eftir að þær struku yfir gluggakistuna í svefn- herberginu. Ég fékk blikksmiðju til að útbúa síu fyrir gluggann. Sían dregur í sig eitthvað af drullunni og filterinn verður skuggalega dökkur á tveimur til þremur vikum. Það er ekki spursmál að sían hefur hjálpað, en það er skítt að geta ekki farið út á svona góðviðr- isdögum þegar veður er fallegt, logn og blíða. Það skiptir miklu að geta farið út þegar vel viðrar, svo að ekki sé minnst á það þegar nýbúið er að rigna, þá fylgir því ákveðin nautn að geta ennþá fundið ánægjuna af því að anda að sér fersku lofti.“ Spurning um lagalegan rétt Gylfi hefur velt því fyrir sér hvort fólk sem býr við stórlega skert lífsgæði vegna svif- ryks, og hann telur skipta hundruðum, eigi einhvern lagalegan rétt á því að eitthvað sé gert í þessum málum. „Mér skilst að það sé eitthvað loðið,“ sagði Gylfi. „Ég held það sé engin forsenda fyrir því að krefjast skaða- bóta, þótt mér finnist að borgaryfirvöld séu með aðhaldi sínu – köllum það nísku – að stytta mér og fjölda annarra aldur. Þegar þetta er svo farið að koma niður á litlum börnum þá er spurning hvort ekki eigi að eyða meiri peningum í fyrirbyggjandi ráð- stafanir gegn svifryksmenguninni.“ Mengunarvarnir skila sér Gylfi segir að vissulega hafi borgin gert ýmislegt, einkum á þessu ári, til að hamla gegn svifrykinu. En það þarf miklu meira til og peningum sem fara í það er vel varið. „Ég tel að allar þær ráðstafanair sem gerð- ar yrðu til að draga úr þessari mengun enn frekar myndu skila sér á öðrum sviðum. Þær myndu fækka innlögnum á spítala, og það kostar drjúgt hvert spítalarúmið, það myndi eins fækka umtalsvert fjarvistum frá vinnu og bæta almenna vellíðan.“ Gylfi segir að sig hafi mikið langað að gera einhvers konar rannsókn til að sýna fram á að ráðstafanir til að draga úr svifryksmengun spari þjóð- félögum peninga. Hann kveðst vera sann- færður um að fjármunir sem settir yrðu í það myndu skila sér með rentu. „Það er kaldhæðnislegt þegar maður hugs- ar ekki allt of mörg ár til baka, að það var tal- ið Reykjavík til tekna hvað hún var hrein og ómenguð. Ég held að það séu mörg ár síðan hún féll úr þeim sessi. Mér skilst að þessi svifryksmengun stafi að allverulegu leyti af því að göturnar eru spændar upp, aðallega með nagladekkjum. Sumir virðast vera hræddir við að innleiða einhvers konar höml- ur á notkun nagladekkja, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegri forræðishyggju- fælni. Finnst það skerðing á sínu persónu- frelsi að mega ekki nota nagladekk. Ég held að það væri leikur einn að takmarka nagla- dekkjanotkun við atvinnubílstjóra og þá sem þurfa að keyra mikið utan höfuðborgarsvæð- isins eða þurfa nauðsynlega heilsu sinnar vegna að geta keyrt bíl allan ársins hring. Ég ímynda mér að það væri hægt að skera þetta niður um tugi prósentna.“ Ráðstafanir sem gripið hefur verið til, eins og að bera ryk- bindiefni á götur og ryksuga þær, hafa verið af hinu góða að mati Gylfa. Hann segir að betur megi ef duga skal. Ryksuga þyrfti göt- urnar enn oftar og meira og eins nota frost- lausa daga til að skola af þeim rykið. „Það er svolítið kaldranalegt að þær ráð- stafanir sem fólk þarf að gera til að fá þetta ekki inn til sín skuli vera í formi þess að loka gluggunum. Við það verður loftið í íbúðunum þyngra og það skapar öndunarerfiðleika fyrir þá sem eru tæpir eins og ég. Ég er búinn að vera tíður gestur á lungnadeildum eins og á Vífilsstöðum, Reykjalundi og Borgarspít- alanum. Allir lungnasjúklingar hafa svipaða sögu að segja um svifryksmengunina,“ sagði Gylfi. „Nú heyrast oftar raddir um að for- eldrar treysti ekki börnum sínum á dagheim- ili eða leikskóla vegna mengunar. Þetta eru þá væntanlega börn með barnaastma sem eru viðkvæmari fyrir menguninni.“ Líkt og slæmir timburmenn Gylfi er ekki frá því að svifrykið hafi aukist á undanförnum árum. „Ég hef verið ræfill í lungunum frá því ég veiktist af lömunarveiki níu ára gamall og er að verða sjötugur. Ég hef versnað með árunum og er því næmari fyrir því hvernig loftið er í kringum mig.“ Gylfi segir að þegar hann er hvað verstur af svifrykseinkennunum verði hann mjög þung- ur í höfðinu, beinlínis með höfuðverk. Stund- um er hann það slæmur að honum finnst hann líkt og vitsmunalega skertur og eiga erfitt með að tjá sig. Honum finnst einna helst hægt að líkja þessu við slæma timb- urmenn. „Ég er svosem löngu farinn að venj- ast þessu, en hver vill börnum okkar og barnabörnum svo illt,“ spyr Gylfi. Morgunblaðið/ÞÖK Varnir Gylfi Baldursson lét útbúa svifrykssíu fyrir svefnherbergisgluggann. Setti svifrykssíu fyrir gluggann Morgunblaðið/ÞÖK Svifryk Sótið og rykið sem sest hafði utan á gluggann hjá Gylfa leyndi sér ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.