Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIKIL umræða hefur verið um umhverfismál að undanförnu og er það vel. Forráðamenn vinstriflokk- anna hafa farið mikinn og talað m.a. um „sov- éska stóriðjustefnu“. Er þá væntalega verið að vísa til þess að op- inber fyrirtæki hafa séð stóriðjufyrirtækjum fyrir orku. Það er at- hyglisvert að for- ystumenn vinstriflokk- anna tali gegn þessu þar sem þeir hafa verið í forystu fyrir því að Orkuveita Reykjavíkur fór að selja orku til stóriðju. Það var í tíð R- listans sem OR gerði sína fyrstu orkusölusamninga við stóriðju, nánar tiltekið við álverið í Hvalfirði. Fulltrúar allra flokka greiddu atkvæði með þessum samn- ingum í stjórn OR og borgarstjórn, þar á meðal borgarfulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar. Á síðasta fundi borgarstjórnar undir forystu R- listans voru orkusölusamningar vegna stækkunar í Straumsvík sam- þykktir. Áður höfðu þeir verið samþykktir í stjórn OR með atkvæð- um Samfylkingar. Þess ber að geta að formaður Samfylkingarinnar var borgarfulltrúi á þessum tíma. Kárahnjúkar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir samþykkti að farið skyldi út í Kárahnjúkavirkjun í borgarstjórn Reykja- víkur er hún gegndi störfum borg- arstjóra. Ef borgarstjórn Reykjavík- ur hefði ekki samþykkt ábyrgðir fyrir virkjunina hefði ekkert orðið af henni. Fagra Ísland? Mikið stefnuplagg var lagt fram af þingflokki Samfylkingarinnar um umhverfismál þar sem var m.a. gert ráð fyrir að friða 6 svæði tafarlaust: Skjálfandafljót Jökulárnar í Skagafirði Torfajökulssvæðið Kerlingarfjöll Brennisteinsfjöll Grændal Samfylkingin og Vinstri grænir höfðu í stjórn OR sótt um rannsókn- arleyfi fyrir 5 af þessum svæðum nokkrum mánuðum áður. Öll nema jökulárnar í Skagafirði. Úlfljótsvatn Undir forystu Samfylkingar og Vinstri grænna var ákveðið að setja 600 sumarbústaði við Úlfljótsvatn sem hefði einfaldlega eyðilagt það svæði eins og við þekkjum það í dag. Sovésk stóriðjustefna vinstriflo Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar um umhverfismál Guðlaugur Þór Þórðarson STEINGRÍMUR J. Sigfússon var spurður að því í Silfri Egils á sunnudag hvort hann teldi ástæðu til þess að grípa til aðgerða á net- inu til þess að sporna við klámi. Svar Steingríms var eftirfarandi: „Já, alveg absolút. Ég vil stofna netlögreglu sem meðal annars hefur það hlutverk og ekki síst að reyna að koma í veg fyrir klámd- reifingu…“ Í bloggfærslu þennan sama dag lýsti ég þeirri skoðun minni að mér þætti þetta óhugguleg hug- mynd. Færslan fékk mikil við- brögð. Nú bregður svo við, að í stað þess að láta nægja að útskýra hugmynd sína betur, sakar Stein- grímur mig um það að snúa út úr orðum sínum. Steingrímur bætir um betur og spyr hvort ég ætli að byggja upp minn „stjórnmálaferil á aðferðum sem þessum og um- gangast stjórnmálamenn og þeirra orð á þennan hátt.“ Ég vil spyrja á móti: Er til of mikils mælst að gerð sé sú krafa til stjórnmálamanna að þeir út- skýri hvað þeir eigi við þegar þeir boða vægast sagt umdeildar hug- myndir eins og netlögreglu? Kem- ur það Steingrími á óvart að til sé fólk eins og ég sem geldur varhug við slíkum hugmyndum? Stein- grímur talar yfirleitt skýrt. „Ab- solút“ sagði hann. Hann vill stofna netlögreglu, sem á – nota bene – „meðal annars“ að sporna við klámdreifingu. Nú verður Steingrímur að átta sig á því að til er fólk sem er alls ekki sammála honum hvað svona hluti varðar og hefur fyrir því vissar vel ígrundaðar ástæður, byggðar á hugsjónum. Núna – eftir á – reynir Steingrímur að snúa þessari umræðu upp í það hvort menn séu með eða á móti hertum aðgerðum gegn barna- klámi. Það er áríðandi að halda því til haga, að Steingrímur minntist ekki einu orði á barna- klám í Silfri Egils. Talandi um útúrsnúninga: Ekki finnst mér það sérstaklega mál- efnalegt af Steingrími, að gefa það í skyn að fólk sem mótmælir netlögreglu – og setur við þá hug- mynd verulega fyrirvara á for- sendum borgaralegra réttinda – sé þar með á einhvern hátt fylgj- andi linkind í baráttunni gegn slíkum viðbjóði sem barnaklám er. Það er snautlegur útúrsnún- ingur, að mínu mati. Svo vil ég benda formanninum á að ég heiti Guðmundur Stein- grímsson en ekki Guðmundur nokkur Steingrímsson. Guðmundur Steingrímsson Um netlögreglu Höfundur skipar 5. sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi. UM LIÐNA helgi fór fram afar kraftmikill fundur samfylking- arkvenna undir yfirskriftinni Konur í baráttuhug. Í kosn- ingunum í vor gefst einstakt sögulegt tæki- færi. Tækifæri sem felst í því að skipta út hinni valdþreyttu rík- isstjórn og lofta út úr stjórnarráðinu. Tæki- færi til að gera fyrstu íslensku konuna að forsætisráðherra. Samfylkingarkonur hafa sýnt það og sann- að að þær láta verkin tala þegar þær komast á valdastóla. Þannig hafði Ingibjörg Sólrún kjarkinn sem þurfti til að setja málefni kvenna á dagskrá í sinni tíð sem borg- arstjóri. Það skiptir nefnilega ekki máli hvað menn segjast ætla að gera heldur hitt, hvað fólk fram- kvæmir, fái það til þess tækifæri. Reykjavík- urborg er lýsandi dæmi um hvað hægt er að gera, sé viljinn fyrir hendi. Það er því miður sorgleg stað- reynd að á aðeins átta mánuðum nýs meirihluta í borginni eru teikn á lofti um mikið bakslag í jafnréttismálum. Kvennahreyfing Samfylkingarinnar stendur einhuga að baki formanni flokksins og mun tryggja það að jafnrétti og feminismi verði rauður þráður í störfum nýrrar rík- isstjórnar. Þannig viljum við fela for- sætisráðuneytinu ábyrgð á jafnrétt- ismálum og tryggja það jafnframt að alltaf sé til fjármagn og fólk í stjórn- kerfinu til að sinna markvissu jafn- réttisstarfi. Að sjálfsögðu verða kon- ur helmingur ráðherra í ríkisstjórn og við ætlum að fjölga konum í hópi forstöðumanna ráðuneyta og rík- isstofnana svo þær verði jafnmargar körlum við lok næsta kjörtímabils. Það hefur verið áberandi í um- ræðu síðustu vikna, þegar fyrirtæki hafa verið að skila ársuppgjörum hve grætilega fáar konur sitja í stjórnum fyrirtækja. Samfylkingin vill koma upp samráðsvettvangi atvinnulífs og stjórn- valda og gefa almenn- ingshlutafélögum og líf- eyrissjóðum frest til sex ára til að koma hlutfalli kvenna upp í 40% í stjórnum sínum. Við munum einnig afnema launaleynd og veita Jafnréttisstofu heim- ildir til að rannsaka og afla gagna sé grunur um að jafnréttislög séu brotin. Hjá Reykjavík- urborg tókst að taka á óútskýrðum launamun með markvissum að- gerðum, við viljum gera slíkt hið sama hjá ríkinu og setjum okkur það markmið að minnka óútskýrðan launamun hjá ríkinu um helming á einu kjörtímabili. Mark- miðið er að sjálfsögðu að útrýma honum að fullu. Það er margt fleira sem bíður nýrrar rík- isstjórnar og snýr að málefnum kvenna. Má þar nefna refsilöggjöfina en hana þarf að end- urskoða í heild sinni. Klámvæðing samfélagsins undanfarin misseri er mikið áhyggjuefni og taka þarf upp refsiramma kynferðisglæpa, fyrn- ingu kynferðislegs ofbeldis gegn börnum o.fl. sem snýr að kynbundnu ofbeldi. Samfylkingarkonur heita því að setja kvenfrelsi og jafnrétti í öndvegi nýrrar ríkisstjórnar. Til þess að svo geti orðið legg ég til að Ingibjörg Sólrún verði gerð að forsætisráð- herra! Konu sem forsætisráðherra Steinunn Valdís Óskarsdóttir fjallar um konur og stjórnmál Steinunn Valdís Óskarsdóttir » Í kosning-unum í vor gefst einstakt sögulegt tæki- færi. Tækifæri til að gera fyrstu íslensku konuna að for- sætisráðherra. Höfundur er formaður kvenna- hreyfingar Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi. ÞEIR sem hafa kynnt sér hug- myndafræðina um sjálfbæra þróun vita að hún byggist á þremur meg- instoðum; efnahagslega þættinum, félagslega þættinum og nátt- úruvernd. Til þess að samfélag teljist sjálfbært þarf að vera jafn- vægi milli þessara þriggja meg- instoða. Mikið hefur verið rætt um þörf- ina fyrir nýtt pólitískt afl í ís- lensku þjóðfélagi nú í aðdraganda alþingiskosninga. Ég er ein þeirra sem telja að það sé tómarúm í ís- lenskri pólitík. Ég hef staðið utan flokka síðan ég sagði mig úr Framsóknarflokknum fyrir fjórum árum vegna stóriðjustefnu flokksins og fráhvarfs hans frá félagslegum gildum. Það sem þó fyllti mælinn var stuðningur flokksins við Íraksstríðið. Ákvörðun varaþing- manns um að ganga úr stjórnmálaflokki er stór ákvörðun sem ekki er tekin án um- hugsunar. Tilboð ann- arra stjórnmálaflokka um að ganga til liðs við þá, bæði fyrir síðustu alþing- iskosningar og nú, hefur knúið mig til að taka rökstuddar ákvarð- anir og hef ég gjarnan svarað því til að ef stjórnmálaflokkur taki hugmyndafræði sjálfbærrar þró- unar og útfæri hana þá sé ég tilbúin til að ganga í stjórn- málaflokk aftur. Framsóknarflokkurinn Í mínum huga kemst Framsókn- arflokkurinn eins og ég kynntist honum á uppvaxtarárum mínum, grænn, frjálslyndur félagshyggju- flokkur, næst hugsuninni um sjálf- bæra þróun. En útfærsla ráða- manna flokksins á síðustu árum hefur fært hann svo langt frá upp- runanum að margir fleiri en ég eiga þar ekki lengur pólitískt at- hvarf og ekkert er að verða eftir af flokknum nema nafnið eitt. Þeir sem áður studdu flokkinn eiga frekar orðið heima í öðrum stjórn- málaflokkum eins og skoðanakann- anir undanfarið hafa margsýnt. Sjálfstæðisflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn (E – Efna- hagslegi þátturinn) hefur alltaf verið trúr sínu og allir vita fyrir hvað hann stendur og það hefur fært honum öruggt fylgi. Hann er efnahagsflokkurinn mikli sem hef- ur tekist að telja stórum hluta þjóðarinnar trú um að veraldleg gæði séu einu almennilegu lífs- gæðin sem öllu skuli fórnað fyrir. (Fram- sóknarflokkurinn er reyndar að láta lífið við að hjálpa honum.) Þjóðin vinnur og kaupir sem aldrei fyrr og flest okkar eru hneppt í fjötra banka- viðskipta með lán á okurvöxtum. Þræla- hald nútímans. Samt hefur þjóðin aldrei fundið meira til í sál- inni og hópur öryrkja, fólks með fíkniefna- vanda og þunglyndi, yfirbugaðra þjóð- félagsþegna, stækkar. Vinstri grænir Stuðningsmönnum Vinstir grænna (N – Náttúruvernd) fjölgar ört. Flokkurinn hefur sett náttúruvernd á oddinn enda full þörf á mótvægi við efna- hagskrabbameinið sem hefur fengið að vaxa óhindrað í tíð núverandi ríkisstjórn- arflokka og er farið gera mikinn skaða í samfélaginu. Nú ríður á að bjarga því sem bjargað verður. Nátt- úra Íslands liggur m.a. á högg- stokki efnahagsstefnu ríkisstjórn- arinnar þar sem aftaka þjóðargersema fer reglulega fram. Fylgi við Vinstri græna í skoð- anakönnunum undanfarið sýnir líka að þjóðin er búin að fá nóg. Samfylkinign Samfylkingin er eins og allir vita samsteypa félagshyggjuflokk- anna (F – Félagslegi þátturinn). En það virðist einhvern veginn vera of langt á milli gömlu alla- ballanna og hægri kratanna. Þann- ig virðist flokkurinn ekki ætla að ná fótfestu og verður einhvern veginn svona hvorki – né og bæði – og flokkur. Í ýmsum málum virðast vera margar stefnur og forystunni gengur illa að móta skýra stefnu sem flokksmenn geta staðið einhuga að baki. Samkvæmt skoðanakönnunum er fylgið líka á hröðu undanhaldi. Frjálslyndi flokkurinn Það er erfitt að setja Frjáls- lynda flokkinn inn í módelið um sjálfbæra þróun. Hann lendir ein- hvern veginn milli skips og bryggju. Flokkurinn er fyrst og fremst stofnaður til að vinna að brýnu hagsmunamáli þjóðarinnar, yfirráðunum yfir auðlindum hafs- ins og fékk verðskuldað fylgi að launum. Síðan þá hefur hann verið að reyna að verða að alvöru flokki og margir hafa mátað sig við hann, en þetta hefur ekki tekist sem skyldi. Áferðin er einsleit og eins og á togara, bara karlmenn í áhöfn. Eina sýnilega konan um borð var hrakin í land nýlega. Flokkur um sjálfbæra þróun Oft er talað um mikilvægi sterkrar stjórnarandstöðu í pólitík. Ef flokkarnir eru skoðaðir í sam- hengi sjálfbærrar þróunar er aug- ljóst að hvaða núverandi flokkur sem er við völd þarf sterkt aðhald frá hinum flokkunum til að reyna að halda jafnvægi í samfélaginu. Þetta kristallast aftur á móti í eyr- um og augum almennings í leið- indaþrasi milli stjórnmálamanna þar sem hver virðist reyna að níða skóinn af öðrum til að styrkja mál- stað sinn. Það er einmitt þetta sem gerir afskipti af stjórnmálum svo fráhrindandi. Flokkur sjálf- bærrar þróunar er í kjarnanum þar sem jafnvægi ríkir milli sjón- armiða um efnahagslegar og fé- lagslegar áherslur og nátt- úruverndar. Þar sem tómarúmið í íslenskum stjórnmálum er núna. Samvinna slíks flokks við aðra stjórnmálaflokka er kærkomin því þeir hafa allir eitthvað fram að færa sem getur nýst inn í kjarn- ann, hver frá sinni hlið. Slíkur flokkur getur tekið fagnandi skyn- samlegum hugmyndum sem koma frá N – Vinstri grænum, E – Sjálf- stæðisflokknum og F – Samfylk- ingunni, því hann hefur pólitískt NEF. Sjálfbær þróun og pólitík Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skrifar hugleiðingar um sjálf- bæra þróun og stjórnmál »Mikið hefur veriðrætt um þörfina fyr- ir nýtt pólitískt afl í ís- lensku þjóðfélagi nú í aðdraganda alþing- iskosninga. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir Höfundur er sjálfstætt starfandi arkitekt með sérstaka áherslu á ráðgjöf í skipulagsmálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.