Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 31 ég fékk að vera hjá ykkur svo vikum skipti hvert sumar. Sjórinn var stór hluti af þínu lífi og fékk ég að vera með þér og deila þeim áhuga í gegn- um þá báta sem þú áttir meðan þið bjugguð á Mýrargötunni. Ég fékk alltaf að vera með, alveg sama hvað þú varst að gera, og taka þátt í því sem þú varst að sýsla með. Hvort sem það var að taka til í bílskúrnum eða hnýta flugur. Ég var alltaf vel- kominn. Þú varst svo yndislegur í alla staði. Brosið þitt, heitu hend- urnar þínar, ylja mér enn. Mér þótti svo vænt um að Alex- andra mín fékk tækifæri til að hitta þig og þú hana. Og þó að þú værir rúmliggjandi og kraftlítill þá tókstu hana inn í hjartað og umvafðir hana þínum kærleika og brosi og lékst við hana í rúminu þínu. Merete mín bið- ur innilega að heilsa þér og ég veit að hún mun sakna þess að geta ekki verið lengur í návist þinni. Þú varst svo yndislegur og hlýr við hana og mat hún það mikils. Ég veit þú ert kominn á góðan stað og að þér líður vel. Það gerir missinn minni, því ég veit að þú ert ávallt hjá mér og fylgist með. Farðu í friði, afi minn. Þinn ávallt elskandi, Ólafur Örn. Elsku besti Móses afi. Þú gerir þér enga grein fyrir því hversu heppinn ég tel mig vera að hafa átt þig sem afa. A síðustu mánuðum ævi þinnar skorti mig orð til þess að lýsa djúpu og einlægu þakklæti sem ég ber til þín, þú gafst svo mikið af þér án þess að vilja fá neitt til baka. I æsku voru það heimsóknirnar á Mýragötuna, þar var útsýni yfir höfnina og þú gast fylgst með skipa- komum í gegnum kíkinn. Þá fékk maður að vita hvenær þetta eða hitt skipið kom í höfn eða að við fórum niðri á höfn í bíltúr að skoða bátana. Þú fræddir okkur barnabörnin um fiskana í sjónum, bátana og skipin og þar kom maður ekki að tómum kofunum, svo var maður oft leystur út með smávasapening og pipar- mintudropum. Sumarbústaðaferð- irnar, þegar ég fékk að gista viku og viku hjá þér og ömmu, eru mjög dýrmætar minningar. Þú kenndir mér vönduð og öguð vinnubrögð með því að leyfa mér að smíða og mála með þér. Þú kenndir mér að veiða og að það skipti ekki alltaf máli hversu mikið maður veiddi að- almálið var að vera úti í náttúrunni. Þú varst bakland mitt í lífinu, afi minn, alltaf gat maður komið og rætt málin við þig og ömmu. Skemmtilegt var þó þegar við vor- um tveir saman nafnarnir, þá varstu í essinu þínu. Ég vonast til þess að geta fetað í fótspor þín þegar ég verð afi því betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Ég er stoltur af því að bera nafn þitt. Guð veri með þér. Móses Helgi Halldórsson. Hann Mói frændi er dáinn, sadd- ur lífdaga. Hugur okkar leitar til baka. Minningarnar hrannast upp og við finnum fyrir ró, friðsemd og þeirri birtu sem alltaf fylgdi Móa. Hann ólst upp í fátækt hjá for- eldrum sínum vestur við Dýrafjörð ásamt pabba okkar og öðrum systk- inum sínum, en alls urðu þau tíu talsins. Þau hjálpuðu eftir mætti að afla til heimilisins strax og þau höfðu getu til. Sjórinn varð fljótlega vettvangur strákanna og seinna ævistarf. Mói var áratugi til sjós og lærði til stýrimanns. Hjá okkur í Melshúsum var hann ávallt aufúsu- gestur. Hann og Jenni, tvíburabróð- ir hans, eru sterkir í minningu hjá okkur systkinunum í bernsku. Þeg- ar faðir okkar fór á sjó frá mömmu og okkur ungum voru Mói og hún Lóa hans, sem þá var komin í spilið, okkur betri en engin. Mói og Lóa sýndu okkur vináttu, hlýju og hjálp- semi sem aldrei gleymist. Mói var ákaflega hæglátur og ljúfur. Við munum ekki eftir að hann hafi skipt skapi. Lagði ávallt gott til málanna og hnjóðaði aldrei nokkurn mann. Hann brosti með öllu andlit- inu og hafði svo fallegt hrokkið hár. Mói og hún Lóa hans voru samhent og við munum ævinlega vera þakk- lát fyrir hvað þau sýndu mömmu mikla ræktarsemi og reyndust henni vel í einu og öllu. Stórfjölskyldu- böndin voru sterk og aldrei bar á þau nokkurn skugga. En nú er hann Mói allur og eftir stendur minning um elskulegan og hjartahreinan frænda. Elsku Lóa, Lilja, Þórdís og fjöl- skyldur, við vottum ykkur einlæga samúð og megi guð styrkja ykkur í sorginni. Systkinin frá Melshúsum. Hörskuld. Seinna meir færir Bryndís þeim svo þrjú afa- og ömmubörn og er alveg óhætt að segja að þau hafi elskað afa sinn því svo var hann stolt- ur af þeim. Eyjólfur var yngstur okkar systk- inanna, hann var fjórtánda barn for- eldra okkar og naut hann þess svo sannarlega. Ég get enn séð í hugan- um mynd af litlum ljóshærðum snáða hlaupandi um gólf vestur á Ísafirði. Eða fundið litla fætur strjúkast við mína fætur þegar við bræðurnir vor- um að fara að sofa, við sváfum í sama rúmi inni hjá mömmu og pabba fyrstu árin. Það er svo óralangt síðan en þó svo stutt og þó að sorgin og söknuðurinn sé mjög erfiður og hreinlega yfirþyrmandi er samt svo yndislegt að hafa mátt eiga þig sem bróður og góðan vin. Kæri bróðir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku Sigga mín, Bryndís, Agnar, Dagbjört, Gunnar, Sóley, Höskuldur og Katrín. Megi Guð styrkja ykkur í þeirri miklu sorg sem á ykkur er lögð. Þess bið ég ykkur til handa, Ykkar vinur Sigmundur. Elsku besti afi minn: Ávallt svo góður og glaður göfuglyndur, okkar maður. Ófá skiptin þú brást á leik og okkar hjörtu gladdir með þínum gamanleik. Baráttuna, langa og stranga, þú háðir. Hvílík harkan sú er í þér bjó að aldrei þú hváðir. Vonina þú aldrei misstir. En að lokum voru þér vængir ljáðir. Man ég að eilífu er þú mig síðast kysstir. Afi minn, ég elska þig. Veit þú munt mér yfir vaka er ég fer um eða frá þessum klaka. Afi minn, þú ert hetjan mín. Dagbjört. Elsku afi. Þér skal ég aldrei gleyma, heldur láta mig í vöku dreyma um hann afa Eyja sveima um Sóleyjarheima. Elska þig. Þín Sóley. Elskulegur bróðir, vinur og mágur er horfinn á braut, alltof ungur, ekki nema 62 ára. Eyjólfur var yngstur fjórtán systkina og skrítið er það að ég sem þessar línur rita skuli vera orðin elst. Við fæddumst 8 stúlkur og 6 drengir, en ein stúlkan dó í bernsku og heiti ég eftir henni. Við sem lifðum vorum því þrettán en erum nú sex eft- ir á lífi, 5 stúlkur og einn bróðir. Ég vil þakka Sigmundi bróður og hans elskulegu konu fyrir alla hjálp- ina. Þau komu frá Ólafsfirði til að létta undir með Sigríði mákonu og voru hjá Eyjólfi til hinstu stundar. Þeir bræðurnir voru mjög nánir eftir að þeir fullorðnuðust. Ég ætla ekki að fara yfir lífshlaup Eyja brósa, en það kallaði ég hann alltaf. Ég vil bara þakka honum allan hans kærleik sem hann sýndi okkur gamla settinu, eins og við grínuðumst oft með, og allar hringingarnar bæði hérlendis og erlendis. Alltaf þegar við vorum í Keflavík þá hringdi hann og sagði: Hvernig er heilsan og hvernig er veðrið hjá ykk- ur í dag? Það er sól og blíða í firð- inum, drífið ykkur í heimsókn. Og alltaf þegar að við komum í Hafnar- fjörðinn urðum við að þiggja veiting- ar hjá Siggu minni og þá spurði vin- urinn hvort að við ættum að fara í Húsdýragarðinn eða Grasagarðinn, þannig að alltaf varð úr þessu heil- mikil upplyfting . Einu sinni þegar við vorum í kaffi hjá honum og Siggu þá spurði hann hvort að við ættum að kíkja á Agga bróður. Þá var brennt í kirkjugarðinn í Fossvogi og alltaf var leiðið hans jafn fallegt, því Eyji og Sigga hugs- uðu um það. Hann var svo einstak- lega kærleiksríkur. Eyji og Sigga komu í heimsókn til okkar á Spáni. Þau leigðu íbúð rétt hjá okkur og áttum við yndislegar stundir með þeim. Mikið keyrt, mikið skoðað og mikið borðað. Við Garðar fórum líka með þeim í sumarbústað í Meðalandi, það átti að reyna að veiða. Eyji var búinn að fá tvær bleikjur þegar við komum og þær voru borð- aðar, Sigga kryddaði og Eyji grillaði. Okkur er svo mikið í minni allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an og alla þessa vinsemd og vissu að það væri alltaf verið að fylgjast með manni. Eyjólfur var sérstakt snyrti- menni og alltaf svo smekklega klædd- ur. Þeim hjónunum þótti sérlega gaman að dansa og held ég að þau hafi síðast dansað í brúðkaupi sem við vorum í hjá frænku okkar síðastliðið sumar. Elsku besti bróðir minn, nú þjáist þú ekki meira og það hefur verið vel tekið á móti þér. Við biðjum góðan guð að styrkja og vaka yfir Siggu, Bryndísi, Agnari, Dagbjörtu, Gunnari, Sóleyju litlu, Höskuldi og Katrínu. Farðu í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Svava og Garðar Anna Björk Erlingsdóttir ✝ Gylfi Karlssonfæddist í Reykjavík 4. febr- úar 1966. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi hinn 19. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Karl Hólm Helga- son múrari, f. 7. mars 1930, d. 21. nóvember 2001, og Selma Sigurveig Gunnarsdóttir, f. 5. júní 1936, d. 30. nóvember 2006. Systkini Gylfa eru: 1) Guðný Jóhanna, f. 10. júlí 1956, maki Eyjólfur Ólafs- son. 2) Hörður, f. 22. ágúst 1957, d. 12. september sama ár. 3) Pálmi, f. 24. maí 1959, d. 11. október 2002, eftirlifandi maki Helga Jóhanna Hrafn- kelsdóttir. 4) Gígja, f. 21. ágúst 1961, maður hennar Anton Sig- urðsson. 5) Þórey, f. 16. sept- ember 1964, d. 28. apríl 1965. Hálf- systkini Gylfa eru: 6) Rannveig Hrönn Harð- ardóttir, f. 7. jan- úar 1955, maki Sævar Björnsson. 7) Hilmar Þór Karlsson, f. 10. apríl 1951, maki Mem Karlsson. 8) Albert Sölvi Karls- son, f. 28. maí 1953, d. 17. febr- úar 1997. Gylfi lætur eftir sig eina dóttur, Rakel Ósk, framhalds- skólanema, búsetta í Dan- mörku, f. 15. febrúar 1990. Barnsmóðir Gylfa er Berglind Levisdóttir. Gylfi starfaði lengst af sem sendibílstjóri. Útför Gylfa verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku besti pabbi minn. „Ég lifi, og þér munuð lifa,“ stendur skrif- að, og þó að þú sért nú horfinn héðan munt þú áfram lifa. Lifa á nýjum stað með ömmu, afa og Pálma og áfram munt þú lifa í mínu hjarta. Þú munt lifa uns við hittumst á ný. Aðstæðna vegna hittumst við ekki oft, en ég þekkti vel þinn innri mann. Þú varst góður og skemmtilegur og þú vildir allt fyrir mig gera. Og þrátt fyrir veikindi þín og fjarlægðina á milli okkar gerðir þú kröfur tíl mín, að ég ætti að standa mig vel í skólanum og í dansi, já, bara í öllu því sem ég tæki mér fyrir hendur. Og allra mikilvægast var, að ég ætti að forðast vandræði, að lífið væri of dýrmætt til að spilla því. Það er rétt, pabbi, lífið er dýrmætt, og ég mun fara að óskum þínum og aldr- ei spilla því. Seinasta sumar þegar ég var á Íslandi hittumst við og þú sýndir mér stoltur nýja mótorhjólið þitt, sagðir að þú ætlaðir að koma á því til Danmerkur að heimsækja mig og keyra um landið, en áður en að því kom dó amma Selma og það var þér bara of mikið og lífið varð þér erfitt á ný. Elsku pabbi, loks hefur þú feng- ið friðinn og ég kveð þig í bili, því ég veit að við munum hittast á ný, en þangað til: Þú verður þar sem að sólin skín, þar sem sólin sest, þar sem sólin rís. Þú verður þar, þú verður alls staðar. Mín ást til þín er endalaus. Þín einasta. Rakel Ósk. Þá er komið að hinstu kveðju- stund, og þrátt fyrir að ég vissi að það kæmi að þessum degi, þá kom mér þetta á óvart, en nú eftir að hafa skoðað líf þitt seinustu ár, þá skil ég þig svo vel. Þú hefðir viljað gera hlutina öðruvísi en þú gerðir, en það er ekki alltaf auðvelt að rata réttu leiðina. Það sem þú getur verið stoltur af, er dóttir okkar, Rakel Ósk, sem er svo lík þér í lundu. Hún mun halda nafni þínu á lofti og hún mun virða lífið að verðleikum, því það sem að þú kenndir henni er það dýrmætasta sem hún hefur með í sínu farteski í dag – að lífið er dýr- mætt og okkur ber að fara vel með það. Ég veit að nú ert þú í faðmi þeirra persóna sem þú elskaðir mest og nú færð þú þann frið sem þú hefur þráð svo mikið og svo lengi. Elsku Guðný, Hrönn, Gígja og aðrir ástvinir, ykkar missir er mik- ill og ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Berglind Levisdóttir. Elsku Gylfi minn. Litli bróðir, mikið er erfitt að þurfa að kveðja þig svona ungan, rétt orðinn 41 árs. Þú varst hvers manns hugljúfi, brosmildur, skapgóður og með al- veg einstakan húmor, enda afskap- lega vinmargur. Á sífelldu spani á skellinöðrunni, að bera út Morg- unblaðið á hestinum þínum í Blesu- grófinni eða skipuleggja einhver prakkarastrik. Þú varst alveg ótrú- lega mikill fiktari og uppátækja- samur en handlaginn með eindæm- um þó að það gengi nú ekki alltaf upp hjá þér að koma hlutunum saman aftur, sem þú varst búinn að taka í sundur, til að sjá hvernig þetta væri allt saman að innan, hvort sem það voru nýju jólagjaf- irnar okkar systkinanna eða eitt- hvað annað, við lítinn fögnuð okk- ar. Það voru nú nokkuð margar dúkkurnar sem fundust undir rúmi eða inni í skáp, alveg sköllóttar eða með grænt hár, sem þú hafðir ekki hugmynd um af hverju voru svona. Þú hoppaðir um sem lítill pjakkur, með annan fótinn í spelku upp að nára en það aftraði þér ekki frá einu eða neinu, enda þrjóskastur allra. Það voru ófá kvöldin sem þú og Pálmi bróðir eydduð hálfir ofan í húddinu á einhverjum amerískum kagganum. Þið voruð ótrúlega góð- ir saman. Með bíladellu þar sem bílar voru ykkar helsta áhugamál. Ég var nú orðin nokkuð góð í að þekkja bílategundir og vita um vél- arstærðir, þar sem ég hafði oft set- ið í félagsskap ykkar á meðan rætt var um mögulegar og yfirstand- andi viðgerðir eða „tjúningar“. Já, það var mikið glens og gam- an í kringum þig, Gylfi minn. Yngstur okkar systkinanna og augasteinninn hennar mömmu. Þegar þú fórst út sagðir þú oftast: „Mamma, þú verður svo heima þegar ég kem,“ og þótt þú hafir verið frekur á athygli mömmu var engin spurning um ástina sem þú hafðir á henni og hún á þér. Uppeldið á okkur systkinunum í Blesugrófinni var nú oft á tíðum ansi frjálslegt ef svo mætti segja, flestir gerðu nú bara það sem þeir vildu og mamma mátti hafa sig alla við til að hafa einhverja smástjórn á mannskapnum, og oft varst það þú, Gylfi minn, sem gekkst þar fremstur í flokki til að fá þínu framgengt. Ég man þó um árið þegar mamma og pabbi fóru til Danmerkur að ég og Eyjólfur pössuðum þig, Pálma, og Gígju. Þá verð ég að segja að Eyjólfur hafi eftir að hafa séð ykkur í gír, búist við miklu fjöri og jafnvel meira en það. Sú varð þó ekki raunin því eins og hann sagði þá voruð þið eins og hugur manns og ekki síst þú, Gylfi minn. Þú sem varst prúð- mennskan og kurteisin uppmáluð. Svo stilltur og góður. Þetta var vegna þess að þrátt fyrir öll þín uppátæki var ekki til neitt slæmt í þér. Þú reyndist þeim sem á þurftu að halda vel. Varst duglegur til vinnu og ósérhlífinn. Þú hafðir ástríðu fyrir bílum og mótorfákum og keyptir ótal mörg slík farartæki um ævina sem þú að jafnaði áttir eitthvað við, lagaðir og betrum- bættir. Þetta er sá bróðir sem þú varst fyrir mér. Seinni hluta ævinnar gekkst þú í gegnum erfiða tíma og varst ólíkur sjálfum þér. Að lokum náði sjúkdómur þinn yfirhöndinni og líf þitt endaði skyndilega. Þrátt fyrir allt sem á gekk sit ég eftir full þakklætis yfir að hafa kynnst þér og átt þig sem bróður. Þú skil- ur eftir þig fallega stelpu, Rakel Ósk, sem mun halda minningu þinn lifandi. Að endingu, Gylfi minn, vona ég svo sannarlega að pabbi, mamma og Pálmi bróðir taki vel á móti þér og þið bræð- urnir haldið áfram að tala um mót- orhjól og fornbíla. Elsku Rakel Ósk, ég votta þér og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Þín systir Guðný. Gylfi mágur minn er látinn, allt of ungur. Þegar ég kynntist honum var hann 11 ára gutti sem var litli bróðir hans Pálma, glaðlyndur og örlaði oft á prakkarasvip sem sýndi að hann var tilbúinn í ævintýri og hafði þor. Gylfi og fjölskylda bjuggu þá í Blesugróf og fannst mér þetta vera lítil draumasveit inni í miðri Reykjavík. Gylfi undi sér vel þar, aðstæður buðu upp á mikið frjálsræði og gat hann verið að stússast í hinu og þessu og meira að segja var hann farinn að gera upp gamlan bíl þó að hann ætti langt í land með að fá bílpróf. Ófáar voru heimsóknir hans til okkar Pálma og símtölin mörg hjá bræðrunum og voru umræðuefnin mest um hugarefni þeirra beggja, bíla og mótorhjól. Gylfi átti það til að láta ímyndunaraflið fara á flug og urðu sögurnar eða það sem hann ætlaði að taka sér fyrir hend- ur hálfýkt, þá hló minn maður manna mest en stóri bróðir hristi brosandi hausinn því Pálmi var meira á jörðinni eins og sagt er. Ég votta Rakel Ósk, systkinum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði. Þín mágkona, Jóhanna. Gylfi Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.