Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helga Dís Sæ-mundsdóttir fæddist í Hvera- gerði 12. febrúar 1943. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Sæmundur Guð- mundsson, f. 2. maí 1904, d. 25. apríl 1997, og kona hans Guðrún Þorláks- dóttir, f. 9. janúar 1906, d. 30. maí 1989. Systkini hennar eru Aðalsteinn, f. 4. september 1931, d. 31. október 1951, og Guðrún Gerður, f. 16. maí 1950. Helga Dís giftist 31. desem- ber 1967 Páli Ragnari Gunn- arssyni, f. 12. september 1941. Börn þeirra eru: a) Elín, f. 27. júní 1967, sambýlismaður Sam- úel Einarsson, f. 1. ágúst 1969. Dóttir þeirra er Heiða Dís og dóttir Samúels af fyrra hjóna- bandi er Svava Ýr. b) Sæmundur Rún- ar, f. 4. mars 1971, sambýliskona Hanna Þórhildur Bjarnadóttir, f. 10. júlí 1966. Börn hennar af fyrra sambandi eru: Margrét Ruth, Grétar Már og Rakel Ýr. c) Erla Björk, f. 2. sept- ember 1978, sam- býlismaður Brent C. Beale, f. 20. nóvember 1983. Helga Dís útskrifaðist frá Kennaraháskólanum árið 1963. Hún starfaði sem kennari við Barnaskólann í Njarðvík frá árinu1963–64, við Barnaskólann í Ásgarði í Kjós 1964–65, Aust- urbæjarskóla 1965–80, Selja- skóla 1980–87 og að lokum við Ártúnsskóla 1987–2003. Útför Helgu Dísar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Það er ósköp bágt að eiga enga mömmu. Sérstaklega svona góða mömmu sem saumaði öll föt á mig og dúkkurnar mínar. Keypti fullt af barbie-dóti þegar farið var í versl- unarferðir með Gönguklúbbnum (þegar ég var lítil!). Kenndi mér að lesa og skrifa áður en ég var komin í skóla þannig að ég var rosalega klár þegar ég mætti fyrsta daginn í skólann. Sagði mér sömu söguna aftur og aftur af því þegar ég var lítil og tók á móti henni þegar hún kom frá Danmörku og æpti yfir alla mamma mín, mamma mín er kom- in. Var mér góð fyrirmynd með dugnaði sínum, krafti og ekki síst seinustu dagana hennar. Mamma var alltaf rosa fín og flott í útliti og alltaf þegar við vor- um að fara út þurfti ég að setjast niður á meðan hún setti á sig vara- lit, fann rétta slæðu, handtösku og svo leit hún í spegilinn og sagði ósköp er maður eitthvað luralegur, þá þurfti að skipta um föt. Svo fór- um við bara í Bónus þar sem hún dró upp endalaust magn af plast- pokum úr töskunni svo maður skammaðist sín soldið fyrir hana … en bara soldið. Þegar ég fékk þá flugu í höfuðið að fara til Englands skildi mamma bara ekkert í mér, ég átti að fara til Þýskalands því það væri svo æð- islegt þar. Ekki batnaði það þegar ég náði mér í þarlendan mann og fór að koma upp búi. Aumingja mamma! Hún var alltaf að skoða at- vinnuauglýsingarnar og finna vinnu fyrir okkur og skildi ekkert í því af hverju við vildum búa þarna úti í þessari sveit. Þó að hún væri sjálf úr hálfgerðri sveit. Á sunnudögum hringdum við alltaf í hvor aðra og þegar ég hringdi sagði hún alltaf, ert þetta þú lillan mín og svo töl- uðum við lengi um allt og ekkert. Stundum svindlaði ég og hringdi í miðri viku og sagði henni hvað ég hefði verið að bardúsa. Alltaf leið mér svo vel eftir að hafa talað við hana. Ég hef náð að koma nokkuð reglulega til Íslands eftir að ég flutti út. Ég kom einu sinni án þess að láta mömmu vita og við systkinin gripum hana í rúminu snemma um morguninn. Það tók hana smátíma að átta sig á þessu og svo faðmaði hún mig og sagði, æ ert þetta þú, lillan mín, svo vaknaði hún betur og sagði, bölvuð fífl getið þið verið öll- sömul! Best var ferðin mín í lok október. Þá kom ég í 2 vikur og var bara með mömmu allan tímann. Við fórum tvisvar í bíó, fórum í Kringl- una og Smáralind, bökuðum og horfðum á vídeó saman. Þetta var alveg rosalega gaman og ég er svo fegin að ég skyldi fá tækifæri til að eiga svona spes tíma með mömmu. Það er erfitt að labba um Kvísl- ina núna og sjá allt dótið hennar mömmu og finna föt af henni því að það er svo mikil mömmulykt af þeim. Ég býst ennþá við að heyra í klossunum hennar eða að heyra hana gala hátt „halló“ þegar maður labbar inn um dyrnar. Ég veit að henni leið orðið illa og að það er gott að hún fékk að fara en ég er samt ósátt við að missa mömmu mína og engan veginn tilbúin að sleppa henni. Ég tel mig vera ennþá það litla að ég þarf á mömmu minni að halda. En spilin snúast þá bara við og mamma segir bara við mig þegar hún tekur á móti mér hinum megin „Lillan mín, lillan mín er komin“. Erla Björk. Mamma er dáin, hvað gerir mað- ur þá? Þegar maður ætlar að rifja upp tímana með mömmu er það svo margt og erfitt að velja úr það sem stendur hæst upp úr. Ferðin okkar til Englands fyrir u.þ.b ári að heim- sækja „litlu“ systur mína, er minn- isstæð fyrir þær sakir að þetta var síðasta ferð mömmu til útlanda og eina skiptið sem við ferðuðumst tvær saman. Þar vorum við mæðg- ur í essinu okkar, létum Lilluna okkar keyra okkur á milli verslana, þorpa og sveitakráa þar sem við mamma gátum teygað ölið og látið svo keyra okkur áfram á næsta stað til að versla meira … En mömmu fannst þetta nú óttaleg sveit þar sem hún systir mín var sest að, beljur röltandi á vegunum, asnar og villihestar á förnum vegi. Mömmu fannst nú samt gott að vera úti í hinni guðsgrænu náttúru þó að hún væri ekki mikið fyrir dýrin, besta slökun sem hún gat hugsað sér var að fara í berjamó í Hveragerði á haustin og veltast á milli þúfna og fylla koppa og kirnur af berjum. Mamma var búin að bíða eftir barnabarni í fjölda ára, hennar helsta ósk var að eignast barnabarn og var þá pressan mest á mig sem elsta barn að fara að drífa mig í þetta áður en ég kæmist á ellistyrk- inn. Enda þegar ég tilkynnti henni að ég væri ólétt að Heiðu Dís hróp- aði hún „Yes“ upp yfir sig sem var nú óvanaleg upphrópun hjá kenn- aranum. Hún var nú samt ekki sátt við að handavinnugenin skyldu ekki koma í ljós á meðgöngunni hjá mér og reyndi mikið að ota að mér prjónunum. Hún stóð sig frábær- lega í ömmuhlutverkinu, spillti Heiðu Dís með nammi, prjónaði dúkkuföt og barnaföt og vildi fá hana sem oftast í heimsókn til að dedúast eitthvað. Þær horfðu reglulega saman á „skrýtnu kell- inguna“ Hyacinth (Mrs. Bucket/ Bouqet) og skemmtu sér vel yfir henni. Þannig að ömmustelpunni bregður nú við hafa ekki ömmu til að snúast í kringum sig því að afi er ekki alveg jafn eftirgefanlegur og amma var, hún skilur ekki alveg að amma komi ekki aftur til okkar. Gekk ég oft fram af henni hvað ég gat notað lengi föt sem að voru í uppáhaldi hjá mér, það var eitt að vera nýtin en þetta var nú einum of … Það var svo undarlegt hvað mér tókst oft að sulla niður á eld- húsborðið og þá sérstaklega þegar hún var nýbúin að setja hreinan dúk á borðið! Þá kom bara: Elín, hvernig ferðu að þessu? Eftir að mamma fór að veikjast meira á síð- asta ári vorum við duglegar að nota tímana sem hún var frískari til að skreppa í leikhús, á söfn og tón- leika, nú síðast Vínartónleika Sin- fóníunnar í janúar þar sem við skál- uðum í freyðivíni fyrir bjartari tímum með blóm í haga. En því miður varð raunin ekki sú. Ég veit að mömmu líður betur núna eftir að hafa staðið sig eins og hetja í baráttunni við krabbameinið og oft á tíðum undraðist ég hvaðan henni kæmi allur þessi styrkur og bjartsýni þegar útlitið var sem svartast. Þó að lífið haldi áfram er samt einni samferðamanneskjunni færra og leiðin verður þung til að byrja með en ég hef minningarnar um mömmu sem vonandi geta fleytt mér yfir erfiðasta hjallann. Elín. Mamma mín er farin eins slæmt og það er. Þá kemur margt upp í hugann. Þegar ég var lítill saumaði mamma fyrir mig lítinn hund. Hann fylgdi mér út um allt og lenti í ýms- um skakkaföllum, brenndur á elda- vélarhellu, fékk að synda í klósett- inu en alltaf var hann uppáhaldið mitt þó að mamma reyndi að sauma nýjan handa mér þegar henni var hætt að lítast á útlitið á honum. Svo einn daginn hvarf hann bara … Alltaf var hún hrifin af ljósu lokk- unum mínum og fylltist alltaf skelf- ingu þegar rakvélin var tekin fram og hárið fékk að fjúka og auga- brýrnar einu sinni. Þegar ég gaf henni nýja hljóðláta inniskó var það ekki bara af hugulsemi heldur til að geta sofið út á morgnana enda var herbergið beint fyrir neðan eldhús- ið þar sem hún þrammaði um á flís- unum eins og fílahjörð. Loksins þegar strákurinn gekk út, í bók- staflegum skilningi, var uppeldinu loksins lokið og lillinn gat farið að hugsa um sig sjálfur. En það var samt aldrei alveg sleppt og hún reis oft upp eins og ljónynja til að verja hann „Sæma sinn“. Þegar ég fór til útlanda í fótboltaferðir skildu hinir strákarnir aldrei neitt í því hvað ég var að spyrja um þessar „thimbles“ alltaf hreint. Enda gat maður ekki farið til útlanda án þess að koma með eina fingurbjörg handa gömlu. Og þegar safnið stækkaði og var komið yfir hundruð varð alltaf erf- iðara að leggja á minnið hvað hún ætti fyrir. En mamma sagði alltaf að það skipti engu máli því að hún gæti bara býttað henni á næsta fundi hjá gönguklúbbnum. Alltaf var hún stolt af uppruna sínum og mikill sveitarígur á milli mömmu og pabba. Veðrið nefnilega alltaf best í Hveró og alltaf rok í Kjósinni, sam- kvæmt því sem mamma sagði. Gloppóttur var sunnlenski hreim- urinn hennar, upp úr stóð „seytján“ og „túmatar“ sem vakti alltaf mikla kátínu hjá okkur krökkunum. Alltaf var hún ánægð með drenginn sinn í þau fáu skipti sem hann fór í jakka- fötin. Kartöflurækt og gulrótarækt voru hennar ástríða, á hverju hausti þurftum við að taka upp kartöflur og gera slátur og ég þurfti alltaf að brytja mörinn. Á jóladag er alltaf boð hjá Gerðu frænku og þá er alltaf spiluð vist. Systurnar spiluðu alltaf saman og ef illa gekk var bara dreginn fram annar stokkur því þessi var greini- lega vondur, gat ekki verið að spila- mennskunni væri ábótavant. Syst- urnar voru mjög nánar og fór aldrei á milli mála þegar systir hennar hringdi og mamma svaraði með löngu og syngjandi „haallllóóó“ svo flissuðu þær eins og fermingar- stelpur. Þær voru líka alltaf með einhverja einkabrandara sem þær gátu hlegið að í marga mánuði! Íþróttaáhuginn var enginn hjá mömmu, mikið bölvað þegar fót- bolti var í sjónvarpinu og truflaði Helga Dís Sæmundsdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, HREFNA SVAVA ÞORSTEINSDÓTTIR, Sóleyjarima 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 25. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Krabbameinsfélagsins. Eyjólfur Arthúrsson, Unnur Úlfarsdóttir, Gísli Árnason, Þorsteinn Úlfarsson, stjúpbörn og ömmubörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, EIRÍKA EIRÍKSDÓTTIR, Kvisthaga 2, Reykjavík, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 21. febrúar, verður jarð- sungin frá Neskirkju föstudaginn 2. mars kl. 15.00. Valgerður Marinósdóttir, Valdimar Valdimarsson, Sigrún Erla Valdimarsdóttir, Einar Páll Tómasson, María Valdimarsdóttir, Helgi Sigurðsson, Kristján Valdimarsson og barnabarnabörn. ✝ Útför eiginkonu minnar, GERÐAR ÍSBERG, Vatnsholti 4, Reykjavík, sem lést mánudaginn 19. febrúar verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. mars kl. 15.00. Jóhannes Halldórsson. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR LÁRUSSON frá Gilsá í Breiðdal, sem lést föstudaginn 23. febrúar, verður jarðsung- inn frá Heydalakirkju laugardaginn 3. mars og hefst athöfnin kl. 14.00. Herdís Erlingsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær dóttir mín, barnabarn, systir og mágkona, ÁRNÝ HILDUR ÁRNADÓTTIR, Heiðarholti, Keflavík, lést á heimili sínu mánudaginn 26. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Matthildur Óskarsdóttir, Þuríður Halldórsdóttir, Anna Pálína Árnadóttir, Karl Einar Óskarsson, Þuríður Árnadóttir, Rúnar Helgason, Kolbrún Árnadóttir, Jóhann Bjarki Ragnarsson og börn. ✝ Ástkær faðir minn, BIRGIR BRAGASON, Norðurbrún 1, Reykjavík, andaðist á heimili sínu mánudaginn 19. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð. Starfsfólki á Norðurbrún 1 færum við alúðarþakkir fyrir einstaka umönnun. Fyrir hönd ástvina, Bergþóra Huld Birgisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.