Morgunblaðið - 01.03.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 37
Bróðir Steinars var Haukur,
læknir á Reykjalundi, en hann lést
4. október 2006. Mjög gott samband
var á milli þeirra bræðra alla tíð.
Heilsu Steinars hrakaði fyrir all-
mörgum árum síðan. Hann vistaðist
á Reykjalundi og síðar á Eir þar
sem hann lést.
Alltaf var gott að koma til Stein-
ars. Hlutverk okkar snerist við ef
svo má segja. Nú fékk ég að lesa
fyrir hann og biðja með honum.
Sunnudaginn síðasta í lífi hans las
ég fyrir hann 100. sálm Davíðs sem
fjallar um að þjóna Drottni með
gleði og vegsama nafn hans. Ég
vissi ekki þá að kall Drottins til
Steinars væri svo nærri. Steinar
þjónaði sannarlega í og með lífi sínu
Drottni sínum og frelsara með gleði.
Hann vegsamaði Drottin í öllu sem
hann gerði mörgum til blessunar.
Við sem eftir stöndum, félagar í
KFUM, þökkum Drottni fyrir
Steinar og allt það sem hann gaf af
sjálfum sér úr þeim dýrmæta sjóði
sem Guð gaf honum.
Hugheilar samúðarkveðjur og
þakklæti fyrir kærleiksríka um-
hyggju fyrir Steinari til margra ára
sendi ég Maríu mágkonu hans, dótt-
ur hennar og börnum Hauks heit-
ins. Blessuð sé minning Steinars
Þórðarsonar.
Ásgeir Markús Jónsson.
Kallið var kærkomið. Síðustu
misserin voru Steinari Þórðarsyni
erfið. Langvarandi veikindi drógu
úr honum allan mátt, en honum var
vel hjúkrað og um hann hugsað af
frábæru starfsfólki hjúkrunarheim-
ilisins Eirar. Og nú er hann kominn
til Herra síns. Það var stutt á milli
fráfalls bræðranna á Bergþórugötu
15, Hauks og Steinars. Það var ekki
heldur langt á milli fæðinga þeirra,
árið 1928 og 1927.
Það var einkum tvennt sem ein-
kenndi æviár Steinars: 1) kristin trú
og kristilegt æskulýðsstarf og 2)
bókaáhugi og bókaverslun.
Ég kynntist Steinari innan vé-
banda KFUM, en þar var hann virk-
ur félagi alla ævi. Drengja- og ung-
lingastarfið í KFUM í Reykjavík
var honum brennandi áhugamál.
Sjálfboðastörfin taldi hann ekki eft-
ir sér. Var ætíð reiðubúinn til góðra
starfa, knýttist drengjunum vin-
áttuböndum, lét sér annt um þá.
Þeir fengu gott veganesti út í lífið.
Áreiðanlega eru þeir margir, full-
orðnir menn í dag, sem þakka leið-
sögn Steinars og er ég einn þeirra.
Sumarstarfið í Vatnaskógi var
Steinari mikils virði. Skógarmenn
KFUM með allri sinni starfsemi;
Útivera, náttúruskoðun, fjöllin,
vatnið og skógurinn allt um kring.
Glens og gaman, íþróttir, leikir og
kvöldvökur í skálanum við arineld-
inn, söngurinn hljómaði, skaparinn
var lofaður, hann tilbeðinn og hon-
um falið allt ráð. Jesús sjálfur var
nálægur! Í hópi vinanna var Steinar.
Minnisstæðar eru heimsókn
sænskra KFUM-skáta og danskra
FDF-drengja sumarið 1948 og ut-
anför stórs hóps Skógarmanna til
Kaupmannahafnar og Stokkhólms
1950. Steinar var einn foringjanna í
utanlandsferðinni. Margs er að
minnast úr þeirri ferð. Fundi að-
aldeildar KFUM í Reykjavík sótti
Steinar eins lengi og kraftar leyfðu.
Alltaf var gott að vita af honum
meðal okkar. Á fleiri sviðum innan
KFUM var hann virkur, eins og í
skíðaklúbbnum Éljagangi, í Gideon-
félaginu, í Biblíufélaginu og ekki lét
hann sig vanta við guðsþjónustur í
sóknarkirkjunni sinni, Hallgríms-
kirkju.
Til margra ára voru verslunar-
störf Steinars samofin lífi miðborg-
ar Reykjavíkur. Hann var andlit
bókaverslunar Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti út á við og
hjarta verslunarinnar inn á við.
Fyrstur var hann kominn til starfa á
morgnana og síðastur fór hann heim
á kvöldin. Hann þekkti allar bækur
og væru þær ekki til hjá Eymunds-
son útvegaði hann þær fljótt og vel.
Þegar nemendur hópuðust í versl-
unina við skólabyrjun á haustin,
leysti Steinar allan vandann. Þægi-
legur, lipur, skilningsríkur og kurt-
eis og viðmótið sérstaklega hlýlegt
og ljúft. Auk bóksölu fékkst Steinar
einnig um skeið við bókaútgáfu í frí-
stundum ásamt góðum félögum.
Þeir stofnuðu bókagerðina Lilju og
gáfu út sígildar, kristilegar bækur
og góðar barnabækur. Kristilegt
æskulýðsstarf var hans stóra
áhugamál og bóksala lífsstarfið.
Kristin trú mótaði alla veru Stein-
ars. Samfélagið við Drottin Jesú var
jafnmikilvægt og andardrátturinn.
Þegar veikindin herjuðu á var
bænalífið auðugt. Nú ertu kominn
til himinssala. Þar er ljúft að búa.
Við Eiríka þökkum alla umhyggju
og samfylgd. Biðjum þínum nánustu
Guðs blessunar.
Ásgeir B. Ellertsson.
Kveðja frá KFUM og KFUK
KFUM og KFUK kveður í dag
ötulan liðsmann og tryggan fé-
lagsmann, Steinar Þórðarson.
Steinar helgaði líf sitt á margan hátt
félagsstörfum KFUM. Þeim kynnt-
ist hann þegar hann ungur tók þátt í
yngri deild KFUM á Amtmannsstíg
2b og síðar eldri deildum félagsins
en þau kynni entust út lífið. Steinar
tók fljótt virkan þátt í starfinu og í
marga áratugi var hann leiðtogi í
unglingadeild fyrir stráka í KFUM-
húsinu á Amtmannsstíg. Strákarnir
í unglingadeildinni gerðu margt
spennandi og nýstárlegt saman,
sem bar vitni hugmyndaauðgi og
natni leiðtoganna í deildinni. Það
var ekki laust við að stelpurnar í
unglingadeild KFUK horfðu öfund-
araugum á það sem þeir tóku upp á.
Í unglingastarfinu kynntist Stein-
ar mörgum og sýndi þeim mikla um-
hyggju og ræktarsemi. Hann var
ákaflega mannglöggur og minnugur
á nöfn. Margir muna hvernig hann
heilsaði hlýlega með handabandi og
nefndi nafn viðkomandi um leið.
Hann var ávallt glettinn og gat gert
að gamni sínu.
Fleiri trúnaðarstörfum gegndi
Steinar fyrir KFUM en unglinga-
deildarstarfinu. Hann sat í stjórn
Skógarmanna KFUM á árunum
1945–1959 og gegndi lengi starfi rit-
ara. Hafði hann meðal annars það
hlutverk á Skógarmannafundum
sem haldnir voru vikulega yfir vetr-
artímann í Reykjavík að telja og
skrá drengi sem komu á fundina.
Hann var einnig sjálfboðaliði í
Vatnaskógi í sumarfríum sínum sem
þá var mjög algengt og hjálpaði til
við starfið.
Steinar starfaði í Eymundsson
bókaverslun alla sína starfsævi.
Hann var mikill bókamaður og fékk
KFUM og KFUK oft að njóta hæfi-
leika hans á því sviði til dæmis varð-
andi útgáfumál. Eftir að aldurinn
færðist yfir og verkefnum í fé-
lagsstarfinu fækkaði, fylgdist hann
ávallt með starfinu á meðan hann
gat og bað fyrir því. Steinar barðist
við mikið heilsuleysi síðustu árin og
dvaldi á Reykjalundi og síðast á
hjúkrunarheimilinu Eiri. Við kveðj-
um Steinar í virðingu og þökk fyrir
framlag hans til félagsstarfs KFUM
og KFUK og sem góðan félaga.
Kristnir drengir, áfram allir!
Aldrei víkja megið þér,
sálu styrkja söngvar snjallir
sigur þar til fenginn er.
Guði hjá, himnum á,
hittumst allir glaðir þá.
(Friðrik Friðriksson.)
Blessuð sé minning Steinars
Þórðarsonar.
F.h. stjórnar KFUM og KFUK,
Kristín Sverrisdóttir.
Vinur okkar og kær Gídeonbróð-
ir, Steinar Þórðarson, hefur fengið
hvíldina og er genginn inn til fagn-
aðar herra síns. Steinar var einn af
17 stofnfélögum Gídeonfélagsins ár-
ið 1945 og alla tíð trúr og dyggur fé-
lagsmaður meðan heilsa entist.
Hann var hógvær og lítillátur í
anda meistara síns, en iðjusamur og
ósérhlífinn til sérhvers góðs verks í
þágu málefnis Drottins. Árið 1954
hóf Gídeonfélagið að dreifa Nýja
testamentinu til 12 ára skólabarna
og árlega heimsækja Gídeonfélagar
um 170 grunnskóla landsins og af-
henda tíu ára börnum persónulega
Nýja testamentið. Fyrsta áratug-
inn, eða svo, heimsóttu Gídeonfélag-
ar aðeins skóla í þéttbýlinu. Testa-
mentum til barna í dreifbýlinu var
pakkað inn og þau send í pósti til
viðkomandi skóla. Þessu verkefni
stjórnaði Steinar og sinnti því af
kostgæfni allan þann tíma, sem
þessi háttur var hafður á.
Alla tíð var starf kristni og kirkju
Steinari hugleikið, hann fylgdist
ekki bara vel með, heldur var hann
virkur þátttakandi í öllu því góða og
uppbyggilega starfi sem til bóta
horfði og bætti mannlífið.
Gilti þá einu hvort Gídeonfélagið
átti í hlut, Skógarmenn KFUM,
æskulýðsstarf KFUM eða kristni-
boðsstarfið.
Steinar vann um áratuga skeið
hjá bókaverslun Eymundsson í
Austurstræti og sinnti sínu verki
þar af sömu trúmennskunni og sam-
viskuseminni og honum var í blóð
borin.
Steinar var skarpgreindur, minn-
ið ótrúlegt og þekkingin yfirgrips-
mikil.
Vegna starfa sinna hjá Eymunds-
son hafði Steinar yfirburðaþekkingu
á öllu því sem við kom bókum, enda
var ómælt leitað til hans þess vegna.
Hin síðari ár átti Steinar við erf-
iðan heilsubrest að stríða, sem hann
tók þó af æðruleysi og rósemi.
Við í stjórn Gídeonfélagsins þökk-
um Guði fyrir Steinar Þórðarson og
biðjum minningu hans blessunar
Guðs.
Stjórn Gídeonfélagsins.
Tvær myndir:
Á sjöunda áratugnum: Steinar
Þórðarson að leita að bókum fyrir
móður mína í árlegum jólabókainn-
kaupum hennar. Ég skil að þessi
þunglamalegi maður viti það sem
þarf um bækur. Á eftir njótum við
systkinin þess að fara á Hressing-
arskálann, borða rjómakökur og
drekka súkkulaði á meðan upplýs-
ingar Steinars eru meltar og
ákvörðun tekin.
Á níunda áratugnum: Hann er
eins – ég fullorðin. Þetta eru tímar
breytinga og við verðum vinnufélag-
ar. Það er erfitt fyrir þau sem
þekkja bara nútímabókabúðir, þar
sem langur afgreiðslutími og kaffi-
þjónusta skipta ekki minna máli en
bókaúrvalið, að gera sér í hugarlund
íslenska bókadeild Bókaverslunar
Sigfúsar Eymundssonar í Austur-
stræti í tíð Steinars Þórðarsonar.
Þetta var heimur út af fyrir sig –
ekki bara metsölubækur í hillum.
Fyrirspurnir um íslenskar bækur
bárust alls staðar að úr heiminum
og oft var hægt að svara með því
einu að opna skáp. Þetta var bóka-
kista, upplýsingaþjónusta, sem
hvergi er að finna í dag – á tímum
tölvuvæðingar. Hagnaðarsjónarmið
höfðu ekki ennþá náð yfirhöndinni
en hagræðingin var í uppsiglingu.
Steinar var að ljúka sinni vakt
þegar samstarf okkar hófst og ljúf
handleiðsla hans var mér góður
skóli. Það er gott að sitja sitthvor-
umegin við skrifborð þegar maður
ber virðingu fyrir hinum og finnur
að það er borin virðing fyrir manni.
Steinar Þórðarson var ljúfur maður.
María S. Gunnarsdóttir.
Kveðja frá Éljagangsmönnum
Það var fyrir um 57 árum að
nokkrir ungir menn innan KFUM
komu saman og ákváðu að festa
kaup á skíðaskála sem þá var í smíð-
um á Hellisheiði. Skálann nefndu
þeir Éljagang. Einn þessara ungu
manna var Steinar Þórðarson, okk-
ar góði félagi sem nú hefur kvatt
þetta líf.
Nafn skálans festist fljótt við eig-
endurna og voru þeir ávallt kallaðir
Éljagangsmenn.
Það fannst mörgum athyglisvert
að Steinar skyldi sýna þessu máli
áhuga, þar sem ekki var vitað að
hann hefði stundað skíði. Reyndin
varð sú að hann fór ekki að vetri til
upp í skála til að renna sér á skíð-
um. Áhugi Steinars var sá að þeir
ungu piltar sem hann starfaði á
meðal í unglingadeild KFUM við
Amtmannsstíg gætu fengið tæki-
færi til að fara saman upp til fjalla
og njóta útivistar þar ásamt því að
heyra fagnaðarerindið um Jesúm.
Það var fyrst og fremst á þann hátt
sem skálinn var nýttur af Steinari.
Sú hefð skapaðist fljótlega að fé-
lagarnir hittust mánaðarlega og þá
til skiptis á heimilum hver annars
eða uppi í skála. Steinar lét sig
sjaldnast vanta á þessar samveru-
stundir. Steinar var einn af þeim
sem alltaf héldu tryggð við hópinn
og sýndi hann mikla trúfesti í orði
og verki.
Ferðum Steinar á samverustund-
irnar fækkaði eftir að hann veiktist
og fluttist á Reykjalund, þar sem
hann naut mikillar umhyggju bróð-
ur síns, Hauks, en Haukur var yf-
irlæknir stofnunarinnar. Haukur
lést á síðasta ári.
Þegar hópurinn hittist til að halda
upp á 50 ára afmælið gladdi það
okkur, sem stóðum að þeirri sam-
veru, að Steinar kom til að vera með
okkur um kvöldið. Ég held að Stein-
ar hafi notið sín vel innan um sína
gömlu félaga þrátt fyrir veikindin.
Við kveðjum góðan vin og félaga
og biðjum honum góðrar heimkomu
í faðm Frelsarans sem var undir-
staðan í lífi Steinars.
Við biðjum aðstandendum hans
og vinum blessunar Guðs.
Narfi.
✝
Kæru vinir og vandamenn nær og fjær.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem veittu
okkur hlýju og stuðning við andlát og útför föður
okkar, afa, tengdaföður, fyrrverandi eiginmanns og
bróður,
GÚSTAFS R. ODDSSONAR
leigubílstjóra,
Við hugsum til ykkar með þakklæti og kærleika.
Stella Gústafsdóttir, Ingimar Eydal,
Markús Gústafsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir,
Sonja Stelly Gústafsdóttir,
Ute Stelly Oddsson
barnabörn og systkini hins látna.
✝
Kæru ættingjar og vinir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa, lang-
afa og langalangafa,
TEITS KJARTANSSONAR,
Vörðum,
áður bónda í Flagbjarnarholti,
Landsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Lundar, Hellu.
Brynjólfur Teitsson, Guðrún Þorleifsdóttir,
Margrét Teitsdóttir,
Kristrún Kjartans, Aðalbjörn Þór Kjartansson
og fjölskyldur.
✝
Þökkum af hlýhug auðsýnda samúð vegna andláts
og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
BJARNFRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR,
Hafsteini,
Stokkseyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Kumbaravogi fyrir einstaka um-
önnun og alúð við hina látnu.
Tómas Karlsson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Okkar bestu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna andláts ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR STEINSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Eysteinn Jónsson, Jóna Þorgeirsdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
Björn Jónsson, Sigríður Ketilsdóttir,
Steinn Þór Jónsson, Eva Þorkelsdóttir,
Elsa Jónsdóttir, Jón Haukur Bjarnason,
Guðmundur Jónsson, Þorbjörg Björnsdóttir,
Ólafur Jónsson, Kristín Sigurðardóttir,
Sigurjón Jónsson,
Erla Sigurðardóttir, Hannes Óli Jóhannsson
og ömmubörn.
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 – www.englasteinar.is
15% afsláttur af öllum
legsteinum og fylgihlutum
Sendum
myndalista