Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 38

Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar - Einn vinnustaður Laus störf hjá dráttarvéladeild Framkvæmdasviðs Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Framkvæmdasvið Dráttarvéladeild Framkvæmdasviðs sér um snjóruðning, hreinsun gönguleiða, slátt opinna svæða og hreinsun vegna veggjakrots. Sérhæfðir verkamenn Óskað er eftir sérhæfðum verkamönnum til starfa við háþrýstiþvott á vegum deildarinnar auk fleiri tilfallandi verkefna. Menntunar- og hæfniskröfur: ● Starfsmenn verða að hafa gott atgervi, vera verklagnir og heilsuhraustir. Gerð er krafa um almenn ökuréttindi en einnig er æskilegt að viðkomandi hafi dráttarvélapróf og/eða BE bílpróf. Flokkstjóri Óskað er eftir flokkstjóra til starfa. Starfið felur í sér umsjón með háþrýstiþvotti á vegum sviðsins auk tilfallandi verkefna. Menntunar- og hæfniskröfur: ● Starfsmenn verða að hafa gott atgervi, vera verklagnir og heilsuhraustir. Gerð er krafa um almenn ökuréttindi en einnig er æskilegt að viðkomandi hafi dráttarvélapróf og BE bílpróf. Verkstjóri Óskað er eftir verkstjóra til starfa. Starfið felur í sér stjórnun vinnuflokka við háþrýstiþvott á vegum sviðsins auk annarra verkefna. Verkstjóri sér um skipulagningu verkefna, eftirlit með kostnaði, stjórnun starfsmannamála, samskipti við íbúa og fyrirtæki auk annarra tilfallandi verkefna á vegum dráttarvéladeildar. Menntunar- og hæfniskröfur: ● Starfsmenn verða að hafa gott atgervi, vera verklagnir og heilsuhraustir. Gerð er krafa um almenn ökuréttindi en einnig er æskilegt að viðkomandi hafi dráttarvélapróf og BE bílpróf. Æskilegt er að umsækjendur búi yfir reynslu af sambærilegum störfum. Um er að ræða framtíðarstörf. Æskilegt er að starfsmenn geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Birgisson, rekstrarstjóri þjónustumiðstöðvar við Stórhöfða í síma 411 8462 og starfsfólk mannauðsdeildar í síma 411 8000. Umsóknarfrestur er til 11. mars. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í þjónustuveri Framkvæmdasviðs, Skúlatúni 2, sem er opin 8.20-16.15 alla virka daga eða senda umsóknir með tölvupósti til mannaudsdeild.fs@reykjavik.is merktar "Sérhæfðir verkamenn". Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar, nánari upplýsingar um þau veita starfsmenn mannauðsdeildar í síma 411 8000. Starfsmaður í ráðgjöf og þjónustu Samtök ferðaþjónustunnar leita að starfsmanni í fjölbreytt og krefjandi starf á skrifstofu frá og með 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfssvið - Ráðgjöf og þjónusta við félagsmenn. - Gerð og umsýsla hagkannana og töl- fræðilegar greiningar. - Stjórnun ýmissa verkefna sem varða hagsmuni fyrirtækjanna. Menntun og hæfniskröfur - Háskólapróf í viðskiptafræði/hagfræði. - Starfsreynsla, þar sem sjálfstæðra vinnubragða er krafist. - Góð enskukunnátta. - Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. - Þekking á ferðaþjónustu er æskileg. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi starf í þjónustu við áhugaverða atvinnugrein, gott starfsumhverfi og samhentan starfsmannahóp. Umsóknir sendist til skrifstofu SAF, Borgartúni 35, 105 Reykjavík, fyrir 10. mars nk. Samtök ferðaþjónustunnar eru heildarsamtök atvinnurekenda í ferðaþjónustu og annast margháttaða þjónustu við félagsmenn sína. Samtökin gæta sameiginlegra hagsmuna félaganna og vinna að því að fyrirtækin búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf og auka arðsemi í greininni. Raðauglýsingar 569 1100 FRÉTTIR Íslandsmót kvenna í sveitakeppni Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður háð helgina 3.–4. mars. Keppt verður um réttinn „Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2007“ auk þess sem efsta sveitin vinnur sér rétt til að skipa landslið Íslands á Norðurlanda- mótinu í Lillehammer í sumar. Keppn- isgjald er 12.000 krónur á sveit. Skráning í mótið er þegar hafin og hægt að skrá sig á vefsíðunni bridge.is og í síma BSÍ, 587 9360. Keppnisstjóri verður Sveinn Rúnar Eiríksson. Mótið hefst klukkan 11 laug- ardaginn 3. mars og lýkur fyrir kvöldmat 4. mars. Gullsmárinn Bridsdeild FEBK Gullsmára spilaði tvímenning á 11 borðum mánudaginn 26. febrúar. Miðlungur 220. Efst í NS: Leifur Kr. Jóhanness. – Guðm. Magnúss. 287 Elís Kristjánss. – Páll Ólason 282 Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 246 Kristín Óskarsd. – Gróa Geirsd. 223 AV: Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnsson 265 Heiður Gestsd. – Ari Þórðarson 265 Jón Stefánss. – Eysteinn Einarsson 247 Sigtryggur Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 246 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson | norir@mbl.is JEPPANÁMSKEIÐ á vegum Arctic Trucks verður haldið á Kletthálsi 3 í kvöld og hefst það klukkan 20. Á annað hundrað manns hafa sótt þessi námskeið í vetur. Á námskeið- unum gefst þátttakendum, bæði vönum og óvönum, kostur á að kynna grundvallareiginleikum jeppans. Leiðbeinandi er Vil- hjálmur Freys Jónsson tæknifræð- ingur. Hægt er að skrá sig á vefslóðinni bilar.is. Jeppanám- skeið Arctic Trucks LANDSSAMBAND framsókn- arkvenna (LFK) heldur morg- unverðarfund um leyniþjón- ustu/greiningadeild föstu- daginn 2. mars að Hótel Sögu í Sunnusal kl. 8.30–9.45. Frummælendur eru Sigríð- ur Björk Guðjónsdóttir að- stoðarríkislögreglustjóri og Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra. Fundinum stjórn- ar Bryndís Bjarnarson for- maður LFK. Rætt um leyniþjón- ustur Hagnaðist um 380 milljónir RANGHERMT var í fyrirsögn á viðskiptasíðu blaðsins í gær að Bjarni Ármannsson, for- stjóri Glitnis, hefði hagnast um 420 milljónir króna á hluta- bréfakaupum sínum í bank- anum. Fram kom í fréttinni sjálfri að söluhagnaðurinn hefði verið 380 milljónir. Þá var mis- ritað í fréttinni að Bjarni hefði upphaflega keypt bréfin á 4,15 milljónir, þar átti að standa 42,15 milljónir. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.