Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 44

Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞAÐ ER PÍTSA Í KVÖLD HEYRÐU! HVAÐ GERÐIR ÞÚ VIÐ TAKKANA AF ELDAVÉLINNI? ÉG VIL HAFA MÍNA MEÐ PEPPERÓNÍ OG AÐEINS MEIRA PEPPERÓNÍ HUGSAÐU ÞÉR BARA... RYK FRÁ FJARLÆGUM LÖNDUM SEST Á SKÍTA PÉSA MAÐUR FER AÐ VELTA FYRIR SÉR HVORT AÐ HANN GÆTI BORIÐ MOLD SEM SALÓMON EÐA GENGIS KAHN GENGU Á! ER ÞAÐ EKKI SATT? MÉR LÍÐUR EINS OG KÓNGI! HOBBES, HVAÐ MUNDIR ÞÚ GERA EF ÉG KASTAÐI ÞESSARI VATNSBLÖÐRU Í ANDLITIÐ Á ÞÉR? ÍMYNDAÐU ÞÉR ÞAÐ VERSTA SEM ÉG GÆTI GERT. ÉG MUNDI GERA EITTHVAÐ HUDRAÐ SINNUM VERRA HVAÐ ER ÞAÐ? NEI, ÉG MUNDI GERA EITTHVAÐ MUN VERRA ÉG VARÐ SVO FORVITINN ÉG ÆTLA AÐ FÁ ÞAÐ SAMA OG VENJULEGA HVAÐ FÆRÐU ÞÉR VENJU- LEGA? HEF EKKI HUGMYND BARA TIL ÞESS AÐ VERA VISS, FÁIÐ ÞIÐ FLÆR EÐA MÖLFLUGUR? KIDDA SAGÐI MÖMMU AÐ ÉG HAFI KALLAÐ HANA BELJU HÚN HLÝTUR AÐ HAFA VERIÐ AÐ HLUSTA Í BÍLNUM NÚNA HELDUR MAMMA AÐ ÉG SÉ ALLTAF AÐ TALA ILLA UM HANA. HÚN ER MJÖG FÚL... OG ÉG ER ÞAÐ LÍKA LÍKA ÉG! KIDDA! KOMDU HINGAÐ, NÚNA! ÚT AF ÞVÍ SEM VIÐ GERÐUM AF HVERJU ER ÉG Á BÖRUM? ÉG ER Í BETRA FORMI EN SÁ SEM ER AÐ ÝTA MÉR SÁ SEM FANN UPP ÞESSAR SPÍTALAREGLUR HLÝTUR AÐ VERA EITTHVAÐ SKRÍTINN ER EINHVER SEM ÉG Á AÐ LÁTA VITA AÐ ÞÚ SÉRT HÉRNA? JÁ, HRINGDU Í KO... NEI ANNARS, ENGINN M.J. MUNDI VILJA KOMA HINGAÐ EF HÚN FRÉTTI ÞETTA ÉG GET EKKI GERT HENNI ÞAÐ INNRITUN SJÚKLINGA Rannsóknarsetur í fötl-unarfræðum við HáskólaÍslands stendur fyrir röðfyrirlestra á vormisseri. Á morgun föstudag, 2. mars, mun Guðrún Eva Mínervudóttir rithöf- undur flytja fyrirlesturinn „Hreinn andi í óhreinum líkama í mann- gerðum heimi –Ljós Slím Plast“. Árið 2005 kom út bók Guðrúnar Evu Yosoy sem hún notar sem út- gangspunkt í fyrirlestri sínum: „Ég kem til með að fjalla um þá líkams- vitund sem ríkir í nútímanum út frá sögunni sem sögð er í Yosoy,“ út- skýrir Guðrún Eva. „Bókin fjallar mikið um líkamann, takmörk hans og afskræmingu, en sagan segir frá sérfræðingi í sársauka sem leiðist inn í heim hryllingsleikhúss líkt og tíðkuðust í Evrópu fyrir meira en hundrað árum, og rannsakar það sem á sér stað innan leikhússins.“ Guðrún Eva segir líkamsvitund nútímamannsins klofna í ósætt- anlegar andstæður þar sem takast á líkamsdýrkun annars vegar og and- úð á líkamanum hins vegar: „Ein af stóru ósvöruðu spurningum bæði taugalíffræðinnar og heimspekinnar eru samband hugar og líkama. Ekki hefur komið fram nein viðunandi kenning sem útskýrir hvernig hug- urinn tengist líkamanum,“ segir Guðrún Eva. „Kannski er tungumál- inu um að kenna að okkur hættir til að draga skýr mörk milli hugar og líkama, sem síðan kann að vera rót stærri vanda, og útskýra hvernig við erum farin að umgangast líkam- ann eins og hann sé ekki hluti af okkur sjálfum, heldur sýning- argripur sem maður þurfi ýmist að hafa til sýnis eða skammast sín fyrir og fela.“ Líkamar úr plasti „Við erum upptekin af líkamanum og ásýnd hans, en um leið er eins og okkur þyki þungbært að búa við hinn líkamlega veruleika sem er á einhvern hátt óhreinn og ófullkom- inn, það er að segja; náttúrulegur, með öllu því slími sem náttúrunni fylgir. Þar kemur hið manngerða til sögunnar, sem við ímyndum okkur að sé á einhvern hátt „hreinna“, af því að þar eru mörkin skýrari og skiljanlegri og við höfum meiri stjórn á útkomunni. Sá líkami sem við beinum helst sjónum okkar að er eiginlega ekki lifandi líkami heldur stafræn, tvívíð mynd og gæti alveg eins verið úr plasti; laus við alla lykt og lífræn einkenni,“ segir Guðrún Eva. „Það er eins og þessi líkams- andúð miði að því að vera ekki til, vera ekki lifandi og mætti jafnvel kalla það dauðaþrá, eða, vilji maður meiri frumleika, líkneskjuþrá.“ Guðrún Eva kveðst ekki ætla að útmála einhvers konar samfélags- vanda og boða lausn á honum: „Það stendur ekki til að lækna samfélagið af heimsósóma með klukkustund- arlöngu erindi. En það gerir ekkert til að auka meðvitund sína með því að velta fyrir sér öllu því áhuga- verða sem felur sig beint fyrir fram- an nefið á manni. Með aukinni vit- und kemur allt gott af sjálfu sér.“ Guðrún Eva mun flytja fyr- irlestur sinn í Norræna húsinu kl. 12 á föstudag. Líkaminn | Fyrirlestur á vegum Rannsókn- arseturs í fötlunarfræðum á föstudag kl. 12 Hreinn andi í óhreinum líkama  Guðrún Eva Mínervudóttir fæddist í Reykja- vík 1976. Hún lauk stúdents- prófi frá MH 1996 og leggur stund á nám í heimspeki við HÍ. Guðrún hefur skrifað fimm skáldsögur og smá- sagnasafn. Bók hennar Yosoy - Af líkamslistum og hugarvíl í hryll- ingsleikhúsinu við Álafoss kom út árið 2005 hjá Máli og menningu. SPENNUMYNDIN Smokin’ Aces verður frumsýnd í Laugarásbíói, SAM-bíóunum Álfabakka og Borg- arbíói Akureyri á morgun. Myndin fjallar um töframann nokkurn sem býr yfir vitneskju um mafíuna og hyggst koma henni áleiðis til lögreglunnar. Áður en hann nýtur verndar lög- reglunnar ákveður hann hinsvegar að koma fram í síðasta sinn. Fregn- irnar um svik töframannsins við for- sprakka mafíunnar berast þeim til eyrna og þá hefst æsispennandi kapphlaup um hver nær til töfra- mannsins á undan, löggan eða mafí- an. Leikstjóri myndarinnar er Joe Carnahan (Narc) en með helstu hlut- verk fara Andy Garcia, Ray Liotta, Jeremy Piven, Ben Affleck, Alicia Keys, Ryan Reynolds og Martin Henderson. Frumsýning | Smokin’ Aces Á vaktinni Ryan Reynolds og Ray Liotta í hlutverkum sínum. Baráttan um töframanninn Erlendir dómar: Metacritic: 45/100 The Hollywood Reporter: 60/100 Variety: 60/100 The New York Times: 10/100 Allt skv. Metacritic.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.