Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 45 dægradvöl SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rge7 4. 0–0 d6 5. d4 Bd7 6. dxe5 dxe5 7. Rc3 Rg6 8. Bg5 Be7 9. Bxe7 Dxe7 10. Rd5 Dd8 11. Dd3 0–0 12. Had1 Bg4 13. c3 Rce7 14. h3 Rxd5 15. exd5 Bh5 16. Df5 Bxf3 17. Dxf3 f5 18. Hfe1 Dd6 19. c4 Hf6 20. Dc3 e4 21. c5 Df4 22. Dd2 Hd8 23. Dxf4 Rxf4 24. Bc4 Kf8 25. h4 Rg6 26. g3 Re5 27. Be2 f4 28. Hd4 e3 29. gxf4 exf2+ 30. Kxf2 Rg6 31. Kf3 Rxh4+ 32. Kg4 Rf5 33. Hd3 Staðan kom upp á meist- aramóti Hellis sem lauk fyrir skömmu. Sigurbjörn Björnsson (2.297) hafði svart gegn Hrannari Baldurssyni (2.145). 33. … Hxd5! 34. Hxd5 Re3+ 35. Kg3 Rxd5 svartur er nú peði yfir og með vænlegt tafl. Framhaldið varð: 36. Bf3 Rxf4 37. Hd1 Re6 38. b4 c6 39. Hd7 Hf7 40. Hd6 Ke7 41. a4 Hf5 42. a5 a6 43. Bxc6 bxc6 44. Hxc6 Hg5+ 45. Kh4 Hd5 46. Kg3 Hd4 47. Hb6 Rc7 48. Kf3 Kd7 49. Hb8 g5 50. Ke3 Hxb4 og hvítur gafst upp. Á freistingum gæt þín. Norður ♠109 ♥84 ♦G432 ♣KDG62 Vestur Austur ♠ ♠42 ♥D10762 ♥ÁKG5 ♦KD86 ♦10975 ♣5 ♣D75 Suður ♠ÁKG863 ♥93 ♦Á ♣Á974 Suður spilar 4♠ Hvernig á spila með tígulkóng út? Í sveitakeppni væri sjálfsagt að toppa spaðann til að tryggja tíu slagi, en í tvímenningi er sú freisting áleitin að fara inn í borð á lauf og svína í trompi. Og þá fer samningurinn niður ef vestur spilar hjarta og fær stungu í laufi! Nokkrir sagnhafar í tvímenningi Bridshátíðar lentu í þessum ósköpum. En hitt sást líka að vörnin gæfi sagn- hafa tvo yfirslagi á silfurfati. Í þeim til- fellum lagði vestur niður tíguldrottn- ingu þegar hann komst inn á tromp?! Yfirleitt nota keppnisspilarar kall/ frávísun í háspil makkers í fyrsta slag, en í þessari stöðu ætti talning að gilda - kóngur út og Gxx(x) í borði. Sagnhafi drepur ef hann getur, svo það er ástæðulaust að kalla eða vísa frá. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 alþýðuskólar, 8 reikar, 9 atvinnugrein, 10 kjaftur, 11 myrkur, 13 ójafnan, 15 skekkja, 18 vísa frá, 21 drepsótt, 22 kyrru vatni, 23 átfrekju, 24 smjaður. Lóðrétt | 2 gól, 3 harma, 4 beltið, 5 beitan, 6 lof, 7 vitskertan, 12 álít, 14 sefa, 15 hrósa, 16 kút, 17 framleiðsluvara, 18 kuldastraum, 19 falskt, 20 lengdareining. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 nálús, 4 stoða, 7 prófa, 8 arður, 9 kóp, 11 aðan, 13 gráð, 14 árann, 15 svað, 17 áköf, 20 ætt, 22 arkar, 23 játar, 24 innan, 25 norpa. Lóðrétt: 1 nepja, 2 ljóma, 3 stak, 4 skap, 5 orðar, 6 af- ræð, 10 ósatt, 12 náð, 13 Gná, 15 svaði, 16 aukin, 18 kut- ar, 19 ferma, 20 ætan, 21 tjón. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 1 Dalvíkingar fá heilt menningar-hús að gjöf. Hver er gefandinn? 2 Landsfundir Sjálfstæðisflokksog Samfylkingar verða um sömu helgi í apríl nk. Hvenær? 3 Bjarni Daníelsson er að hverfafrá sem óperustjóri Íslensku óp- erunnar og er þegar kominn með vinnu. Hvaða vinnu? 4 Búnaðarþing verður sett nk.sunnudag. Hver er formaður Bændasamtakanna? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Þrjár íslenskar systur í Bandaríkjunum sem tengjast kvikmyndagerð hafa áhuga á að láta gera kvikmynd vestra sem bygg- ist á sögu Thelmu Ásdísardóttur, Myndin af pabba. Hvað heitir fyrirtæki systranna? Svar: Elf Films. 2. Málverk í kúbískum stíl eftir Kjarval var boðið upp í Kaupmanna- höfn í gær. Hvað heitir verkið? Svar: Hvíta- sunnudagur. 3. Tveir íslenskir rithöfundar voru sæmdir heiðursorðu spænskra yf- irvalda í tilefni af opnun Cervantes-seturs hér á landi. Hverjir eru þeir? Svar: Guð- bergur Bergsson og Álfrún Gunnlaugs- dóttir. 4. Harpa Þorsteinsdóttir, knatt- spyrnukona og landsliðsmaður úr Stjörnunni, hefur samið við eitt besta kvennalið Englands þar sem reyndur ís- lenskur knattspyrnumaður leikur með karlaliðinu. Hvað lið er þetta? Svar: Carlot- in Athletic. Spurt er … ritstjorn@mbl.is    TVÆR einkasýningar Péturs Arnar Friðrikssonar og Helga Hjaltalín Eyjólfssonar eru nú hlið við hlið í Kling og Bang gallerí ásamt þriðju sýningunni Markmið sem er staðsett í glugganum og er samstarfsverk- efni þeirra tveggja til margra ára. Markmiðssýningar þeirra félaga innihalda iðulega strákslega leik- gleði með tilheyrandi tækni- tilraunum og tilhneigingum að fara yfir margvísleg mörk. Sýningin í glugganum vísar í aðrar sýningar markmiðs og lítur svoldið út eins og búðargluggi (enda er þetta búð- argluggi) í ímyndaðri frístundaversl- un sem skarar áhugasvið Markmiðs. Í þessu samhengi verða sumar abs- úrd hugmyndir þeirra félaga ekki svo absúrd heldur meira í takt við raunveruleikann. Helgi og Pétur hafa líka verið duglegir að halda einkasýningar hvor í sínu lagi. Þar gefst áhorf- endum oft tækifæri til að átta sig á frá hvorum þeirra einstök element í Markmiðssýningunum eru, en þó bara upp að vissu marki. Einkasýn- ingarnar eru sem slíkar óháðar sam- vinnunni og fela í sér einstaklings- bundnar áherslur hvors listamanns fyrir sig. Í þessu tilfelli eru þó einka- sýningar þeirra í samræðu við hvor aðra og endurspegla því meir en áð- ur samræður þar á milli og leiða hugann að Markmiði. Tréskúlptúrar og innsetningar Helga Hjaltalín fela í sér hugarheim þar sem listrænar menningarlegar og alþýðlegar áherslur hverfast um ákveðinn punkt tilgangsleysis og jafnvel leiðinda. Stundum er sagt að hægt sé að forðast leiðindi með því að upptaka tíma sinn og huga vinnu, með því að hafa nóg fyrir stafni. Skapandi vinna og handverk er oft talin vel til fallin og ein slík leið. Þverstæðan í list Helga er að listheimurinn, menn- ingin sjálf, skapandi vinna og hand- verkið virðist vera rót leiðindanna. Verkin endurspegla því bæði sjúk- dóminn og einkenni hans. Verkin ná engum staðli, hvorki sem nytjahlutir né handverk og geta því bara verið hugmyndafræðileg list sem end- urspegla stöðu sína. Hálfsmíðuð standklukka án klukkuverks og hálf- gerðir milliveggir og veggjaklæðn- ingar árétta hugmyndir um hið inn- antóma sem felst í yfirborði. Hin mikla vinna sem liggur í verkunum og algert tilgangsleysi þeirra má skilja sem kaldhæðna sýn, ekki bara á listheiminn heldur einnig hvers- dagslífið. Þó er einhver tvískinn- ungur í dæminu með tilliti til þess að upphafning leiðindanna, ágæti þeirra sem sjá í gegnum fals tilver- unnar og hafa manndóm í sér að láta sér leiðast hafa verið lofsungin af há- menningarvitum í meira en hundrað ár. Meðan Helgi heldur sig við hin svoldið fyndnu listrænu leiðindi list- heimsins þá endurspeglar sýning Péturs Arnar mun örvæntingarfyllri sýn á lífið tilveruna og listina. Lítill vélgengur skúlptúr á vegg sem minnir á slidesmyndavél sýnir sama tóma ramman aftur og aftur eins og í honum felist valmöguleiki. Skúlptúr á gólfi sem líkist vegakeilu sem not- aðar eru til að vara ökumenn við hættum reynist innihalda lágvært urr ef eyrað er lagt upp að. Stórt hljóðverk í kjallaranum spilar hljóð- tíðni sem endurspeglar tíðni manns- líkamans og virkar róandi. Lokaður glerkassi sem inniheldur kerfi upp- gufunar og útfellingar saltaðs vatns er verk sem þróast yfir sýningartím- ann. Í heild er sýningin óaðlaðandi og býður ekki upp á neitt sjónarspil eins og sýning Helga. Hins vegar felur hún í sér dýrslega eðlisávísun, tilfinningu fyrir hættulegum, kannski skapandi, krampakenndum viðbrögðum sem fæðast í þeim núll- punkti sem skapast þegar allri merkingu hefur verið eytt. Freistandi er að ímynda sér að sýningarnar séu ádeila á listastofn- unina eða listheim samtímans. Sér- staklega með tilliti til þess að Helgi og Pétur vinna báðir við það að hengja og stilla upp myndlist á ís- lenskum listasöfnum og koma þann- ig að listheiminum á margvíslegan hátt. Það er bara svo þreytt klisja að næsta freisting er að segja að þeir séu að deila akkúrat á þá klisju. Að vissu leyti eru ádeilur auðvelda leið- in, það er miklu auðveldara að sýna fram á tilgangsleysi, tómleika hræsni og fáránleika þess sem er heldur en að sýna fram á valkost og láta eitthvað gerast. Tilgangslausar tilraunir og leiðindi listarinnar MYNDLIST Kling og Bang gallerí, Laugavegi 21 Sýningin stendur til 4. mars. Opið fimmtudag til sunnudaga kl. 14–18 Markmið – Pétur Örn Friðriksson, Helgi Hjaltalín Morgunblaðið/Ásdís Innantómt „Hálfsmíðuð stand- klukka án klukkuverks áréttar hugmyndir um hið innantóma sem felst í yfirborði.“ Þóra Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.