Morgunblaðið - 01.03.2007, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
X-faxtorinn
Ég er svo hneyksluð á henni Ellý, í
X-faktorsþáttunum, að hún skyldi
senda heim systkinin, sem unnu hug
og hjörtu margra, þau stóðu sig al-
veg frábærlega. Þetta var ein hneis-
an. Og svo kórónaði hún allt með því
að senda Sigga frá Akureyri heim,
sem heillaði marga með fallegri
framkomu og góðum söng. Ég
myndi persónulega fara fram á að
hún véki sæti, og einhver sem vissi
hvað list væri, kæmi í staðinn. Páll
Óskar er fagmaður á sínu sviði og
heyrir maður það, en hann má alveg
hætta að auglýsa kynferði sitt í þátt-
unum. Einar Bárðarson finnst mér
vera heiðarlegur og vandur að virð-
ingu sinni.
Smá í sambandi við nagladekk;
sumir eru með þeim og aðrir á móti.
En hví keyrir fólk ekki á loftbólu-
dekkjum? Þau duga bæði vetur og
sumar og hafa engin áhrif á götur,
né eru mengunarvaldur.
Svanhildur Leósdóttir.
Tvær fyrirspurnir
Ég hef alltaf fengið fiski-afskurð
fyrir kisurnar mínar gefins í fisk-
búðum í mínu hverfi. En sameining
fyrirtækja hefur orðið til þess að það
er ekki í boði lengur þar sem ég hef
verslað. Er einhver sem veit hvar
hægt er að fá kattafisk fyrir lítið, ca.
100 kr. fullan poka.
Annað: Er það viðtekin venja að
nemandi í grunnskóla þurfi að gera
samning við umsjónarkennara um
að koma ekki of seint í skólann? Í
Laugarlækjarskóla er sá hátturinn
hafður á að umsóknarkennari gerir
samning við nemandann um að
koma ekki of seint í skólann. Ef
hann kemur of seint þá er barna-
verndarnefnd blandað í málið og
heimili viðkomandi barns athugað.
Og ef barn kemur of seint í tíma,
kannski 1-3 mínútur, er skrifað
skróp í kladdann, ekki of seint. Mig
langar að vita hvort þetta sé viðhaft í
fleiri skólum? Mig langar líka að
spyrja hvort yfirvöld haldi að þetta
sé til að hvetja börnin?
Laufey Elsa Sólveigardóttir.
Týndur köttur
Norski skógarkötturinn Silvio er
týndur. Býr á Brekkugötunni í
Hafnarfirði. Hann er lítill, loðinn,
steingrár með hvítan blett á bring-
unni og hvíta snoppu. Hann er ekki
með ól en er eyrnamerktur og gæf-
ur. Vinsamlegast hafið samband í
síma 660-1502, email: iris@lh.is.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þegar Víkverji ókeftir Ártúns-
brekku og Miklubraut í
vinnuna í gærmorgun,
var alveg greinilegt að
svifryk hafði minnkað
og útsýni aukist. Síðan
fékkst þessi upplifun
Víkverja staðfest með
mælingum síðar um
daginn. Göturnar voru
rakar og sýnilegt að
þar hafði „magn-
esíumbíllinn“ verið á
ferðinni með rykbindi-
efni. Raunar má ekki
gleyma fleiri hreins-
unartækjum frá borg-
inni en skiljanlegt er að
magnesíumbíllinn steli aðeins sen-
unnni.
x x x
Þó veltir Víkverji því fyrir sérhvort hann (og önnur hreinsi-
tæki) fari nógu vel inn í kverkar í
jaðri gatnanna því þar er grátt og
þykkt ryklag sem maður verður að
gæta sín mjög á að aka ekki yfir ef
ætlunin er að forðast að skaprauna
þeim sem á eftir kemur og hverfur í
rykmökkinn. En Víkverji ætti nú
ekki að vera kvarta, ekur á nagla-
dekkjum svo best er að taka til í eigin
garði.
Síðan vaknar sú spurning hvort
byggingaverktakar við niðurrif húsa
og margvíslegar ry-
kaukandi framkvæmdir
í borginni sleppi allt of
vel frá sinni ábyrgð á
meðan ökumenn á
nagladekkjum taka all-
an skellinn? Annað í
þessari rykumræðu allri
vakti furðu Víkverja á
mánudag 26. febrúar
þegar varað var við
miklu svifryki. Fallegur
dagur vissulega en
þrælmengaður og samt
kom upplýsingafulltrúi
Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar
fram og sagði að þá
væri gott að ferðast á
hjóli. Víkverji hefði ekki viljað hjóla
þennan dag í öllu rykinu, svo mikið er
víst. Kannski hefði þetta gengið ef all-
ir hefðu hjólað og lagt bílnum eða tek-
ið hann af nagladekkjum. Víkverji
hefur ekið á nagladekkjum í 3 mánuði
og er þetta fyrsti veturinn í 10 ár sem
hann notar nagladekk. Þessi um-
skipti komu til vegna þess að Víkverji
varð að aka úti á landi um áramótin
og þorði ekki öðru en taka nagladekk.
Þau víkja fyrir ögn umhverfisvænni
dekkjum á næstu dögum, það ákvað
Víkverji í ryklausu umferðinni í gær-
morgun. Hann borgarbúum, Reykja-
víkurborg og eiganda magn-
esíumbílsins, Hreinsitækni ehf., til
hamingju með árangurinn.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Hann veitti sálum vorum lífið og lét
oss eigi verða valta á fótum. (Sl. 66, 9.)
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þessar
brosmildu vinkonur,
Margrét Hlín Harð-
ardóttir, Jónína Þórdís
Karlsdóttir, Jóhanna
Kristín Jóhannsdóttir
og Kristín Heiða
Bjarnadóttir, allar að
verða 8 ára, héldu tom-
bólu og söfnuðu fyrir
lega fyrir og mun senda
peninginn til styrktar fá-
tækum börnum í Afríku.
Rauða krossinn alls
11.500 kr. Rauði kross-
inn þakkar þeim kær-
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.650 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 200 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 300 kr.
Í dag er fimmtudagur
1. mars, 60. dagur
ársins 2007
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BREAKING AND ENTERING kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 6 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 8 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 8 LEYFÐ
MAN OF THE YEAR kl. 10 B.i. 7 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 B.i. 12 ára
PERFUME: THE STORY OF A MURDERER kl. 10:10 B.i. 16 ára
BREAKING AND ENTERING kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 6 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
HANNIBAL RISING kl. 10:10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING
JUDE LAW JULIETTE BINOCHE ROBIN WRIGHT
Með “Íslandsvininum og sjarminum Jude Law” ásamt óskarsverðlauna leikkonunni Juliette Binoche
Frá leikstjóra English Patient og Cold Mountain
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
BYGGÐ Á
METSÖLU
SKÁLDSÖGU
PATRICK
SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
Stærsta opnun á fjölskyldumynd í Bandaríkjunum í ár
Frá þeim sömu og færðu okkur
Chronicles Of Narnia
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÓSKARSVERÐLAUN
m.a. besta leikonan í aukahlutverki2
eeee
VJV, TOPP5.IS
eeee
S.V., MBL.
eee
S.V., MBL.
Korthafar fá
2fyrir1
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða sent á
netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla, Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Læknar áPromises-
stofnuninni í
Malibu þar sem
Britney Spears
er nú í meðferð
telja að hún hafi
lagst í drykkju
vegna fæðing-
arþunglyndis.
Slúðurvefurinn TMZ.com hefur
eftir heimildamanni að læknar telji
þetta líklega ástæðu fyrir atferli
söngkonunnar undanfarið, en einnig
telji þeir koma til greina að hún sé
haldin tvíhverfri lyndisröskun.
Britney eignaðist son, Jayden
James, í september, eða réttu ári
eftir að hún eignaðist fyrsta barn
sitt, Sean Preston.
Fregnir herma að hún sé nú að
lesa bók Brooke Shields, Down
Came the Rain, þar sem Shields seg-
ir frá sinni eigin baráttu við fæðing-
arþunglyndi.
Sjónvarpsþáttaröð verður gerðum búferlaflutninga Viktoríu
og Davíðs Beckham frá Evrópu til
Ameríku. Framleiðandinn er Simon
Fuller, maðurinn á bak við Americ-
an Idol. Vanity Fair greindi frá
þessu í gær. Sjónvarpsstöðin NBC
hefur gert samning um sex hálfrar
klukkustundar langa þætti, sem ekki
verða gerðir samkvæmt handriti,
þar sem sýna á og segja frá öllu sem
því fylgir þegar stjörnur flytja
„stuðningsnet“ sitt, þ. á m. fjölmiðla-
fulltrúann, stílistann og einkaþjón-
inn, milli heimsálfa, og kaupa sér
nýtt hús og bíl, svo fátt eitt sé nefnt.
Þættirnir verða hugsanlega sýnd-
ir í sumar, að því er blaðið segir.
Fuller var framkvæmdastjóri
Kryddpíanna á sínum tíma, og segist
lengi hafa haft áhuga á að búa til
sjónvarpsþætti sem byggðir væru á
lífi Viktoríu. Sjálf hefur hún sagst
ánægð með samninginn og að hún
hlakki til að starfa á ný með Fuller.
Fólk folk@mbl.is