Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 52

Morgunblaðið - 01.03.2007, Síða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 1. MARS 60. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 200 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðaustan 5–13 m/s og víða él, þó síst vest- anlands. Frost 0–10 stig, kaldast verður í innsveitum. » 8 Heitast Kaldast 0°C -10°C ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Íslands lækkaði í gær, annan daginn í röð, og fylgdi þar fordæmi margra erlendra kauphalla. Lækkaði vísitalan um 1,47%. Hlutabréf héldu áfram að falla í verði í Asíu og Evrópu í kjölfar mikilla lækkana í kauphöllum á þriðjudag. Japanska Nikkei- vísitalan um 2,85% og kínverska Hang Seng-vísitalan um 2,46%. Hlutabréfa- vísitölur lækkuðu almennt í Evrópu, breska FTSE-vísitalan um 1,82%, þýska DAX um 1,53% og franska CAC um 1,29%. Norræn hlutabréf fóru ekki varhluta af þróun á heimsmarkaði og lækkuðu norræn- ar hlutabréfavísitölur allar, mismikið þó. Sænska vísitalan lækkaði um 2,13%, sú danska um 1,25% og sú norska um 1,7%. Atburðir þriðjudagsins hófust með hruni í kauphöllinni í Sjanghæ, en þá féll vísitala þeirrar kauphallar um ein 9%. Athygli vek- ur hins vegar að sú sama vísitala hækkaði um tæp 4% í viðskiptum gærdagsins. Bandarískar vísitölur héldu hins vegar sjó í gær og hækkuðu lítilsháttar, Dow Jon- es um 0,4%, Nasdaq um 0,3% og S&P 500- vísitalan um 0,5%. | Viðskipti Áfram órói í kauphöllum Morgunblaðið/Kristinn FJÓRÐA sinfónía Atla Heimis Sveinssonar verður heimsfrumflutt í tónlistarhöllinni Rudolf- inum í Prag undir lok mánaðarins. Það er Tékkneska fílharm- óníusveitin sem flytur verkið og er flutning- urinn liður í árlegri tón- listarhátíð sem að þessu sinni er að mestu helguð samtímatónskáldum frá Norðurlöndunum. Sinfóníuna samdi Atli Heimir í nágrenni Prag síðasta vor þegar hann dvaldi í lista- mannasetri í eigu hjónanna Ingibjargar Jó- hannsdóttur og Þóris Gunnarssonar, að- alræðismanns Íslands í Tékklandi. Þar hafa hjónin boðið íslenskum listamönnum að dvelja sér að kostnaðarlausu frá 2005. | 17 Fjórða sinfónía Atla flutt í Prag Atli Heimir Sveinsson Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is STARFSMENN Íslensku frið- argæslunnar sem vinna að sprengjueyðingu í Suður-Líbanon komu líbönskum hermanni sem sat fastur í flaki logandi bifreiðar til bjargar síðastliðinn þriðjudag. Friðargæsluliðarnir voru á leið heim til borgarinnar Týrus eftir langan vinnudag við sprengjuleit og -eyðingu þegar þeir sáu logandi bifreið sem oltið hafði út af veg- inum og farið margar veltur. Brugðu Íslendingarnir skjótt við og slökktu eldinn til að ráðrúm gæfist til þess að bjarga mann- inum úr flakinu. Með her- manninum í bifreiðinni var kona en henni hafði tekist að koma sér út úr bifreiðinni af sjálfsdáðum. Frið- argæsluliðarnir tóku að sér stjórn aðgerða á vettvangi og bráðatækn- ir úr íslenska hópnum sinnti með- ferð hinna slösuðu. Tvímenning- arnir voru að lokinni aðhlynningu fluttir á sjúkrahús í Týrus á sér- útbúnum sjúkrabíl hópsins. Reyndust áverkar konunnar minniháttar en hermaðurinn var nokkuð slasaður. Líðan þeirra er stöðug og eftir atvikum. Halda heim á leið í apríl Íslensku friðargæsluliðarnir í Suður-Líbanon eru þrír talsins, tveir þeirra eru sprengjusérfræð- ingar hjá Landhelgisgæslunni og einn bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þeim til að- stoðar eru bílstjóri og túlkur og ferðast hópurinn um á tveimur bíl- um, sérútbúnum sprengjuleitarbíl og sjúkrabíl. Hópnum er úthlutað verkefnum af Sprengjuhreins- unarmiðstöð Sameinuðu þjóðanna í Týrus og vinnur hann í nánu sam- starfi við Räddningsverket, hjálp- arstofnun á vegum sænskra stjórnvalda. Meginmarkmið sprengjuhreins- unarverkefnis Sameinuðu þjóð- anna er að hreinsa upp klasa- sprengjur eftir átök Ísraela og Hizbollah síðastliðið sumar. Talið er að um milljón klasasprengjur liggi á víð og dreif um suðurhluta landsins. Reiknað er með að hreinsuninni ljúki fyrir árslok, en íslensku friðargæsluliðarnir snúa heim í apríl. Björguðu hermanni úr logandi flaki Líbanon Starfsmenn friðargæslunnar vinna að sprengjueyðingu. Starfsmenn Íslensku friðargæslunnar vinna að sprengjueyðingu í Líbanon Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is STJÓRN Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur beðið lögmann félagsins að leggja fram kæru á hendur Kópavogsbæ vegna um- hverfisspjalla í Heiðmörk og er bótakrafan 38 milljónir króna. Um 1.000 tré skemmd Stefán P. Eggertsson, stjórnar- formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, segir að stjórnin hafi fengið skógfræðinga hjá Skóg- ræktarfélagi Íslands til að meta trjáskemmdirnar í Heiðmörk arsamtök Íslands fram kæru vegna umræddra umhverfis- spjalla en þá ákvað Skógræktar- félag Reykjavíkur að verða við ósk Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra í Reykjavík, og fresta því í viku að leggja fram kæru. Þá sagðist borgarstjóri vilja finna lausn á málinu og var bjart- sýnn á að sættir næðust. Stefán P. Eggertsson segir að stjórn Skógræktarfélags Reykja- víkur efist ekki um góðan vilja borgarstjóra en ekki hafi verið ástæða til að draga það enn frekar að senda kæruna inn. Skógrækt ríkisins hefur líka lagt inn kæru. vegna lagningar vatnsleiðslu fyrir Kópavogsbæ. Þeir hafi komist að þeirri niðurstöðu að um 1.000 tré gæti verið að ræða og auk þess hafi þeir talið að gera ætti bóta- kröfu upp á 38 milljónir króna. Fyrir viku lögðu Náttúruvernd- Bótakrafan 38 milljónir króna Í HNOTSKURN » Reykjavíkurborg ósk-aði eftir því 9. febrúar sl. að framkvæmdir í Heið- mörk vegna lagningar vatnsleiðslu fyrir Kópa- vogsbæ yrðu stöðvaðar og hafa þær legið niðri síðan. ÞEIR félagar Kári Hafsteinsson og Stefán Hauksson á bátnum Sleipni ÁR – 19 komu með um þrjú tonn eftir daginn af þorski og ýsu til Þorláks- hafnar í gær. Þeir sögðu að þoskurinn hefði verið óvenju vænn og fallegur. Þeir voru því afar ánægðir með daginn. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Óvenju vænn og fallegur þorskur TVEIR fulltrúar kanadíska olíufélagsins Irving Oil voru hér á landi í síðustu viku til að kanna möguleika félagsins til að hasla sér völl á smurolíumarkaðinum. „Við komum fyrst og fremst til Íslands til að kynna okkur markaðinn,“ segir Lou MacDonald í samtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins í dag, en hann starfar í markaðsdeild smurolíudeildar Irving- olíufélagsins. „Við vorum eingöngu að kanna markaðinn fyrir smurolíur en höf- um ekkert með bensín eða aðrar olíu- afurðir að gera.“ Fyrir 12 árum lýsti Irving-olíufélagið yfir áhuga á að byggja bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt birgðastöð. Eftir að hafa skoðað málið í rúmlega eitt ár hætti félagið við þessi áform. Matt Mannette, sem einnig starfar að markaðsmálum á smurolíudeild Irving- olíufélagsins, segir að þeir félagar hafi rætt við nokkra aðila hér á landi um hugs- anlegt samstarf og niðurstöður úr þeim viðræðum lofi góðu. | Viðskipti Irving-olíufélagið kannar smurolíu- markaðinn LETTNESKA flugfélagið LatChart- er, sem er í eigu Loftleiða Icelandic, dótturfyrirtækis Icelandair Group, hefur gert samning við flugfélagið Virgin Nigeria Airlines, dótturfyr- irtæki Virgin Atlantic Airways, um daglegt flug á tveimur breiðþotum af gerðinni Boeing 767-300ER, milli Lundúna og Jóhannesarborgar með viðkomu í Lagos í Nígeríu. Gert er ráð fyrir að flugið hefjist í apríl. Sigþór Einarsson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Icelandair Group og stjórnarformaður LatCharter, segir þetta stærsta samning félagsins til þessa. Andvirði hans sé um 7,3 milljarðar kr. á næstu fjórum árum. Í desember sl. var frá því greint að breska leiguflugfélagið Astraeus, sem er að 51% í eigu Fons, hefði gert samning við Virgin Airlines um að fljúga daglega fyrir félagið til Nígeríu og Jóhannesarborgar. Ekki varð hins vegar af samningum. | Viðskipti Samdi við Icelandair

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.