Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 18
18 F MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM Sjá nánar á www.fmeignir.is www.fasteignamidstodin.is FJÁRFESTAR BYGGINGAVERKTAKAR Hjá Fasteignamiðstöðinni er til sölu umtalsvert af framtíðar- byggingarlandi og lóðum í Reykjavík, og í nágrannasveitar- félögum. Einnig á Reykjanesi og í nágrenni við Selfoss, Hveragerði, Borgarnesi og Egilsstaði. Nánari uppl á skrifstofu FM (Magnús) Hlíðasmára 17 síma 550-3000. SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ Sölumenn FM aðstoða. Sjá mikinn fjölda eigna og mynda á fmeignir.is og mbl.is. Sími 550 3000 www.fasteignamidstodin.is Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-12 og 13-17.30 föstudaga kl. 9-12 og 13-17 SPÍTALASTÍGUR Erum með í sölu mikið endurnýjaða 113 fm hæð og kjallara (2 íbúðir) í eldra húsi í Þingholtunum. Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem vilja eign með sál. Verð 35,5 millj. 50513 BOÐAHLEIN - ELDRI BORGAR- AR Erum með í sölu endaraðhús auk bílskúrs í byggðakjarna DAS fyrir eldri borgara, á svæði Hrafnistu í Hafnarfirði. 60616 FROSTAFOLD - GRAFARVOG- UR Erum með í sölu 141 fm íbúð, 4 svefnh., á tveimur hæðum í 6 íbúða húsi við Frosta- fold. Íbúðinni fylgir 24,5 fm bílskúr. Mikið úsýni af suðursvölum. 40200 SÓLEYJARIMI Í sölu 112 fm íbúð á jarðhæð með sérinn- gang í nýju húsi. Stutt í þjónustumiðstöð- ina í Spönginni. Verð 28 millj. 30871 BLIKAHÖFÐI - MOSFELLSBÆR Erum með í sölu fallega 116 fm endaíbúð með sérinngang af svölum á þriðju hæð, auk 27 fm bílskúrs. Vandaðar innréttingar. Mikið útsýni. Verð 31,9 millj. 30876 KLEPPSVEGUR Erum með í sölu afar snyrtilega 119 fm íbúð á 4. hæð í vel við höldu fjölbýli. Arinn í stofu. Áhugaverð eign sem vert er að skoða. Verð 24 millj. 30877 ÞRASTARÁS - HAFNARFJ. Erum með í sölu á efstu hæð með miklu útsýni fallega 104 fm íbúð með sérinn- gang af svölum. 21178 SKÓGARÁS Erum með í sölu 2ja-3ja herb. 67 fm íbúð á jarðhæð við Skógarás. Mjög barnvænt umhverfi. Stutt í skóla og aðra þjónustu. Verð 16,5 millj. 21179 HRAUNBÆR Erum með í sölu nokkuð endurnýjaða 2 herb. íbúð á fyrstu hæð. Ný innrétting og tæki í eldhúsi, nýtt plastparket á gólfum. Ekkert áhvílandi. Verð 14,9 millj. 10865 BLIKASTÍGUR - ÁLFTANES Erum með í sölu áhugvert nýtt afar vand- að einbýlishús á sjávarlóð. Húsið er tilbúið til innréttinga. Aukaíbúð. Stór bílskúr. Verð 85 millj. 70958 ESJUGRUND - KJALARNES Vel staðsett einbýlishús með sjávarútsýni. 5 svefnherbergi, tvöfaldur bílskúr, ný eld- húsinnrétting. Verð 43,9 millj. 70946 4ra herbergja 5 herbergja Landsbyggðin 2ja herbergja Rað- og parhús Einbýli 3ja herbergja Hinrik Olsen • Páll Guðmundsson • Guðmundur Kjartansson • Hulda Heiðarsdóttir Karl Ómar Björnsson • Tinna Dahl Christiansen • Svanhildur Kristinsdóttir • Magnús Leópoldsson Hæðir JUNKARAGERÐI - REYKJA- NESBÆ Um er að ræða einb. Junkaragerði í Reykjanesbæ. Húsið er 166,2 timburhús, hæð og ris á steyptum kj. byggt árið 1930 en hefur allt verið meira og minna endurb. ÞINGVELLIR Erum með í sölu skemmtilega staðsett sumarhús í fögru umhverfi örstutt frá Þingvallavatni. Verð 9 millj. 130978 Máltæki eiga sína sögu,sum jafnvel margar,þannig þróast það meðtímanum eða í aldanna rás. Ein skýring er að baki máltæk- inu sem prýðir þennan pistil sem fyr- irsögn og er í stuttu máli þessi. Í litlu afskekktu þorpi í Þýskalandi var fyr- ir öldum framið morð, nokkuð sem ekki hafði gerst á þeim slóðum svo lengi sem elstu menn mundu. En að sjálfsögðu var yfirvald á staðnum, lík- lega hreppstjóri, sem rannsakaði málið og unni sér ekki hvíldar fyrr en sá seki var fundinn, hnepptur í dýfl- issu og þar játaði hann glæpinn. Þetta var reyndar smiðurinn á staðn- um, snillingur í höndum og eini smið- ur þorpsins. Að sjálfsögðu var hann dæmdur til hengingar en þetta var reiðarslag fyrir íbúana; að missa þennan eina smið sem þar að auki var svo góður fagmaður. Nú voru góð ráð dýr og settust öldungar á rökstóla um hvernig mætti bjarga málum. Einn var ráðsnjallari öðrum. Hann benti á að ekki mætti missa eina smiðinn í þorpinu. Hins vegar væru tveir bak- arar þar starfandi og það væri full- mikið, einn bakari bakaði meira en nóg fyrir alla. Lausnin var sú að þyrma lífi smiðsins en hengja annan bakarann í staðinn. Og það var gert. Það kom neyðarkall frá góðborg- ara sem var að endurbyggja hús sitt og sparaði ekkert. Eitt af því sem var valið var gólfhiti, sögðu ekki allir að það væri besta hitakerfið? Grönnum plaströrum var smellt í rásir á þunnri harðplastplötu. Eftir að búið var að tengja kerfið var hafist handa um að leggja endanlegt gólfefni sem óhætt væri að ganga á. Gegnheilt parket var límt á plastplöturnar en þá kárn- aði gamanið. Eftir skamman tíma frá parketlögn fóru að myndast rifur á milli borða og þau að verpast. Hvað var að gerast, lá það ekki í augum uppi? Gólfhitakerfið var auð- vitað drasl, því að láta draga sig inn í þessa déskotans tísku? En förum hægt, förum afar hægt. Nú skulum við ekki rasa að fullyrðingum því þá er alltaf hætta á að bakarinn fari í gálgann, en svo er einfaldlega til sú lausn að það verði enginn hengdur. Hins vegar er ekki nokkur vafi á að þarna höfðu verið gerð mistök en um- fram allt; ekki kenna gólfhitanum um að parketið gliðni og verpist, það er ekki hans sök. Ástæðan er einfald- lega hraðinn í húsbyggingum í dag, menn gleyma því að oft eru þeir með lífrænt efni í höndum, svo sem ein- hvers konar tré, sem verður að fá að aðlaga sig aðstæðum áður en það er þvingað í hlutverk. Sá sem þarna ger- ir mistök er sá sem leggur parketið, mjög líklega smiður sem þó sleppur vonandi við snöruna. Hvað er hægt að gera, þarf að rífa allt parketið upp? Nú eru til betri kunnáttumenn til að svara þessu en sá sem hér párar og það er einfaldlega óskað eftir því að slíkur sérfræðingur komi fram á sjónarsviðið og upplýsi alla þá sem kunna að lenda í þessu. Einn kunn- áttumaður sagði reyndar að ef þetta væri ekki mikil gliðnun eða verping mætti slípa parketið aftur og setja fyllingu í raufar, en umfram allt; ekki taka þetta sem hundrað prósent ráð- gjöf. En hengjum aldrei bakara fyrir smið. Svolítið meira um refsingar. Fyrir tæpum 4.000 árum var uppi valda- mikill þjóðhöfðingi er Hammúrabí hét í Mesópótamíu, sem nú er stríðs- hrjáða ríkið Írak þar sem Bush er að kenna innfæddum vestrænt lýðræði með einkavinum sínum við Atlants- haf. Hammúrabí setti mjög ákveðin lög sem einkenndust af „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“. Sem dæmi má nefna að ef byggingameistari reisti hús sem hrundi og banaði húsbónd- anum þá var byggingameistarinn þegar tekinn og líflátinn. Hins vegar ef þannig vildi til að húsbóndinn var ekki heima þegar húsið hrundi en húsfreyjan að elda kvöldverðinn og lét þar líf sitt var byggingameistarinn ekki líflátinn. Það var að sjálfsögðu kona hans sem mátti gjalda fyrir lát kynsystur sinnar með lífi sínu. Ef lög Hammúrabís væru í gildi hér á landi í dag má búast við að mörgum iðnaðarmönnum gengi slak- lega að fastna sér konu. Að hengja bakara fyrir smið LAGNAFRÉTTIR Sigurður Grétar Guðmundsson Gliðnun Þetta þarf ekki að gerast ef parketið er rétt meðhöndlað fyrir lögn og fær að aðlaga sig aðstæðum og réttu hitastigi siggigretar@internet.is Höfundur er pípulagningameistari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.