Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 F 49
SMÁRAFLÖT Eitt af þessum einstaklega vel
staðsettu einbýlishúsum neðst á Flötunum í
Garðabæ. Umhverfis húsið er fallegur og skjól-
sæll garður í mikilli rækt með fjölbreyttum trjá-
gróðri. Tvöfaldur bílskúr. Hiti er í stéttum og inn-
keyrslu að bílskúr. Húsið og bílskúrinn eru sam-
tals 243 fm að stærð. Lóð hússins er mjög stór
1.224 fm og býður upp á mikla möguleika.
FÍFUSEL Björt 4 herbergja 101 fm íbúð á 3. hæð
í Seljahverfinu. 3 svefnherbergi eru í íbúðinni,
góð stofa, eldhús með borðkrók og þvotthúsi inn
af. Baðherbergi með sturtu og baðkeri ásamt
góðu miðjuholi. Sérlega barnvænt umhverfi með
leiktækjum á lóð. Stutt er í alla þjónustu, skóla og
verslanir.
ÁLFKONUHVARF Glæsileg 3ja - 4ra her-
bergja, 110 fm, endaíbúð á 3. hæð í vönduðu
lyftuhúsi ofarlega í hverfinu með tvennum svölum
og fallegu útsýni til austurs og suðurs. Allur frá-
gangur innréttingar og tækja er vandaður. Íbúð-
inni fylgir gott stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist
í tvö svefnherbergi, tvær stofur, eldhús og bað-
herbergi.
SÓLEYJARIMIGlæsileg 3ja - 4ra herbergja,
107 fm, endaíbúð með sérinngangi. Íbúðinni fylgir
stæði í bílageymslu. Húsið er einangrað að utan
og klætt með báraðri álkæðningu. Stutt er í alla
þjónustu.
4 - 6 HERBERGJA
ÞÓRÐARSVEIGUR Ný glæsileg 4ra her-
bergja, 114 fm, endaíbúð á efstu hæð í nýju húsi
við Þórðarsveig í Reykjavík. Íbúðinni fylgir gott
stæði í bílageymslu rétt við stigaganginn. Aukin
lofthæð er í stofu ásamt stórum gluggum sem
gefur íbúðinni skemmtilegt yfirbragð. Mikið út-
sýni er úr íbúðinni. Allar innréttingar eru úr eik
og nýtt eikarparket er á gólfum. Íbúðin er til af-
hendingar við kaupsamning.
STRANDVEGUR Stórglæsileg 3ja herbergja,
100 fm, íbúð á efstu hæð í góðu lyftuhúsi með
bílastæðakjallara við Strandveg í Garðabæ. Auk-
in lofthæð er í íbúðinni, glæsileg gluggasetning
með gólfsíðum gluggum og samstæðum eikar-
innréttingar og gólfefnum. Fallegt útsýni og sjar-
merandi hverfi. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, tvö
svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
ÁLFKONUHVARF Mjög falleg og björt 3ja
herbergja, 102 fm, íbúð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin er
rúmgóð og nýtist sérlega vel enda öll hin glæsi-
legasta með vönduðum innréttingum og fallegum
gólfefnum. Íbúðinni fylgir stæði bílageymslu og
góð geymsla.
HRAUNBÆR Rúmgóð 3ja herbergja, 84 fm,
íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Suðvestur gafl húss-
ins hefur verið klæddur. Snyrtileg sameign og
sérlega barnvæn lóð er framan við húsið þar sem
er sameiginlegur leikvöllur fyrir börnin. Stutt er í
verslun, skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttir. Ný
eldvarnarhurð út á stigagang. Íbúðin skiptist í
miðjuhol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og
baðherbergi.
3 HERBERGI
REYKJAVÍKURVEGUR – LITLI SKERJAFJÖRÐUR
Björt og vel skipulögð 3ja herbergja, 77 fm íbúð
við Reykjavíkurveg í Reykjavík. Íbúðin er ákaf-
lega vel staðsett og með glæsilegu útsýni. Hún
er með aukinni lofthæð (4-5 m undir mæni) í
stofu og eldhúsi en hún er á efstu hæð í litlu, vel
viðhöldnu, fjölbýli. Stutt er í miðbæ Reykjavíkur
og þá er einnig stutt niður að strönd og ekki
langur gangur t.d. niður í Nauthólsvík. Eignin
skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnher-
bergi og baðherbergi. Verð: 24,9 milljónir.
FROSTAFOLD – GOTT SKIPULAG
Rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja, 85 fm
íbúð á 2. hæð í vel staðsettu húsi í Grafarvogin-
um. Íbúðin skiptist í 2 góð svefnherbergi, stofu,
eldhús, sjónvarpskrók og baðherbergi. Stutt er í
alla þjónusta, skóla og verslanir. Verð: 20,7 millj-
ónir.
STRANDVEGUR - SJÁLANDSHVERFI
Sérstaklega falleg íbúð í Sjálandshverfinu sem
vísar á móti suðri. Björt og falleg 3ja herbergja,
98 fm íbúð á efstu hæð, (3ju) í góðu viðhaldsfríu
lyftuhúsi með stæði í bílageymslu. Íbúðin er sér-
staklega vel skipulögð með fallegri gluggasetn-
ingu og góðum herbergjum.
LINDARBERG – FALLEGT ÚTSÝNI
Falleg og sérstaklega vel staðsett eign á þess-
um frábæra stað í Hafnarfirði. Húsið er staðsett í
rólegri götu með frábæru útsýni til suðurs og
vesturs. Allur frágangur að utan er til fyrirmynd-
ar og garðurinn er í góðri rækt. Að innan er hús-
ið sérlega snyrtilegt og vel skipulagt. Íbúðin er
155 fm með 4 svefnherbergjum, auk 26 fm bíl-
skúrs. Stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttir.
ÁLFHEIMAR – LAUGARDALURINN
Góð, vel skipulögð, 5 herbergja, 120 fm íbúð á 2.
hæð í góðu fjölbýli við Álfheimana. 3 svefnher-
bergi eru í íbúð og eitt í kjallara sem leigja má út.
Stofan er rúmgóð og björt. Tengi er fyrir þvotta-
vél í eldhúsi en sameiginlegt þvottahús er í kjall-
ara. Sameignin er öll nýlega standsett en meðal
annars var skipt um hurðir, málað og teppalagt.
Laugardalurinn er í næsta nágrenni með öllum
þeim útivistarmöguleikum sem hann býður upp
á. Stutt er í alla þjónustu, skóla og verslanir.
ÁSVALLAGATA – 101 REYKJAVÍK
Glæsileg 4ra herbergja, 135 fm íbúð á 1. hæð í
góðu steinhúsi á eftirsóttum stað. Með íbúðinni
fylgir rúmlega 17 fm forstofuherbergi. Íbúðin
hefur verið mikið endurnýjuð að innan. Baðher-
bergið hefur verið allt endurnýjað, ný gólfefni og
listar, nýjar ofnalagnir og ofnar að hluta og raf-
magn að hluta. Öll rými íbúðarinnar eru rúmgóð.
Íbúðin er frábærlega staðsett m.t.t. miðbæjar
Reykjavíkur.
GRÓFARSEL – ENDARAÐHÚS
4-5 herbergja, 176 fm raðhús á 3-4 pöllum á góð-
um stað í Seljahverfi. Stórar suðursvalir og stór
suðurverönd. Garðurinn er stærri en gengur og
gerist á svæðinu. 21 fm bílskúr er beint fyrir neð-
an við húsið. Að innan er kominn tími á breyting-
ar á gólfefnum og hugsanlega innréttingum.
Hverfið er kyrrlátt og gróið. Falleg eign með
mikla möguleika.
SKÚLAGATA Hlýleg og vel skipulögð 2ja her-
bergja, 67 fm íbúð á 7. hæð í góðu lyftuhúsi fyrir
60 ára og eldri. Íbúðinni fylgir stæði í bíla-
geymslu. Öryggishnappar eru í íbúðinni bein-
tengdir við Securitas. Þá er góð sameign, m.a.
matsalur og sauna í húsinu sem íbúar geta nýtt
sér. Sameign sem og húsið sjálft er í góðu standi.
Íbúðin skiptist í gang, sjónvarpshol, stofu, eldhús,
svefnherbergi, baðherbergi og þvotta-
hús/geymslu.
BRAGAGATAGlæsilegt lítið einbýli, 94 fm, við
Bragagötuna í Reykjavík. Húsið er á tveimur
hæðum ásamt risi. Á neðstu hæð er gott eldhús
og baðherbergi. Á miðhæðinni er falleg stofa
með arni en svefnloft er í risi. Eigninni hefur verið
vel við haldið og er því sérstaklega snyrtileg.
TJARNARBREKKA Stórglæsileg og einstak-
lega vel staðsett 265 fm og 295 fm einbýlishús á
einni eða tveimur hæðum við Tjarnarbrekku á
Álftanesi. Húsin tvö verða afhent tilbúin til inn-
réttinga. Alls eru 7 eða 8 herbergi fyrirhuguð í
húsunum tveimur og þar af eru 4 svefnherbergi
og 3 baðherbergi í þeim báðum. Húsin eru sér-
staklega glæsileg ásýndum og eru ákaflega vel
staðsett með tilliti til samgangna og útsýnis en
samt sem áður í mikilli nálægð við náttúruna.
SÉRBÝLI
Hafnarfjörður - Hraunhamar var að
fá í einkasölu vandað 262 fm einbýli
á góðum stað í Hafnarfirði, með
auka íbúð og innbyggðum bílskúr.
Lýsing efri hæð: Forstofa með flís-
um á gólfi. Rúmgott svefnherbergi
ásamt 3 góðum herbergjum. Bað-
herbergi með baðkari, flísalagt í hólf
og gólf, eldri innrétting en til er ný
innrétting sem er ekki uppsett. Úr
einu herbergjanna er gengið út á
góða verönd með heitum potti. Rúm-
góð stofa/borðstofa með fallegum
arni, loft í stofu er með halogenlýs-
ingu. Gott eldhús með vandaðri
hvítri Alno innréttingu, granítborð-
plata, vönduð gaseldavél, góður
borðkrókur. Á efri hæð er plankap-
arket á gólfum frá Agli Árnasyni.
Neðri hæð: ágætis stigi er til neðri
hæðar. Gott herbergi
með parket á gólfi.
Gangur með ágætis
vinnuaðstöðu. Rúm-
gott þvottahús flísa-
lagt. Frá gangi er
innangengt í góðan
bílskúr með dyraopn-
ara. Íbúð neðri hæð:
Góður inngangur í
forstofu. Opið rými
stofa og eldhús með
vandaðri innréttingu.
Rúmgott svefn-
herbergi. Snyrtilegt
baðherbergi með
sturtu, gólf flísalagt.
Í dag er opið á milli
íbúða. Sélega vandað einbýli/tvíbýli,
með möguleikum á góðum leigu-
tekjum. Góð staðsetning og fallegt
útsýni. Tilboða er óskað í eignina.
Keldu-
hvammur 10
Tilboð Hraunhamar er með í sölu þessa 262 fm eign í Hafnarfirði.