Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 28
28 F MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Einbýlishús 4ra–5 herbergja
Í Norðurtúni á Egilsstöðum og Breiðamel á Reyðarfirði eru til sölu glæsilega hönnuð
einbýlishús með bílskúr. Húsin eru klædd álklæðningu og að hluta með harðvið. Gluggar
eru álklæddir timburgluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds.
Húsunum er skilað fullbúnum að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er þeim skilað milli
þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga eða fullbúin án gólfefna.
Verð frá 23,5 millj.
Raðhús 3ja–4ra herbergja
Á Egilsstöðum og Reyðarfirði eru til sölu vönduð og falleg hús. Húsin eru klædd
álklæðningu og að hluta með harðvið. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Húsin
þarfnast því lágmarksviðhalds.
Húsunum er skilað fullbúnum að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er þeim skilað milli
þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga eða fullbúin án gólfefna.
Húsin eru 96–140 fm.
Verð frá 13,1 millj.
EGILSSTAÐIR – REYÐARFJÖRÐUR
Stórglæsileg fjölbýlishús
ÍAV reisa stórglæsileg fjölbýlishús við Sóltún 8–18. Húsin eru eru mjög vel staðsett í grónu íbúðahverfi, skammt frá allri þjónustu í
miðbænum og Kringlunni. Þá er helsta tómstunda- og útivistarsvæði Reykvíkinga, Laugardalurinn, í göngufæri við húsin. Húsin eru
nútímalega hönnuð af Hróbjarti Hróbjartssyni og Karli Magnúsi Karlssyni hjá VA arkitektum. Allur frágangur er sérlega vandaður.
Húsin eru á 4 til 7 hæðum. Tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi og innangengt er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í
stigagang og lyftu. Húsin eru einangruð að utan og klædd með álklæðningu og gluggar eru álklæddir trégluggar. Húsin þarfnast því
lágmarksviðhalds. Sameign verður fullfrágengin með flísum í anddyri og teppum á stigagöngum. Útihurð í stigagangi er úr áli og
með rafmagnsopnun.
Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð er meiri en almennt gerist. Flestar íbúðanna
hafa tvennar svalir. Við hönnun íbúðanna var sérstök áhersla lögð á þægindi fyrir íbúa. Hljóðeinangrun er eins og best verður á kosið
með tvöföldu gólfi og vönduðum innveggjum. Gólfhiti er í íbúðunum. Mynddyrasími tengdur anddyri er í öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög
vandaðar. Hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum.
Sjónvarps- og símatenglar eru í stofu, borðkrók og herbergjum. Í öllum íbúðum er tengikassi fyrir stjörnutengingu síma, loftnets,
tölvu og ljósleiðara.
Íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja, 83–156 fm.
Verð frá 25,1 millj. með sérstæði í bílageymslu
SÓLTÚN – REYKJAVÍK 2ja–4ja herbergja
Húsið vinstra megin er númer 8–12 og húsið hægra megin 14–18
www.iav.is
Kynning á húsi í byggingu
Sóltún 8–12
Nú er hafin sala á íbúðum
í húsum númer
8–12 í Sóltúni en
afhending þeirra er
í nóvember 2007.
Að því tilefni verðum
við með til sýnis
sambærilega, fullkláraða
íbúð 106 í Sóltúni
18, nk. þriðjudag
og miðvikudag
milli 16 og 18.
Verið velkomin –
sjón er sögu ríkari.