Morgunblaðið - 31.03.2007, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, átti á fimmtudag fundi
með bandarískum ráðamönnum í
Washington. Á þeim kom fram mik-
ill áhugi á því að sendinefndir banda-
rískra áhrifamanna kæmu til Íslands
á næstu mánuðum til að ræða sam-
starfsverkefni um endurnýjanlega
orku, baráttu gegn loftslagsbreyt-
ingum og samvinnu háskóla- og
tæknistofnana.
Fyrsti fundur forseta var með
Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings. Þar ræddi forseti
m.a. um framlag Íslands til nýtingar
á umhverfisvænni orku, ekki síst
jarðhita; tækifæri til að nýta hann í
Bandaríkjunum og mögulegt sam-
starf Íslendinga og Bandaríkja-
manna í umhverfis- og orkumálum.
Fundinn sat jafnframt Tom Lantos,
formaður utanríkismálanefndar full-
trúadeildarinnar. Þá ræddi forseti
við Harry Reid, leiðtoga meirihlut-
ans í öldungadeildinni, en Reid kem-
ur frá Nevada-ríki þar sem finna má
umtalsverðan nýtanlegan jarðhita. Á
fundi forseta með Barack Obama
öldungadeildarþingmanni, sem til-
kynnt hefur framboð sitt til embætt-
is forseta Bandaríkjanna, var eink-
um rætt um samstarf á sviði
endurnýjanlegrar orku víða um
heim, samvinnu Íslendinga og
Bandaríkjamanna og hvernig mögu-
legt væri að breyta fyrrum herstöð-
inni í Keflavík í alþjóðlega háskóla-
og rannsóknarmiðstöð. Obama lýsti
áhuga sínum á því að sækja Ísland
heim til að kynna sér betur hvernig
Íslendingar hefðu komist í fremstu
röð þjóða heims með því að skipta út
kolum og olíu fyrir endurnýjanlega
orkugjafa.
Forseti átti einnig viðræður við
Alexander Karsner, aðstoðarorku-
málaráðherra Bandaríkjanna, öld-
ungadeildarþingmennina Tom
Harkin frá Iowa og Jon Tester og
fulltrúadeildarþingmennina Rick
Boucher úr orkumálanefnd deild-
arinnar og Ed Markey sem stýrir
nýrri nefnd um loftslagsbreytingar
og orkumál, en sú nefnd hyggur á
kynnisferð um norðurslóðir á næstu
mánuðum.
Obama vill heimsækja Ísland
Ólafur Ragnar
ræddi við þingmenn
í Washington
Viðræður Barack Obama öldungadeildarþingmaður og Ólafur Ragnar
Grímsson ræddu m.a. um samstarf á sviði endurnýjanlegrar orku.
RÁÐSTEFNUGESTIR á Hótel Nordica sóttu margir
hverjir fjölmargar málstofur en slíku fylgja miklar set-
ur. Það var því kærkomið fyrir gesti er þeim gafst tæki-
færi til að teygja úr sér milli atriða og hreyfa kroppinn.
Í gær stjórnaði Sandra Dögg Árnadóttir sjúkraþjálfari
léttri leikfimi á ráðstefnunni og tóku fjölmargir þátt í
henni. Í fyrradag bauðst fólki að hreyfa sig undir
afrískum trumbuslætti kennara úr Kramhúsinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Teygðu úr sér á milli málstofa
ÍSLENDINGAR undirrituðu í gær
samning Sameinuðu þjóðanna um
réttindi fatlaðra. Samningurinn var
undirritaður í New York og það var
Harald Aspelund, fulltrúi fasta-
nefndar Íslands hjá SÞ, sem skrifaði
undir hann fyrir Íslands hönd.
Fylgst var með undirrituninni í
beinni útsendingu á ráðstefnu um fé-
lagslega þjónustu á Hótel Nordica.
Þau ríki sem undirrita samninginn
skuldbinda sig til að innleiða mæli-
kvarða sem efla mannréttindi fatl-
aðra og koma í veg fyrir mismunun.
Í ágúst 2006 náðist samkomulag
hjá SÞ um drög að samningnum. Yf-
ir 100 þátttökulönd ákváðu að leggja
samningsdrögin fyrir allsherjar-
þingið til samþykktar.
Í meirihluta ríkjanna er ekki fyrir
hendi sérstök löggjöf um málefni
fatlaðra.
Samning-
ur SÞ und-
irritaður
Á að efla mann-
réttindi fatlaðra
Um 600 manns ræddu um framtíð félagslegrar þjónustu á ráðstefnu í Reykjavík
LÍÐAN Dorritar Moussaieff, eig-
inkonu forseta Íslands, er eftir at-
vikum góð, en hún lærbrotnaði þeg-
ar hún var á skíðum í Aspen í
Colorado-ríki í Bandaríkjunum.
Ólafur Ragnar Grímsson breytti
ferðaáætlun sinni í gær og flaug til
Aspen þar sem Dorrit er að jafna
sig á sjúkrahúsi. Ólafur hefur verið
á fundum með ráðamönnum í
Washington síðustu daga.
Örnólfur Thorsson forsetaritari
sagði að forsetinn myndi dvelja hjá
Dorrit fram á sunnudag og halda
síðan til Columbus í Ohio, þar sem
hann flytur fyrirlestur, og síðan í
Harvard-háskóla í Massachusetts
áður en haldið verður heim á leið á
miðvikudaginn.
„Forsetafrúin er fær skíðakona
en hún lenti víst í harðfenni við erf-
iðar aðstæður og í kjölfarið lenti
hún í þessu skíðaslysi,“ sagði Örn-
ólfur.
Ekki liggur fyrir hvenær Dorrit
kemur til Íslands, en ákvörðun um
það verður tekin í samráði við
lækna.
Lærbrotnaði á
skíðum í Aspen
Óhapp Dorrit Moussaieff er nú á
sjúkrahúsi í Colorado.
SAMKOMULAG
náðist í gær í sér-
fræðinganefnd
allra aðildarríkja
Evrópuráðsins
um tillögu að
bindandi samn-
ingi um vernd
barna gegn kyn-
ferðisofbeldi og
kynferðislegri
misneytingu.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, var fulltrúi Ís-
lands í þessari vinnu. Að hans mati
er samningurinn sérstakt fagn-
aðarefni, ekki síst þar sem öll meg-
insjónarmið sem liggja til grund-
vallar starfsemi Barnahúss hafa nú
hlotið alþjóðlega viðurkenningu og
barnahússins er sérstaklega getið í
skýringum með samningnum.
Stefnt er að því að samningurinn
hljóti formlega afgreiðslu hjá Evr-
ópuráðinu síðar á þessu ári. Barna-
verndarstofa segir að gangi það
eftir sé um að ræða fyrsta alþjóða-
samning sinnar tegundar.
Samningur um
vernd barna
Bragi
Guðbrandsson
FRAMKVÆMDARÁÐ Reykjavík-
urborgar hefur samþykkt aðgerða-
áætlun vegna endurbóta á svo-
nefndum vástöðum í borginni, í
samræmi við umferðaröryggis-
áætlun borgarinnar fyrir árin
2002–2007.
Vástaðir eru þeir staðir í gatna-
kerfinu í Reykjavík þar sem óeðli-
lega mörg slys eða óhöpp hafa orð-
ið á undanförnum árum.
Áætlaður kostnaður nemur rúm-
um 52 milljónum króna og þar af
fara 23 milljónir í ný verkefni.
Stuðst var við tölfræði um slys í
íbúðahverfum við val á verkefnum
en einnig var tekið tillit til óska sem
borist hafa frá íbúum sem búa ná-
lægt vástöðunum.
Á verkefnalistanum, sem fram-
kvæmdaráðið hefur látið taka sam-
an, ber mest á hraðahindrunum og
þrengingum við gatnamót.
Endurbætur
á vástöðum
Hún segir að áður hafi verið reynt
að flytja þjónustu við fatlaða yfir til
sveitarfélaganna og fyrir nokkrum
árum hafi sú hugmynd verið komin á
lokastig. „Við ætlum að gera núna
aðra tilraun. Það sem er áhugavert er
að það virðist vera mjög mikill áhugi
úti í samfélaginu á umfjöllun um þessi
mál. Við erum að tala um að bæta og
breyta þjónustu við geðfatlaða og það
er í ferli. Það er mikil umræða um
þjónustu við aldraða og að það beri að
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ALLT að 600 manns tóku þátt í um-
fangsmikilli ráðstefnu um stefnu og
strauma í félagslegri þjónustu sem
lauk í gær á Nordica hóteli. Að ráð-
stefnunni stóðu félagsmálaráðuneytið
og fleiri aðilar. Ragnhildur Arnljóts-
dóttir ráðuneytisstjóri segir þátttök-
una hafa verið framar björtustu von-
um. Fyrri daginn hafi um 500–600
manns sótt ráðstefnuna og í gær hafi
meira en 400 manns tekið þátt í fjöl-
mörgum málstofum.
„Það sem mér hefur fundist áhuga-
verðast sjálfri er hvað það komu
margir utan af landi og gáfu sér
tíma,“ segir Ragnhildur um ráðstefn-
una. Þar hafi komi saman
fólk úr ýmsum geirum sem á það
sameiginlegt að vinna að félagslegri
þjónustu, m.a. fólk sem starfar fyrir
fatlaða, og starfsfólk í heilbrigðis- og
geðheilbrigðisþjónustu. „Svo heyrð-
um við raddir aldraðra, en Margrét
Margeirsdóttir, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík, var með
innlegg.“ Þá hafi
formenn annarra
hagsmunasam-
taka, á borð við Ör-
yrkjabandalagið
og Þroskahjálp,
sagt frá sínum við-
horfum til fé-
lagslegrar þjón-
ustu. „Einnig
fengum við erlenda
fyrirlesara, m.a. frá Skotlandi og
Danmörku.“
„Við höfum verið að vinna að
stefnumótun í málefnum fatlaðra sem
við teljum að geti orðið góður grunn-
ur að þeirri umræðu sem nú er að
hefjast um hugsanlegan verkefna-
flutning frá ríki og til sveitarfélag-
anna,“ segir Ragnhildur. Félagsmála-
ráðuneytið hafi fengið það hlutverk að
stýra þeim verkefnum sem nú eru að
hefjast í samvinnu við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga. „Við teljum að
ráðstefna af þessu tagi geti verið gott
innlegg í það starf sem við erum að
hefja í félagsmálaráðuneytinu,“ segir
Ragnhildur.
stuðla að því að flestir geti búið heima
sem lengst. Það gera margir mjög
góða hluti úti um land og á höfuðborg-
arsvæðinu hafa menn verið að gera
ýmsar tilraunir með að samþætta
þjónustu.“
Nógu vel hlúð að börnum?
Fjöldi fyrirlesara flutti fyrirlestra á
ráðstefnunni. Ragnhildur segir að það
sem standi upp úr eftir að hafa fylgst
með henni sé sú staðreynd að fjöl-
margt fólk vinni faglega að málum
sem tengjast félagslegri þjónustu. Er-
indi Sigrúnar Júlíusdóttur, prófessors
í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands,
hafi verið áhugavert en yfirskrift þess
var Velferð sem virkar. „Hún fjallaði
um börn og unglinga á Íslandi í dag.
Mér finnst það vera svið sem við þurf-
um að sinna betur,“ segir Ragnhildur.
Fram hafi komið hjá Sigrúnu að hér
væri fæðingartíðni há, dánartíðni ung-
barna nánast engin. Sigrún hafi bent á
að hér væri vinnutíminn langur og at-
vinnuþátttaka kvenna mikil. Íslend-
ingar þyrftu að spyrja sig að því hvort
nægilega vel væri hlúð að börnunum.
Gott innlegg í stefnumótunar-
vinnu um málefni fatlaðra
Ragnhildur
Arnljótsdóttir
Í HNOTSKURN
» Á ráðstefnunni, sem baryfirskriftina Mótum fram-
tíð, var rætt um ýmsa þætti fé-
lagslegrar þjónustu.
»Félagsmálaráðuneytið,Velferðarsvið Reykjavík-
urborgar, Rannsóknarsetur í
barna- og fjölskylduvernd við
Félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands, Rauða kross Íslands, Ís-
Forsa og fjölmargir hags-
munaaðilar, stóðu að henni.