Morgunblaðið - 31.03.2007, Page 30
hönnun
30 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Svart/hvíti draumurinn er eins og þráhyggja í tískuheiminum. Hann er vitaskuldklassískur en öðru hverju blossar hann upp, blómstrar í ótrúlegustu formum ogflottheitum. Svoleiðis er það árið 2007. Draumurinn er alls staðar í fatnaði og fylgi-
hlutum, húsgögnum og húsmunum. Það er ekki annað hægt en að hrífast með og láta sig
dreyma í svart/hvítu.
Það er einfaldleikinn og andstæðurnar í tvennunni sem gefa henni hið fágaða yfir-
bragð, svalan stílinn. Hið svart/hvíta getur samt um leið verið dramatískt – og það er ekki
takmarkandi. Það fer vel með öðrum litum, jafnt gylltum sem silfruðum eða litsterkum
eins og sterkbleikum, límónugrænum og rósrauðum, túrkísbláum eða appelsínugulum.
Svart/hvíti draumurinn nýtur sín hvað best í fallegum formum og skemmtilegum
mynstrum og samsetningum. Fólk með minimalískt formskyn fellur í stafi yfir aðdáun-
arverðri naumhyggjunni í forminu, sem litirnir svartur og hvítur ná enn sterkar fram.
Þeir sem eru „maxímal“ dá svart/hvíta espressó-blómabollann sinn. Fegurðin í svart/
hvíta draumnum er sú, að hún er fyrir alla.
Töff Tímaritahirsla, 8.900
kr. Tekk-Company.
Háglans Hliðar-
borð, 24.900 kr.
Habitat.
Klassík Sófi,
216.000 Natuzzi.
Morgunblaðið/Ásdís
Andstæður Púði, 3.700 kr. Ego Dekor.
Fágun og rómantík Kertastjaki,
4.950 kr. kertahringur, 650 kr.
kerti, 250 kr. Lene Bjerre.
Svart/hvíti
draumurinn
Blómstrandi Tveir
espressó bollar í
öskju, 2.380 kr.
Garðheimar.
Formfegurð Lampa-
fótur, 6.500 kr.
skermur, 5.900 kr.
Habitat.